Morgunblaðið - 09.02.2012, Side 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
Aðalefni fundarins verður umfjöllun um skýrslu
úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna,
sem kynnt var sl. föstudag. Forráðamenn Sameinaða
lífeyrissjóðsins fara yfir umfjöllun um sjóðinn í
skýrslunni og svara fyrirspurnum fundarmanna.
Hægt verður að fylgjast með fundinum á heimasíðu
sjóðsins, lifeyrir.is, og hefst útsending kl. 17.30.
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Sími 510 5000
mottaka@lifeyrir.is
lifeyrir.is
Sjóðfélagafundur Sameinaða lífeyrissjóðsins verður
haldinn fimmtudaginn 9. febrúar 2012 kl.17.30
á Hilton Reykjavík Nordica, Suðurlandsbraut 2.
Sjóðfélagafundur
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
50
38
3
Sala á áfengi var 2,3% minni í
janúar í ár en sama tímabil í
fyrra. Í lítrum talið er munurinn
25 þúsund lítrar. Samdráttur í
sölu er talsvert meiri í bjór en
léttvíni. Þannig dróst sala á bjór
saman um 3% á meðan rauðvín og
hvítvín dregst saman minna en
1%. Hins vegar varð 2,2% aukning
á sölu blandaðra drykkja.
Ef litið er lengra aftur í tímann
og salan í janúar í ár borin saman
við söluna fyrir tveimur árum þ.e.
2010 þá seldust tæplega 8% færri
lítrar í ár. Sala á ókrydduðu
brennivíni og blönduðum
drykkjum hefur dregist verulega
saman. „En athygli vekur að nú
er selt tæplega 5% meira af hvít-
víni en fyrir tveimur árum en
minni munur er á sölu rauðvíns
en nú er selt tæplega 1% meira af
rauðvíni en árið 2010,“ segir á vef
ÁTVR.
Landinn byrjar rólega í drykkjunni
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Joanna Marcin-
kowska hefur
verið ráðin sem
pólskumælandi
ráðgjafi innflytj-
enda hjá Reykja-
víkurborg. Jo-
anna starfar á
þjónustuskrif-
stofu Reykjavík-
urborgar á
Höfðatorgi og
mun aðstoða og veita upplýsingar
um þjónustu Reykjavíkurborgar á
pólsku.
Pólverjar eru fjölmennastir inn-
flytjenda í borginni, um 3.300
manns eða um 30% af innflytjenda-
samfélaginu í Reykjavík. Ný könn-
un meðal pólskra félagsmanna
stéttarfélagsins Eflingar leiðir í ljós
að einungis þrettán prósent þeirra
telja sig geta haldið uppi samræð-
um á íslensku, segir í tilkynningu.
Stofnað hefur verið nýtt síma-
númer þar sem Joanna veitir upp-
lýsingar um þjónustu Reykjavíkur-
borgar á pólsku. Símanúmerið er: 4
11 11 40. Borgin rekur nú þegar
vefsíður þar sem veittar eru allar
upplýsingar um þjónustu borgar-
innar á pólsku og ensku og frétta-
þjónustu á sömu tungumálum. Slóð-
in á pólska vefsvæðið er
http://www.reykjavik.is/polska.
Pólskumælandi ráð-
gjafi tekur til starfa
Joanna
Marcinkowska
Lögfræðingafélag Íslands efnir til
hádegisverðarfundar föstudaginn
10. febrúar kl. 12:00-14:00 í Setr-
inu, Grand hóteli. Fjallað verður
um nýútkomna skýrslu um lífeyris-
sjóðirna. Á fundinum munu Hrafn
Bragason, formaður nefndarinnar,
Kristján Geir Pétursson, lögfræð-
ingur og starfsmaður nefndar-
innar, og Héðinn Eyjólfsson, við-
skiptafræðingur og nefndarmaður,
fara yfir lagalegt umhverfi lífeyris-
sjóða og helstu niðurstöður skýrsl-
unnar varðandi fjárfestingar og
fjárfestingarstefnu lífeyrissjóða.
Að loknum erindum verða fyrir-
spurnir og umræður en fundi lýkur
kl. 14:00. Fundarstjóri verður
Kristín Edwald hrl., formaður LÍ.
Skýrslan rædd
Skákkeppni vinnustaða 2012 fer
fram í félagsheimili Taflfélags
Reykjavíkur, Skákhöllinni Faxafeni
12, föstudaginn 17. febrúar nk. og
hefst kl. 19.30.
Þetta er liðakeppni/sveitakeppni
og tefla þrír í hverju liði. Vinnu-
staðirnir geta sent fleiri en eitt lið
til keppni. Umhugsunartími er 10
mínútur á mann.
Allar frekari upplýsingar og
skráningarform er að finna á
heimasíðu Taflfélags Reykjavíkur,
www.taflfelag.is.
Vinnustaðir keppa
STUTT
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Ég tel mig hafa axlað þá miklu
ábyrgð sem fylgir setu í stjórn líf-
eyrissjóðs eftir minni bestu getu og
sannfæringu á umliðnum árum, við
mishagstæðar aðstæður með hags-
muni sjóðfélaga að leiðarljósi, og
mun gera það áfram á meðan þess
er óskað,“ segir Maríanna Jónas-
dóttir, stjórnarformaður Lífeyris-
sjóðs starfsmanna ríkisins, LSR, að-
spurð hvort hún telji ástæðu til að
segja af sér í kjölfar lífeyrissjóða-
skýrslunnar. Hún hefur setið í
stjórn sjóðsins frá því fyrir hrun og
var m.a. stjórnarformaður árið 2008.
Í skýrslunni um lífeyrissjóðina,
sem kynnt var sl. föstudag, kom m.a.
fram að LSR hefði tapað ríflega 100
milljörðum króna
á árunum 2008-
2010, eða um
þriðjungi eigna
sjóðsins eins og
þær voru metnar
í árslok 2007.
Maríanna segir
skýrsluna vera
hina gagnlegustu
og vert að taka
fullt mark á
henni. Samkvæmt niðurstöðum
skýrslunnar hafi stjórn LSR hvorki
brotið lög um skyldutryggingu líf-
eyrisréttinda og starfsemi lífeyris-
sjóða né lög um LSR, við ákvarðanir
sínar á árunum fyrir hrun. Fjárfest-
ingar sjóðsins hafi allar verið innan
marka almennu lífeyrissjóðslaganna
og ákvarðanir teknar í góðri trú,
byggðar á fyrirliggjandi upplýsing-
um á hverjum tíma.
„Í ljós hefur komið, og það raunar
fyrir útkomu umræddrar skýrslu, að
í vissum tilvikum hafa þær upplýs-
ingar reynst rangar,“ segir hún og
tekur dæmi af kaupum á víkjandi
skuldabréfi í Glitni í mars 2008. Það
mál sé í réttum farvegi fyrir dóm-
stólum landsins.
Má draga lærdóm
„Á hinn bóginn er ljóst þegar litið
er í baksýnisspegilinn, í þessu efni
eins og ýmsum öðrum, að ýmislegt
hefði mátt betur fara, bæði varðandi
frekari upplýsingagjöf eða form-
festu í vissum tilvikum. Það er sá
lærdómur sem draga má af niður-
stöðum skýrslunnar,“ segir Marí-
anna.
Stjórnarformaður LSR
segist hafa axlað ábyrgð
Ætlar að halda áfram í stjórn á meðan þess er óskað
Maríanna
Jónasdóttir
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Með endurnýjun á uppsjávarskipum
sínum hefur Síldarvinnslan yngt
skipin upp um rúmlega 70 ár. Í gær-
morgun kom nýr Börkur til Nes-
kaupstaðar og fagnaði hópur bæjar-
búa komu skipsins. Það heldur
væntanlega til loðnuveiða í kvöld.
Nýja skipið hét áður Torbas og er
keypt frá Noregi. Það er smíðað árið
2000 og leysir af hólmi eldri Börk,
sem smíðaður var 1968. Í júní 2010
kom nýr Beitir til Norðfjaðar, en
það skip er smíðað árið 1998 og kom
í stað skips með sama nafni, sem
smíðað var 1958. Auk þessara skipa
verður gamli Börkur, nú Birtingur
NK 124, áfram á loðnuveiðum út
vertíðina.
Landað í Helguvík í gær
Skipstjóri á Berki NK 122 verður
Sturla Þórðarson, sem síðustu ára-
tugi hefur verið mikill aflaskipstjóri
á Berki og Beiti. Sturla var síðasta
haust valinn skipstjóri ársins þegar
íslensku sjávarútvegsverðlaunin
voru afhent.
Síldarvinnslan starfrækir full-
komið fiskiðjuver í Neskaupstað,
þar sem m.a. fer fram frysting á bol-
fiski og uppsjávarfiski. Á yfirstand-
andi loðnuvertíð hefur loðnu verið
landað hjá fiskimjölsverksmiðjum
fyrirtækisins í Neskaupstað og
Seyðisfirði. Í gær landaði Bjarni
Ólafsson AK síðan fyrstu loðnu ver-
tíðarinnar í bræðslunni í Helguvík.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson
Börkur NK 122 Nýja skipið kom til Neskaupstaðar frá Noregi í gærmorgun og tók sig vel út á Norðfirðinum.
Hafa yngt uppsjávarskip-
in upp um rúmlega 70 ár
Í brúnni Gunnþór Ingvason, framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar, og
aflaskipstjórinn Sturla Þórðarson, sem verður með nýja skipið.
Mikil breyting
hjá Síldarvinnsl-
unni með nýjum
Berki og Beiti