Morgunblaðið - 09.02.2012, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
Drög að málefnasamningi og sam-
starfsyfirlýsingu bæjarfulltrúa
Sjálfstæðisflokks, Framsóknar-
flokks og Lista Kópavogsbúa um
stjórnun bæjarins liggja fyrir. Odd-
vitar flokkanna sátu á fundi fram
eftir kvöldi í gær.
Drögin verða kynnt á fundum full-
trúaráða flokkanna næstu daga.
Ómar Stefánsson, bæjarfulltrúi
framsóknarmanna, sagði við mbl.is í
gær að hann mundi kynna sam-
starfsyfirlýsinguna í fulltrúaráði
flokksins í dag. Hann sagðist ekki
greina frá efni samninganna fyrr en
hann hefði náð að kynna þá flokks-
fólki.
Kópavogur hefur verið án meiri-
hluta frá því fyrir miðjan janúar að
meirihlutasamstarf Samfylkingar-
innar, VG, Lista Kópavogsbúa og
Næst besta flokksins sprakk vegna
ágreinings um vinnubrögð við upp-
sögn Guðrúnar Pálsdóttur bæjar-
stjóra. Ekki hafa fengist upplýs-
ingar um verkaskiptingu í þeim
viðræðum sem nú standa um nýtt
meirihlutasamstarf.
Drög að málefna-
samningi kynnt
Fundað um meirihluta í Kópavogi
Morgunblaðið/Ómar
Kópavogur Þar standa yfir við-
ræður um myndun meirihluta.
SVIÐSLJÓS
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB,
átti í vikunni fund með samkeppnis-
yfirvöldum þar sem staðan á elds-
neytismarkaðnum var rædd. Hefur
félagið áhyggjur af þróuninni og telur
teikn á lofti um að skortur sé á sam-
keppni milli olíufélaganna. Vill FÍB
að kannað verði hvort félögin hafi
með sér eitthvert samráð. Eins og
kemur hér fram til hliðar hjá Páli
Gunnari Pálssyni, forstjóra Sam-
keppniseftirlitsins, er líklegt að farið
verði í einhvers konar rannsókn og
kallað eftir upplýsingum olíufélag-
anna.
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri FÍB, segir fundinn með sam-
keppnisyfirvöldum hafa verið góðan
og gagnlegan. Eitt af því sem veldur
áhyggjum er lítill verðmunur á milli
félaga, hvort sem litið er til sjálfs-
afgreiðslustöðva eða þjónustustöðva.
Erlendis sé yfirleitt mikill munur á
verðinu eftir þjónustustigi en hér á
landi borgi það sig ekki fyrir öku-
menn að eltast við 20-30 aura verð-
mun á lítranum.
„Þetta er ekki sá ávinningur sem
fólk sækist eftir og hætt við að búið sé
að setja markaðinn í eitthvert far sem
menn hafa fest sig í,“ segir Runólfur
og telur að síðan Orkan ákvað sama
verð um allt land hafi aðrir fylgt í
kjölfarið og enginn þorað að fara
langt hver frá öðrum.
„Það má heldur ekki líta framhjá
því að öll stóru félögin urðu tæknilega
gjaldþrota í kjölfar hrunsins og hafa
fengið töluverða meðgjöf. Hlutverk
samkeppnisyfirvalda er að hafa virkt
eftirlit með þessum neytendamark-
aði, sem hefur veruleg og vaxandi
áhrif á útgjöld heimilanna, ekki síst
eftir þessar síðustu hækkanir,“ segir
Runólfur.
Rétt mat varðandi verðið
Einar Örn Ólafsson, forstjóri
Skeljungs, segir það rétt mat hjá FÍB
að verðmunur hafi minnkað milli olíu-
félaganna og á milli þjónustustöðva
annars vegar og sjálfsafgreiðslu-
stöðva hins vegar.
„Fram til ársins 2010 hafði verið
um nokkurra ára skeið talsvert mikill
munur á verði innan vörumerkja og
jafnvel á milli stöðva. Það hafði skap-
ast sú hefð að hvert félag var með
nokkrar stöðvar ódýrari en aðrar.
Síðan kom gagnrýni, bæði frá at-
vinnubílstjórum og almenningi, um
að þetta væri kjánalegt. Við gátum al-
veg tekið undir það og breyttum okk-
ar stefnu. Orkan reið á vaðið þar sem
við hétum því að vera alltaf með sama
verð innan hvers svæðis, sem þróað-
ist út í sama verð um allt land. Þetta
gerði verðið einsleitara og gagn-
særra,“ segir Einar Örn og bendir á
að eldsneyti sé almennt einsleit vara.
Erfitt sé að verðleggja sig langt fyrir
ofan eða neðan aðra. FÍB hafi bent á
að þetta væri óæskileg þróun en ekki
sé augljóst hvað sé hæft í því. Mis-
munandi verðlagning innan sama fé-
lagsins geti verið ógagnsærri og erf-
iðari fyrir neytandann.
Hann segir þá gagnrýni FÍB, að
olíufélögin hafi verið að auka sína
álagningu vegna minnkandi sölu,
ósanngjarna. Álagningin hljóti að
hafa hækkað síðan olían var mun
lægri í verði á heimsmarkaði.
„Í flestum atvinnugreinum segja
menn að álagning sé svipuð í prósent-
um en þegar eldsneytisverð á heims-
markaði hefur hækkað um 200% á
fáum árum er útilokað að halda sömu
krónutöluálagningunni.
Ólíkt flestum hefur pró-
sentuálagningin snar-
lækkað hjá okkur,“ segir
hann og bætir við að Skelj-
ungur muni fúslega
veita samkeppnis-
yfirvöldum allar þær
upplýsingar sem
óskað verður eftir.
Félagið hafi ekkert
að fela.
Telja skorta á samkeppnina
FÍB átti fund með Samkeppniseftirlitinu um samkeppni olíufélaganna Félagið telur skorta á
samkeppnina og vill láta rannsaka hvort um samráð sé að ræða Kallað verður eftir upplýsingum
Morgunblaðið/Ómar
Hækkanir Eldsneytisverð hefur náð nýjum hæðum og bensínlítrinn kominn
yfir 250 krónur. Spurning hvenær 300 króna múrnum verður náð.
Enn heldur eldsneytisverðið áfram
að hækka. Shellstöðvarnar rufu 250
króna múrinn í bensíninu í fyrra-
kvöld, eftir fimm krónu hækkun á
lítranum. Önnur félög fylgdu í
humátt á eftir í gær, fyrst Olís fyrir
hádegið, og síðan hin um miðjan
daginn. Hækkun þeirra var þó
minni, eða um þrjár krónur lítrinn.
Sama gilti um díselolíuna; Shell
hækkaði hana um fimm krónur
fyrst en lækkaði verðið um tvær
þegar önnur félög hækkuðu dísel-
olíuna um þrjár krónur líkt og
bensínið.
Síðdegis í gær var bensínlítrinn í
sjálfsafgreiðslu ódýrastur hjá
Orkunni, 248,30 krónur, en dýr-
astur hjá Shell, 250,90 kr. Díseolían
var ódýrust 255,80 kr. hjá Orkunni
og dýrust 256,80 kr. hjá Shell.
Samkvæmt upplýsingum frá olíu-
félögunum er það hækkun á heims-
markaðsverði síðustu daga sem
fyrst og fremst skýrir þessa hækk-
un nú. Frá mánaðamótum, þegar
verðið var síðast hækkað hér á
landi, hefur heimsmarkaðsverðið
hækkað um 2,5%, eða um 25 dollara
tonnið. Gengi dollars gagnvart
krónu hefur hins vegar verið að
lækka síðustu daga. Aukin eft-
irspurn vegna kuldakastsins í Evr-
ópu hefur ýtt olíuverðinu upp og
viðskiptabannið á Írana hefur
ennþá áhrif til hækkunar.
Frá áramótum hefur bensínlítr-
inn hækkað um rúm 10% en frá síð-
ustu mælingu Hagstofunnar á
neysluvísitölunni um miðjan janúar
sl. hefur lítrinn hækkað um rúm
4%. Miðað við að eldsneyti vegur
6% í neysluvísitölunni hafa þessar
eldsneytishækkanir undanfarinn
mánuð einar og sér haft 0,24% áhrif
til hækkunar á vísitölu neysluverðs.
Þessar hækkanir olíufélaganna í
gær og fyrradag munu ná inn í
febrúarmælingu Hagstofunnar,
þannig að búast má við aukinni
verðbólgu og þar með hækkun á
skuldum heimilanna. bjb@mbl.is
Eldsneytisverð hækkað
um 10% frá áramótum
Verðþróun á bensíni
frá áramótum
30. des. 2011 8. feb. 2012
Heimild: gsmbensin.is
255
250
245
240
235
230
227,90 kr.
250,90 kr.
Vísitöluáhrifin
0,24% frá síðustu
mælingu
Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Lagalega er ekkert því til fyrirstöðu
að dómari setji skilyrði um að manni
sem úrskurðaður er í farbann verði
gert að hafa ökklaband svo fylgjast
megi nákvæmlega með ferðum hans.
Í Morgunblaðinu í gær kom fram að
lagabreytingu þyrfti til en í gær
fékkst það svar frá innanríkisráðu-
neytinu að þess þyrfti ekki.
Bent var á að samkvæmt lögum
um meðferð sakamála gæti dómari,
væri þess krafist, sett það skilyrði að
sakborningur „hafi á sér búnað svo
að unnt sé að fylgjast með ferðum
hans“. Þetta á einnig við ef sakborn-
ingur er vistaður á viðeigandi stofn-
un eða á að halda sig á ákveðnum
stað eða innan ákveðins svæðis
Sigríður J. Friðjónsdóttir, ríkis-
saksóknari, sagði í skriflegu svari til
Morgunblaðsins í gær að tæknilega
væri ekki flókið að koma þessum
búnaði í gagnið. Fjarskiptamiðstöð
lögreglu gæti væntanlega sinnt eft-
irlit með þeim sem tækin bæru.
Vandinn væri sá að auðvelt væri að
klippa búnaðinn af og ekki víst að
lögreglu tækist að bregðast nógu
hratt við, t.d. ef viðkomandi væri á
leið upp í skip eða flugvél. Viðvör-
unarmerki myndi á hinn bóginn gera
mönnum kleift að setja sig í stell-
ingar, t.d. lögreglu og tollgæslu á
Keflavíkurflugvelli.
Þá minnti hún á að búnaðurinn
kostaði sitt. Hún kvaðst ekki hafa
tekið afstöðu til þess hvort taka ætti
búnaðinn í notkun, fyrst þyrfti hún
að kynna sér gagnsemi hans betur.
Ökklabönd má nota til að
tryggja að farbann sé virt
Dómari má setja skilyrði í úrskurð, að kröfu ákæruvaldsins
Heima og að heiman
» Hugsanlega verður fljótlega
byrjað að setja ökklabönd á
fanga sem eru að ljúka af-
plánun. Þau má nota til að
tryggja að fanginn sé á til-
teknum stað á réttum tíma en
þau sýna ekki ferðir fanganna.
» Einnig er hægt að fá ökkla-
bönd með gps-staðsetningar-
búnaði og hægt er að fylgjast
með þeim sem bandið ber á
rauntíma. Ef viðkomandi fer
nálægt höfnum eða flugvöllum
er hægt að láta það senda við-
vörunarboð til yfirvalda.
„Við öfluðum sjónarmiða FÍB sem geta nýst okkur við ákvarðanatöku um
rannsóknir þegar og ef til þess kemur. Engar ákvarðanir liggja fyrir en við
munum áreiðanlega kalla eftir upplýsingum og sjónarmiðum frá olíufé-
lögunum á næstunni,“ segir Páll Gunnar Pálsson, forstjóri
Samkeppniseftirlitsins, um fundinn með talsmönnum FÍB.
„Þetta er einn af þessum mörkuðum sem skipta mjög
miklu máli í samkeppninni hér á landi, og kemur við mjög
marga. Það er mikilvægt að virk samkeppni sé á þessum
markaði. Við höfum og munum fylgjast vel með því hvernig
þessi markaður þróast, og ekkert ólíklegt að við tökum upp
einhverja rannsókn á næstunni, án þess að það liggi fyrir
núna,“ segir Páll Gunnar ennfremur.
Fylgjumst vel með markaðnum
FORSTJÓRI SAMKEPPNISEFTIRLITSINS
Páll Gunnar
Pálsson