Morgunblaðið - 13.02.2012, Side 28
Flottar Þessar bakraddarsöng-
konur stungu saman nefjum.
» Stemningin baksviðs meðal kepp-
enda í Söngvakeppni Sjónvarpsins
á úrslitakvöldinu í Hörpu um
helgina var sannarlega skemmtileg
og mikið um hlátrasköll, sprell og spé.
Þjóðin fékk að taka þátt í að velja
hvaða lag færi áfram til að keppa í
útlandinu og fengu ungu strák-
arnir í Bláum Ópal með lagið
Stattu upp, flest atkvæði í síma-
kosningunni, eða 700 atkvæðum
meira en sjálft vinningslagið,
Mundu eftir mér.
Baksviðs á Söngvakeppni Sjónvarpsins í Hörpu á laugardagskvöld
Gríðarlegur fögnuður Strákarnir í Bláum Ópal fögnuðu ógurlega þegar ljóst var að lagið sem þeir fluttu, Stattu upp, eftir Ingó Veðurguð, var í tveimur efstu sætunum á úrslitakvöldinu. Piltarnir
nutu mikilla vinsælda en sveitina skipa þeir Franz Ploder Ottósson, Pétur Finnbogason, Agnar Birgir Gunnarsson og Kristmundur Axel sem brestur hér í hömlulaust gleðiöskur.
Barnshafandi Rósa Birgitta Ísfeld söng lagið Stund með
þér en hér á hún góða stund með barnsföður sínum.
Sprell Bakraddarsöngvarinn Pétur Örn Guðmundsson fór á
kostum þegar Brynja Þorgeirsdóttir lagði fyrir hann spurningu.
Morgunblaðið/Eggert
Knús Greta Salóme Stefánsdóttir og Jón Jósep Snæbjörnsson höfðu sannarlega ástæðu til faðm-
lags því lag Gretu sem þau fluttu, Mundu eftir mér, sigraði og mun verða framlag Íslands.
Nýir umsjónarmenn Þær Hera Björk og Valgerður Guðnadóttir voru brosmildar enda ætla
þær að taka við Evróvisjónþættinum Alla Leið á Rúv sem Páll Óskar hefur séð um hingað til.
Slakur
Hrútspungurinn
og hestamaður-
inn Árni Geir
hélt ró sinni og
tók í nefið.
Svartir karlmenn Magni Ás-
geirsson flutti lagið Hugarró eft-
ir Svein Rúnar Sigurðsson við
texta Þórunnar Ernu Clausen.
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2012