Morgunblaðið - 09.02.2012, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
Laugavegi 82,
á horni Barónsstígs
sími 551 4473
www.lifstykkjabudin.is
Næg bílastæði
Nýjar vörur
komnar í hús
NÝ SENDING
Laugavegi 63 • S: 551 4422
Útsöluvörur á 40-60% afslætti
Skoði
ð
sýnish
orn á
www.
laxda
l.is
(Barc
elona
)
Útsölu lýkur á laugardag
Klappastíg 44 - sími 562 3614
Innleggsnótur og gjafakort í fullu gildi á útsölunni
ÚTSALA
,
Smáralind, sími 554 3960
Kringlunni, sími 533 4533
Tax-free-
bomba
Fríhafnarverð
Verið velkomi
n
Fríhafnarverð
á öllum vörum
í verslunum okkar
þessa helgi
fimmtudag til
sunnudags
2.900
Vorum að taka upp
mussur á 5.900
og 6.900 kr.
Gallapils
á 5.900 kr.
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is
Allar buxur
á útsölunni
á 2.900 kr.
INNRÉTTINGATILBOÐ
VARANLEGVERÐLÆKKUN
OG20%VIÐBÓTARAFSLÁTTUR
15%
ELDHÚS-BAÐ-ÞVOTTAHÚS-FATASKÁPAR
friform.is
Ný stjórnmálasamtök, sem bera
vinnuheitið Breiðfylkingin, verða
stofnuð næstkomandi sunnudag.
Einstaklingar úr Hreyfingunni,
Borgarahreyfingunni, Frjálslynda
flokknum og Stjórnlagaráði hafa að
undanförnu unnið að samþykktum
og kjarnastefnuskrá, og er gert ráð
fyrir að boðið verði fram á landsvísu.
Margrét Tryggvadóttir, þingmað-
ur Hreyfingarinnar, er ein þeirra
sem standa að Breiðfylkingunni.
„Það sem hefur verið ákveðið er að
stofna svona félagsskap og hann
verður stofnaður af einstaklingum
úr þessum áttum. Á stofnfundinum
verða samþykktirnar fullmótaðar,
en það liggja fyrir drög, og kjarna-
stefna sem unnið hefur verið að,“
segir hún.
Auk ofangreindra hafa einnig
mætt á fundi fulltrúar frá Sam-
tökum fullveldissinna og Lýðfrels-
isflokknum. Ekki er þó víst með
þátttöku þeirra. Framhaldsstofn-
fundur verður haldinn eftir stofn-
fundinn, að sögn Margrétar, og þá
komi frekar í ljós hverjir standa
muni að Breiðfylkingunni. „Þar geta
þau félagasamtök sem vilja sótt um
aðild. Uppbyggingin verður því eig-
inlega nákvæmlega eins og hjá Sam-
fylkingunni.“
Opnir fundir málefnahópa
Óvíst er hver verður formaður
hinna nýju stjórnmálasamtaka eða
hvort það verður yfirhöfuð formaður.
Margrét segir að gert sé ráð fyrir því
í samþykktunum, að skipulagið verði
eins og hjá Hreyfingunni hvað for-
manninn áhrærir. Þá verði kosið í
framkvæmdaráð sem haldi starfi
flokksins gangandi, en pólitísk
stefnumótun fari fram í málefna-
hópum sem eigi að vera eins opnir og
hægt verði.
Rennur inn í Breiðfylkinguna
Hvað varðar nafn og listabókstaf
segir Margrét að nafnið hafi ekki
verið ákveðið en vinnuheitið sé
Breiðfylkingin. Þá séu þeir flokkar
sem hugsanlega taki þátt með lista-
bókstafi og ef samstaða náist þurfi
ekki að sækja um nýjan.
Spurð hvað verði um Hreyfinguna
segir Margrét, að hún muni renna í
Breiðfylkinguna en engu að síður
halda áfram. andri@mbl.is
Styttist í stofnun
Breiðfylkingar
Myndun nýrra stjórnmálasamtaka Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
fann 300 grömm af amfetamíni við
húsleit í íbúð í Hafnarfirði sl. föstu-
dag og lagði jafnframt hald á veru-
lega fjármuni, eða um eina og hálfa
milljón króna. Amfetamínið var ætl-
að til sölu og þá voru peningarnir til
komnir vegna fíkniefnasölu. Tveir
karlar á fertugsaldri voru handtekn-
ir í þágu rannsóknarinnar.
Í fyrradag stöðvaði lögreglan á
höfuðborgarsvæðinu kannabisrækt-
un í skrifstofuhúsnæði í Kópavogi.
Við húsleit á áð-
urnefndum stað
fundust tæplega
80 kannabis-
plöntur, flestar á
lokastigi ræktun-
ar, og um 1,4 kg
af marijúana.
Upphaf máls-
ins má rekja til
tilkynningar um
vatnsleka í húsi. Sá sem tilkynnti
lekann hafði sjálfur knúið árangurs-
laust dyra þar sem ræktunina var að
finna en viðkomandi var þess fullviss
að einhver væri innandyra. Þegar
lögreglan kom á vettvang fann hún
strax kannabiskeim í anddyri húss-
ins og sömuleiðis mátti heyra um-
gang úr umræddu rými en þaðan
lagði líka mikla kannabislykt. Farið
var inn í þennan hluta hússins en þar
var fyrir karl á fertugsaldri og var
hann með klippur í hendinni og var
að klippa niður plöntur til þurrkun-
ar.
Lögregla fann fíkniefni og
verulegt magn fjármuna
Á baksíðu blaðsins í gær var rangt
farið með föðurnafn eins viðmæl-
andans.
Jóhanna Bríet Ingólfsdóttir,
bóndi á Hrafnkelsstöðum í Hruna-
mannahreppi, var sögð Helgadótt-
ir.
Beðist er velvirðingar á þessu.
Rangt föðurnafn
LEIÐRÉTT