Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012 Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Afsögn forseta Þýskalands, Christi- ans Wulffs, er pólitískt áfall fyrir flokkssystur hans Angelu Merkel kanslara sem valdi hann sem for- setaefni og beitti sér fyrir því að hann yrði kjörinn í embættið á þýska þinginu. Þetta er í annað skipti á tveimur árum sem forseti Þýskalands segir af sér því forveri Wulffs, Horst Köhler, ákvað að láta af embætti vegna umdeildra ummæla hans sem virtust benda til þess að hann teldi að þátttaka Þjóðverja í hernaðinum í Afganistan væri af efnahagslegum rótum runnin. Angela Merkel hafði einnig beitt sér fyrir því að Köhler yrði endurkjörinn í embættið um ári fyrir afsögnina. „Ljóst er að afsögn Wulffs er póli- tískur ósigur fyrir Merkel og veikir hana pólitískt, einkum vegna þess að hún hefur stutt hann svo lengi,“ hef- ur fréttaveitan AFP eftir Steven Bastos, stjórnmálafræðingi við Genshagen-stofnunina. Fleiri stjórn- málaskýrendur í Þýskalandi tóku í sama streng. Wulff sagði af sér eftir að sak- sóknarar báðu þingið um að svipta hann friðhelgi sem forseta til að þeir gætu rannsakað ásakanir um að hann hefði misnotað stöðu sína í ágóðaskyni sem forsætisráðherra Neðra-Saxlands á árunum 2003- 2010. Komið hefur í ljós að Wulff fékk lán að andvirði hálfrar milljónar evra (rúmra 80 milljóna króna) frá eiginkonu auðugs verktaka til að borga fyrir húsnæði árið 2008. Wulff reyndi að leyna þessu og hafði í hót- unum við ritstjóra dagblaðsins Bild til að reyna að koma í veg fyrir að blaðið skýrði frá húsnæðisláninu. Wulff var í mjög nánum tengslum við fleiri auðmenn sem eru sagðir hafa gert honum fleiri greiða, m.a. borgað fyrir sólarlandaferðir hans. Hugsanlegur keppinautur? Wulff er 52 ára að aldri og varð yngsti maðurinn til að gegna emb- ættinu þegar hann var kjörinn 10. forseti Þýskalands 30. júní 2010. Þegar Wulff var forsætisráðherra Neðra-Saxlands var hann álitinn lík- legur til að verða leiðtogi Kristilegra demókrata þegar fram liðu stundir. Talið er að ein af ástæðum þess að Merkel valdi Wulff sem forsetaefni sé sú að kanslarinn hafi viljað losa sig við hugsanlegan keppinaut, með því að koma honum í valdalítið for- setaembættið. Sú ákvörðun Merkel að tefla Wulff fram var mjög umdeild og þótti til marks um að hún gæti ekki hafið sig yfir flokkslínur. Afsögnin talin áfall fyrir Merkel  Tengsl við auðmenn urðu forseta Þýskalands að falli  Í annað skipti á tveimur árum sem þýskur forseti segir af sér  Angela Merkel valdi Christian Wulff sem forsetaefni og beitti sér fyrir kjöri hans Reuters Glataði trausti Wulff horfir á eiginkonu sína eftir að hann tilkynnti afsögn- ina og viðurkenndi að mikill meirihluti Þjóðverja styddi hann ekki lengur. Njóti víðtæks stuðnings » Angela Merkel, kanslari Þýskalands, kvaðst í gær ætla að hefja viðræður við leiðtoga stærstu stjórnmálaflokka landsins með það fyrir augum að finna forsetaefni sem nyti víðtæks stuðnings. » Merkel ætlar fyrst að ræða við forystumenn stjórnarflokk- anna, Kristilegra demókrata, systurflokks þeirra í Bæjara- landi og Frjálsra demókrata. Hún ræðir síðan við leiðtoga jafnaðarmanna og græningja. » Leiðtogi jafnaðarmanna kvaðst fagna tilboði Merkel um slíkar viðræður. Breska leyniþjónustan MI5 rann- sakaði hvort Charlie Chaplin hefði fæðst í Frakklandi og heitið Israel Thornstein. Þetta kemur fram í skjölum sem hafa verið gerð opinber í Bretlandi. Chaplin kvaðst sjálfur hafa fæðst í London 16. apríl 1889 en breska leyniþjónustan fann engin gögn sem sönnuðu það. Bandarísk yfirvöld litu á Chaplin sem hættulegan kommúnista og báðu því bresku leyniþjónustuna um að rannsaka bakgrunn hans eftir að hann flutti búferlum frá Bandaríkj- unum árið 1952, að sögn The Tele- graph. Bresku leyniþjónustumenn- irnir fundu ekkert fæðingarvottorð eða önnur gögn sem sönnuðu að Chaplin hefði fæðst í Bretlandi. Vegabréf frá árinu 1920 er elsta opinbera skírteinið sem vitað er að Chaplin hafi fengið þar í landi. Leyniþjónustumennirnir rann- sökuðu tilgátu um að Chaplin hefði fæðst nálægt París. Bandarísk yfir- völd töldu að hann hefði heitið Israel Thornstein og væri kominn af rúss- neskum gyðingum. Víðtæk leit MI5 bar ekki árangur og uppruni Chapl- ins er því enn ráðgáta. bogi@mbl.is Var Chaplin franskur Thornstein? Frakki virðir fyrir sér eftirlíkingu af Eiffel-turni úr sítrónum og appelsínum á sítrónuhátíð í Menton í sunnan- verðu Frakklandi. Um 145 tonn af sítrónum og appelsínum voru notuð í ýmiskonar skreytingar á hátíðinni sem er nú haldin í 79. sinn og stendur til 7. mars. Menton er á Rívíerunni og hefur verið nefnd „Perla Frakklands“. Reuters Eiffel-turn úr ávöxtum á sítrónuhátíð Sýrlenskar hersveitir létu sprengj- um og flugskeytum rigna yfir borg- ina Homs í gær eftir að allsherjar- þing Sameinuðu þjóðanna samþykkti ályktun þar sem það krafðist þess að stjórnin í Sýrlandi stöðvaði árásirnar þegar í stað. Stjórnarandstæðingar sögðu þetta hörðustu árásirnar á borgina frá því að hersveitirnar hófu manndrápin fyrir hálfum mánuði. „Þetta er ótrú- legt – við höfum aldrei áður séð því- líkt yfirþyrmandi ofbeldi, að jafnaði er fjórum flugskeytum skotið á hverri mínútu,“ sagði einn forystu- manna stjórnarandstæðinga í Homs. TÓLF RÍKI Á MÓTI ÁLYKTUNINNI Heimild: Sameinuðu þjóðirnar ÞANNIG GREIDDU RÍKIN ATKVÆÐI Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna samþykkti í fyrrakvöld ályktun þar sem árásirnar í Sýrlandi eru fordæmdar Á kortinu eru sýnd lönd sem greiddu atkvæði gegn ályktuninni Kína Norður- Kórea Rússland Hvíta-Rússland ÍranSýrland Ekvador Níkaragva Venesúela Kúba Bólivía Simbabve 5.400 látnir25.000 hafa flúið land70.000 flóttamenn eru í Sýrlandi FÓRNARLÖMB ÁRÁSANNA Frá því að uppreisnin hófst í mars á liðnu ári 137 JÁ 12 NEI SÁTU HJÁ 17 Enn harðari árásir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.