Morgunblaðið - 13.02.2012, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2012
Skógarhlíð 18 sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
•
Heimsferðir bjóða frábært verð á allra síðustu sætunum til
Tenerife 13. mars. Í boði er einkar hagstætt verð á Vime
Callao íbúðahótelinu með öllu inniföldu.
Athugið að mjög takmörkuð gisting er í boði!
Einnig önnur gisting í boði á afar hagstæðum kjörum.
frá kr. 119.800 með „öllu inniföldu“
Tenerife
13. mars í 7 nætur
Kr. 119.800 Vime Callao *** með öllu inniföldu
Netverð á mann m.v. tvo fullorðna í íbúð með allt innifalið.
Fimm konur hyggjast segja sig
formlega úr Y-lista Kópavogsbúa á
fundi sem haldinn verður í dag, að
sögn Ásdísar Ólafsdóttur, eins af
stofnendum framboðsins. Ásdís seg-
ir konurnar vera ósáttar við þá
ákvörðun Rannveigar Ásgeirs-
dóttur, bæjarfulltrúa Y-listans, að
mynda nýjan bæjarstjórnarmeiri-
hluta í samvinnu með Sjálfstæð-
isflokknum og Framsóknarflokkn-
um í Kópavogi. „Stóra bláa höndin
kom þarna við og eyðilagði lítinn,
fallegan og góðan lista,“ segir Ásdís.
Konurnar fimm mynda tæplega
helming listans en tólf frambjóð-
endur buðu sig fram fyrir Y-lista
Kópavogsbúa í síðustu sveitarstjórn-
arkosningum. Þrjár kvennanna
sinntu nefndarstörfum á vegum
bæjarins en að sögn Ásdísar hafa
þær látið af þeim störfum sínum.
Sagði skilið við listann í haust
Ein kvennanna, Hanna Dóra Stef-
ánsdóttir, hefur raunar áður sagt
formlega skilið við Y-listann en það
gerði hún síðastliðið haust. „Það er
svolítið skrítið að hún sé að segja sig
frá núna vegna þess að hún var nú-
þegar búin að því,“ segir Rannveig
Ásgeirsdóttir og spyr: „Getur maður
sagt sig tvisvar frá sama málinu?“
Að sögn Rannveigar voru aðrar
ástæður að baki brotthvarfi Hönnu
Dóru en ósætti með nýja meirihluta-
samstarfið. skulih@mbl.is
Fimm frambjóðendur
segja skilið við Y-lista
Morgunblaðið/Ómar
Oddvitar Rannveig Ásgeirsdóttir
og Ármann Kr. Ólafsson.
Hefur tvisvar sagt
sig úr listanum
Y-listinn
» Konurnar fimm eru tæplega
helmingur allra frambjóðenda
Y-listans.
» Að sögn Rannveigar var
þegar búið að kalla inn vara-
mann til að taka við nefndar-
störfum þeim sem Hanna Dóra
sinnti áður.
» Y-listinn fékk einn fulltrúa
kjörinn í bæjarstjórn í síðustu
sveitarstjórnarkosningum.
Jarðskjálfahrina er á Tjörnes-
brotabeltinu við Grímsey. Tugir
skjálfta voru þar á laugardag og
aftur í fyrrinótt. Í gær dró úr
skjálftavirkni.
Yfir fimmtíu jarðskjálftar urðu
við Grímsey á laugardag, að því er
lesa má af korti Veðurstofunnar,
flestir á bilinu eitt til tvö stig, en fá-
einir rúmlega tvö stig. Þá voru um
þrjátíu skjálftar aðfaranótt sunnu-
dags. Síðan dró úr skjálftavirkni og
voru aðeins stakir skjálftar frá
klukkan tíu á sunnudag og fram eft-
ir degi.
Oft verða skjálftahrinur á Tjör-
nesbrotabeltinu, sérstaklega við
Grímsey. Samkvæmt upplýsingum
frá Veðurstofu Íslands er ekkert
óvenjulegt við þessa hrinu en þó er
fylgst sérstaklega með henni.
Skjálftarnir eru það litlir að þeir
finnast aðeins á mælitækjum Veð-
urstofunnar og hefur enginn til-
kynnt að jarðskjálfti hafi fundist í
byggð.
Tjörnesbrotabeltið nær frá
Skagagrunni og austur á Melrakka-
sléttu. Oft verða skjálftar á svoköll-
uðu Grímseyjarbelti þar sem saman
fléttast eldvirkni, siggengi og snið-
gengishreyfingar en einnig í syðri
sigdal Eyjafjarðaráls. helgi@mbl.is
Tugir
skjálfta við
Grímsey
Jarðskjálftar Kvöldsól við vestur-
hluta Grímseyjar.
Oft skjálftahrinur
á brotabeltinu
Borgarráð Reykjavíkur hefur beint
því til stjórnar skíðasvæðanna á
höfuðborgarsvæðinu að hefja við-
ræður við skíðadeild KR um að
deildin sjái um rekstur svæðisins.
Stjórn skíðasvæðanna hefur ekki
treyst sér til að opna Skálafell í vet-
ur vegna niðurskurðar fjár-
framlaga. Skíðadeildin telur að það
myndi kosta sveitarfélögin 18 millj-
ónir að hafa opið 7 helgar. Ef við-
ræður ganga vel er ekki útilokað að
hægt verði að opna um næstu helgi.
Viðræður hefjast
um opnun Skálafells
FRÉTTASKÝRING
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
Skíðaveturinn hefur ýmist verið
skelfilegur eða frábær hjá skíða-
svæðum landsins. Í Hlíðarfjalli hafa
síðustu helgar verið góðar með fal-
legu veðri og fjölda fólks að sögn
Hólmfríðar Söru Friðjónsdóttur,
verkstjóra innanhússtarfsmanna
skíðasvæðisins. Í Hlíðarfjalli var
opnað fyrst 4. desember sem er
viku seinna en árinu áður. „Aðsókn
og opnun hefur að öðru leyti verið
sambærileg við árin á undan,“ segir
Hólmfríður. Hún segir fjölbreyttan
hóp sækja Hlíðarfjall. „Við fáum
hingað skólahópa að sunnan, skipti-
nema og fleiri. Einnig er nokkuð
um erlenda gesti, hingað kom
danskur hópur í janúar, og fær-
eyskur hópur kemur í marsmánuði.
Straumur erlendra gesta hefur auk-
ist talsvert.“
Í Ísafjarðarbæ hefur skíðavetur-
inn að sama skapi verið góður. Að
sögn Jóhanns Birkis Helgasonar,
sviðsstjóra umhverfis- og eigna-
sviðs Ísafjarðar, er skíðasvæðið op-
ið fimm daga vikunnar og hefur
verið í samtals 25 daga eftir ára-
mót, en svæðið var opnað fyrst ann-
an í jólum í vetur. Mikil aðsókn hef-
ur verið í ár og góð stemning í
brekkunum. Að sögn starfsmanna
verður yfirleitt gríðarleg fjölgun
gesta á páskum, en þá heimsækja
aðfluttir Vestfirðingar oft heima-
slóðirnar og skella sér á skíði með
fjölskyldum og vinum.
Snjólítið og harðfenni
Aðra sögu er að segja af Odds-
skarði, en að sögn Dagfinns S. Óm-
arssonar, forstöðumanns Odds-
skarðs, hefur veturinn verið
afleitur. „Þetta hefur satt best að
segja verið skelfilegur vetur.“ Að
hans sögn hefur hvorki snjóað jafnt
né mikið. „Við opnuðum annan í jól-
um í fyrra og færið var ágætt til 20.
janúar, en eftir það hefur það farið
versnandi.“ Oddsskarð hefur sam-
tals verið opið í 28 daga á tíma-
bilinu. „Við erum snjólítil og það er
mikið harðfenni. Það er búið að
vera rok og rigning í þrjár vikur
núna og 10 stiga hiti sem hefur gert
það að verkum að við misstum nán-
ast allar helgarnar í janúar. Það
hefur verið mun verra veður en í
fyrra.“ Hann segir þetta skiljanlega
hafa áhrif á þann hóp sem sækir
svæðið „Það er bara æfingafólk og
foreldrar og þeir allra hörðustu.“
Að sögn Dagfinns hefur aðsóknin
farið niður um 40% síðan í fyrra, en
um 2.000 gestir hafa heimsótt
svæðið það sem af er vetri. Hann
vonast þó eftir betra færi og auk-
inni opnun með hækkandi sól.
1.000 manns á dag í Bláfjöllum
Í Bláfjöllum eru menn sáttari
með veturinn. Að sögn starfsmanna
hefur verið gríðarlega góð aðsókn í
vetur, en rétt undir þúsund manns
hafa heimsótt svæðið á hverjum
þeirra 30 daga sem opið hefur
verið á þessu tímabili. Árið
2010-2011 heimsóttu fjöllin
46.000 manns á 63 dögum
og vonast starfsmenn
fjallsins eftir
svipuðum tölum
í ár.
Sveiflukenndur skíðavetur
Góður vetur og mikil aðsókn í Hlíðarfjalli, á Ísafirði og í Bláfjöllum
Verra færi í Oddsskarði með 40% minni aðsókn á milli ára
Morgunblaðið/Eggert
Skíðaskemmtun Veturinn 2011-12 er í flestum tilfellum sambærilegur við fyrri vetur. Þótt meira hafi snjóað í ár
en oft áður skilar það sér ekki í fleiri dögum sem opið er, fjöldinn stendur í stað milli ára.
Aðalvertíð skíðasvæðanna er í kringum páska ár hvert. „Við urðum
vör við mikla aukningu eftir hrun, þá kom fólk sem áður var vant að
fara í skíðaferðir til útlanda gjarnan til okkar í staðinn enda mun
kostnaðarminna.“ segir Hólmfríður Sara Friðjónsdóttir, verkstjóri
innanhúss í Hlíðarfjalli. „Fólk kemur í ferðir norður og dvelur jafnvel
í heila viku.“
Tindastóll hefur undanfarin ár haldið svokallaða Týrólahátíð
um páskana. Að sögn Dagfinns S. Ómarssonar, forstöðumanns
Oddsskarðs, fjölgar gestum margfalt um það leyti árs og er það
tímabil um 1⁄3 af heildaraðsókn ársins. Í þrjú ár hafa þeir fengið
Týrólahljómsveit frá Austurríki sem jóðlar og spilar fyrir skíða-
menn og aðra gesti. ,,Tónleikarnir eru þá haldnir í skíðaskálanum
með hátalarakerfi um allt svæðið. Þá mætir fólk gjarnan í Týróla-
göllum og myndast mikil stemning.“
Hátíðin er haldin á laugardeginum fyrir páska.
Alpaferðir liðin tíð
MIKIL STEMNING