Morgunblaðið - 13.02.2012, Qupperneq 24
24 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2012
Grettir
Smáfólk
Hrólfur hræðilegi
Gæsamamma og Grímur
Úthverfið
Kóngulóarmaðurinn
Ferdinand
LOKSINS ERTU
VAKNAÐUR
GERIRÐU ÞÉR GREIN FYRIR ÞVÍ AÐ
ÞÚ ERT BÚINN AÐ SOFA Í 23 TÍMA!
OG SVO DANSARÐU
AF GLEÐI EINS OG
ÞETTA SÉ EITTHVAÐ TIL
AÐ VERA STOLTUR AF!
MÉR
SÝNIST VIÐ
VERA MEÐ
ÞETTA
SAMKVÆMT NÝJUSTU KÖNNUN
MINNI, ÞÁ ERT ÞÚ MEÐ 92%
FYLGI, ANDSTÆÐINGAR ÞÍNIR
MEÐ 7% OG 1% ERU ÓÁKVEÐNIR
ÓÁKVEÐNIR!? ÞAÐ ER SORGLEGT AÐ ÞAÐ SÉU
KRAKKAR Í ÞESSUM SKÓLA SEM
ERU EKKI ENNÞÁ BÚNIR AÐ
ÁKVEÐA AÐ KJÓSA MIG
EKKI HAFA ÁHYGGJUR,
LÆKNIRINN MINN VAR BARA AÐ
FJARLÆGJA NOKKRA BLETTI SEM
HONUM LEIST EKKI Á
ÉG SÉ AÐ
HUNDURINN YKKAR
ER MEÐ ÞÉR Í
DAG...
JÁ, HANN
HEFUR GAMAN
AÐ ÞVÍ AÐ
HANGA MEÐ
MÉR
SNÁFAÐU!! STUNDUM ÞVÆLASTHUNDAR FYRIRÁSTINNI
AMMA VAR AÐ
HRINGJA OG BAUÐ YKKUR
AÐ KOMA OG SYNDA Í
LAUGINNI HJÁ SÉR
ÞAÐ GLEÐUR MIG AÐ
HEYRA AÐ ÞIÐ SÉUÐ SVONA
HRIFIN AF LAUGINNI
LAUGIN ER
ÁGÆT... EN AMMA
GEFUR OKKUR
ALLAN ÞANN ÍS
SEM VIÐ VILJUM
LÖGREGLAN ER AÐ LEITA AÐ ÞÉR OG
ÞÚ ERT AÐ SPILA TÖLVULEIKI?
HELD
NÚ SÍÐUR
ÉG ER AÐ LEITA Í
AVENGERS OFURÞRJÓTA-
GAGNAGRUNNINUM
HONUM!
PHILIP MASTERS
EINNIG ÞEKKTUR SEM
PUPPET MASTER
ÉG ER AÐ
LEITA AÐ...
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
velvakandi@mbl.is
Félagsstarfeldriborgara
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, vatns-
leikfimi kl. 10.50, útskurður og myndlist
kl. 13, fyrirlestur um Brennu-Flosa í
Njálssögu kl. 13.30.
Árskógar 4 | Smíði og útskurður kl. 9,
handavinna kl. 13, félagsvist kl. 13.30 og
myndlist kl. 16.
Boðinn | Tiffanys glerkennsla kl. 9, tálg-
að kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Bútasaumur,
handavinna, leikfimi kl. 12.45, sögu-
stund.
Dalbraut 18-20 | Myndlist og postulín
kl. 9, leikfimi kl. 10, brids kl. 13.
Dalbraut 27 | Opin handavinnustofa kl.
8, leikfimi kl. 9.15, upplestur á annarri
hæð kl. 14. Listamaður mánaðarins.
Felagsstarf eldri bæjarbúa á Sel-
tjarnarnesi | Gler og leir kl. 9, billjard í
húsnæði kirkjunnar kl. 10, kaffispjall í
króknum kl. 10.30, ganga og léttar æf-
ingar í íþróttahúsinu kl. 11.20, handa-
vinna á Skólabraut k. 13.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids
kl. 13, spjall kl. 13.30, danskennsla/
námskeið kl. 17.
Félagsheimilið Gjábakki | Leiðbein-
andi í handavinnu til hádegis, botsía kl.
9.15, gler og postulín kl. 9.30, lomber kl.
13, kanasta kl. 13.15, kóræfing kl. 16.30.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Postu-
línsmálun kl. 9, tréskurður kl. 9.30,
ganga kl. 10, handavinna og brids kl. 13,
félagsvist kl. 20.
Félagsmiðstöðin Sléttuvegi 11-13 |
Leikfimi kl. 9.10, félagsvist kl. 13.30.
Félags- og íþróttastarf eldri borgara
Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10,
11, vatnsleikfimi kl. 8 og 12.15, námskeið
um Eglu kl. 10.15, leðursaumur kl. 13,
aðalfundur FEBG og málun kl. 14.
Félagsstarf Gerðubergi | Vinnustofur
opnar kl. 9-16.30, vatnsleikfimi í Breið-
holtslaug kl. 9.50, spilalsalur opinn frá
hád., kóræfing kl. 12.30. Farið í Þjóð-
minjasafnið, 15. feb. kl. 13.30. Skráning
á staðnum og í síma 575-7720.
Hraunbær 105 | Handavinna kl. 9 o.fl.
með Erlu, leikfimi kl. 9.15, bænastund
kl. 10.15, myndlist kl. 13. Sími 894-
6856.
Hraunsel | Ganga frá Haukah. Ásv. kl.
10, kór kl. 11, glerbræðsla kl. 13, botsía
og félagsvist kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Jóga kl. 8.30 og
9.30. Opin vinnustofa frá kl. 9, brids kl.
13, tölvukennsla kl. 13, FEB með kynn-
ingu. Matur og kaffi.
Íþróttafélagið Glóð | Ringó kl. 13.30 í
Smáranum. Uppl. í síma 554-2780 og á
www.glod.is
Korpúlfar, Grafarvogi | Sundleikfimi á
morgun kl. 9.30.
Norðurbrún 1 | Botsía kl. 10, upplestur
kl. 11, útskurður kl. 13, samverustund
með djákna kl. 14.
Vesturgata 7 | Setustofa, kaffi, botsía
og handavinna kl. 9, leikfimi kl. 10.30,
kóræfing kl. 13.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja, bók-
band og postulínsmálun kl. 9, morgun-
stund kl. 9.30, botsía kl. 10, upplestur
kl. 12.30, handavinnustofa, spil/
stóladans kl. 13.
Séra Hjálmar Jónsson velti þvíupp á Leirnum, póstlista hag-
yrðinga, hvort menn hefðu heyrt
bæn eftir Strandakonu frá
Skriðnesenni (Skriðinsenni), að
hann minnti Steinunni að nafni:
Hreinsaðu Jesú hjarta mitt
og hjá mér bústað taktu.
Herbergi sé það heilagt þitt
yfir hreinleik þess sjálfur vaktu.
Kristján Eiríksson þekkti ekki
vísuna, en benti á að fyrirmyndin
væri greinilega sótt til Einars í
Eydölum í Kvæði af stallinum
Kristí:
Skapaðu hjartað hreint í mér
til herbergis sem sómir þér,
saurgan allri síðan ver
svo eg þér gáfur færi.
Með vísnasöng eg vögguna þína hræri.
Helga Zimsen fannst þetta sæmi-
legt yrkisefni:
Komdu í sálarkotið mitt,
Kristilegt geð svo dafni.
Skafi burt syndir skrúbbið þitt,
skúraðu í Jesú nafni.
Jón Ingvar Jónsson veltir tilver-
unni fyrir sér:
Það er skrambi skrýtið mart
sem skil ég vart.
Þegar úti er ekki bjart
er það svart.
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Vísnahorn
Af Strandakonu
Heigulsháttur
Björgvins G.
Sigurðssonar
Ég held að allir séu
sammála um að virð-
ing fyrir Alþingi og al-
þingismönnum hafi
aldrei verið minni en
núna. Mín skoðun er
sú að á þingi sitji lík-
lega 35 þingmenn sem
ekkert erindi eiga á
þing. Það er ekkert
óeðlilegt við það að
þingmenn veigri sér
við umræðu um það
sem þeir hafa ekki vit
á. Síður en svo. Þeir
mættu oftar gera það, og dettur mér
fyrst í hug besservisserinn Ólína
Þorvarðardóttir. Það er hinsvegar
eitthvað mikið að þegar þingmenn
taka ekki þátt í umræðunni vegna
þess að þeir vita svo mikið um málið.
Þannig útskýrir Björgvin G. Sig-
urðsson sem var bankamálaráð-
herra þegar hrunið varð. Þetta er
enn óskiljanlegra í ljósi þess að hann
hefur margsagt að hann telji órétt-
látt og beinlínis vitlaust að draga
Geir Haarde fyrir landsdóm. Ég fæ
ekki betur séð en þessi hulduþing-
maður, Björgvin G. Sigurðsson, sé
að klóra Jóhönnu Sigurðardóttir á
bakinu með þessu
framferði sínu.
Á ekki Björgvin G.
að sitja á þingi og
vinna vinnuna sína?
Reyndar hefur bless-
uð dulan læðst með
veggjum, og ekkert
gagn verið að honum
fyrir Sunnlendinga.
Hann meira að segja
setti sig upp á móti því
að starfsemin að Sogni
yrði flutt, sem þó var
augljóst hagsmunamál
fyrir Sunnlendinga.
En Björgvin er ekki
sá eini sem er þjóðar-
skömm á þingi. Nefna
má Björn Val, Þór Saari, Mörð
Árnason og atkvæðasafnarann Birg-
ittu Jónsdóttur. Ég ætla að vona að
þjóðin sé ekki svo meðvitundarlaus
og meðvirk að kjósa þessa þingmenn
aftur á þing. Orðbragð og ófyrir-
leitni þessara þingmanna í ræðustól
á Alþingi er til skammar. Og er til of
mikils mælst að alþingismenn gangi
þokkalega til fara, en séu ekki eins
og umrenningar eða galdranornir til
fara?
Ómar Sigurðsson, skipstjóri.
Velvakandi
Ást er…
… glæsileg!
Vá!
- nýr auglýsingamiðill
569-1100finnur@mbl.is