Morgunblaðið - 13.02.2012, Side 32
MÁNUDAGUR 13. FEBRÚAR 44. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Whitney Houston látin
2. Öskureið út í Pál Óskar
3. Óbærilegt álag
4. Í rusli yfir andláti Whitney
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Á morgun, þriðjudag kl. 12, mun
Steinunn Sigurðardóttir fatahönn-
uður halda fyrirlestur í Þjóðminja-
safni Íslands í tengslum við hina ný-
opnuðu sýningu TÍZKA – kjólar og
korselett í Bogasal safnsins.
Morgunblaðið/Ómar
Steinunn talar um
kjóla og korselett
Annað kvöld kl.
20.30 verða tón-
leikar á KEX Host-
el þar sem Einar
Scheving og fé-
lagar koma fram.
Auk hans skipa
hljómsveitina Jóel
Pálsson á saxó-
fón, Guðmundur
Pétursson á gítar, Eyþór Gunnarsson
á hljómborð og Jóhann Ásmundsson
á bassa. Þeir leika fönk- og bræð-
ingsskotna djasstónlist.
Funk-bræðingur
á Kex Hostel
Bandaríska söngkonan Whitney
Houston fannst látin á laugardag á
hóteli í Beverly Hills. Hún var 48 ára.
Dánarorsök hennar liggur ekki fyrir
en síðustu ár átti hún við vímu-
efnavanda að stríða.
Söngkonan sló í gegn
árið 1980 og fram til 1990
átti hún hvert lagið á fæt-
ur öðru á vinsældalist-
um t.d Saving All My
Love for You. Hún var
fyrirmynd annarra
frægra söngkvenna.
Dánarorsök liggur
ekki enn fyrir
Á þriðjudag Vestlæg átt, 5-13 m/s og dálítil súld við V-ströndina,
en úrkomulítið annars staðar og yfirleitt bjartviðri austanlands.
Á miðvikudag Vestan- og suðvestanátt, 5-13 m/s og rigning eða
slydda vestantil fyrripartinn en él síðdegis. Kólnandi.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Vestlæg átt 10-20, hvassast norðan- og
austanlands og þurrt að kalla. Hiti 2 til 7 stig en kólnar um tíma.
VEÐUR
Þýska handknattleiksliðið
Gummersbach hefur borið
víurnar í Gunnar Stein Jóns-
son, leikmann Drott í Sví-
þjóð og fyrrverandi leik-
mann HK. Gummersbach
vill gera samning við hann
fram á vor. Gunnar segist
klár í slaginn en það velti á
ákvörðun stjórnar Drott
hvort hann fer eða ekki en
Gunnar er samningsbund-
inn Halmstad-liðinu fram á
mitt ár. »1
Gummersbach vill
fá Gunnar Stein
„Það höfðu nokkur félög samband
við mig og þar á meðal Valur sem mér
leist vel á enda flott félag með góðan
leikmannahóp og fínan þjálfara. Ég
veit að þar hefði ég komist í topplið.
En eftir nokkra umhugsun þá ákvað
ég að veðja á Stjörnuna, mitt
uppeldisfélag,“ sagði
landsliðskonan í hand-
knattleik, Rakel Dögg
Bragadóttir, sem
hefur ákveðið að
koma heim eftir
fjögurra ára dvöl
ytra, fyrst í Dan-
mörku og síðar í
Noregi. »5
Rakel Dögg valdi
Stjörnuna fremur en Val
ÍR-ingar báru sigur úr býtum í liða-
keppni Meistaramóts Íslands í
frjálsíþróttum með nokkrum yf-
irburðum um helgina. Þeir fengu
38.991 stig. FH kom næst með
21.358 stig en þessi lið voru í
nokkrum sérflokki. Besta afrek
mótsins átti Aníta Hinriksdóttir, ÍR,
þegar hún hljóp 800 metrana á
2.07,86 mínútum. »4
ÍR vann stigakeppnina –
Aníta átti besta afrekið
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigrún Rósa Björnsdóttir
sigrunrosa@mbl.is
„Ég þekki Euro-land örlítið betur en
síðast og ef landafræðin svíkur mig
ekki, þá er Aserbaídsjan ekki svo
langt frá Tyrklandi,“ segir Jón Jós-
ep Snæbjörnsson, Jónsi, sem mun
keppa í annað sinn fyrir hönd Ís-
lands í Evróvisjón. „Þetta er að
sjálfsögðu mjög spennandi en ég er
reynslunni ríkari af því að hafa farið
áður,“ segir Jónsi. Hann og Greta
Salóme Stefánsdóttir, sem fluttu
saman lag hennar, „Mundu eftir
mér“, halda til Bakú í Aserbaídsjan í
maí til að keppa fyrir hönd Íslands í
Evróvisjón-söngvakeppninni. Jónsi
tók þátt í Evróvisjón í Tyrklandi ár-
ið 2004 og söng þá lagið „Heaven“
sem hafnaði í 19. sæti.
Ætlaði að hafa tónleika í apríl
Í apríl á síðasta ári sendi Greta
Jónsa lagið, þar sem hún söng sjálf
báðar raddir og spurði hvort hann
vildi syngja það með henni. „Ég
ákvað að slá til því mér fannst lagið
vera fallegt og mikil áskorun að
syngja það.“
Jónsi segir Gretu svo hafa beðið
sig að taka dag í apríl á þessu ári frá,
fyrir hugsanlega tónleika sem hún
ætlaði að halda í Hörpunni. „Nú er
spurning hvort hún haldi þessa tón-
leika,“ segir Jónsi og hlær en nú sé
komin upp önnur staða.
„Hún var búin að búa
lagið til fyrir útvarps-
spilun en ákvað að bíða
með það. Hringdi svo í
mig og spurði hvort hún
mætti senda það inn í
Evróvisjón og ég
bauð henni bara
að gera það.“
Veit ekki nóg
Þegar Jónsi er
spurður út í fréttir
af mannréttinda-
brotum í Bakú í Aserbaídsjan í
tengslum við keppnina segist hann í
raun ekki nógu upplýstur um stöðu
mála þar, til að geta tjáð sig.
„Og númer tvö, ef ég væri það, þá
er ég heldur ekki í aðstöðu til að
ákveða þetta, þar sem ég er í raun
og veru bara flytjandi. Þetta er í
raun og veru mjög pólitísk ákvörðun
en ég er tónlistarmaður,“ segir Jónsi
og ítrekar að hann þurfi að kynna
sér málið betur áður en hann fer að
taka afstöðu til þess.
Jónsi segir hins vegar fyrsta mál á
dagskrá núna að halda fund.
„Því við Greta og allur hópurinn í
gær vorum gersamlega kjaftstopp af
undrun.“ Þau hafi bara ekki verið
búin að hugsa málið lengra og þurfi
nú að huga að undirbúningi.
Þekkir Euro-land betur en síðast
Jónsi keppti í
Evróvisjón í Tyrk-
landi árið 2004
Morgunblaðið/Eggert
Undrandi Gretu Salóme, Jónsa og öðrum flytjendum sigurlagsins, „Mundu eftir mér“, var heldur betur brugðið þeg-
ar úrslitin í Söngvakeppni Sjónvarpsins voru tilkynnt í Hörpu á laugardagskvöldið og í ljós kom að þau höfðu sigrað.
„Lagið fékk mikið af atkvæðum og
strákarnir fengu mikið fylgi og
mikla hvatningu við þetta, sem er
kannski tilgangurinn,“ segir Ing-
ólfur Þórarinsson, betur þekkt-
ur sem Ingó veðurguð, en lag
hans og Axels Árnasonar,
„Stattu upp“, varð í öðru
sæti í söngvakeppninni.
Flytjendur voru Blár Ópal.
Ingó segir annað sætið
viðurkenningu fyrir lagið og
hann hafi tekið þátt til að hafa
gaman af þessu. „Það hefði verið
gaman að fara út líka,“ segir Ingó
en hann sé á kafi í svo mörgu öðru,
þar á meðal fótboltanum, að utan-
ferð í maí hefði getað sett aðrar
áætlanir í uppnám.
Aðspurður segist Ingó búinn að
afskrifa Evróvisjón sem söngvari.
„Ég held að Evróvisjón henti mér
ekki sem flytjanda en ágætlega
sem höfundi.“
Hentar mér ágætlega sem höfundi
EVRÓVISJÓN 2012
Ingólfur
Þórarinsson