Morgunblaðið - 13.02.2012, Side 2
Þróun eldsneytisverðs og gengis íslensku krónunnar
Þróun útsöluverðs á bensíni Þróun útsöluverða á díselolíu Þróun USD Þróun EUR
(Tilbúnar vísitölur)
170
160
150
140
130
120
110
100
90
80
Janúar 2009 Janúar 2012
Allar vísitölur færðar í
100 í janúar 2009
167,79
151,10
99,95
97,30
Vilhjálmur Andri Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
„Eldsneytisverð er orðið allt of hátt og venjulegt
fólk þarf bráðum að leggja bílnum ef ekki verður
eitthvað gert til að lækka verðið,“ segir Guðlaug-
ur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins. Efnahags- og viðskiptanefnd kemur
saman í dag og ætlar Guðlaugur að taka upp
málið í nefndinni og gera tillögur þess efnis að
lækkaðir verði skattar á eldsneyti. „Skattheimta
er almennt komin út fyrir öll eðlileg mörk á Ís-
landi. Það liggur við að ef eitthvað hreyfist þá sé
það skattlagt. Það sem helst ræður verðlagningu
á eldsneyti eru opinber gjöld og skattar en af
hverjum greiddum bensínlítra borga neytendur
um 118 krónur til ríkisins. Það er orðinn lúxus að
keyra bíl á Íslandi.“ Guðlaugur bendir einnig á
að hátt eldsneytisverð komi niður á ferðaþjón-
ustunni þar sem umferð hafi dregist töluvert
saman milli ára og fólk ferðist minna innanlands.
„Ég hef einnig áhyggjur af því að fyrir venjulegt
launafók fari það jafnvel að borga sig að sitja
heima á bótum fremur en að þurfa að keyra
langar vegalengdir til vinnu, slíkur er kostnað-
urinn að verða í dag.“
Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB,
segir að frá tímabilinu 2008 til dagsins í dag hafi
skattgreiðsla dæmigerðrar fjölskyldu hækkað
um 100 þúsund krónur á ári vegna reksturs á
fjölskyldubílnum. „Stjórnvöld hafa sagt að til
þess að draga úr sveiflum á eldsneytisverði
vegna þróunar á heimsmarkaði sé stór hluti
skatta á eldsneyti fastar krónutölur, t.d. bensín-
gjald, vörugjald og kolefnisgjald sem er nýtt
gjald en ofan á þetta leggst svo 25,5% virðis-
aukaskattur. Það mætti afnema eða lækka kol-
efnisgjaldið og vörugjaldið en sá skattur hefur
hækkað um 160 prósent frá hruni og rennur ekki
sérstaklega til vegamála eða umhverfismála.“
Skattheimta hækkar bensínverð
Borgum 100.000 krónum meira í skatt af venju-
legum fjölskyldubíl í dag en fyrir hrun
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2012
– fyrst og
fremst
ódýr!
30%
afsláttu
r
1098kr.kg
Verð áður 1598 kr. kg
Ný ýsa í raspi
39kr.kg
TILBOÐ
– aðeins í
dag!
Takmarka
ð magn
Laukur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
„Það er skemmtilegt við svona göngu að þátttak-
endur segja líka frá. Þeir rifja upp fróðleik og
segja frá upplifun sinni,“ segir Eggert Þór Bern-
harðsson sagnfræðingur sem var leiðsögumaður
í ljósmyndagöngu um Árbæjarhverfi í gær. Ljós-
myndasafn Reykjavíkur stóð fyrir fimm slíkum
göngum um hverfi borgarinnar. Gísli Helgason,
starfsmaður safnsins, sýndi þátttakendum
myndir á meðan Eggert sagði frá. Í göngunni
voru meðal annars nokkrir af fyrstu íbúum út-
hverfisins sem byggðist upp af krafti á sjöunda
áratug síðustu aldar.
Sýndu ljósmyndir á göngu um úthverfi
Morgunblaðið/Ómar
Hverfin könnuð á Ljósmyndadögum Ljósmyndasafns Reykjavíkur
„Við viljum hafa ferlið opið og lýðræðislegt. Við vitum
ekki hvernig þetta endar en þannig virkar lýðræðið,“ seg-
ir Margrét Tryggvadóttir, þingmaður Hreyfingarinnar,
um fyrri stofnfund nýs framboðs sem notað hefur vinnu-
heitið Breiðfylkingin. Að því standa Hreyfingin, Borg-
arahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og einstaklingar,
meðal annars fólk úr stjórnlagaráði.
Í kjarnastefnu framboðsins sem undirbúningshópur
lagði fyrir stofnfundinn er lögð áhersla á lausn á skulda-
vanda heimilanna, meðal annars með afnámi verðtrygg-
ingar neytendalána, og almenna leiðréttingu húsnæðis-
lána.
Fólk er sammála um nauðsyn þess að ný stjórnarskrá
fólksins komi sem allra fyrst til þjóðaratkvæðis. Einnig
að efla siðferði og gegnsæi í stjórnmálum, stjórnsýslu og
fjármálakerfinu. Þá er lögð áhersla á auðlindamálin, bæði
þjóðareign sjávarauðlindarinnar og virkjanamálin.
Ekki er samstaða um afstöðu til inngöngu í Evrópu-
sambandið og viðurkennir Margrét að tekist hafi verið á
um það á fundinum í gær. Í kjarnastefnu fylkingarinnar
kemur fram að vilji sé til að klára aðildarviðræður og
bera niðurstöðuna undir stofnfund. Um þetta voru skipt-
ar skoðanir. „Ég veit ekki hvernig þetta endar,“ segir
Margrét. Hún skilgreinir framboðið mitt á milli Sam-
stöðu Lilju Mósesdóttur og Bjartrar framtíðar. „Mér
finnst að það ætti að íhuga mjög vandlega. Okkar dyr
hafa alltaf staðið opnar,“ segir Margrét þegar hún var
spurð að því hvers vegna nýju stjórnmálaöflin byðu ekki
fram saman. Kosið var framkvæmdaráð til bráðabirgða
og málefnanefndir og er áformað að boða til seinni stofn-
fundar að mánuði liðnum. helgi@mbl.is
Skiptar skoðanir eru um
afstöðuna til ESB-aðildar
Morgunblaðið/Ómar
Þingmenn Hreyfingin á aðild að Breiðfylkingunni.
Fyrri stofnfundur Breið-
fylkingarinnar haldinn í gær
Lögreglan gefur
ekki upp hvaða
skilaboðum reynt
var að koma á
framfæri með
sprengingu á
Hverfisgötu í lok
janúar. Þetta
voru pólitísk
skilaboð, ætluð
stjórnvöldum, en
yfirmaður rann-
sóknarlögreglunnar segir hana ekki
hafa í hyggju að ganga erinda manns-
ins með því að koma þeim á framfæri.
Karlmaður á áttræðisaldi hefur
játað að hafa staðið fyrir sprenging-
unni og telst málið upplýst. Ekki eru
aðrir grunaðir um aðild að málinu.
Tekið er fram í tilkynningu lög-
reglunnar að sprengjan var ekki til
þess fallin að valda eyðileggingu eða
hættu, enda hafi maðurinn staðið við
hlið hennar þegar hún sprakk.
Lögreglan skoðar undir hvaða
lagaákvæði háttsemi mannsins fellur.
helgi@mbl.is
Skilaboðin
verða ekki
gefin upp
Játaði aðild að
sprengjumálinu