Morgunblaðið - 09.02.2012, Blaðsíða 31
DAGBÓK 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
7 1 6 8 3
5 6 7
2 1
5 8 4 3 2
3 5
7 1
7 3 8
1 5 4 2 6
2
1 9
9 2 3
6 5
3 2 9
8 2 5 9 6
4 8
6 8 3 4 5
2 3 4 1
6 7 4
4 1
1 9
7 9 1 3
4 9 3 8 5
4 7
7 9 3 5
3 8 1
1 4 5 8 7 9 2 6 3
7 2 6 3 5 1 9 8 4
8 9 3 2 4 6 7 5 1
2 1 8 4 9 5 6 3 7
4 6 9 7 3 8 5 1 2
5 3 7 1 6 2 8 4 9
3 8 1 6 2 7 4 9 5
9 7 4 5 8 3 1 2 6
6 5 2 9 1 4 3 7 8
3 9 6 1 7 5 2 8 4
8 1 4 2 6 9 7 5 3
2 7 5 3 4 8 9 1 6
4 6 1 8 2 3 5 9 7
9 8 3 5 1 7 4 6 2
5 2 7 6 9 4 1 3 8
6 4 9 7 3 1 8 2 5
1 3 8 4 5 2 6 7 9
7 5 2 9 8 6 3 4 1
5 7 1 9 3 4 2 6 8
9 4 3 8 6 2 5 1 7
2 8 6 1 7 5 9 4 3
4 3 5 7 9 6 1 8 2
7 1 8 2 4 3 6 5 9
6 9 2 5 8 1 7 3 4
3 6 9 4 1 7 8 2 5
8 2 4 6 5 9 3 7 1
1 5 7 3 2 8 4 9 6
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður
að gerast þannig að hver
níu reita lína bæði lárétt
og lóðrétt birti einnig töl-
urnar 1-9 og aldrei má tví-
taka neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 9. febrúar,
40. dagur ársins 2012
Orð dagsins: Og hann sagði við þá:
Hvíldardagurinn varð til mannsins
vegna og eigi maðurinn vegna hvíld-
ardagsins. (Markús 2, 27.)
Íslensk menningaráhrif er víða aðfinna. Víkverji sat og horfði á
breskan framhaldsþátt um hina
mannlegu hlið kynjavera á borð við
varúlfa og vampírur í sjónvarpinu á
mánudag þegar allt í einu heyrðust
tónar úr laginu Heysátan með ís-
lensku hljómsveitinni Sigurrós. Text-
inn passaði kannski ekki alveg við at-
riðið í þættinum, en hann er ekki
skiljanlegur mörgum áhorfendum
þessa þáttar og tónlistin átti full-
komlega við andrúmsloftið á skján-
um. Víkverji var skömmu fyrir ára-
mót á gangi á sýningu um myndlist á
tímum kalda stríðsins í National-
galerie í Berlín þegar hann rakst þar
á málverk eftir Erró innan um aðra
meistara. Þá þarf ekki að fjölyrða um
velgengni kvikmyndarinnar Contra-
band, endurgerðar Baltasars Kor-
máks á myndinni Reykjavík-
Rotterdam, í Bandaríkjunum.
x x x
Ámánudag barst yfirlit yfir um-fjöllun um Ísland í þýskum fjöl-
miðlum í fyrra í kringum þátt lands-
ins í bókamessunni í Frankfurt. Í
tilkynningu frá Sögueyjunni, en svo
hét verkefnið utan um þátttöku Ís-
lands, sagði að hún samsvaraði því að
Ísland hefði verið til umfjöllunar
þrisvar á dag í þýskum fjölmiðlum –
og voru þá héraðsblöð og svæðis-
útvörp ekki talin. Þýskur kunningi
Víkverja sagði þegar hann sá listann
yfir alla þessa umfjöllun að það mætti
halda að þýskir fjölmiðlar hefðu ekki
fjallað um annað í fyrra.
x x x
Þá er bensínverðið að skríða yfir250 krónur lítrinn og hefur þó
verðið aðeins verið að lækka úti í
heimi. Dýrt bensín er farið að hafa
áhrif á akstur Íslendinga og hefur
nokkuð dregið úr umferð. Víkverji
veltir hins vegar fyrir sér hvort dýr-
tíðin hafi einnig áhrif á það hvernig
menn aka. Hann stendur sjálfan sig í
það minnsta að því að fylgjast vel með
mælinum, sem sýnir meðaleyðslu, í
bílnum hjá honum og passar sig nú
orðið að halda jöfnum hraða í umferð-
inni frekar en að gefa í og kloss-
bremsa milli ljósa. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 forljót kona, 4
kasta, 7 þvinga, 8 ótti, 9
renna, 11 lengdareining, 13
bakki á landi, 14 afbragð, 15
ómjúk, 17 útungun, 20
málmur, 22 smyrsl, 23 eim-
yrjan,
24 snáði, 25 flýtirinn.
Lóðrétt | 1 hæfa, 2 ull, 3
mjög, 4 höfuð, 5 núa, 6
ákveð, 10 þor, 12 hvíld, 13
tjara, 15 aðstoð, 16 rödd, 18
girnd, 19 báturinn, 20 nátt-
úra, 21 rekast í.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 rysjóttur, 8 lýgur, 9 fóðra, 10 pot, 11 grafa, 13 akrar,
15 klökk, 18 sárna, 21 oft, 22 stutt, 23 askan, 24 hlunnfara.
Lóðrétt: 2 yggla, 3 jarpa, 4 tyfta, 5 Urður, 6 slag, 7 maur, 12
fok, 14 krá, 15 koss, 16 ötull, 17 kotin, 18 starf, 19 ríkur, 20
annt.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Röksemdir Lawrence. V-Enginn.
Norður
♠G83
♥ÁD32
♦Á82
♣973
Vestur Austur
♠ÁD964 ♠752
♥7 ♥954
♦KG9 ♦D763
♣D862 ♣1054
Suður
♠K10
♥KG1086
♦1054
♣ÁKG
Suður spilar 4♥.
Opnun vesturs á 1♠ gengur til suð-
urs, sem segir 2♥ og norður hækkar
í fjögur. Útspilið er smátt lauf upp á
tíu austurs og …
Mike Lawrence hefur þetta um
spilið að segja: „Vestur er aug-
ljóslega ekki með ♦K-D-G, því þá
hefði hann komið þar út. Austur á
sennilega ♦D. Með hliðsjón af því er
ljóst að vestur er með öll útistand-
andi mannspil önnur, þar með talda
drottninguna í spaða. Svíning á ♠10
er tilgangslaus og tími til að fría ♠G
ekki nægur ef vestur skiptir yfir í
tígul. Eina raunhæfa vinningsvonin
felst í því að tæla vestur til að spila
laufi áfram. Og það má gera á ein-
faldan hátt með því drepa ♣10 með
kóng og spila ♠10. Þá mun vestur
reikna með ♣G hjá makker sínum og
þruma út öðru laufi.“
9. febrúar 1946
Maður hrapaði í djúpa gjá í
Aðaldalshrauni í Þingeyjar-
sýslu. Hann fannst ekki fyrr
en eftir þrjá daga og var þá
„heill og hress,“ eins og það
var orðað í Morgunblaðinu.
9. febrúar 1959
Togarinn Júlí frá Hafnarfirði,
fórst í fárviðri við Nýfundna-
land og með honum 30 manns
á aldrinum frá 16 til 48 ára.
„Eitt mesta sjóslys á þessari
öld,“ sagði Morgunblaðið.
9. febrúar 1984
Maður með lambhúshettu
rændi á fjórða hundrað þús-
und krónum í útibúi Iðnaðar-
bankans í Breiðholti, að starfs-
fólki viðstöddu. Málið
upplýstist ekki.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Valdimar Örnólfsson, íþróttakennari, íþrótta-
stjóri og frumkvöðull í Kerlingarfjöllum og
fleira, er áttræður í dag. Af því tilefni hefur
hann í hyggju að skella sér á skíði í Hlíðarfjalli
með fjölskyldunni sem fylgdi honum norður
fyrir heiðar í gær. Sumir komu frá Noregi og
Danmörku til að komast í afmælisskíðaferð-
ina. „Það má búast við skemmtilegri afmælis-
hátíð,“ segir Valdimar.
Hann fer reyndar ekki oft á skíði. „Nú fer ég
aðallega með barnabörnunum til að skemmta
mér með unga fólkinu.“ Hann fari helst ef færið sé gott og skyggnið
sömuleiðis. Valdimar segir að þótt beinin séu sterk og góð þá sé slæmt
fyrir gamla menn að detta. „Og það er miklu meiri hætta á að maður
detti ef skyggni er ekki gott, þá sér maður ekki mishæðirnar.“
Valdimar stundar enn líkamsæfingar í um klukkustund á dag. Í æf-
ingunum reynir á allan líkamann. „Það er allt undir, hjarta, lungu,
vöðvar og liðamót,“ segir hann. Þar að auki gerir hann Mullers-
strokur sem halda húðinni, stærsta líffæri líkamans, góðri. Að sögn
Valdimars hefur hann ekki elst um einn dag frá því hann var sjötugur
og því er hér birt mynd af honum á þeim aldri. runarp@mbl.is
Valdimar Örnólfsson er áttræður
Á skíði á áttræðisafmælinu
Flóðogfjara
9. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 1.11 0,2 7.17 4,3 13.35 0,1 19.39 4,0 9.45 17.40
Ísafjörður 3.17 -0,0 9.13 2,3 15.44 -0,1 21.37 2,0 10.02 17.32
Siglufjörður 5.24 0,1 11.43 1,3 18.01 -0,1 9.46 17.15
Djúpivogur 4.36 2,1 10.46 0,1 16.49 2,0 22.59 -0,1 9.17 17.06
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þótt bjartsýnin sé til staðar máttu
ekki láta hana taka svo yfir að þú gerir þér
enga raunhæfa grein fyrir stöðu þinni. Not-
aðu tækifærið til að ganga frá lausum end-
um.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Gjafir sem þér berast vekja hugsanlega
afbrýðisemi með einhverjum. Ef þú færð það
á tilfinninguna að ekki sé allt með felldu þá er
það sennilega rétt hjá þér.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Kannaðu verð og gæði áður en þú
festir kaup á nýjum hlut. Látttu ekki streitu
ná tökum á þér og ljúktu við verkefnin án fyr-
irhafnar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Skilningur er þemað bæði heima fyrir
og í vinnunni. Reyndu að finna henni farveg
og leggðu þig svo allan fram; sjálfum þér og
öðrum til ánægju.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ringulreið í samskiptum þínum við elsk-
una þína veldur þér áhyggjum. Gættu þess að
þú fáir þá viðurkenningu sem þú átt skilið.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þegar þú heldur þig við upphaflega
áætlun verður einhver fúll. Mundu að aðrir
eru álíka fastir fyrir og þú í þessum efnum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Það er allt í lagi að taka smááhættu,
þegar aðstæður eru hagstæðar. Hristu af þér
slenið og láttu hendur standa fram úr erm-
um. Leystu málin í bróðerni.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Fegurð og friður umvefja þig í
dag. Gerðu þér dagamun með vinum og
vandamönnum því það léttir þér lífið.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú hefur hæfileikana sem þarf til
þess að leysa verk sín meistaralega vel af
hendi. Láttu aðra sanna sig áður en þú hleyp-
ir þeim að þér.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Verkefnin hlaðast upp og það veld-
ur þér áhyggjum. Skelltu ekki skollaeyrum við
því sem vinir og vandamenn segja þér.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Samskipti þín við yfirvöld skila
góðum árangri í dag, sérstaklega varðandi
fjármálin. Láttu slag standa og farðu eftir eig-
in hyggjuviti.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú færð tækifæri til að leiða aðra
áfram eða hafa áhrif á hópa þannig að það
leiðir til breytinga á umhverfi þínu.
Stjörnuspá
Kolbeinn Þor-
steinsson, fyrr-
verandi blóma-
sali, Lindargötu
61 í Reykjavík,
verður áttræður
í dag, 9. febrúar.
Hann átti og rak
blómabúðina Mí-
mósu á Hótel Sögu í nokkra ára-
tugi. Kolbeinn fagnar deginum með
fjölskyldu sinni.
80 ára
Hjónin Þórdís Stella Brynjólfs-
dóttir og Sigurður Þorsteinsson
vélfræðingur eiga sextíu ára brúð-
kaupsafmæli í dag, 9. febrúar. Þau
búa á Norðurbrú 5, Garðabæ, og
njóta dagsins með fjölskyldunni.
Demantsbrúðkaup
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rf3 c5 4. d5 exd5
5. cxd5 d6 6. Rc3 g6 7. e4 Bg7 8. h3
O-O 9. Bd3 a6 10. a4 Rbd7 11. O-O
De7 12. Bf4 Rh5 13. Bh2 Bh6 14. He1
Rf4 15. Bf1 Re5 16. a5 Bd7 17. Ra4
Bb5 18. Rb6 Had8 19. b3 Hfe8 20.
Rc4 Bxc4 21. bxc4 Df6 22. Rxe5 dxe5
23. Hb1 Hd7 24. Hb6 Dd8 25. Da4
Rh5 26. Heb1 Bd2 27. Hxb7 Hxb7 28.
Hxb7 Bxa5
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Prag í
Tékklandi. Stórmeistarinn Hannes
Hlífar Stefánsson (2531) hafði hvítt
gegn Alexander Chudinovskikh
(2276) frá Rússlandi. 29. Hd7! Db6
30. Hd6! Db8 31. Hc6 Bc3 32. Hxc5
Bd4 33. Ha5 Rf6 34. Bd3 Rd7 35.
Dxd7 og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Hvítur á leik.
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af barninu til birtingar
í Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt að senda
mynd af barninu með upplýsingum
um fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum foreldra. Einnig
má senda tölvupóst á barn@mbl.is