Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 10
Goðafoss Alltaf jafn fallegur foss. Reynir Eyjólfsson er áhuga- ljósmyndari sem um árabil hefur tekið fallegar myndir af náttúru Ís- lands. Þær má nú skoða á vefsíðu Reynis www.internet.is/imgfice/. Myndirnar eru flokkaðar eftir landshlutum og er myndavefurinn aðgengilegur á allan hátt. Myndirnar tók Reynir á árunum 1994-2010 en áhugi hans á ljós- myndun kviknaði út frá að hann var mikið í gönguferðum um landið. Hann langaði að eiga myndir af landinu og á síðu Reynis er nú að finna margra ára samsafn af mynd- um. Reynir segist ekki vera orðinn „græjuóður“ þó að ljósmyndaáhug- inn sé mikill. Hann eigi ágæta staf- ræna myndavél en til að byrja með tók hann mest á filmu og segir að oft finnist sér þær myndir koma betur úr þar sem litadýptin sé meiri. Reynir er nú kominn á eftirlaun en hann er menntaður lyfjafræð- ingur og vann lengst í lyfjaþróun- ardeild Actavis. Doktorspróf í lyfja- fræði tók hann frá Kaupmannahöfn árið 1968. Eru ferðalög um landið, fjallgöngur og ljósmyndun helstu áhugamál Reynis. Vefsíðan www.internet.is/imgfice Geitlandsjökull Til hliðar við jökulinn sjást Hádegishnúkur og Prestahnúkur. Ljósmyndasafn áhugamanns 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012 María Ólafsdóttir maria@mbl.is M enningarfylgd Birnu fagnar tíu ára starfsafmæli í þess- um mánuði og seg- ist Birna stolt af því að hafa aldrei skipt um kennitölu á þessum tíma. Upphaflega voru hin- ar menningarlegu gönguferðir um miðbæinn hugsaðar fyrir erlenda ferðamenn en áhugi Íslendinga reyndist mun meiri. Eru þeir nú í miklum meirihluta gesta Birnu sem leiðir þá um sína uppáhaldsstaði í miðbænum. Kynnast staðnum innan frá „Ég stofnaði fyrirtækið eftir að ég sagði upp hjá Læknablaðinu eftir 17 ára starf sem útgáfuritstjóri. Einhverra hluta vegna hef ég ekki alltaf verið mjög vinsæl á vinnu- markaði og vissi því að ég yrði að skapa mér eitthvað sjálf. Hug- myndin kom út frá því að ég hafði heillast mjög af Belfast því þar fékk ég leiðsögn innan frá. Þannig tókst mér að fá tilfinningu fyrir borginni þó ég væri þar gestur í mjög skamman tíma. Sama gildir um Róm, sem ég elska, kannski ekki síst vegna þess að ég kynntist borg- inni í gegnum fólk sem þar bjó. Mér datt í hug að gefa fólki færi á að kynnast Reykjavík á þennan sama hátt. Í fyrstu hafði ég það markmið að fá til mín erlenda gesti sem hing- að kæmu á vegum fyrirtækja. Ég taldi upplagt að sinna þeim á meðan starfsmenn sinntu vinnu sinni. En þetta bara sló ekkert í gegn og Ís- lendingar urðu og eru mínir gestir fyrst og fremst,“ segir Birna um upphafið að menningargöngunum. Miðborgin er sagan og fólkið Fólk á öllum aldri hefur gengið með Birnu. Hún hefur til að mynda tekið á móti þónokkuð mörgum út- skriftarhópum af leikskólum. „Þau eru alveg yndislegir gest- ir. Börn eru þannig að sem betur fer kunna þau svo lítið að skrökva að það leynir sér ekkert hvort maður stendur sig eða ekki,“ segir Birna. Yfirleitt eru ferðirnar sérpant- aðar og þá er hægt að koma við hér og þar en Birna fylgist vel með öll- um nýjungum í miðborginni. „Miðborgin er mitt svæði þó ég hafi hætt mér aðeins út fyrir 101 án þess að vera með vegabréf. Ég segi alltaf: Miðborgin, þar er sagan, þar er menningin og þar er mannfólkið. Þess vegna er fyndið þegar fólk ætl- ar að búa til miðborg og heldur að það sé bara einhverjir steinsteypu- Borgin er lítil dama sem á að „digga“ Birna Þórðardóttir hefur í áratug leitt gesti í menningarferð um „Litlu fröken Reykjavík“ líkt og hún kýs að kalla miðborgina. Hún fer með gesti í sérstaka af- mælisgöngu í dag. Ferðin hefst á Skólavörðuholtinu og verður komið víða við. Morgunblaðið/Ómar Hingað og ekki lengra Birna reffileg í dyrum Hegningarhússins. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Egill Árni Pálsson tenór, Kristinn Örn Kristinsson píanóleikari og Henríetta Ósk Gunnarsdóttir sópran koma fram á einsöngs- tónleikununum Ideale í Aratungu í dag klukkan 17. Efnisskráin samanstendur af íslenskum, þýskum og ítölskum sönglögum og ljóðum. Sérvalin með fegurð og skemmtanagildi í huga. Að- gangur er ókeypis og allir vel- komnir svo lengi sem húsrúm leyfir. (Tekið verður á móti frjálsum framlögum á tónleikastað, óski fólk eftir því að styrkja tón- leikana.) Endilega… …sækið Ideale í Aratungu Tenór Egill Árni Pálsson. Virðing Réttlæti F í t o n / S Í A VR | KRINGLUNNI 7 | 103 REYKJAVÍK | S. 510 1700 | F. 510 1717 | WWW.VR.IS Félagsfundur VR verður haldinn á Hilton Nordica Hótel miðvikudaginn 22. febrúar nk. kl. 19:30. Dagskrá: 1. Kynning frambjóðenda til trúnaðarstarfa fyrir félagið. 2. Fyrirspurnir til frambjóðenda. Félagsmenn hvattir til að mæta.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.