Morgunblaðið - 13.02.2012, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2012
TÓNLIST
Hallur Már
Hallsson
hallurmar@mbl.is
A
ðdáendur frönsku
hljómsveitarinnar Air
ættu að hafa tilefni til
að gleðjast þessa dag-
ana. Á dögunum kom
út platan Le voyage dans la lune
sem er gerð sem hljóðrás við sam-
nefnda mynd Frakkans Georges
Méliés frá árinu 1902. Ekki síst ætti
það að vera fagnaðarefni að talað
hefur verið um að þeir Nicolas God-
in og Jean-Benoit Dunckel séu á
vissan hátt að hverfa aftur til upp-
runans og hljómnum á skífunni hef-
ur verið líkt við Moon Safari frá
árinu 1998 sem skaut tvíeykinu upp
á stjörnuhimininn í orðsins fyllstu
merkingu. Kannski er það við hæfi
að einhver líkindi séu með plötunum
þar sem myndin eftir Méliés er
gjarnan talin fyrsta kvikmyndin sem
gerist úti í geimnum (sci-fi). Sjálfir
segja þeir tónlistina gjörólíka því
sem þeir voru að gera á Moon Saf-
ari.
Skynvilla á tunglinu árið 1902
Snemma á tíunda áratugnum
barst eintak af myndinni í lit upp á
yfirborðið, síðan þá hefur verið unn-
ið sleitulaust að því að laga það.
Aldrei hafði verið samin tónlist við
myndina og þegar sú hugmynd kom
upp að semja tónlist fyrir hana
þurfti líklega engan geimvísinda-
mann til að átta sig á til hverra ætti
að leita. Dunckel og Godin fengu
einungis þrjár vikur til að ljúka við
gerð tónlistarinnar en að sögn
þeirra hafði þröngur tímaramminn
sína kosti. Verkefnið var bara skýrt
og það þurfti að ljúka við tónlistina
áður en myndin var frumsýnd á
kvikmyndahátíðinni í Cannes; eng-
inn tími var til þess að efast og láta
stærð verkefnisins trufla sig en Mél-
iés er sannkallaður risi í franskri
menningu. Tónlistina sömdu þeir
með myndina fyrir framan sig til
þess að vera í náinni snertingu við
myndefnið og þá stemningu sem
hún framkallar. Eins og allir lista-
menn sem eru eldri en tvævetur
skapa þeir dulúð í kringum gerð
plötunnar með því að ganga svo
langt að segjast hafa fundið fyrir
nærveru Méliés í hljóðverinu, nán-
Haldið til tunglsins … aftur
Franska hljómsveitin Air gerir tónlist við mynd Méliés: Le voyage dans la lune
Skynvilla Þeir félagar í Air segja að Méliés hafi ekki einungis séð tunglferðirnar fyrir heldur hafi sjöundi áratug-
urinn orðið sýnilegur í Ferðinni til tunglsins sem gerð var árið 1902.
ast hafi verið um samstarf að ræða.
Hvað sem því líður er upplifunin af
myndinni í lit töluvert ólík þeirri
svarthvítu og tvíeykið segir hana
minna á ýmislegt frá sjöunda ára-
tugnum. Að því leyti hafi Méliés ver-
ið framsýnn: ekki einasta hafi hann
séð tunglferðirnar fyrir heldur líka
sækadelíu hippanna og líkja römm-
um úr myndinni við plötuumslag
Sgt. Pepper’s-plötu Bítlanna.
Þeir félagar voru svo ánægðir
með afraksturinn að þeir ákváðu að
gefa gripinn út sem sína sjöundu
plötu. En síðast kom út hin frekar
andlausa Love 2 sem vakti litla
hrifningu á meðal aðdáenda sveitar-
innar jafnt sem gagnrýnenda.
Hljómurinn á Le voyage dans la
lune er mun hrárri, minnir eiginlega
meira á hljóðrásina sem sveitin
gerði við mynd Sofiu Coppola The
Virgin Suicides frá árinu 1999 en
Moon Safari. Fyrstu tvö lögin á plöt-
unni eru sérstaklega vel heppnuð en
í öðru þeirra, Seven Stars, leggur
Victoria Legrand úr gæðasveitinni
Beach House þeim lið og líklega er
það með því betra sem sveitin hefur
sent frá sér á síðustu árum. Við-
brögð tónlistarpressunnar hafa ver-
ið beggja blands, ýmist er talað um
áframhaldandi meðalmennsku,
kalda og fjarlæga tónlist en aðrir
hafa hlaðið plötuna lofi og talað um
endurheimt gamla góða Air-
hljómsins. Hvað sem fólki kann að
finnast um tónlistina virðist sveitin
þó vera búin að finna einhvern kraft
sem er greinilega að finna á Le vo-
yage dans la lune. Helsti styrkleiki
sveitarinnar hefur þó alltaf verið
handbragðið sem hefur verið að
finna á öllum hennar verkum og það
hefur svo sannarlega ekki gleymst
hér. Kynlausu raddanirnar á borð
við þær sem heyrðust í versta lagi
sveitarinnar frá upphafi, Sing, sang,
sung á Love 2, og hafa verið áber-
andi á síðustu verkum Air voru þó
blessunarlega skildar eftir á jörðu
niðri áður en haldið var til tunglsins
í annað skipti.
Le voyage dans la lune eða Ferðin til tunglsins kom út
árið 1902. Frásögnin byggist lauslega á tveimur þekkt-
um skáldsögum: From the Earth to the Moon eftir Jul-
es Verne og The First Men in the Moon eftir H.G. Wells.
Myndin er um 14 mínútna löng en tæknibrellurnar í
myndinni þóttu byltingarkenndar við útkomu hennar.
Méliés er talinn einn helsti frumkvöðull í kvikmynda-
sögunni en á ferli sínum gerði hann fleiri hundruð
mynda þótt aðeins hafi um 200 þeirra varðveist.
Vinsælasta verk Méliés
FERÐIN TIL TUNGLSINS
Stundum heyrir maður tónlist
sem hefur þau áhrif að maður er
þess fullviss að maður muni spila
hana mikið í framtíðinni. Það
gerist því miður ekki oft en sem
betur fer kemur það enn fyrir.
Um daginn kom svona stund þeg-
ar ég heyrði plötuna Gentle Spi-
rit með Bandaríkjamanninum Jo-
nathan Wilson sem kom út um
mitt síðasta ár. Þeir eru fáir sem
eru gæddir svo miklum tónlist-
arhæfileikum og náðargáfunni að
geta samið góð lög ásamt því að
hafa svo afslappaða og góða nær-
veru að maður sé til í að hlusta á
plöturnar þeirra aftur og aftur.
Þrátt fyrir að hafa verið að
hlusta á umrædda plötu í rúma
viku er ég sannfærður um að
Gentle Spirit fer í þennan flokk.
Uppskriftin er hefðbundin; kassa-
gítarar, söngur, píanó, strengir
og ýmislegt skraut. Milljónir tón-
listarmanna reyna þetta en að-
eins nokkrir ná að gera tónlist
sem sker sig úr í þessum flokki
og það virðist Wilson hafa tekist.
Hér er ekki verið að finna upp
hjólið en það þarf ekki alltaf þeg-
ar gæðin eru fyrir hendi. Ef Buff-
alo Springfield, Neil Young, Nick
Drake eða JJ Cale gera eitthvað
fyrir þig er ljóst að Jonathan Wil-
son mun gera það líka.
Gentle Spirit er önnur plata
Wilsons sem er líka þekktur upp-
tökustjóri og hefur unnið með
mörgum þekktum tónlistar-
mönnum. Þeirra á meðal eru
Erykah Badu, Will Oldham og
Chris Robinson.
Kunnuglegur
og góður andi
Mjúkur Það er eitthvað mjög kunn-
uglegt við tónlist Wilsons.
MIÐASALA Á WWW.SAMBIO.IS
HUGO Ísl. texti kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D 10
HUGO kl. 5:20 - 8 - 10:40 2D VIP
HUGO Ótextuð kl. 8 - 10:40 3D 10
ONE FOR THE MONEY kl. 5:40 - 8 - 10:20 2D 12
MAN ON A LEDGE kl. 10:40 2D 12
CONTRABAND kl. 8 - 10:20 2D 16
PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 5:40 2D L
SHERLOCK HOLMES 2 kl. 8 2D 12
MISSION IMPOSSIBLE 4 kl. 5:30 2D 12
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN Ísl. tal kl. 5:50 2D L
/ ÁLFABAKKA
HUGO Ísl. texti kl. 5:20 - 8 2D 10
HUGO Ótextuð kl. 10:40 3D 10
ONE FOR THE MONEY kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 12
MAN ON A LEDGE kl. 5:40 - 8 2D 12
WAR HORSE kl. 10:20 2D 12
UNDERWORLD: AWAKENING kl. 8 - 10:10 2D 16
PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 5:40 2D L
/ EGILSHÖLL
/ KRINGLUNNI
/ KEFLAVÍK
/ AKUREYRI
/ SELFOSSI
SHAME kl. 5:50 - 8 - 10:10 2D 12
ONE FOR THE MONEY kl. 10:50 2D 12
WAR HORSE kl. 8 2D 12
J. EDGAR kl. 8 2D 12
SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:45 2D 12
PRÚÐULEIKARARNIR Ísl. texti kl. 5:40 2D L
THE HELP kl.5 2D L
NÆSTU SÝNINGAR Á ÞRIÐJUDAG
HUGO Ótextuð kl. 8 3D 10
SAFE HOUSE kl. 10:30 2D 16
SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:10 2D 12
50/50 kl. 8 2D 12
HUGO Ótextuð kl. 8 3D 10
ONE FOR THE MONEY kl. 10:20 2D 12
WAR HORSE kl. 8 2D 12
SHERLOCK HOLMES 2 kl. 10:30 2D 12
ÍSLENSKUR
TEXTI
SÝND Í KRINGLUNNI
„ENNÞÁ
BESTIR“
HHHH
KG-FBL
LOS ANGELES TIMES
HHHH
SÝND Í KRINGLUNNI
SÝND Í EGILSHÖLL, KRINGLUNNI
OG AKUREYRI
CHICAGO SUN-TIMES
HHHH
MÖGNUÐ SPENNUMYND
K.S. - NEW YORK POST
HHHH
R.C. - TIME
HHHH YFIR 25.000 MANNS!
-EMPIRE
HHHHH
- BOX OFFICE
MAGAZINE
HHHHH
-CHICAGO SUN-TIMES
R. EBERT
HHHHH
- VARIETY
HHHHH
- THE HOLLYWOOD
REPORTER
HHHHH
ENGIN MYND HLAUT
JAFNMARGAR ÓSKARS-VERÐLAU-
NATILNEFNINGAR Í ÁR. MARTIN
SCORSESE HLAUT GOLDEN GLOBE
VERÐLAUNIN FYRIR LEIKSTJÓRN
SÍNA Á HUGO. FRÁBÆR MYND MEÐ
BEN KINGSLEY, RAY WINSTONE,
CHLOE MORETS ÁSAMT HINUM
STÓRKOSTLEGA SACHA BARON
COEHN Í AÐALHLUTVERKUM.
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
ÓTRÚLEG MYND UM BARÁTTU
MANNS SEM ÞJÁIST AF KYNLÍFSFÍKN
MYNDIN HEFUR HLOTIÐ LOF GAGNGRÝNENDA UM ALLAN HEIM!
KATHERINE HEIGL Í SINNI BESTU MYND TIL ÞESSA
STÓRSKEMMTILEG MYND
MEÐ KATHERINE HEIGL
Í AÐALHLUTVERKI
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, AKUREYRI OG KEFLAVÍK
SÝND Í ÁLFABAKKA, EG-
ILSHÖLL OG KRINGLUNNI
SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í EGILSHÖLL
M.M. - Biofilman.is
HHHH
T.V. - Kvikmyndir.is
HHHH
BYGGÐ Á
METSÖLUBÓKUNUM
UM STEPHANIE PLUM