Morgunblaðið - 08.02.2012, Qupperneq 1
M I Ð V I K U D A G U R 8. F E B R Ú A R 2 0 1 2
Stofnað 1913 32. tölublað 100. árgangur
BÝR TIL BRÚÐUR
EFTIR TEIKNING-
UM BARNA
SETUR UPP
MJALLHVÍTI Í
LOS ANGELES
MEÐ TILBOÐ FRÁ
ODENSE Í
DANMÖRKU
ANDREA ÖSP 32 ÁGÚST JÓHANNSSON ÍÞRÓTTIRGUÐMUNDUR LISTAMAÐUR 10
Sigrún Rósa Björnsdóttir
Hólmfríður Gísladóttir
Félag leikskólakennara hefur tilkynnt Reykjavík-
urborg formlega að það hyggi á málsókn, láti
borgaryfirvöld verða af því að fella niður
greiðslur vegna neysluhlés. Þrír leikskólastjórar
ákváðu að skrifa ekki undir bréf þar sem starfs-
mönnum FL var sagt upp neysluhléinu en þeir
eru um 30% af starfsmönnum leikskólanna.
Starfsmenn í öðrum stéttarfélögum fá greiðsl-
urnar áfram.
„Grundvallaratriðið er að það er engin bókun
um þetta í kjarasamningum,“ segir Lilja Eyþórs-
dóttir, leikskólastjóri á Klettaborg, en hún var ein
þeirra sem ekki skrifuðu undir. „Enda hefðu fé-
lagsmenn hér í Reykjavík þá varla samþykkt slíka
samninga.“ Ákvörðunin var tekin í nóvember síð-
astliðnum og sagði Haraldur Freyr Gíslason, for-
maður FL, þá engu líkara en verið væri að refsa
leikskólakennurum fyrir að ná góðum samning-
um. Félagið mundi ekki taka þessu þegjandi.
MMálshöfðun verði neysluhlé afnumið »18
Neysluhléið samsvarar tíu yfirvinnutímum,
sem leikskólastarfsfólk hefur fengið greidda frá
árinu 2007 fyrir að borða hádegismat með börn-
unum. Nú á hins vegar að fella greiðslurnar til fé-
laga FL niður en þar sem félagið hafi samið um
umtalsvert meiri kjarabætur en önnur stéttar-
félög sé ekki um mismunun að ræða.
Bæði Oddný Sturludóttir, formaður skóla- og
frístundaráðs, og Bjarni Brynjólfsson, upplýs-
ingastjóri Reykjavíkurborgar, hafa sagt að ljóst
hafi legið fyrir að við kjarabæturnar yrði neyslu-
hléið látið niður falla hjá félögum FL.
Undirbúa málshöfðun
Félag leikskólakennara segir borginni stríð á hendur Aldrei samið um afnám
neysluhlés Þrír leikskólastjórar hafa neitað að skrifa undir uppsagnarbréfin
Lítill drengur leit í gegnum bílrúðu þar sem dropar perluðu eins og tár í
slagviðrinu í gær. Mikið hvassviðri með úrkomu gekk yfir suðvesturhornið
og olli það meðal annars miklum töfum á afgreiðslu flugvéla á Keflavík-
urflugvelli. Um 520 farþegar þurftu að bíða í flugvélunum þar til lægði.
Veðrið gekk svo norður yfir landið vestanvert og í gærkvöldi var orðið
hvasst allt frá norðanverðu Snæfellsnesi og norður úr. »2
Morgunblaðið/RAX
Guðað á tárvotan glugga
Landgræðslustjóri varar ein-
dregið við því að þekkingarsetri á
Kirkjubæjarklaustri verði valinn
staður í farvegi Skaftár. Telur
hann að lítið þurfi að hækka í ánni
til þess að hún flæmist yfir bakka-
vörn og yfir fyrirhugað bygging-
arsvæði.
Skaftárhreppur og stofnanir rík-
isins undirbúa byggingu þekking-
arseturs. Það á að hýsa gestastofu
Vatnajökulsþjóðgarðs, stjórnsýslu
sveitarfélagsins, Kirkjubæjarstofu,
nýtt Erró-setur og ýmsar fleiri
stofnanir. Skaftárhreppur á ekkert
byggingarland á Kirkjubæj-
arklaustri en fékk lóð í nágrenni fé-
lagsheimilisins sem hreppsnefnd
telur ákjósanlega. Sveitarstjórinn
telur að byggingin standi það hátt
að henni stafi ekki hætta af flóðum
en þó hefur verið ákveðið að gera
verkfræðilega úttekt á lóðinni
vegna athugasemda. »4
Varað við byggingu þekkingarseturs
í flóðfarvegi Skaftár á Kirkjubæjarklaustri
Frá Kirkjubæjarklaustri
Ríkissjóður mun
verja 90-150
milljónum króna í
að fjarlægja PIP-
brjóstapúða úr
öllum konum sem
hafa fengið þá
ígrædda hér-
lendis. Aðgerð-
irnar verða fram-
kvæmdar á
næstu sex mán-
uðum en ekki verður í boði að fá nýja
púða í sömu aðgerð.
„Spítalinn hefur aldrei verið með
fegrunaraðgerðir og því teljum við
eðlilegt að vísa á viðkomandi lækni
ef konurnar vilja fá nýja púða,“ segir
Guðbjartur Hannesson velferðar-
ráðherra.
„Þeir ætla ekki að veita konunum
heimild til að kaupa sjálfar púða til
að setja inn í aðgerðinni. Ég er ekki
sátt,“ segir Saga Ýrr Jónsdóttir, lög-
maður þeirra áttatíu kvenna sem
hyggjast höfða mál vegna PIP-
púðanna. »14
Fá ekki nýja
púða í sömu
aðgerðinni
Guðbjartur
Hannesson
Tekjur sam-
skiptavefjar-
ins Facebook
námu 3,7
milljörðum dollara í fyrra en fyr-
irtækið er metið á um 80-100 millj-
arða dollara. Er þá fyrst og fremst
verið að horfa til vaxtarmöguleika
þess en áætlað er að 3 milljarðar
manna verði nettengdir árið 2016.
Árið 2010 voru 1,6 milljarðar net-
tengdir.
Notendur Facebook eru nú alls
845 milljónir talsins og þeirra á
meðal eru 68% íslensku þjóð-
arinnar. Þrátt fyrir það virðast ís-
lensk fyrirtæki lítið auglýsa á
þessum áhrifamikla miðli. » 16
Auglýsa lítið
á Facebook
68% Íslendinga
eru meðal notenda
Aflaskipið Börkur NK 122 hefur
komið með um 1,5 milljónir tonna
að landi frá því að Síldarvinnslan í
Neskaupstað keypti skipið fimm
ára gamalt árið 1973. Ekkert ís-
lenskt skip mun hafa komið með
jafnmikinn afla að landi.
Börkur fær í dag nafnið Birting-
ur og heldur áfram loðnuveiðum út
vertíðina, en þá verður tekin
ákvörðun um framhaldið. Nýr
Börkur, áður norska skipið Torbas,
er væntanlegur til Norðfjarðar fyr-
ir hádegi í dag.
Sextán af 24 íslenskum upp-
sjávarskipum eru smíðuð fyrir 1990
og þrjú þau elstu árið 1960. »9
Aflaskipið Börkur NK 122 hefur komið
með um 1,5 milljónir tonna að landi
Ljósmynd/ Guðlaugur Birgisson
Breytingar Börkur verður Birtingur
Verð á bensíni
hækkaði í gær-
kvöldi og fór
verðið á hverjum
lítra af 95 okt-
ana bensíni í
sjálfsafgreiðslu á
Shellstöðvunum
yfir 250 krónur
og kostaði
250,90 krónur. Dísilolían kostaði
258,80 krónur hjá Shell.
Önnur olíufélög höfðu ekki
hækkað verðið á ellefta tímanum
í gærkvöldi samkvæmt upplýs-
ingum frá afgreiðslustöðvum Olís
og N1.
Bensínið komið yfir
250 kr. þröskuldinn