Morgunblaðið - 09.02.2012, Page 40
FIMMTUDAGUR 9. FEBRÚAR 40. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Létu drenginn hlaupa um ...
2. Baðst afsökunar á drykkjulátum
3. Kreppan er nefnilega búin
4. Enn verið að auglýsa vændi?
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Breska hljómsveitin 10cc heldur
tónleika í Háskólabíói 21. apríl og
mun flytja öll sín þekktustu lög en
sveitin hefur selt yfir 30 milljónir
platna á ferli sínum. Miðasala hefst
22. febrúar á midi.is.
10cc treður upp í
Háskólabíói í apríl
Enginn annar
en stórstjarnan
Denzel Washing-
ton hefur sam-
þykkt að leika
aðalhlutverkið í
næstu kvikmynd
sem Baltasar Kor-
mákur leikstýrir.
Myndin sú heitir
2 Guns og leikstýrir Baltasar henni
fyrir Marc Platt Productions. Þetta er
80 milljóna dollara verkefni, jafnvirði
tæplega tíu milljarða króna.
Baltasar leikstýrir
Denzel Washington
Sigurður Sigurjónsson flytur ein-
leikinn Afann eftir Bjarna Hauk Þórs-
son kl. 19:30 í Höllinni í
Vestmannaeyjum á
laugardaginn en leik-
ritið var frumsýnt í
Borgarleikhúsinu
fyrir rúmu ári
við góðar
undirtektir.
Miðasala
er hafin í
versluninni
Axel Ó.
Einleikurinn Afinn til
Vestmannaeyja
Á föstudag Vestan- og suðvestan 8-15 m/s, hvassast NV-til. Él V-
til en bjartviðri eystra. Hiti um og undir frostmarki.
Á laugardag Suðvestanátt og stöku él, víða frost 0 til 6 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Snýst í suðlæga átt, 10-18 m/s, síðdegis
með slyddu eða rigningu, en hægari norðaustanátt NV-til með dá-
lítilli snjókomu eða slyddu. Hiti 0 til 6 stig.
VEÐUR
„Það voru eingöngu karlmenn og
unglingar í áhorfendastúkunni og
voru mest að syngja alls konar
söngva sem komu liðunum lítið við.
Það virtist skipta meira máli að sýna
sig og sjá aðra en að styðja liðin sem
voru að leika inni á vellinum. En
vissulega var góð stemning í höll-
inni,“ segir Jónas Elíasson hand-
boltadómari sem er nýkominn frá
Sádi-Arabíu. »1
Skipti meira máli að
sýna sig og sjá aðra
Guðjón Valur Sigurðsson er búinn að ganga form-
lega frá samningum við þýska stórliðið Kiel og fer
þangað frá AG í Kaupmannahöfn í sum-
ar. Þar með hefur endanlega
verið upplýst verst geymda
leyndarmál í evrópskum hand-
bolta á þessum vetri en fyrstu
fréttir af líklegum vistaskiptum
Guðjóns fóru í loftið strax í nóv-
ember. Hann verður aðeins annar
Íslendingurinn til að leika með
þessu stórveldi í þýska handbolt-
anum. »4
Verst geymda
leyndarmálið upplýst
Það verða ÍBV og Valur sem
mætast í bikarúrslitaleik kvenna
í handknattleik í Laugardalshöll-
inni síðar í þessum mánuði.
Eyjakonur unnu mjög öruggan
sigur á FH í Vestmannaeyjum,
24:13, og Valur var ekki í teljandi
vandræðum með Stjörnuna á
Hlíðarenda og sigraði 35:28.
»2-3
ÍBV og Valur mætast
í bikarúrslitunum
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Kjartan Kjartansson
kjartan@mbl.is
Um 700 krakkar úr 9. og 10. bekk
grunnskóla á Suðurnesjum flykktust
í Stapa í Reykjanesbæ í gær þar sem
um áttatíu manns kynntu þeim
starfsgreinar sínar. Þar kenndi
ýmissa grasa og gátu grunnskóla-
nemarnir kynnt sér allt frá tann-
lækningum til leikmyndahönnunar.
Hlutfall 10. bekkinga sem halda
áfram námi að grunnskóla loknum
hefur verið nokkru lægra á Suður-
nesjum en á landsvísu. Kynningin í
gær var liður í átaksverkefni Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum
og menntamálaráðuneytisins til að
efla menntun og starfsfræðslu á
svæðinu til þess að hækka það hlut-
fall.
Ákveðnir í að halda áfram
Þeir Hafþór Harðarson og Safír
Steinn Valþórsson úr Akurskóla
voru ánægðir með kynninguna. Þeir
höfðu báðir mestan áhuga á að kynn-
ast sjómennsku og arkitektúr og
voru orðnir margs vísari um hvernig
þeir komast í þau störf.
„Núna veit maður miklu meira um
þetta og þetta er allt komið á
hreint,“ segir Safír Steinn.
Þeir félagarnir eru ekki í neinum
vafa þegar þeir eru spurðir hvort
þeir ætli að halda áfram í skóla.
„Jájá, það er alveg löngu ákveðið,“
segja þeir hiklaust.
Tómas Beck, flugmaður hjá Ice-
landair, var einn þeirra sem kynntu
starf sitt í Stapa í gær. Hann segist
vonast til þess að hafa náð að beina
einhverjum út á flugbrautina með
kynningu sinni og finnst framtakið,
kynning af þessu tagi, frábært.
„Krakkarnir eru rosalega áhuga-
samir. Sumir spyrja beint hver laun-
in séu en aðrir spyrja hvernig þetta
byrji og hvernig þetta gerist. Þau
eru ófeimin og órög við að spyrja,“
segir hann.
Læra um leiðir að störfum
Kynna störf
sín krökkum á
Suðurnesjum
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Kynning Krakkarnir höfðu mikinn áhuga á því sem starfsmenn Tollgæslunnar höfðu að segja. Þá freistuðu ekki síð-
ur ýmis vopn á borð við byssu og hnífa sem Tollurinn hafði gert upptæk og krakkarnir fengu að skoða.
„Við vorum að skoða tannlækninn því að grunnlaunin
eru 700-800 þúsund en það er samt langt nám,“ segir
Ellen Hilda Sigurðardóttir í 9. bekk Akurskóla. Hún og
Ingunn Kara, skólasystir hennar úr 10. bekk sama
skóla, hafa samt mestan áhuga á að skoða starf flug-
freyja og hárgreiðslufólks. Þær eru sammála um að
starfskynning eins og sú sem var haldin í Stapa í gær
fræði þær um það hvernig þær eigi að komast í
draumastarfið í framtíðinni.
„Ég ætla að fara á tungumálabraut í FS eða MS fyrst
og svo í flugfreyjuskólann,“ segir Ellen Hilda.
„Svo langar mig líka að verða arkitekt, það er ýkt vel
borgað líka. Ég ætla að verða rík þegar ég verð stór!“
skýtur Ingunn Kara inn í.
„Ég ætla að verða rík þegar ég verð stór!“
STÖRF FLUGFREYJA OG TANNLÆKNA HEILLA KRAKKANA
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Ellen Hilda og Ingunn Kara á kynningunni í gær.
ÍÞRÓTTIR