Morgunblaðið - 09.02.2012, Qupperneq 36
36 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 2012
Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is
Rokksveitin Sólstafir mun flytja
nýjustu breiðskífu sína, Svarta
sanda, frá upphafi til enda á útgáfu-
tónleikum sem hefjast í Gamla bíói í
kvöld klukkan 20. Alls er um að
ræða tæpar áttatíu mínútur af tón-
list en platan, sem kom út sl. haust,
er sem kunnugt er tvöföld.
„Það er meira en að segja það að
spila Svarta sanda út í gegn,“ segir
Aðalbjörn Tryggvason, Addi, söngv-
ari og gítarleikari Sólstafa. „Við er-
um búnir að æfa stíft í litlu átta fer-
metra herbergi, gömlum sveppa-
ræktunarklefa sem Brain Police
lánaði okkur, og höfum verið að ná
þessu vel þar en hvort það skilar sér
þegar komið er upp á svið í Gamla
bíói verður bara að koma í ljós. Ég
hef enga hugmynd um hvort þetta
verður betri eða verri upplifun en
að hlusta á plötuna en ég get lofað
því að hún verður allavega öðru-
vísi,“ segir Addi og bætir við að
hann sé sérstaklega spenntur að
heyra hvernig salurinn taki við
þyngstu köflunum. „Þótt við höfum
poppað okkur dálítið upp er samt
heilmikið þungarokk í þessu ennþá.
Eigum við að segja þungarokk í dul-
argervi?“
Addi segir menn hafa verið sam-
mála um að fylgja Svörtum söndum
eftir með „almennilegum útgáfu-
tónleikum“ og var Gamla bíó fyrsti
kostur. „Eins og fólk sem þekkir
okkur veit erum við mikið fyrir
„retróið“, eins og sagt er á vondri
íslensku, og Gamla bíó á fyrir vikið
vel við. Salurinn er ekki bara gamal-
dags, heldur er andinn þar líka ein-
stakur.“
Stærstu tónleikarnir
Baksviðsaðstaðan í Gamla bíói er
víðfræg fyrir þær sakir að óvenju
lágt er til lofts. Spurður hvort hann
hafi áhyggjur af þessu svarar Addi,
sem losar 190 cm: „Nei, nei. Þetta
er þvert á móti veglegt samanborið
við það sem gengur og gerist í bak-
sviðsherbergjabransanum.“
Þetta eru stærstu tónleikar sem
Sólstafir hafa haldið upp á eigin
spýtur en hljómsveitin var stofnuð í
Breiðholtinu árið 1995. „Við höfum
spilað á mun stærri tónleikum á há-
tíðum erlendis en þá mættum við
bara og spiluðum. Að þessu sinni
hvílir allur undirbúningur á okkar
herðum, við komum til með að bera
Marshall-boxin sjálfir inn í Gamla
bíó,“ segir Addi og skellir upp úr.
Engin áform eru um að end-
urtaka leikinn, hvorki hér heima né
erlendis, það er að flytja Svarta
sanda í heild,
þannig að
nú gefst
aðdáendum
Sólstafa
einstakt
tækifæri til
að heyra lög
sem alla
jafna munu
ekki heyrast á
tónleikum
sveitarinnar.
„Vitaskuld
komum við til
með að taka ein-
hver lög af plöt-
unni inn á tónleikaprógrammið okk-
ar en alls ekki öll,“ segir Addi en til
þessa hafa Sólstafir aðeins leikið
þrjú lög af plötunni opinberlega, Þín
orð, Fjöru og Melrakkablús.
Gerður G. Bjarklind
kemst ekki
Ýmsir gestir troða upp með Sól-
stöfum í kvöld, bæði þeir sem koma
við sögu á plötunni og aðrir. Má þar
nefna bakraddasöngvarana Hall-
grím og Heiðu úr Helvar, Hall Ing-
ólfsson, Berg Jónsson, Steinar Sig-
urðsson og kórinn Hljómeyki undir
stjórn Gunnars Ben
Skálmeldings. Einn
„gestasöngvarinn“ á
plötunni verður þó
fjarri góðu gamni.
„Við reyndum að fá
Gerði G. Bjarklind en
hún kemst því miður
ekki, er á Spáni,“
upplýsir Addi en
Gerður les veður-
fregnir inn á eitt
laganna, Stinnings-
kalda. Lesturinn
verður leikinn af
snældu í kvöld.
Tónleikarnir verða
teknir upp með mögulega útgáfu í
huga. „Ætli sé ekki best að klára
giggið fyrst áður en við gefum
nokkrar yfirlýsingar í þeim efnum,“
segir Addi.
Í næsta mánuði leggja Sólstafir
upp í þriggja vikna tónleikaferð um
Evrópu og í vor og sumar verður
meðal annars leikið á hátíðum í
Noregi, Hollandi og Frakklandi.
Evrópskir sandar verða því senn
svartir.
Sólstafir „Salurinn er ekki bara gamaldags, heldur er andinn þar líka einstakur,“ segir Aðalbjörn Tryggvason söngvari og gítarleikari um Gamla bíó.
Þungarokk í dulargervi
Sólstafir flytja
plötu sína Svarta
sanda í heild sinni
í Gamla bíói í
kvöld klukkan 20
Platan Svartir sandar hefur verið
ausin lofi, bæði hér heima og er-
lendis. „Við erum mjög ánægðir
með plötuna en samt er ekki hægt
að segja annað en viðtökur hafi ver-
ið vonum framar,“ segir Addi. „Það
er til dæmis undarleg en góð til-
finning að sjá okkur, gömlu þunga-
rokkarana úr Breiðholtinu, fyrir of-
an risastór nöfn eins og Mastodon,
Opeth og Machine Head á upp-
gjörslistum blaða fyrir árið 2011.“
Nýverið var fjallað um Svarta
sanda í hinu virta þýska tímariti
Der Spiegel sem Adda þykir að von-
um mikil upphefð.
Einna frjóastur hefur jarðvegur-
inn verið í Finnlandi, þar sem Svart-
ir sandar komust ekki bara inn á
óháða vinsældalistann, heldur líka
inn á sjálfan þjóðarlistann. Um tíma
sátu Sólstafir í makindum sæti ofar
en Noel Gallagher úr Oasis á óháða
listanum. „Finnar eru dásamlegir,“
segir Addi.
Myndband við lagið Fjöru er þeg-
ar farið að vekja athygli og Addi
staðfestir að plötusala hafi tekið
kipp eftir að það fór í spilun. „Við
erum mjög ánægðir með mynd-
bandið enda lögðu menn sig í lífs-
hættu við að taka það upp.“
Betri landkynning er vandfundin
en Ísland skartar sínu fegursta í
myndbandinu. „Með réttu ættum
við að vera á launum hjá Ferða-
málaráði eða Icelandair,“ segir Addi
sposkur.
Fyrir ofan Noel Gallagher
FRÁBÆRAR VIÐTÖKUR
Noel Gallagher Lét í minni pokann.
Framtakssemina skortir svo sann-
arlega ekki hjá hinni skosku Pauline
McCarthy sem búsett er á Akranesi.
Hún stendur fyrir alþjóðlegri ljós-
mynda- og myndlistarsamkeppni
sem nefnist Project 12. Hvatann á
bak við verkefnið segir Pauline vera
áhuga á myndlist og ljósmyndun auk
þess sem hún vill leggja sitt lóð á
vogarskálarnar til að efla innlendan
ferðamannaiðnað. Hugmyndin er þó
eldri, en hana fékk Pauline hinn 8.
ágúst 2008, þegar hún velti fyrir sér
tölfræðinni í dagsetningum. „Þá
hugsaði ég að það yrði að halda með
einhverjum hætti upp á dagsetn-
inguna 12.12.12. Mér fannst tilvalið
að nýta listræna hæfileika fólks til
að vekja athygli á málefnum eins og
umhverfisvernd og friði.“
Keppninni er skipt í fjóra hluta
eftir þemum sem eru Pauline sér-
lega hugleikin en það eru friður,
jörð, mánuðir ársins og 12.12.12.
Viðfangsefnin eru þó ekki njörvuð
niður á nokkurn hátt, heldur er þátt-
takendum frjálst að leika sér með
efnin að vild. Keppnin er öllum opin
og eru glæsileg verðlaun í boði, en
þau eru vikuferð fyrir tvo til Íslands
sé sigurvegarinn erlendur eða til
Glasgow, London eða New York sé
hann frá Íslandi.
Af ýmsu þjóðerni
Ætlunin með keppninni er að
auka vitund um Ísland og kosti þess
ásamt því að skapa samfélag á net-
inu þar sem fólki er gert kleift að
skiptast á ljósmyndum og listaverk-
um, skapa umræðu og fá viðbrögð
við hugmyndum sínum, svipað og
Fésbókin eða Myspace. „Sem þátt-
takandi í samfélaginu Project 12
geturðu gefið verkum annarra
stjörnur og þannig mun stjörnugjöf
ákvarða sigurvegara keppninnar.“
Nú þegar hafa um 80 manns skráð
sig í keppnina, og eru þátttakendur
af ýmsu þjóðerni. Þar má nefna
Litháen, Kína, Bandaríkin, Kanada,
Palestínu og England.
Allar frekari upplýsingar um
keppnina má sjá á heimasíðu verk-
efnisins, 2012project12.com.
gudrunsoley@mbl.is
Ljósmyndakeppni í tilefni af 12.12.12
Úr keppninni Pauline McCarthy vill efla innlendan ferðamannaiðnað.
Eins og sagt var frá í Morgun-
blaðinu á þriðjudag hefur Break-
beat sett af stað söfnun til að fjár-
magna bókina „Taktabrot“ sem
mun innihalda hátt í hundrað vegg-
spjöld frá viðburðum hópsins und-
anfarinn áratug. Seinnipartinn í
gær höfðu 159.500 kr. safnast en
markmiðið er 700 þúsund. Þeim
sem vilja styrkja Breakbeat er bent
á slóðina bok.breakbeat.is en söfn-
uninni lýkur eftir 22 daga.
Breakbeat 22 dagar eftir af söfnuninni.
Breakbeat.is-söfn-
un skilað 160 þús.