Morgunblaðið - 09.02.2012, Qupperneq 11
Ljósmynd/Morgunblaðið
Kvenréttindamál Rauðsokka og 8. marz-hreyfingin, ýmis skjöl eru til um kvennabaráttuna og kvenfélög.
safn ef þau finnast í dag. Á Borgar-
skjalasafni er nokkuð til af skjölum
kvenna en leita þarf í ákveðnum
flokkum. Þar má t.d. finna skjöl um
baráttuna fyrir menntun allra, heil-
brigðiseftirlit, aðstoð við fátæka,
baráttu fyrir öruggum leikvöllum og
fyrir því að börn sem væru vannærð
fengju mjólk og lýsi í skólum. Þá má
nefna skjöl um aðdraganda og upp-
haf ungbarna og mæðraverndar,“
segir Svanhildur.
Einkaskjöl kvenna mikilvæg
Svanhildur segir að erfitt sé að
ætla að fjalla um allt í bókum en valið
á því hvað sé efni og hvað sé saga
hafi verið og sé vissulega karllægt.
Svanhildur hefur unnið rannsóknir á
því hversu mikið af einkaskjölum
kvenna hafi skilað sér til skjalasafna.
Þá kemur í ljós að aðeins um 5-20%
af einkaskjalasöfnum sem hafi skilað
sér á skjalasöfn séu frá konum. Ef
restin sé frá körlum er augljóst að
það séu frekar karlar sem komist að.
„Maður fær ýmsar skýringar á því
hvers vegna skjöl kvenna skili sér
ekki. Ein er að dagbækur karla og
bréf þar sem þeir fjalla gjarnan um
veðrið, pólitík og vinnuna sé álitið
mikilvægari heimildir en bréf og
skjöl kvenna þar sem verið er að lýsa
lífinu inn á heimilunum, fjölskyldu-
aðstæðunum og líðan kvenna. Skjöl
kvenna eru oftast persónulegri en
jafnframt mikilvæg heimild um t.d.
daglegt líf kvenna og fjölskyldna
þeirra sem og á heimilisháttu á heim-
ilunum sem ekki er að finna annars
staðar. Þá er hægt að lesa í þeim um
áhrif viðburða í sögunni á líf fólksins.
Mikilvægt er að fá konur til að af-
henda eigin skjalasöfn og ekki síður
formæðra sinna“ segir Svanhildur.
Svanhildur segir þörf á vitund-
arvakningu til þess að meira komi af
skjölum kvenna til skjalasafna. Þetta
eigi einnig við um skjöl barna og
minnihlutahópa. Mikla sögu megi
lesa úr bréfasöfnum barna sem lýsa
vel hvernig börn upplifa heiminn og
aðstæður sínar og félagsþróunina.
Samtímaheimildir
„Auðvitað er hægt að taka viðtöl
um þetta efni en bréf og dagbækur
eru samtímaheimildir þar sem fólk
lýsir fjölskyldumálum og upplifun
um leið og það gerist. Fari fólk að
svara spurningalistum um æskuár
sín kannski 60 árum seinna er það oft
breytt og fegruð mynd. Oft er rætt
um að skjöl kvenna séu svo viðkvæm
því verið sé að fjalla um fjöl-
skyldumál. En sagnfræðingar nota
þau nær aldrei til að skrifa um við-
komandi aðila heldur eru skoðuð
mörg söfn til að fá heildarmynd og
yfirsýn yfir tímabil, “ segir Svanhild-
ur.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
VITA er lífið
VITA | Suðurlandsbraut 2
Sími 570 4444 | VITA.is
Spennandi ævintýra- og lúxusferð til fjölmennasta ríkis jarðar með
viðkomu í Peking, Xi’an, Guilin og Shanghai. Upplifðu fjölmargar af
helstu menningar- og náttúruperlum sem þessi forni menningar-
heimur hefur að bjóða. Horft verður til fortíðar, framtíðar, náttúru
og þjóðlífs í ferðum um landið.
Ævintýri sem býður upp á fjölmörg tækifæri til að
fræðast um kínverska tungu, menningu,
matarhefðir, félagslíf og margt fleira.
Fararstjóri: Héðinn Svarfdal Björnsson
Skráðu þig í netklúbbinn - VITA.is
ÍS
LE
N
SK
A
SI
A
.IS
V
IT
58
36
0
02
/1
2
Kynningar-
fundur í dag!
Héðinn Svarfdal Björnsson fararstjóri
kynnir ferðina fimmtudaginn 9. febrúar,
kl. 18:00 á skrifstofu VITA
Allir velkomnir
Páskaferð til Kína
Gullni hringurinn
28. mars - 11. apríl 2012
Það eru ekki einungis sænskir stór-
leikarar sem hrífast af fatnaði frá
66°NORÐUR. Sænska tennisstjarnan
Björn Borg er einnig aðdáandi fatn-
aðarins og var myndaður á dögunum
heima í Svíþjóð klæddur í Snæfell
Parka úlpu frá 66°NORÐUR, sem er
ein vinsælasta flíkin frá fatafram-
leiðandanum um þessar mundir.
Björn Borg, sem er einn sigursælasti
tennisleikari allra tíma og sigraði
m.a. fimm sinnum á Wimbledon-
mótinu, er mikill tískuunnandi og
undir hans nafni er framleiddur vin-
sæll nærfatnaður á karlmenn sem og
skór.
Borg vakti talsverða athygli á síð-
asta ári þegar hann hvatti Evrópu-
búa til að eignast fleiri börn til að
tryggja að það nóg sé til af fólki til
að fjármagna ellilífeyri eldri borgara.
Til að koma boðskap sínum á fram-
færi keypti Borg heilsíðu í stærsta
viðskiptablaði Svíþjóðar, Dagens Ind-
ustri. Auglýsingin sýndi hóp af ljós-
mæðrum og meðfylgjandi texti sagði
að það væri vandamál í Evrópu að
ekki fæddust nógu mörg börn.
Fatnaður frá 66°NORÐUR vinsæll í Svíþjóð
Ljósmynd/66°NORÐUR
Björn Borg verðu hlýtt í vetur
Rannsóknastofa í kvenna- og
kynjafræðum (RIKK) efnir til
málþings í samvinnu við Jafn-
réttisstofu, Sagnfræðistofnun
og mennta- og menningarmála-
ráðuneytið um hlutdeild og birt-
ingarmyndir kynjanna í sögu-
bókum. Málþingið, Að skrifa
konur inn í söguna, fer fram á
morgun, föstudag 10. febrúar,
klukkan 14-17:30 í Öskju, stofu
132. Málþingið er skipulagt í því
augnamiði að fylgja eftir þeirri
umræðu sem skapaðist í kjölfar
rannsóknar Jafnréttisstofu á
hlutdeild kvenna í námsbókum í
sögu síðastliðið haust.
Umræðu
fylgt eftir
MÁLÞING
Systurnar Sara og
Svanhildur Vil-
bergsdætur opna á
safnanótt í Lista-
safni ASÍ sýn-
inguna Systrasög-
ur, tvíhent á striga.
Systurnar hafa
málað saman frá
því síðsumars
2010. Þær kjósa
að kalla hug-
myndavinnuna og
framkvæmdina dú-
ettmálun en hún
fer þannig fram að
þær vinna hug-
myndir saman frá
grunni, kasta þeim
á milli sín, grípa
og annaðhvort
henda eða prjóna
við. Vinnuferlið
hefst á samninga-
viðræðum um myndbyggingu og út-
færslu og síðan tekur við málunin
sjálf þar sem systurnar standa
frammi fyrir sama striganum og
mála tvíhent, ef svo má að orði kom-
ast.
Segja má að margar myndanna
séu ævintýramyndir með sjálfsævi-
sögulegulegu ívafi þar sem yrkis-
efnin eru áhugamál þeirra og per-
sónuleg reynsla. Í málverkunum má
sjá systurnar í aðstæðum sem eru
dæmigerðar fyrir þær sjálfar og líf
þeirra en einnig leita þær víða fanga
svo sem í ævintýrum og um leið
bregður fyrir þekktum minnum og
myndum úr listasögunni.
Sýningin verður opnuð föstudag-
inn 10. febrúar kl. 20:00 og stendur
til miðnættis.
Þeir Villi Valli og Rúnar Vilbergs-
son munu leika á harmonikku og fa-
gott klukkan 21:30 og aftur klukkan
22:30.
Þá verður listamannaspjall í sýn-
ingarsalnum sunnudaginn 12. febr-
úar kl. 15:00.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga frá kl. 13 til 17 og að-
gangur er ókeypis.
Endilega …
… kíkið á Systrasögur