Morgunblaðið - 11.02.2012, Blaðsíða 49
MENNING 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. FEBRÚAR 2012
Fimmtu Bergþórutónleikarnir verða
haldnir í Salnum í Kópavogi 15. og
16. febrúar nk. og í Hofi á Akureyri
17. febrúar. Það er Minningarsjóður
Bergþóru Árnadóttur söngvaskálds
sem efnir til þessara árlegu tónleika
en í ár er yfirskriftin Afturhvarf. Á
efnisskránni verða mörg af þekktari
lögum Bergþóru auk laga sem
sjaldnar hafa verið spiluð. Á tónleik-
unum koma m.a. fram Guðrún
Gunnarsdóttir, Pálmi Gunnarsson,
Hjörleifur Valsson og Svavar Knút-
ur en gestasöngvari í Salnum verður
barnabarn Bergþóru, Valný Lára
Jónsdóttir.
Yfirskrift tónleikanna er einnig
vísun í að á tónleikunum koma við
sögu samverkamenn Bergþóru um
lengri eða skemmri tíma, t.a.m. lék
Pálmi Gunnarsson með henni inn á
fyrstu plötu hennar seint á áttunda
áratugnum og Hjörleifur lék með
Bergþóru af og til í meira en áratug.
Minningarsjóður Bergþóru var
stofnaður í framhaldi af tónleikum
vorið 2008 og í kjölfar heildarútgáfu
með verkum söngkonunnar, en til-
gangur sjóðsins er að stuðla að því
að tónlist Bergþóru og minning lifi
meðal þjóðarinnar. Tónleikarnir eru
aldrei eins, þ.e. mismunandi flytj-
endur og efnisskrá sem gerir það að
verkum að sömu áhorfendur fá alltaf
eitthvað nýtt. Öll stefgjöld og hagn-
aður af tónleikum renna óskipt til
minningarsjóðsins.
Afturhvarf á fimmtu
Bergþórutónleikunum
Söngvaskáld Bergþóra Árnadóttir.
Johnny Depp átti mjög erfitt með að
venjast frægðinni og athyglinni sem
fylgir því að vera stórstjarna. Depp
var gestur þýsku sjónvarpsstöðvar-
innar Tele 5 og sagði frá því að á
fyrstu hátíðinni sem hann sótti, kvik-
myndahátíðinni í Cannes, hefði hann
fengið kvíðakast þegar hann sá allan
blaða- og ljósmyndaraskarann og
endaði með að loka sig af inni á
hótelherbergi allan tímann.
Reuters
Depp Erfitt með að venjast frægðinni.
Frægðin erfið
Ronnie Wood,
gítarleikari Roll-
ing Stones, hef-
ur greint frá því
að hann afþakk-
aði boð um að
ganga til liðs við
hljómsveitina
Led Zeppelin.
Wood sagði
frá því í útvarps-
þætti að gamli umboðsmaðurinn
hans Peter Grant hefði boðið hon-
um að spila með sveitinni á meðan
hún kallaði sig The New Yard-
birds, en Grant var einnig um-
boðsmaður þeirra. Wood hafnaði
hins vegar boðinu þar sem honum
fannst meðlimirnir vera „hópur
bænda“.
Wood var boðið að
spila með Zeppelin
Breski tónlistarmaðurinn Paul McCartney var
heiðraður í Los Angeles í fyrir helgi. Bítillinn fyrr-
verandi hefur nú bæst í hóp þeirra listamanna sem
hafa fengið stjörnu í frægðargötunni í Hollywood.
Mörg hundruð æstir aðdáendur fylgdust grannt
með þegar McCartney svipti hulunni af stjörnunni
við Hollywood Boulevard.
Athygli vekur að hann er fjórði og síðasti Bítill-
inn sem er heiðraður með þessum hætti. Þeir John
Lennon, George Harrison og Ringo Starr hafa allir
fengið stjörnu sem prýðir göngugötuna frægu.
McCartney fékk stjörnu
McCartney Ánægður
að fá stjörnu.
NÝJASTA MEISTARAVERK STEVEN
SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG SELFOSSISÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL
á sýningSPARBÍÓ 750 kr.
N
SPIELBERG
, AKUREYRI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI
ar merktar með appelsínugulu
ÚMERUÐ SÆTI Í KRINGLUNNIMIÐASALA Á SAMBIO.IS
HUGO Ísl. texti kl. 2 - 3 - 5:20 - 8 - 10:40 2D 10
HUGO kl. 3 - 5:20 - 8 - 10:40 2D VIP
HUGO Ótextuð kl. 8 - 10:40 3D 10
ONE FOR THE MONEY kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12
MAN ON A LEDGE kl. 10:40 2D 12
CONTRABAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 16
PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 1 - 3:20 - 5:40 2D L
SHERLOCK HOLMES 2 kl. 8 2D 12
MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:30 2D 12
FJÖRFISKARNIR Íslenskt tal kl. 1:30 - 3:40 2D L
STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN Ísl. tal kl. 1:30 - 3:40 2D L
HAPPY FEET 2 Íslenskt tal kl. 1 2D L
HUGO Ísl. texti kl. 3 - 5:20 - 8 2D 10
HUGO Ótextuð kl. 10:40 3D 10
ONE FOR THE MONEY kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 12
MAN ON A LEDGE kl. 5:40 - 8 2D 12
WAR HORSE kl. 10:20 2D 12
PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 3 - 5:40 2D L
UNDERWORLD: AWAKENING kl. 8 - 10:10 2D 16
STÍGVÉLAÐIKÖTTURINN Ísl. tal kl. 3:30 2D L
FJÖRFISKARNIR Íslenskt tal kl. 3:30 2D L
/ AKUREYRI
HUGO Ísl. texti kl. 1:30 - 3:40 2D 10
HUGO Ótextuð kl. 5:50 - 8 3D 10
ONE FOR THE MONEY kl. 10:20 2D 12
WAR HORSE kl. 8 2D 12
PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 1:30 - 5:50 2D L
SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:30 2D 12
FJÖRFISKARNIR Íslenskt tal kl. 3:40 2D L
/ KEFLAVÍK
/ SELFOSSI
/ KRINGLUNNI
/ EGILSHÖLL
/ ÁLFABAKKA
GOTTERDAMMERUNG (ópera í beinni úts.) Laugardag kl. 5 L
SHAME kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 16
ONE FOR THE MONEY kl. 10:50 2D 12
WAR HORSE kl. 8 (Sun. kl. 2 - 8) 2D 12
J. EDGAR Sun. kl. 8 2D 12
PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 2 - 3:30 (Sun. kl. 2 - 4) 2D L
SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:45 2D 12
THE HELP kl. 5 2D L
FJÖRFISKARNIR Íslenskt tal kl. 1:30 (Sun. kl. 2) 2D L
HUGO Ísl. texti kl. 5 2D 10
HUGO Ótextuð kl. 8 3D 10
SAFE HOUSE kl. 10:30 2D 16
50/50 kl. 8 2D 12
SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:10 2D 12
PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 2 2D L
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 2 - 6 2D L
FJÖRFISKARNIR Íslenskt tal kl. 4 2D L
CONTRABAND kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 16
THE HELP kl. 5 2D L
WAR HORSE kl. 8 2D 12
FJÖRFISKARNIR Íslenskt tal kl. 2 2D L
MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 10:40 2D 12
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 2 - 4 2D L
SÝND Í KRINGLUNNI
"FLOTTUR HASAR."
-H.S.S. - MBL
HHH
CHICAGO SUN-TIMES
HHHH
„Einstaklega vel gerð spennumynd“
-Joe Morgenstern THE WALL STREET JOURNAL
MÖGNUÐ SPENNUMYND
TILNEFNINGAR
TIL ÓSKARSVERÐLAUNA
BESTA MYNDIN
I6
K.S. - NEW YORK POST
HHHH
R.C. - TIME
HHHH
- MARA REINSTEIN
/ US WEEKLY
HHHH
Þ.Þ. - Fréttatíminn
HHHH
H.V.A. - Fréttablaðið
HHHH
T.V. - Kvikmyndir.is
HHHH
B.G. - MBL
HHH
M.M. - Biofilman.is
HHHH
YFIR 25.000 MANNS!
LOS ANGELES TIMES
HHHH
SÝND Í ÁLFABAKKA OG SELFOSSI SÝND Í EGILSHÖLL
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG KEFLAVÍK SÝND Í ÁLFABAKKA
-THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHH
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf
deildarforseta hönnunar- og arkitektúrdeildar. Umsækjandi
skal vera hönnuður eða arkitekt með mikilsverða reynslu
í atvinnuumhverfi sinnar greinar. Það skilyrði er sett að
umsækjandi hafi meistaragráðu eða sambærilega
háskólagráðu í greininni.
Deildarforseti fer með yfirstjórn deildarinnar og er í forystu fyrir
starfsemi hennar bæði innávið og útávið. Hann leiðir stefnumótun
fyrir deildina, ræktar samstarf kennara og sérfræðinga, byggir upp
brýr til atvinnulífs og annarra háskóla, er fulltrúi skólans í alþjóðlegu
samstarfi á sviði hönnunar og arkitektúrs, og ber ábyrgð á gerð
fjárhagsáætlunar og annarra áætlana sem varða deildina sérstak-
lega.
Jafnframt er til þess ætlast að deildarforseti taki þátt í almennri
umræðu um hönnun og arkitektúr, jafnt innan skólans sem utan,
og láti að sér kveða á opinberum vettvangi um málefni þessara
greina. Deildarforseti situr í framkvæmdaráði skólans og fagráði,
og sinnir trúnaðarstörfum fyrir skólann í heild sem rektor kann
að fela honum.
Umsóknir skulu merktar viðkomandi starfi og sendar rektor
Hjálmari H. Ragnarssyni, Listaháskóla Íslands, Þverholti 11,
105 Reykjavík, eigi síðar en mánudaginn 5. mars
næstkomandi.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans lhi.is
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir
umsóknum um starf deildarforseta
hönnunar- og arkitektúrdeildar