Morgunblaðið - 09.02.2012, Síða 18
Heimildir: Reuters, fréttir bandarískra fjölmiðla
8.457
55,2%
Fjöldi
atkvæða
Atkvæði í %
138.957
63.826
30.641
25,3%
12,2%
Mitt Romney
Ron Paul
Rick Santorum
MISSOURI*
* Kjörmenn verða valdir á flokksfundi 17. mars
40,2% 26.580
Fjöldi
atkvæða
Atkvæði í %
23.097
7.792
34,9%
12,8%
11,8%
Mitt Romney
Newt Gingrich
Ron Paul
Rick Santorum
COLORADO
ÚRSLITIN Í
FORKOSNINGUM REPÚBLIKANA
MINNESOTA
44,8% 21.420
Fjöldi
atkvæða
Atkvæði í %
(skv. tölum frá 95% kjörstaða)
13.023
8.090
5.128
27,2%
16,9%
10,7%
Mitt Romney, 64 ára,
fyrrv. ríkisstjóri, MA
Newt Gingrich, 68 ára
fyrrv. forseti fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings
Ron Paul, 76 ára,
fulltrúadeildar-
þingmaður, TX
Rick Santorum, 53 ára,
fyrrv. þingmaður, PA
KOSNINGAR
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Íhaldsmaðurinn Rick Santorum
styrkti stöðu sína í forkosningum
repúblikana með því að sigra óvænt í
þremur sambandsríkjum í fyrradag.
Úrslitin eru álitin mikið áfall fyrir
Mitt Romney og kyntu undir efa-
semdum um að hann gæti tryggt sér
nægan stuðning meðal íhaldssamra
stuðningsmanna repúblikana.
„Sigurvagn Romneys lenti ofan
í skurði,“ sagði David Gergen,
fréttaskýrandi bandaríska frétta-
sjónvarpsins CNN.
Santorum sigraði í forvali repú-
blikana í Minnesota og Colorado og í
forkosningum í Missouri. Skoð-
anakannanir höfðu bent til þess að
Santorum væri í sókn í Minnesota og
Missouri vegna mikils stuðnings
meðal íhaldssamra og kirkjurækinna
repúblikana. Engin könnun benti þó
til þess að hann myndi sigra í Colo-
rado.
Ósigurinn í Colorado er mikið
áfall fyrir Romney vegna þess að
hann sigraði þar í forkosningunum
fyrir fjórum árum þegar hann fékk
um 60% atkvæðanna. Hann fékk að-
eins tæpra 35% fylgi í sambands-
ríkinu á þriðjudag og Santorum 40%.
Santorum sagði í sjónvarps-
viðtölum í gærmorgun að sigrarnir
hefðu ekki komið sér á óvart þar sem
hann hefði fundið mikinn meðbyr að
undanförnu og meira fé hefði safnast
í kosningasjóð hans en nokkru sinni
fyrr. Hann kvaðst telja að Romney
gæti ekki sigrað Barack Obama for-
seta í kosningunum í nóvember og
lýsti sjálfum sér sem þeim frambjóð-
anda sem væri líklegastur til að geta
komið í veg fyrir að Obama yrði end-
urkjörinn.
Sigur fyrir íhaldsmenn
„Fjölskyldan, trú og frelsi“ eru
kjörorð Ricks Santorums í kosninga-
baráttunni og þau skilaboð hafa
fengið góðan hljómgrunn hjá íhalds-
sömum kristnum kjósendum repú-
blikana. „Úrslitin í kvöld eru sigur
fyrir raddirnar í flokki okkar, íhalds-
menn og Teboðs-fólkið, sem voru úti
á vínekrunni á hverjum degi að
byggja upp íhaldshreyfinguna í land-
inu,“ sagði Santorum þegar hann
ávarpaði stuðningsmenn sína eftir
sigrana í fyrradag.
„Mér er ekki aðeins annt um
99% eða 95%. Mér er annt um þá
auðugustu og þá fátækustu. Mér er
annt um 100% Bandaríkjamanna,“
sagði Santorum og skírskotaði til ný-
legra ummæla Mitts Romneys sem
lét þau orð falla að engin ástæða
væri til að hafa áhyggjur af fátækum
Bandaríkjamönnum, nær væri að
hugsa um millistéttina. Romney er
sjálfur vellauðugur kaupsýslumaður
og það hefur verið akkilesarhæll
hans sem frambjóðandi á tímum at-
vinnuleysis og kreppu.
Í kosningabaráttunni hefur
Santorum oft talað um rætur fjöl-
skyldu sinnar í stáliðnaðinum í
Pennsylvaníu og baráttu afa síns í
kolanámum eftir að hann flutti þang-
að búferlum frá Ítalíu.
Santorum er 53 ára, kaþólskur,
faðir sjö barna og hefur verið kvænt-
ur eiginkonu sinni, Karen, í 21 ár.
Hann var kjörinn í fulltrúadeild
Bandaríkjaþings fyrir Pennsylvaníu
árið 1990 og átti sæti í öldungadeild-
inni frá 1995 til 2007.
Andstæðingar hans hafa lýst
honum sem trúarofstækismanni og
meðal annars skírskotað til viðtals
þar sem hann jafnaði kynmökum
samkynhneigðra við sifjaspell og
barnaníð. Einörð andstaða hans við
fóstureyðingar og hjónabönd para af
sama kyni hefur hins vegar mælst
vel fyrir meðal kirkjurækinna kjós-
enda repúblikana.
Næst verður kosið í Arizona og
Michigan eftir þrjár vikur og búist
er við að baráttan þar verði mikil-
vægari en oftast áður í forkosn-
ingum repúblikana. „Stóri þriðju-
dagurinn“ verður síðan 6. mars
þegar kosið verður í tíu sambands-
ríkjum og um það bil fimmtungur
allra kjörmanna repúblikana verður
kosinn.
Sigrar Santorums á þriðjudag
voru mikið áfall fyrir Newt Gingrich,
fyrrverandi forseta fulltrúadeildar
Bandaríkjaþings, en hann hafði von-
ast til þess að verða helsta vonar-
stjarna íhaldsaflanna í baráttunni
við Romney.
Gingrich var ekki í framboði í
Missouri og tók lítinn þátt í kosn-
ingabaráttunni í Colorado og Minne-
sota. Þegar kosið var í fyrradag var
Gingrich í Ohio, einu ríkjanna þar
sem kosið verður þriðjudaginn 6.
mars.
„Sigurvagn Romneys ofan í skurði“
Íhaldsmaðurinn Santorum sigraði óvænt í þremur sambandsríkjum í forkosningum repúblikana
Úrslitin mikið áfall fyrir Mitt Romney og Newt Gingrich Óvenjuspennandi barátta framundan
AP
Sigurvegarinn Rick Santorum ávarpar stuðningsmenn sína í Missouri eftir
forkosningarnar í fyrradag. Eiginkona hans, Karen, stendur við hlið hans.
Óvenjumikilvægar
» Kosið verður í Arizona og
Michigan 28. febrúar og í
Washington-ríki 3. mars. Talið
er að forkosningarnar þar verði
óvenjumikilvægar að þessu
sinni vegna þess hversu jöfn
baráttan er milli frambjóðend-
anna.
» Stóri þriðjudagurinn verð-
ur 6. mars þegar kosið verður í
Alaska, Georgíu, Idaho, Massa-
chusetts, Norður-Dakota,
Ohio, Oklahoma, Tennessee,
Vermont og Virginíu.
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
Tíbetskir útlagar í Nýju-Delhí á Indlandi kveikja
á lömpum til minningar um þá sem hafa beðið
bana í baráttunni gegn kúgun kínverskra yfir-
valda í Tíbet. Hundruð Tíbeta tóku þátt í mót-
mælum í Nýju-Delhí í gær gegn mannréttinda-
brotum í Tíbet. Að minnsta kosti tuttugu Tíbetar
hafa kveikt í sér á síðustu mánuðum, flestir
þeirra í Sichuan-héraði í Kína, til að mótmæla
mannréttindabrotum gegn Tíbetum.
Reuters
Minnst tuttugu hafa kveikt í sér
Tíbetar mótmæla mannréttindabrotum
Íbúar í þorpinu
Nutaarmiut á
vesturströnd
Grænlands eru
harmi slegnir
eftir að tvítugur
maður skaut þrjá
menn til bana og
særði tvo lífs-
hættulega.
Maðurinn er nú í
haldi lögregl-
unnar.
Í grænlenska blaðinu Sermitsiaq
segir að fólk eigi bágt með að trúa
að annað eins geti gerst í þorpinu,
en íbúar þess eru aðeins um 50.
„Íbúarnir eru í miklu áfalli og
hér ríkir mikil sorg. Hér vita auð-
vitað allir hvað hefur gerst,“ hefur
blaðið eftir einum íbúanna.
Engin lögreglustöð er í Nutaar-
miut. Strax og ljóst var hvað hafði
gerst voru lögreglumenn og læknir
fluttir með þyrlu til þorpsins. Lög-
reglan afvopnaði síðan hinn
grunaða og handtók hann í gær-
morgun.
Skotárásin var gerð í fyrrinótt,
að sögn fjölmiðla á Grænlandi.
Grænlend-
ingar harmi
slegnir
Þrír myrtir og tveir
særðust í skotárás
Kirkja í
Nutaarmiut.