Morgunblaðið - 07.02.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. FEBRÚAR 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
– fyrst og fre
mst
ódýr!
SÉRVÖRU-
ÚTSALA
– komdu og g
erðu
frábær kaup
!
300
krón
ur
100
0
kró
nur
500krónur
100krónur
í Krónunni Lindum, Granda, Akranesi, Mosfellsbæ og á Selfossi
verð!
4
Talsverður áhugi var fyrir verkum á listmuna-
uppboði sem haldið var í Galleríi Fold í gær. Dýr-
asta verkið, olíumálverk eftir Karl Kvaran, var
slegið á 3,8 milljónir og seldust nær öll verkin 108
sem boðin voru upp. Tryggvi Páll Friðriksson,
listmunasali og uppboðshaldari, segir ávallt mikla
eftirsókn eftir myndum gömlu meistaranna, svo
sem Kjarvals og Ásgríms, en upp á síðkastið hafi
abstraktið einnig verið að sækja í sig veðrið. Verk
eftir listafólk á borð við Þorvald Skúlason, Nínu
og fleiri listamenn sem voru að mála upp úr miðri
síðustu öld, hafi reynst afar eftirsótt.
Morgunblaðið/Kristinn
Dýrasta verkið slegið á 3,8 milljónir
Hólmfríður Gísladóttir
holmfridur@mbl.is
Um 200 hesthúsaeigendur í
Reykjavík sóttu í gærkvöldi fund í
félagsheimili Hestamannafélagsins
Fáks þar sem rætt var um hækkun
fasteignagjalda á hesthús í borg-
inni. Að sögn Rúnars Sigurðssonar,
starfandi formanns félagsins, var
fundurinn upplýsandi og málefna-
legur en þó augljóslega hiti í fólki.
Rúnar segir málið allt frekar
klúðurslegt, ekkert erindi hafi til
að mynda verið sent til hesthúsa-
eigenda né bókað um málið í borg-
arráði eða borgarstjórn. „Það er
líka athyglisvert að þarna sé ákveð-
ið að setja iðnaðarhúsaskatt á hest-
húsin, sem eru þó á svæði sem
borgin skilgreinir sem frístunda-
og útivistarsvæði,“ segir Rúnar.
Hann segir umræðuna um
hvernig skattleggja beri hesthúsin
ekki nýja af nálinni en ekki hafi
tekist að samræma reglur á lands-
vísu. Sér virðist vilji vera til þess
hjá borginni að bakka með málið
en borgaryfirvöld skorti til þess
leiðir.
„Fulltrúi borgarinnar á fundin-
um, Sigurður Björn Blöndal, sagði
að ef við gætum bent honum á
lagalega leið til að breyta þessu
eða seinka þessu þá myndi hann
gera það,“ segir Rúnar.
Það hyggist hesthúsaeigendur
reyna. Þeir munu funda með full-
trúa innanríkisráðuneytisins á
morgun og málið verður tekið fyrir
í borgarráði á fimmtudag. „Það er
vilji til að breyta þessu en menn
virðast vera í pattstöðu,“ segir
Rúnar.
Iðnaðarhúsnæði á frístundasvæði
Hesthúsin nú flokkuð sem iðnaðarhúsnæði en standa á svæði sem borgin skilgreinir sem frístunda-
og útivistarsvæði í deiliskipulagi Segjast viljug til að bakka með skattinn en vísa í lög og reglur
Morgunblaðið/Ómar
Fákur Hesthúsaeigendur hlýddu á fulltrúa borgarinnar útskýra skatta-
hækkunina en þeir hafa þungar áhyggjur af áhrifum hennar.
Hesthúsaskattur
» Reykjavíkurborg ákvað að
hækka fasteignaskatt á hesthús
í borginni úr 0,225% af fast-
eignamati í 1,65%.
» Fyrir meðaleign hækkar skatt-
urinn úr rúmum 16 þúsund krón-
um í 134 þúsund krónur á ári.
» Borgin segir sér skylt að
hækka skattinn til samræmis við
úrskurð yfirfasteignamats-
nefndar.
» Verið að skattleggja hesta-
mennsku úr þéttbýlinu, segir
formaður Landssambands
hestamannafélaga.
„Það væri æskilegt að klára þetta í
vikunni,“ sagði Ármann Kr. Ólafs-
son, oddviti sjálfstæðismanna í
Kópavogi, um viðræður um myndun
nýs meirihluta þar í bæ. Fundur var í
gær og kvaðst Ármann reikna með
að aftur yrði fundað í dag.
Hann sagði að nú væri verið að
láta athuga ýmis atriði og afla svara
við ýmsum spurningum sem upp
hafa komið. Ármann vildi ekki tjá sig
neitt um skiptingu nefnda eða emb-
ætta né heldur um það hver yrði
bæjarstjóri. Hann sagði að góður
andi hefði verið í viðræðunum.
Formlegar viðræður Sjálfstæðis-
flokks, Framsóknarflokks og Y-lista
Kópavogsbúa um myndun nýs bæj-
arstjórnarmeirihluta hófust fimmtu-
daginn 2. febrúar síðastliðinn.
Flokkarnir þrír eru samtals með sex
af ellefu bæjarfulltrúum. Sjálfstæð-
isflokkur er með fjóra fulltrúa en
Framsóknarflokkur og Y-listi Kópa-
vogsbúa með einn fulltrúa hvor.
Áður en þessar viðræður hófust
höfðu Sjálfstæðisflokkur, Samfylk-
ing og VG rætt myndun meirihluta.
gudni@mbl.is
Góður andi í viðræðum um
nýjan meirihluta í Kópavogi
Ekkert enn gefið upp um hver verður nýr bæjarstjóri
Morgunblaðið/Ómar
Kópavogur Fyrri meirihluti í bæjarstjórn Kópavogs féll 17. janúar s.l. Síðan
þá hafa verið gerðar nokkrar tilraunir til að mynda nýjan meirihluta.
Eldur kom upp í einbýlishúsi við
Eikjuvog í Reykjavík gærkvöldi.
Slökkvilið kom fljótlega á vettvang
og náði innan skamms tökum á eld-
inum.
Íbúunum sem eru eldri hjón tókst
að loka herberginu þar sem eldurinn
kom upp og komu þau þannig í veg
fyrir að hann næði að breiðast út um
húsið.
Þau komust út af eigin rammleik
og sakaði þau ekki. Að sögn varð-
stjóra logaði gríðarlegur eldur í her-
berginu og urðu afar miklar
skemmdir. Alls tóku um 10 slökkvi-
liðsmenn þátt í aðgerðunum og lauk
slökkvistarfinu um kl. 21.
Miklar
skemmdir í
eldsvoða
Morgunblaðið/Kristinn
Slökkvistarf Miklar skemmdir
urðu vegna elds og reyks í húsinu.