Morgunblaðið - 18.02.2012, Page 1

Morgunblaðið - 18.02.2012, Page 1
L A U G A R D A G U R 1 8. F E B R Ú A R 2 0 1 2  Stofnað 1913  41. tölublað  100. árgangur  SJARMERANDI AÐ REYKJAVÍK ER SVO- LÍTIÐ HALLÆRISLEG ÞÚFAN SEM VELTI HLASSINU KAMMERMÚSÍK- KLÚBBURINN Á 55 ÁRA AFMÆLI SUNNUDAGSMOGGINN HELDUR TÓNLEIKA Í HÖRPU 40MENNINGARFYLGD BIRNU 10 ÁRA 10 Morgunblaðið/Ómar Draumurinn rættist Brynjar Karl Sig- urðsson ákvað tíu ára að verða þjálfari.  Tólf ár eru síðan Brynjar Karl Sigurðsson og Guðbrandur Þor- kelsson lögðu á ráðin um að stofna fyrirtækið Sideline Sports, sem sér- hæfir sig í gæðastjórnun í íþrótta- þjálfun, og starfaði fyrirtækið fyrsta árið í kjallaraíbúð þess síð- arnefnda. Nú eru lið í ensku úrvalsdeild- inni, NBA og NFL á meðal við- skiptavina, og farið er vítt yfir; Brynjar var með þjálfarateymi Aston Villa og Cleveland Browns á námskeiði í fyrrakvöld, en sami eig- andi er að báðum félögum. Nú stendur til að koma íslensku þjóðinni í form með Key Habits, sem byggist á sömu hugmynda- fræði. Í Sunnudagsmogganum er rætt við Brynjar Karl Sigurðsson. Stefna á að koma þjóðinni í form Sigrún Rósa Björnsdóttir sigrunrosa@mbl.is Verðtryggð lán heimilanna stóðu alls í um 1.200 milljörðum um áramót, skv. tölum frá Seðlabanka Íslands. Þar af áttu Íbúðalánasjóður og líf- eyrissjóðirnir um 830 milljarða. Eftir dóm Hæstaréttar í vikunni þar sem dæmt var um leiðréttingu á gengisláni var niðurfærsla höfuð- stóls verðtryggðra lána aftur til um- ræðu á Alþingi. Niðurfærsla höfuð- stóls verðtryggðra lána getur kostað Íbúðalánasjóð um 200 milljarða verði til dæmis farin sú leið að lækka þau um 30%, en ekkert er ákveðið þar um. Að mati Helga Hjörvar, formanns efnahags- og viðskiptanefndar Al- þingis, er æskilegast að það væri hægt með almennum hætti að koma til móts við þá sem tóku verðtryggð lán. Kostnaður sé útfærsluatriði sem stjórnvöld verði að svara og hvort það verði gert í gegnum skattkerfið, með bótum, niðurfærslum eða öðr- um leiðum. Kristján Þór Júlíusson, þingmað- ur Sjálfstæðisflokks, segir að taka verði leiðréttingu á verðtryggðum lánum til skoðunar. Niðurfærsla verðtryggðra íbúða- lána er möguleg að sögn Sigurðar Erlingssonar, framkvæmdastjóra Íbúðalánasjóðs, en ekki verði farið í hana nema með aðkomu ríkisins. Þórey S. Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri Landssamtaka lífeyr- issjóða, segir slíka niðurfærslu ekki til umræðu enda sé sjóðunum ekki heimilt að gefa eftir eignir. MNiðurfærsla »14 Niðurfærsla dýr ríkinu  Segir æskilegt að koma til móts við lántakendur  Ríkið þarf að borga eigi Íbúðalánasjóður að færa niður  Heimilin með 650 milljarða hjá sjóðnum Morgunblaðið/Kristinn. Aldraðir Lyfjanotkun er skoðuð þegar valið er milli aldraðra. „Þegar nýir heimilismenn eru teknir inn á hjúkrunarheimili þá fá stjórn- endur þeirra að velja einn af þremur einstaklingum sem sendar eru upp- lýsingar um. Þó það hljómi ef til vill kaldranalega þá hefur það færst í vöxt á undanförnum árum að lyfja- notkun þessara væntanlegu heim- ilismanna er skoðuð sérstaklega og ef einhver þessara þriggja notar mjög dýr lyf þá kemur hann ekki til greina sem nýr heimilismaður.“ Þetta kemur fram í grein sem Gísli Páll Pálsson formaður fyr- irtækja í heilbrigðisþjónustu skrifar í Morgunblaðið í dag. Fram kemur í grein Gísla að lyfjakostnaður ein- staklings sem nemur nokkur hund- ruð þúsund krónum á mánuði valdi því að daggjaldið sem TR greiðir vegna viðkomandi dugi alls ekki fyr- ir launum vegna umönnunar, fæðis, lyfja og annarra hluta sem innifaldir eru í daggjaldinu. „Það er staðreynd að þeir öldruðu einstaklingar sem eru svo „óheppn- ir“ að þurfa á dýrum lyfjum að halda eiga miklu síður möguleika á að komast á hjúkrunarheimili en hinir,“ segir Gísli. »25 Dýr lyf valda útilokun  Lyfjanotkun aldraðra er skoðuð sérstaklega við matið Um 70 börn, á aldrinum átta og níu ára og frá sex frístundaheimilum í Breiðholtinu, tóku í gær þátt í sex sýningum í Breiðholtsskóla að viðstöddum fjölda áhorfenda. Fullt var út úr dyrum. Börnin höfðu sjálf samið verkin, yrk- isefnin voru af mörgum toga, m.a. atburðir á læknastofu þar sem gert var að sárum Batmans, einnig var fjallað um sjónvarpsgláp, nornir og fleira. Og búningar og gervi voru oft skrautleg, eins og hér sést. Ung leikskáld í Breiðholtinu Morgunblaðið/Kristinn  Um þriðjungur allra útfara í Reykjavíkur- prófastsdæmum árið 2011 voru bál- farir, eða 348 af 1.012. Á landinu öllu námu bálfarir 22,7% af heild- arfjölda útfara. Tveir brennslu- ofnar eru í notkun á landinu en báð- ir eru þeir frá árinu 1948. End- urnýja þarf ofnana á næstu 15-20 árum og aukinn fjöldi bálfara kall- ar á að mengunarvarnir verði skoð- aðar, segir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri KGRP. »4 Fjöldi bálfara kallar á mengunarvarnir Skúli Hansen skulih@mbl.is Gunnari Þ. Ander- sen, forstjóra Fjár- málaeftirlitsins, var samkvæmt áreiðan- legum heimildum Morgunblaðsins sagt upp störfum í gær. Skv. sömu heim- ildum er ástæða uppsagnarinnar fólgin í umfjöllun Kastljóss um fortíð hans og fjár- hagslega gjörninga en í kjölfar um- fjöllunarinnar fól stjórn FME Andra Árnasyni hæstaréttarlögmanni að vinna skýrslu um endurmat á hæfi Gunnars en Andri taldi ekki ástæðu til að draga hæfi hans í efa. Skv. heimildum Morgunblaðsins var Ástráður Haraldsson lögmaður einnig fenginn til að gefa álit sitt á málinu. Gunnar hefur andmælarétt vegna uppsagnarinnar fram til næsta mánudags, 20. febrúar. Gunnari sagt upp störfum  Uppsögn rakin til umfjöllunar Kastljóss Gunnar Andersen www.ms.is Með D-vítamíni sem hjálpar þér að vinna kalkið úr mjólkinni. Meira fjör með Fjörmjólk! Nú í nýjum umbúðum með skrúftapp a

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.