Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
Frábærar McCain
franskar á 5 mínútum
Franskar kartöflur í sérflokki sem þú töfrar fram á
augabragði. Einföld og fljótleg matreiðsla og algjör
sæla fyrir bragðlaukana. Prófaðu núna!
Ríkisendurskoðun gagnrýndiá dögunum Steingrím J.
Sigfússon fjármálaráðherra fyr-
ir að skjóta sér undan að færa
47 milljarða króna skuldbind-
ingu til bókar. Bent hefur verið
á að þarna sé á ferðinni hið
gríska tilbrigði við fjár-
málastjórn ríkja. Allir vita til
hvers það leiddi.
Steingrímurneitar því að
hann hafi verið að
fela nokkuð með
því að fela þessa
skuldbindingu.
Hann viðurkennir
þó að ekki hafi
verið um mistök að ræða. Tekin
var meðvituð ákvörðun um að
geta ekki þessarar skuldar í
reikningnum: „Ekki var verið
að fela eða fegra neitt þegar 47
milljarða króna lífeyrissjóðs-
binding ríkissjóðs var ekki bók-
færð í ríkisreikningi að sögn
fyrrverandi fjármálaráðherra,“
sagði í fréttunum.
Skýringin sem gefin er á þvíað ekki sé verið að fela
neitt með því að forðast að færa
skuldir til bókar, er mjög frum-
leg. Steingrímur bendir á að
það sé hægt að hugsa sér fleiri
leiðir til að koma þessari skuld
út úr heiminum en að greiða
hana úr ríkissjóði. Þess vegna
viti menn ekki hve há skuldin
verður þegar fram líða stundir.
Og því sé ekkert vit í því að
færa hana til bókar nú.
Kosturinn við þessa skýringuer sá að það er hægt að
nota hana um næstum allar
skuldbindingar og vista þær í
rassvasabókhaldi ríkisins þar til
línur skýrast. Og þar með getur
ríkið sýnt sífellt betri afkomu.
Þessi aðferð svínvirkaði íAþenu, lengi vel.
Steingrímur J.
Sigfússon
Bókað í brókina
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 8.2., kl. 18.00
Reykjavík 3 skúrir
Bolungarvík 2 skýjað
Akureyri 4 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 2 rigning
Vestmannaeyjar 4 alskýjað
Nuuk -8 skýjað
Þórshöfn 6 þoka
Ósló -6 alskýjað
Kaupmannahöfn -2 skýjað
Stokkhólmur -3 snjókoma
Helsinki -16 skýjað
Lúxemborg -3 heiðskírt
Brussel -2 léttskýjað
Dublin 3 skýjað
Glasgow 2 heiðskírt
London 1 skýjað
París -2 léttskýjað
Amsterdam -2 léttskýjað
Hamborg -2 skýjað
Berlín -3 heiðskírt
Vín -6 skýjað
Moskva -12 heiðskírt
Algarve 13 heiðskírt
Madríd 5 léttskýjað
Barcelona 8 léttskýjað
Mallorca 7 léttskýjað
Róm 8 léttskýjað
Aþena 3 skýjað
Winnipeg -10 léttskýjað
Montreal -7 léttskýjað
New York 1 heiðskírt
Chicago -1 alskýjað
Orlando 20 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:45 17:40
ÍSAFJÖRÐUR 10:02 17:32
SIGLUFJÖRÐUR 9:46 17:15
DJÚPIVOGUR 9:17 17:06
Viðræður standa enn yfir um mögu-
lega aðkomu lífeyrissjóðanna að
fjármögnun Hverahlíðarvirkjunar.
Viðræðurnar eru í raun ekki langt
komnar og ekki nálægt því að vera
að komast á stig samningaviðræðna,
að sögn Sigurbjörns Sigurbjörns-
sonar, framkvæmdastjóra Söfnunar-
sjóðs lífeyrisréttinda. Hann hefur
leitt viðræðunefnd fyrir hönd
Landssamtaka lífeyrissjóða (LL) í
viðræðum við Orkuveitu Reykjavík-
ur (OR) um mögulega fjármögnun.
Meirihluti stjórnar OR samþykkti
15. apríl 2011 að ganga til könnunar-
viðræðna við LL um fjármögnun og/
eða eignarhald á Hverahlíðar-
virkjun.
„Þetta er flókið samspil og það
hefur ekki verið gert áður að þriðji
aðili komi að fjármögnun virkjunar-
framkvæmda,“ sagði Sigurbjörn.
Ekki hefur verið mótað endanlega
hvernig lífeyrissjóðirnir koma að
verkefninu, hvort það verður með
því að lána OR eða með beinni
eignaraðild. Fram hefur komið að
OR hafi ekki burði til að fjármagna
virkjunina fyrir eigin reikning.
Áætlað er að hún kosti 25-30 millj-
arða króna.
Sigurbjörn sagði ekki hægt að
segja til um það nú hvort og þá hve-
nær gengið verði til samninga.
Sigurbjörn sagði ljóst að ef af verði
þá þurfi fleiri en einn lífeyrissjóður
að koma að fjármögnuninni.
„Við vonum að af þessu verði. Það
myndi skipta miklu fyrir þjóðina að
koma einhverju í gang. En það þarf
að vera eðlileg arðsemi af þessu,“
sagði Sigurbjörn. gudni@mbl.is
Viðræður
um fjár-
mögnun
Morgunblaðið/RAX
Hverahlíð Rætt um fjármögnun.
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111