Morgunblaðið - 09.02.2012, Síða 10
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skjöl Svanhildur Bogadóttir segir mikil verðmæti liggja í einkaskjölum.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Ámálþinginu, Að skrifakonur inn í söguna, verðurfjallað um hlutdeild ogbirtingarmyndir kynjanna
í sögubókum. Málþingið fer fram nú
á föstudaginn og verða þar fluttir
ýmsir fyrirlestrar tengdir málefninu.
Svanhildur Bogadóttir, borg-
arskjalavörður, er ein fyrirlesara en
erindi hennar kallast Leitin að skjöl-
um kvenna.
Konur á bak við tjöldin
„Þetta málþing fjallar um
hvernig konur vantar í kennslubæk-
ur í sögu og leiðir til að skrifa þær
inn í söguna. Ein af forsendum þess
er að það séu til skjöl um konur og að
sagnfræðingar geri sér grein fyrir
því hvar skjöl sem tengjast sögu
kvenna er að finna. Sé litið til skjala
borgarinnar, opinberra skjala, þá
komu konurnar gjarnan að öðrum
málaflokkum en karlarnir. Í
kennslubókum í sögu er oft áhersla á
atburði og ártöl en konurnar voru
meira á bak við tjöldin og unnu að
velferð fólksins. Þær komu til að
mynda kannski ekki mikið að sjálf-
stæðisbaráttunni opinberlega en
unnu að bættri menntun og heil-
brigði og tóku þátt í félagsstörfum
og mannúðarmálum.
Í kvenfélögum stóðu konur fyrir
að safna fé til góðgerðarmála og láta
gott af sér leiða og margt af því hefur
gleymst. Misjafnt er hversu vel slík
skjöl hafa varðveist því félög kvenna
áttu sjaldnast sitt eigið húsnæði.
Skjölin voru því í heimahúsum og er
mikilvægt að þeim sé komið á skjala-
Konur skrifaðar
inn í söguna
Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður segir að meira þurfi að berast af skjöl-
um kvenna til skjalasafna til að þær fái aukna hlutdeild í sögunni. Á málþinginu
Að skrifa konur inn í söguna, verða flutt erindi um það hve konur vantar inn í
bæði náms- og sögubækur. Í einkaskjölum kvenna er oft að finna ómetanlegar
heimildir um heimilislíf og það starf sem unnið var í félögum kvenna.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
Það er skemmtilegt að rekast á
blogg þar sem fólk er að velta fyrir
sér samfélagsmálum á vel upp sett-
an og forvitnilegan hátt. Tótu Lauf
sem heldur utan um vefsíðuna
mylsnur.wordpress.com tekst vel up
hvað þetta varðar. En bókmennta-
fræðingurinn og grafíski hönnuður-
inn Tóta segist á vefsíðunni sjaldan
sitja auðum höndum. Yfirskrift vef-
síðunnar segir að þetta snúist um
ferðalagið, ekki áfangastaðinn. Er
það sannarlega nokkuð sem gott
væri að sem flestir tileinkuðu sér.
Að lifa í núinu og njóta líðandi
stundar.
Á vefsíðunni lítur Tóta meðal ann-
ars ýmsar auglýsingar gagnrýnum
augum og skoðar hvernig konum er
lýst í þeim. Hægt er að setja inn
ummæli og þannig geta skapast
hressandi umræður. Tóta veltir líka
fyrir sér bókakápum og hinu „eðli-
lega“ foreldrahlutverki. Á vefsíðunni
mylsnur er ýmislegt í samtíma-
menningu okkar sem þykir „sjálf-
sagt“ skoðað ofan í kjölinn. Skoð-
anir okkar geta vissulega verið
ólíkar en þarft er að láta minna sig
reglulega á þá pressu og ramma
sem nútímasamfélag setur okkur á
köflum. Sérstaklega er varðar útlit,
kynhlutverk og holdafar.
Vefsíðan www.mylsnur.wordpress.com
Reuters
Pressa Hin glæsilega söngkona Adele hefur verið gagnrýnd fyrir vaxtarlag sitt.
Samtímamenning skoðuð
Bónus
Gildir 9. - 12. febrúar verð nú áður mælie. verð
Bónus frosnir kjúklingavængir ..... 195 259 195 kr. kg
Nv. ferskt nautagúllas................. 1698 1998 1698 kr. kg
Nv. ferskt nautasnitsel ................ 1698 1998 1698 kr. kg
Nv. nauta.borgarar m/br., 4 stk. .. 595 695 149 kr. stk.
Ks. frosið súpukjöt 1 fl. .............. 698 759 698 kr. kg
G.v. ferskt grísahakk ................... 798 898 798 kr. kg
G.v. ferskar grísakótelettur .......... 998 1198 998 kr. kg
Ali ferskur grísabógur ................. 698 759 698 kr. kg
Bónus Floridana-safi .................. 179 189 179 kr. ltr
Hagkaup
Gildir 9. - 12. febrúar verð nú áður mælie. verð
Holta heill kjúklingur ferskur........ 749 998 749 kr. kg
Íslandsnaut piparsteik................ 2.449 3.498 2.449 kr. kg
Holta kjúklingavængir ................ 315 449 315 kr. kg
Myllu heilkornabrauð ................. 299 449 299 kr. stk.
Krónan
Gildir 9. - 12. febrúar verð nú áður mælie. verð
Grísagúllas................................ 998 1.698 998 kr. kg
Grísasnitsel ............................... 998 1.698 998 kr. kg
Grísakótelettur magnpakkning .... 998 1.498 998 kr. kg
Grísahnakki úrb, sneiðar ............. 1.189 1698 1.189 kr. kg
Grísaskankar ............................. 319 459 319 kr. kg
Grísalundir ................................ 1.598 2.298 1.598 kr. kg
Grísasíðu pörusteik .................... 698 998 698 kr. kg
Grísabógur hringskorinn ............. 598 698 598 kr. kg
Grísahakk ................................. 698 789 698 kr. kg
Nóatún
Gildir 9. - 12. febrúar verð nú áður mælie. verð
Grísalundir m/sælkerafyllingu..... 2.698 2.998 2.698 kr. kg
Ungnautagullas úr kjötb. ............ 1.798 2.498 1.798 kr. kg
Ungnautasnitzel úr kjötb............. 1.998 2.897 1.998 kr. kg
Ungnauta hamborgari, 90 g........ 169 185 169 kr. stk.
Herragarðsönd, 2,6 kg ............... 2.498 2.998 2.498 kr. stk.
Laxaflök beinhreinsuð úr fiskb..... 1.698 1.948 1.698 kr. kg
Laxasneiðar úr fiskborði.............. 898 1.298 898 kr. kg
Ch.Town pitsa 4. osta, 340 g ...... 498 579 498 kr. pk.
Ch.Town D. pitsa pepper., 340 g . 498 579 498 kr. pk.
Þín Verslun
Gildir 9. - 12. febrúar verð nú áður mælie. verð
Ísl. korngrísahnakki úr kjötborði... 1.449 1.898 1.449 kr. kg
Ísl. korngrísakótelettur úr kjöt-
borði ........................................
1.449 1.898 1.449 kr. kg
Ísl. korngrísagúllas úr kjötborði.... 1.598 1.994 1.598 kr. kg
Ísfugl kjúklingur læri/leggir ......... 879 1.099 879 kr. kg
Blue Dragon Hoi Sin sósa, 200 g 298 375 1.490 kr. kg
Blue Dragon rifinn hvítl., 110 g ... 225 269 2.046 kr. kg
Hatting pítubrauð, 480 g ............ 289 379 602 kr. kg
Weetabix, 430 g ........................ 498 579 1.159 kr. kg
Aunt M. múffur m/karam., 100 g 185 219 1.850 kr. kg
Hatting hvítlauksbrauð, 525 g..... 449 659 856 kr. kg
Helgartilboðin
Morgunblaðið/Golli
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Gæludýrunum finnst alveg jafn gott
að fá sælgæti og okkur mannfólkinu.
En þá er betra að þeir fái nú eitthvað
við sitt hæfi. Kannski eins og eitt vel
valið bein eða gott hundakex. Í Iowa í
Bandaríkjunum er rekin verslun sem
kalla mætti himnaríki hunda. En
verslunin Bone-A-Patreat gefur sig
út fyrir að selja eingöngu
hundamat úr gæðahráefni og
selja nær eingöngu lífrænar
vörur, bæði mat og leik-
föng.
Þetta kostar jú sitt en
gæludýrið er eitt af fjöl-
skyldunni og fæstir sem
kippa sér upp við slíkt. Í það
minnsta er alltaf nóg að gera
hjá starfsfólki Bone-A-Patreat
og nú fyrir Valentínusardaginn
verður hægt að kaupa sérstakt
hundakex í rómantískri öskju
handa hundinum sínum. Bandaríkja-
menn klikka ekki á neinu varðandi
Valentínusardaginn.
AP
Gæludýr April Lawrence, eigandi Bone-A-Patreat, með hundana sína.
Valentínusargjöf handa voffa
Kökubox
Líklegast
gætu fáir hundar
staðist þetta góða
Valentínusarbox.
Hundarómantík
Heimild Hluti af skjalasafni konu sem í eru nokkur hundruð sendibréf.