Morgunblaðið - 13.02.2012, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2012
INNKÖLLUN Á VÖRU
Okkur hefur verið tilkynnt að barna-
bílstóll með vörunúmerinu 28831
uppfylli því miður ekki þær öryggis-
kröfur sem gerðar eru til barnabíl-
stóla. Stóllinn hefur því verið tekinn
úr sölu í Rúmfatalagernum. Stóllinn
var fáanlegur frá septemberlokum
2011 og eru þeir viðskiptavinir
sem hafa keypt þennan stól
vinsamlegast beðnir um að
hætta notkun á honum. Hægt
er að hafa samband við næstu
Rúmfatalagersverslun og skila
honum gegn fullri endur-
greiðslu. Við biðjumst
velvirðingar á þessu. Með
fyrirfram þökk fyrir sýndan
skilning.
BAKSVIÐ
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Vegagerðin auglýsir í dag útboð á
lagningu Vestfjarðavegur nr. 60 um
Múlasveit. Ekki hefur verið gengið
frá deiliskipulagi og framkvæmda-
leyfi hefur ekki verið gefið út. Vega-
gerðin hefur lengt frest til að skila til-
boðum vegna þess og hefur fyrirvara
í útboðsgögnum.
Lagður er tæplega 16 km langur
vegur úr Vattarfirði í Kjálkafjörð. Er
hann um 8 styttri en núverandi vegur
vegna þverunar tveggja fjarða.
Vegurinn liggur að mestu í Reyk-
hólahreppi en nær þó aðeins inn í
Vesturbyggð. Því þurfa bæði sveit-
arfélögin að veita framkvæmdaleyfi
en fyrst verður að ganga frá deili-
skipulagi. Unnið hefur verið að skipu-
lagningu samhliða undirbúningi út-
boðs.
Ekki hefur verið gengið frá skipu-
laginu í Reykhólahreppi. Mistök urðu
við frágang skjala og þurfti að af-
greiða það upp á nýtt í hreppsnefnd
og senda að nýju til staðfestingar hjá
Skipulagsstofnun. Það tefur málið
eitthvað því ekki er hægt að gefa út
framkvæmdaleyfi fyrr en skipulags-
breytingin hefur verið auglýst í
Stjórnartíðindum.
Fyrirvari í útboðsgögnum
Vegagerðin vill hefja framkvæmd-
ir í vor og þeim á að ljúka 2015. Í út-
boðsgögnum er gerður fyrirvari um
að sótt hafi verið um framkvæmda-
leyfi en það ekki fengið. Samkvæmt
upplýsingum frá Vegagerðinni mun
verktími lengjast ef miklar tafir
verða á útgáfu leyfisins.
Útgáfa framkvæmdaleyfis hefur
verið undirbúin á vegum sveitar-
stjórnanna. Þar verða væntanlega
sett skilyrði um umhverfisatriði á
framkvæmdatíma. Framkvæmda-
svæðið nýtur verndar, hluti þess er á
náttúruminjaskrá og hluti er vernd-
aður samkvæmt lögum um vernd
Breiðafjarðar.
Framkvæmdaleyfi óafgreitt
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Breiðafjörður Unnið að vegagerð á Melanesi við Vestfjarðaveg nr. 60, skammt austan Skálaness.
Vegagerðin auglýsir í dag útboð á lagningu nýs Vestfjarðavegar í Múlasveit
Dráttur hefur orðið á frágangi skipulags Verkið tefst ef leyfi fást ekki fljótt
Ásta Hlín Magn-
úsdóttir var í
gær kjörin nýr
formaður Sam-
bands ungra
framsóknar-
manna (SUF).
Ásta Hlín fékk 32
atkvæði eða 53%.
Mótframbjóðandi
hennar, Ragnar
Stefán Rögn-
valdsson, fékk 28 atkvæði eða 47%.
Á kjörskrá voru 66, þar af greiddu
60 atkvæði.
Ásta Hlín er fædd árið 1989,
kemur frá Fáskrúðsfirði og stundar
nám í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands. Hún hefur verið starfandi
formaður stjórnar SUF síðan í sept-
ember.
Ásta Hlín formaður
Sambands ungra
framsóknarmanna
Ásta Hlín
Magnúsdóttir
Samkvæmt
heimildum frá
Veðurstofu Ís-
lands var veður-
athugunum á
Hrauni á Skaga
hætt nú um ára-
mótin. Veður-
athugun hefur
verið þar allt
frá árinu 1952
og út árið 2011. Einhverjar mæl-
ingar fóru þar fram áður á ár-
unum 1942 til 1952 þá aðallega á
vindi, samkvæmt Sögu Veð-
urstofu Íslands sem kom út 1999.
Kemur þetta fram á fréttavef Ár-
neshrepps, www.litlihjalli.is.
Þóranna Pálsdóttir, verkefna-
stjóri veðurgagnaúrvinnslu hjá
Veðurstofu Íslands, segir mjög
slæmt að missa þessa veðurstöð á
Hrauni á Skaga, en veðurathug-
unarmaðurinn þar hafi oft beðið
um lausn frá störfum og varð það
úr nú um áramótin, en þar munu
úrkomumælingar fara fram
áfram og snjódýptarmælingar og
Hraun mun því halda áfram sem
úrkomustöð, einnig er þar sjálf-
virk veðurathugunarstöð sem
fylgist með vindstefnu, vindhraða
og hitastigi.
Hætt sem mönnuð
veðurathugunarstöð
Veðurathuganir.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
„Það er leyfilegt að standa í stærri
bílunum, það fer eftir skráningu
bílsins, en það er eitthvað sem á að
gerast endrum og eins ef það kem-
ur upp óvæntur toppur í einhverri
stakri ferð en ekki neitt sem á að
gerast að staðaldri,“ segir Einar
Kristjánsson, sviðsstjóri þjón-
ustusviðs Strætó. Að sögn Einars
eru bílarnir sem um ræðir 50-70
manna langferðabifreiðir.
Að sögn Halldórs Guðmunds-
sonar, leigubifreiðarstjóra, var tólf
ára gamall sonur hans þó látinn
standa í 19 manna strætóbifreið
sem gengur á milli Víkur og Sel-
foss. Atvikið átti sér stað fyrir helgi
en Halldór segir að fleiri farþegar í
bifreiðinni hafi einnig verið látnir
standa. Halldór tekur jafnframt
fram að hann viti til þess að hátt í
10 manns hafi verið látnir standa í
þessum litlu strætóbifreiðum sem
ferðast á þjóðveginum á milli sveit-
arfélaga á Suðurlandi og að um það
bil 20 farþegar séu gjarnan látnir
standa í stærri bifreiðunum. Hann
segir þetta vera gjörsamlega
ábyrgðarlaus vinnubrögð af hálfu
forsvarsmanna Strætó enda geti
það verið stórhættulegt fyrir far-
þega að vera lausir um borð í lang-
ferðabifreiðum á þjóðveginum. „Ég
persónulega kæri mig ekki um að
drengurinn minn standi í strætó á
milli byggðarlaga og borgi svo fullt
fargjald fyrir,“ segir Halldór og
bætir við: „Ég ætla ekki einu sinni
að hugsa þá hugsun til enda ef þessi
stóri bíll, með 95 farþega, fer út af
veginum.“
Vilja strangari löggjöf
Einar Magnús Magnússon, upp-
lýsingafulltrúi Umferðarstofu, seg-
ir að fólk hafi haft samband við
Umferðarstofu og lýst yfir áhyggj-
um sínum af því að farþegar Strætó
séu látnir standa í strætóbifreiðum
sem ferðast á þjóðveginum. Að
sögn Einars Magnúsar er heimild
til þess að vera með hópferða-
ökutæki þar sem gert er ráð fyrir
standandi farþegum að finna í
reglugerð um gerð og búnað öku-
tækja, hann tekur þó fram að Um-
ferðarstofa vonist til þess að settar
verði einhverjar takmarkanir á
þessa heimild enda megi líta svo á
að hún eigi aðallega við um strætó-
bifreiðir í þéttbýli. „Því miður höf-
um við þurft að svara fólki því að
þetta sé ekki brot á lögum en við
teljum að það þurfi að gera ein-
hverjar ráðstafanir til þess að þetta
sé ekki heimilt,“ segir Einar Magn-
ús og bætir við: „Ég vil nota tæki-
færið og biðla til hlutaðeigandi
rekstrar- og hagsmunaaðila að þeir
gangi lengra en lög segja til um
varðandi öryggi farþega.“
Vinsælar ferðir
Mikill fjöldi farþega ferðast að
jafnaði með strætó eftir þessum
leiðum. „Hér fyrir áramót þegar
bara var ekið á milli Selfoss og
Reykjavíkur fóru að jafnaði um
þúsund farþegar þarna á milli í
hverri viku,“ segir Einar Kristjáns-
son, aðspurður hversu vinsælar
þessar ferðir séu og bendir jafn-
framt á að eina viku í janúarmánuði
hafi farþegafjöldinn á leiðinni frá
Reykjavík til Selfoss, og raunar
einnig áfram austur á bóginn,
mælst 1.950 manns.
Morgunblaðið/Ásdís
Strætó Hópur ungmenna í strætó.
Ósætti um standandi farþega
Umferðarstofa hvetur Strætó til þess að koma í veg fyrir
að farþegar standi í bifreiðum sem aka um á þjóðveginum
Þrjú arnarhreiður eru talin vera við
nýja vegstæðið í Múlasveit. Vegagerðin
mun sækja um undanþágu til þess að
hægt verði að vinna nær þeim en lög
heimila.
Vegagerðin telur óhjákvæmilegt að
vinna við lagningu vegarins á varptíma
arnarins. Ef örn verpir í þessum hreiðr-
um þarf því að sækja um undanþágu til
umhverfisráðherra þótt vegagerðar-
menn telji í ljósi reynslunnar að vega-
gerð trufli ekki örninn. Samkvæmt
villidýralögunum er óheimilt að koma
nær arnarhreiðrum en 500 metra
nema brýna nauðsyn beri til en tekið
fram að ráðherra geti veitt undanþágu
vegna lagningar þjóðvega eða annarrar
mannvirkjagerðar í almannaþágu.
Í þessum tilvikum þarf að fara að-
eins inn fyrir þetta svæði, eða í 300
metra fjarlægð, þar sem styst er í
hreiður. Þó verða sprengingar ekki
leyfðar í grennd við hreiðrin á þessum
viðkvæma tíma.
Sækja um undanþágu til ráðherra
ÞRJÚ ARNARHREIÐUR TALIN VERA Á FRAMKVÆMDASVÆÐI VEGAGERÐAR Í MÚLASVEIT
Í dag hefst tíu vikna námskeið fyrir
karlmenn sem greinst hafa með
krabbamein hjá Ljósinu, endurhæf-
ingar- og stuðningsmiðstöð. Fundir-
nir verða einu sinni í viku á mánu-
dögum kl. 17:30 í tíu vikur í húsnæði
Ljóssins, Langholtsvegi 43. Umsjón-
armaður er Matti Osvald.
Markmiðið er að karlmenn fái
uppbyggjandi fræðslu og hafi gagn
og gaman af að hitta aðra í sömu að-
stæðum. Farið verður í gegnum það
breytingarferli sem einstaklingar
ganga í gegnum við það að veikjast.
Haldnir verða fyrirlestrar um mikil-
vægi þess að byggja sig upp andlega
og líkamlega og mikilvægi þess að
setja sér markmið. Í dag ræðir Matti
Osvald heilsufræðingur um lífið og
tilveruna og eftir viku ræðir Hannes
Bjarni Hannesson sjúkraþjálfari um
líkamlega uppbyggingu.
Karlmenn og krabbamein í Ljósinu