Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 12
12 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
-kr.900.verðlækkun
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Í sumar verður loksins hægt að
ganga frá flugvellinum að samfelldri
byggð í innbænum, án þess að leggja
sig í verulega hættu. Nú er nefnilega
unnið að því að leggja flottan göngu-
stíg meðfram Drottningarbrautinni,
norður undir skautahöllina.
Annað mál er hvort einhver
nennir að stika með töskuna sína
þessa leið. Það kemur í ljós. Göngu-
leiðin verður a.m.k. falleg; jafnvel
hægt að bjóða elskunni sinni í
spássitúr með útsýni yfir innbæinn
og sólsetur í fjarska...
Í vikunni hefur verið mokað út
úr Íslandsbanka! Enginn verður þó
sóttur til saka – búið er að tæma
bankaútibúið við Skipagötu tíma-
bundið og starfsemin flutt yfir í hús-
næðið þar sem Byr var, steinsnar
frá. Starfsemin, eftir sameiningu,
verður þar sem Íslandsbanki var til
húsa, en nú er verið að taka það allt í
gegn. Þegar blaðamaður gekk þar
hjá í vikunni var maður fyrir innan
við gluggann með skóflu og mokaði
innihaldinu upp í hjólbörur...
Hanar búsettir á Akureyri nú fá
að lifa þar til kallið kemur af ein-
hvers konar líffræðilegum sökum.
Samþykkt var í bæjarstjórn í vik-
unni að hanar verði einungis leyfðir
á lögbýlum – sveitabæjum innan
bæjarmarkanna – en samþykktin er
ekki afturvirk þannig að Hrólfur og
synir hans tveir, Oddur Helgi og
Böðvar, sem búa við Norðurgötu,
þurfa ekkert að óttast.
„Það er mikilvægt að taka fram
að engar formlegar kvartanir hafa
borist Akureyrarbæ vegna hænsna-
halds í bænum og því verður ekki
séð að hér sé um verulegt vandamál
að ræða sem girða þarf fyrir,“ segir í
samþykkt bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Akureyrar sam-
þykkti einróma á þriðjudaginn bók-
un þar sem lögð er áhersla á að
framkvæmdir við Vaðlaheiðargöng
hefjist hið fyrsta. „Gerð ganganna er
mikilvæg samgöngubót fyrir alla þá
sem ferðast um Norðurland, eykur
umferðaröryggi og eflir atvinnulíf,“
segir þar.
Í bókun bæjarstjórnar er minnt
á að aðrar samgöngubætur á sam-
gönguáætlun muni ekki líða fyrir
framkvæmd Vaðlaheiðarganga né
heldur önnur brýn verkefni, t.d. í
heilbrigðisþjónustu, þar sem fram-
kvæmdin verður fjármögnuð með
veggjöldum ganganna. „Jafnframt
vill bæjarstjórn benda á að ríkis-
sjóður fær um þrjá milljarða í beinar
tekjur af framkvæmdinni á fram-
kvæmdatíma ganganna.“
Bókun bæjarstjórnar endar á
þessum orðum: „Í skýrslu IFS
Greiningar sem unnin var fyrir fjár-
málaráðuneytið er meginniður-
staðan sú að helstu forsendur um
stofnkostnað og rekstur séu innan
raunhæfra marka en lagt til að eigið
fé félagsins verði aukið. Bæjarstjórn
Akureyrar telur eðlilegt að taka tillit
til þessara ábendinga og lýsir yfir
vilja sínum til að koma að aukningu
hlutafjár í samstarfi við aðra hlut-
hafa. Bæjarstjórn skorar jafnframt
á Alþingi að ljúka málinu sem fyrst
svo hægt verði að hefjast handa við
þessa mikilvægu framkvæmd.“
Ein þekktasta sinfónía Beetho-
vens, sú sjöunda, hljómar í Hofi á
sunnudaginn. Á efnisskránni er
einnig frumflutningur á nýju ís-
lensku tónverki eftir Jón Ásgeirsson
tónskáld. Um er að ræða píanókons-
ert þar sem einleikarinn Peter Máté,
einn fremsti píanóleikari Íslendinga,
kemur fram, en Jón samdi verkið
sérstaklega fyrir hann.
Kalli Örvars og Kóngulærnar
frá Mars flytja bestu lög David Bo-
wie á Græna hattinum annað kvöld.
Á laugardaginn flytur Sigríður
Thorlacius þar frönsk dægurlög með
einvalaliði undurleikara.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Spássitúr? Verið er að gera göngustíg meðfram Drottningarbrautinni, frá flugvellinum norður að skautahöllinni.
Hrólfur og synir
geta andað léttar