Morgunblaðið - 09.02.2012, Page 19
FRÉTTIR 19Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Blóðsúthellingarnar í Sýrlandi hafa
vakið umræðu í Bandaríkjunum og
fleiri löndum um hvort sjá eigi sýr-
lenskum uppreisnarmönnum fyrir
vopnum til að efla þá í baráttunni við
hersveitir sem hafa orðið þúsundum
manna að bana í linnulausum árás-
um á borgina Homs og fleiri byggð-
ir.
Öldungadeildarþingmaðurinn
John McCain, forsetaefni repúblik-
ana í síðustu kosningum, er á meðal
bandarískra þingmanna sem vilja að
stjórnin í Washington íhugi þann
möguleika að vopna sýrlensku upp-
reisnarmennina. „Hún ætti að íhuga
alla kosti, meðal annars að vopna
stjórnarandstöðuna. Blóðsúthelling-
unum verður að linna,“ hefur frétta-
vefur CNN eftir McCain.
Stjórn Baracks Obama forseta
hefur sagt að hún sé ekki hlynnt því
að uppreisnarmönnunum verði séð
fyrir vopnum, að svo stöddu að
minnsta kosti. Stjórnin kveðst ætla
að einbeita sér að því að byggja upp
tengsl við sýrlensku stjórnarand-
stöðuna og beita einræðisstjórnina
þrýstingi með hertum efnahags-
legum refsiaðgerum.
Myndi auka líkur
á borgarastyrjöld
Bandarískir embættismenn við-
urkenna þó að ólíklegt er að refsiað-
gerðir beri tilætlaðan árangur.
Grannríkin Írak, Íran og Líbanon
hafa hafnað viðskiptaþvingunum
gegn stjórninni í Sýrlandi.
Los Angeles Times hefur eftir
nokkrum bandarískum stjórnarer-
indrekum að líklegast sé að arabaríki
á borð við Sádi-Arabíu eða Katar
vopni uppreisnarmennina og Banda-
ríkjastjórn láti sem hún viti ekki af
því. Slík aðstoð myndi auka líkurnar
á langvinnri borgarastyrjöld og enn
meiri blóðsúthellingum í Sýrlandi,
líkt og gerðist í Írak og Líbanon.
Líklegt er að í slíku stríði myndi
stjórn Sýrlands njóta stuðnings sjíta
sem eru í meirihluta í Íran og Írak og
áhrifamiklir í Líbanon. Flestir sýr-
lensku uppreisnarmennirnir eru úr
röðum súnníta sem eru í meirihluta í
Sýrlandi og langflestum löndum
Arababandalagsins.
Óttast að íslamistar
komist til valda
Ákveði arabalöndin eða vestræn
ríki að vopna sýrlensku stjórnarand-
stöðuna er hugsanlegt að vopnin
komist í hendur íslamskra öfga-
manna sem berjast fyrir íslömsku ríki
frekar en lýðræði.
Minnihlutahópar í Sýrlandi, þeirra á
meðal kristnir menn, óttast mjög að
borgarastríð verði til þess að íslamskir
öfgamenn taki við völdunum af Assad-
fjölskyldunni sem hefur stjórnað land-
inu í 40 ár.
Þótt hernaðaríhlutun sé ólíkleg er
hugsanlegt að samkomulag náist um að
senda vopnaða eftirlitsmenn til Sýrlands
í því skyni að tryggja að hægt verði að
koma hjálpargögnum á svæði sem hafa
orðið fyrir árásum sýrlenska hersins.
Á að vopna uppreisnarmennina?
AP
Uppreisnarlið Liðsmenn uppreisnarhers, sem nefnist Frjálsi sýrlenski herinn, á æfingu nálægt borginni Idlib.
Vaxandi umræða í Bandaríkjunum um þann möguleika að sjá stjórnarandstæðingum í Sýrlandi fyrir
vopnum en stjórnin ljær ekki máls á slíkri aðstoð Líklegra er að arabaríki vopni uppreisnarmennina
Sýrlenskar hersveitir héldu
áfram hörðum árásum á borg-
ina Homs og fleiri staði í Sýr-
landi og urðu tugum manna að
bana í gær. Daginn áður hafði
Bashar al-Assad, forseti Sýr-
lands, sagt á fundi með
utanríkisráðherra Rússlands að
sýrlenska stjórnin væri stað-
ráðin í því að binda enda á
blóðsúthellingarnar.
Vladímír Pútín, forsætisráð-
herra Rússlands, varaði vest-
ræn ríki og arabalönd við því að
reyna að binda enda á mann-
drápin með hernaðaríhlutun.
Hann sagði að slíkar aðgerðir
væru eins og að senda „naut í
postulínsverslun“.
Frakkar og Bretar sögðust
hafa litla trú á tilraunum Rússa
til að stöðva manndrápin og
yfirlýsingum Assads um að
hann vildi ná samkomulagi sem
byggðist á friðaráætlun Araba-
bandalagsins.
Mannréttindahreyfingar
segja að minnst 62 hafi beðið
bana í árásunum í gær, þeirra á
meðal þrjár fjölskyldur, m.a.
þrjú börn. Neyðarástand er í
Homs vegna matvæla- og vatns-
skorts og rafmagnsleysis vegna
linnulausra sprengjuárása.
Neyð í Homs
TUGIR BIÐU BANA
Ármúli 38 | 568 5150 | gasar.is
Erum byrjuð að taka á móti
verkum fyrir næsta listmuna-
uppboð okkar.
Áhugasamir hafi samband við
Ólaf Morthens í síma 893 9663
eða oli@gasar.is.
Alfreð Flóki
Kona
Gásar gallerí hefur fengið
viðurkenningu frá Myndstef fyrir
fagleg viðskipti og heiðarleika gagnvart
listamönnum og kaupendum listaverka.
10%+ virðisaukaskattur
Söluþóknun
Áhrif flugs
á Íslandi
Hafa flugsamgöngur meiri áhrif á eyríki langt úti í Atlantshafi en ríki á
meginlandi Evrópu? Hver eru áhrif flugs á Íslandi? Að undanförnu hefur
hið þekkta rannsóknarfyrirtæki Oxford Economics unnið að úttekt á
efnahagslegum áhrifum flugstarfsemi í 55 löndum um allan heim í
samstarfi við IATA, Alþjóðasamtök flugfélaga. Nú er skýrslan um Ísland
komin út og á fundinum verða athyglisverðar niðurstöður hennar kynntar
undir fundarstjórn hinnar góðkunnu sjónvarpskonu Þóru Arnórsdóttur.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Efnahagslegur ábati af flugrekstri á Íslandi
Kynning á niðurstöðum skýrslu Oxford Economics
Julie Provici, hagfræðingur IATA
Pallborðsumræður um efni skýrslunnar
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og atvinnumálaráðherra
Pétur K. Maack, flugmálastjóri
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
Fáið nýjustu upplýsingar um samgöngumál á Íslandi beint í æð.
Vinsamlega skráið þátttöku á info@saf.is. Aðgangur er ókeypis.
Morgunverðarfundur á Hilton Reykjavík Nordica,
fimmtudaginn 23. febrúar kl. 8:30-9:45.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
58
35
4
02
/1
2
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
- nýr auglýsingamiðill
...þú leitar og finnur