Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 18.02.2012, Blaðsíða 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. FEBRÚAR 2012 ✝ Svava Sigurð-ardóttir, Reyð- arfirði, fæddist á Vopnafirði 22. des- ember 1921. Hún lést 12. febrúar 2012. Foreldrar henn- ar voru Sigurður Þorbjörn Sveinsson og Katrín Ingibjörg Pálsdóttir. Systkini Svövu voru: Pála Margrét, f. 1921, d. 1994; Sveinn, f. 1925, d. 1997; Stefán Að- alsteinn, f. 1925, d. 2010; Guðni Þórarinn, f. 1926, d. 2004. Svava giftist 1945 Valtý Þór- ólfssyni, f. 19. ágúst 1919, d. 31. des. 1983. Þau eignuðust sex börn: 1) Sigurður, f. 28. ágúst 1944, maki Dagný Sighvats- dóttir, f. 20. apríl 1943, búa á Sel- tjarnarnesi, börn þeirra: a) Son- ur Dagnýjar og fóstursonur Sigurðar, Gunnar Gestsson, f. 1968. b) Páll, f. 1970, dóttir hans Herdís. c) Þorbjörg, f. 1975. 2) Katrín, f. 14. maí 1946, maki Stefán Björnsson, f. 4. júlí 1941, d. 25. sept. 2009. Katrín býr á Vopnafirði, börn þeirra: a) Svav- ar Valtýr, f. 1963, sambýliskona Þuríður Sigurðardóttir, f. 1964. Karitas og Víðir Páll. c) Ingunn Ósk, f. 1983, sambýlismaður Pálmi Hannesson, f. 1983. 5) Svavar Valtýr, f. 12. apríl 1952, maki Guðrún Jóhanna Kjart- ansdóttir, f. 9. júlí 1956, búa í Áreyjum, börn þeirra: a) Ás- mundur Pétur, f. 1976, sambýlis- kona Þuríður R. Sigurjónsdóttir, f. 1983, börn þeirra Þórhallur Karl og óskírð dóttir. b) Kjartan Jóhann Karl, f. 1980. c) Anna Katrín, f. 1985, sambýlismaður Björgvin Elísson, f. 1975. d) Marta Guðlaug, f. 1999. 6) Valur Þór, f. 11. ágúst 1962, maki Am- anda Sunneva Joensen, f. 17. apríl 1962, þau skildu. Valur býr á Reyðarfirði, börn þeirra: a) Þórólfur Valberg, f. 1982, sam- býliskona Eva Hrönn Morales, f. 1980, dóttir þeirra Roxanna Kittý. Börn Þórólfs af fyrra hjónabandi, Bjartur Tandri og Viktoría Líf. b) Guðmundur Þór, f. 1983, sambýliskona Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, f. 1985, sonur þeirra Valur Elí. c) Svava María, f. 1987, sambýlismaður Jón Marinó Sigurðsson, f. 1975. d) Guðrún Sóley, f. 1996. Svava ólst upp á Vopnafirði. Fluttist til Reyðarfjarðar 1944 er hún og Valtýr hófu sambúð í ný- byggðu húsi sínu, Sjónarhæð. Árið 1983 lést Valtýr. Síðustu ár- in hefur Svava dvalið á Huldu- hlíð, heimili aldraðra á Eskifirði. Útför Svövu fer fram frá Reyðarfjarðarkirkju í dag, 18. febrúar 2012, klukkan 14. Valtýr á soninn Stefán Björn af fyrra hjónabandi og fósturdótturina Helgu Dóru. b) Að- alheiður, f. 1968, maki Ólafur Krist- inn Sigmarsson, f. 1965, dætur þeirra Lilja Katrín og Jenný Sif. c) Svava Birna, f. 1970, sonur hennar Alex Leví. d) Linda Björk, f. 1979, sambýlis- maður Elmar Þór Viðarsson, f. 1982, börn þeirra Mikael Viðar og Amanda Lind. 3) Ingibjörg Margrét, f. 4. sept. 1947, maki Michael Roland Mann, f. 15. júlí 1946, búa í Englandi, dætur þeirra: a) Anúska Helena Tanya Ferne, f. 1976, maki Tristan Ferne, f. 1974. b) Alía Dawn Svanhvít Grist, f. 1979, maki Andrew Grist, f. 1981. 4) Guðrún Ósk, f. 6. apríl 1950, maki Árni Páll Ragnarsson, f. 3. júní 1951, búa á Reyðarfirði, börn þeirra: a) Arnar Már, f. 1975, maki Guð- rún Helga Finnbogadóttir, f. 1975, sonur þeirra Brynjar Snær. b) Valtýr Örn, f. 1976, sambýliskona Tinna Sigurð- ardóttir, f. 1979, börn þeirra Nú er hún Svava föðursystir mín farin í sitt hinsta ferðalag. Svava var fædd og uppalin á Vopnafirði. Hún átti fjögur systk- ini og lifði hún þau öll. Hún var alltaf mjög dugleg að ferðast og vílaði ekki fyrir sér að fara með strandferðaskipi til að heimsækja fjölskylduna sína á Vopnafirði eft- ir að hún fluttist til Reyðarfjarðar. Einu sinni sagði ég henni að mér hefði verið sagt að kærastinn hennar, sem síðar var eiginmaður hennar, hefði komið nokkrum sinnum á vörubíl í heimsókn til hennar. Allir sem þekkja til vita að það hefur ekkert verið auðvelt því Vopnafjarðarheiði var að miklu leyti niðurgrafinn moldarvegur. Svava leiðrétti og sagði að það hefði nú bara verið í eitt skipti. Svava stofnaði heimili með eig- inmanni sínum, Valtý Þórólfssyni, á Sjónarhæð. Börnin þeirra voru í miklu uppáhaldi hjá pabba og bræðrum hans sem þá voru ókvæntir. Pabbi talaði oft um hvað stelpurnar hennar Svövu hefðu verið harðduglegar að salta síld. Svava var trygglynd. Hún sýndi það í verki þegar fjölskyld- an mín átti í erfiðleikum í sept- ember 1966. Hún hringdi í bróður sinn og bauðst til að hafa mig hjá sér. Móðir mín þurfti að fara til Kaupmannahafnar í uppskurð vegna heilaæxlis. Ég var hjá Svövu fram í desember, gekk í skóla og eignaðist vinkonur sem ég á enn í dag. Ég var ánægð hjá Svövu og sagði pabba að ég vildi vera hjá henni um jólin. Pabbi hafði aðrar áætlanir. Við fórum saman til Reykjavíkur til mömmu sem var útskrifuð af spítala og ég þurfti að hitta lækni. Svava prjónaði oft sokka fyrir bróður sinn og einnig flottar lopa- peysur. Hún var snillingur að prjóna. Við keyptum nokkrar peysur af henni fyrir vini okkar í Kanada. Handverkið hennar Svövu hefur farið bæði til Amer- íku og Evrópu og víðar. Eftir að Valtýr dó gerði Svava miklar breytingar á húsinu þeirra. Hún ákvað að flytja á neðri hæðina. Það þurfti að gera heilmiklar breytingar sem Svava var búin að hanna sjálf. Hún var frábær arkitekt. Hún var líka mikil blómakona. Við pabbi heimsóttum Svövu stundum til Reyðarfjarðar og þar var tekið á móti okkur eins og við værum höfðingjar. Við fórum stundum í bíltúr og heimsóttum vini og ættingja á stöðunum í kring. Svava var skemmtilegur ferðafélagi. Þegar ég fór inn í svefnherbergið hennar var mynd af mér lítilli á hillu rétt við rúmið hennar. Þetta sagði mér allt sem segja þarf um væntumþykju Svövu. Hún vildi gefa mér nælu sem amma átti. Ég benti henni á að hún ætti dætur en það var ekk- ert hægt að hagga henni. Hún var mjög ákveðin þegar það hentaði henni. Það er oft erfitt að kveðja en allar góðu minningarnar sem ég á um Svövu ylja mér um hjarta á þessum tímamótum. Það var reisn yfir Svövu og hún var falleg og glæsileg kona. Hún minnti okkur oft á afa sem var svo blíður og góður. Hún líktist ömmu í útliti í seinni tíð og hafði fallega rödd sem minnti bróður minn á ömmu okkar. Kæru frændsystkini. Megi al- máttugur Guð vera með ykkur á þessum tímamótum. Ég blessa minningu Svövu föðursystur minnar í Jesú nafni. Rósa Aðalsteinsdóttir, Ási, Vopnafirði. Þær eru munahlýjar minninga- myndirnar af heimaslóðum áður og ágengari en ella verða þær þegar kemur að hinztu kveðju til þess kæra samferðafólks er veitti birtu á brautir manns og voru svo Svava Sigurðardóttir ✝ Róbert Bene-diktsson fædd- ist í Stóru-Hildisey í Austur-Landeyjum 28. janúar 1944. Hann lést á Kan- aríeyjum 28. janúar 2012. Foreldrar Ró- berts eru Benedikt Ástvaldur Gíslason, kennari og bóndi, f. 15. apríl 1922, d. 23. september 1974 og Guðrún Pét- ursdóttir, húsmóðir, f. 4. mars 1926 í Selshjáleigu, en ólst upp í Stóru-Hildisey. Stjúpfaðir Róberts var Jón Guðjónsson, bif- vélavirki, f. 27. mars 1917 á Fornusöndum í Vestur-Eyja- fjöllum, en ólst upp á Berjanesi í Vestur-Landeyjum, d. 21. októ- arfirði til loka árs 2006, en þá fluttu þau á Hafnargötu í Kefla- vík. Sonur Róberts og Auð- bjargar er Róbert Benedikt, f. 14. maí 1986, sambýliskona hans er Diljá Mist Einarsdóttir. Róbert eignaðist fimm syni í fyrra hjónabandi, þeir eru: 1) Jón Pétur, f. 14. janúar 1962. Hann á fjögur börn. 2) Baldur Már, f. 19. júlí 1964, eiginkona hans er Jill Renea Róbertsson. Saman eiga þau tvö börn en fyrir átti Baldur einn son. 3) Guðmundur Þór, f. 28. maí 1967, eiginkona hans er Þórdís Magnúsdóttir. Saman eiga þau einn son en fyrir átti Guðmundur fjögur börn. 4) Hall- dór Ingi, f. 18. maí 1969. Hann á eina dóttur. 5) Rúnar Valur, f. 20. júlí 1972, eiginkona hans er Ragnheiður Arnardóttir. Saman eiga þau tvær dætur. Fósturbörn Róberts, börn Auðbjargar, eru: 1) Berglind Friðbergsdóttir, eig- inmaður hennar er Björn Þór Baldursson, 2) Brynjar Frið- bergsson, eiginkona hans er Guð- rún Lind Brynjólfsdóttir, 3) Har- aldur Guðmannsson, eiginkona hans er Dóra Björk Mar- inósdóttir. Róbert eignaðist fjöl- mörg barnabörn og eitt barna- barnabarn. Róbert ólst upp hjá móð- urömmu og móðurafa, þeim Soffíu og Pétri, í Stóru-Hildisey þar til hann byrjaði í barnaskóla. Þá flutti Róbert á Selfoss til móð- ur sinnar og stjúpföður og var í skóla á Selfossi, en á sumrin dvaldi hann áfram í Stóru- Hildisey. Þegar Róbert var 15 ára gamall flutti hann alfarið á Selfoss og hóf að læra trésmíði hjá Kaupfélagi Árnesinga. Hann útskrifaðist tvítugur sem lærður trésmiður og varð húsasmíða- meistari þremur árum síðar. Ró- bert starfaði hjá Kaupfélaginu í nokkur ár og síðar vann hann hjá Landsvirkjun við smíði Búrfells- virkjunar. Róbert starfaði sem sjálfstæður byggingameistari frá árinu 1973 og allt til dánardags. Róbert verður jarðsunginn frá Selfosskirkju í dag, 18. febrúar 2012 kl. 15. ber 1994. Bróðir Róberts sammæðra er Guðjón Jónsson. Systkini Róberts samfeðra eru Jón Benediktsson og Sigríður Benedikts- dóttir. Róbert kynntist árið 1981 eftirlif- andi sambýliskonu sinni, Auðbjörgu Guðröðardóttur, f. 17. mars 1950. Foreldrar hennar voru Guðröður Jónsson, bóndi í Kálfavík, f. 8. júní 1895, d. 2. febrúar 1981 og Guðrún Guð- mundsdóttir, húsmóðir, f. 14. mars 1913, d. 26. nóvember 1997. Róbert og Auðbjörg hófu búskap í Háukinn í Hafnarfirði í apríl 1982. Þau bjuggu í Hafn- Elsku Róbert. Við Robbi minn vorum svo lánsöm að heimsækja ykkur Auðbjörgu kvöldið áður en þið lögðuð af stað til Kanarí. Við áttum góða stund saman, eins og alltaf, og ég faðmaði þig bless, ósk- aði þér góðrar ferðar og sagði síð- an „við sjáumst“ í kveðjuskyni. Þessi lítilfjörlega kveðja hefur verið mér ofarlega í huga síðustu daga. Mig grunaði auðvitað ekki að þetta yrði okkar kveðjustund hér, en það er okkur sem eftir verðum þó huggun harmi gegn að aðskilnaðurinn varir ekki að eilífu. Ég er þakklát fyrir þær ynd- islegu stundir sem við Robbi höf- um átt með þér og Auðbjörgu á undanförnum árum, og það er sönn gæfa að hafa fengið að kynn- ast eins hjartahlýjum manni og þér. Guð geymi þig elsku Róbert – við sjáumst. Diljá Mist. Fyrir tæpum 50 árum kynntist ég fyrst Róbert eða Robba eins og hann var jafnan kallaður af vinum og vinnufélögum. Ég hóf þá störf hjá Trésmiðju KÁ á Selfossi. Robbi starfaði þar í stórum hópi úrvals manna og kom til mín fyrsta dag- inn sem ég mætti til vinnu og bauð mig velkominn, alúðlegur, broshýr og glettinn eins og hann var jafnan, sama á hverju gekk. Frá fyrsta degi urðum við góðir vinir. Við höfðum ekki þekkst áður þótt við værum báðir fæddir Aust- ur-Landeyingar og fjölskyldur okkar tengdar sterkum vinabönd- um frá fornu fari. Að loknu námi í Róbert Benediktsson ✝ Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls elskulegrar frænku okkar, INGIBJARGAR SALÓME BJÖRNSDÓTTUR, Æju frá Stóru-Seylu. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deild 5 á Dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki. Birna Halldórsdóttir, Margrét Guðvinsdóttir, Anna Halldórsdóttir, Stella Guðvinsdóttir, Margrét Halldórsdóttir, Eiður Guðvinsson, Guðbjörg Halldórsdóttir, Hulda Halldórsdóttir, Gylfi Halldórsson og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elsku- legs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, SNORRA SNORRASONAR fyrrv. flugstjóra, Smáraflöt 11, Garðabæ, sem lést á heimili sínu laugardaginn 21. janúar. Sérstakar þakkir fá hjúkrunarfræðingar Karitas fyrir framúrskarandi umönnun. Nanna Nagtglas Snorrason, Jón Karl Snorrason, Þórey Jónsdóttir, Snorri Snorrason, Guðrún Magnea Rannversdóttir, Helga Guðrún Snorradóttir, Gísli Tryggvason, Haukur Snorrason, Hadda Björk Gísladóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Þökkum innilega hlýhug, samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs sonar míns, bróður okkar, frænda og vinar, BIRGIS SNÆFELLS ELÍNBERGSSONAR. Sérstakar þakkir til lækna og hjúkrunarfólks Landspítalans. Fjóla Unnur Halldórsdóttir, Ragnar Snæfells Elínbergsson, Lára Halla Snæfells Elínbergsdóttir, Benedikt Elínbergsson, frændsystkin og vinir. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra DAVÍÐS ÞÓRS GUÐMUNDSSONAR. Sérstakar þakkir til Karlakórs Kjalnesinga. Hrafnhildur S. Þorleifsdóttir, Ingibjörg M. Kristjánsdóttir, börn, barnabörn, barnabarnabarn, systkini og aðrir aðstandendur. ✝ Þökkum samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæru ERNU JÓNU EYJÓLFSDÓTTUR. Geir Sigurðsson, Sigurður Geirsson, Erlingur Geirsson, Eyjólfur Guðmundsson, Eygló Úlfhildur Ebenezersdóttir, Guðbjörg Eyjólfsdóttir, Óskar Sævarsson, Guðmundur Eyjólfsson, Gréta Björg Blængsdóttir, Andri Þór Eyjólfsson, Ragnhildur Reynisdóttir. ✝ Þökkum af alhug auðsýnda samúð, stuðning og vinarþel við fráfall elsku mömmu okkar, dóttur, systur, mágkonu og frænku, INGIBJARGAR VAGNSDÓTTUR, Holtastíg 11, Bolungarvík, sem lést í Kína sunnudaginn 20. nóvember. Kristín, Birna og Ívar Ketilsbörn, Birna Hjaltalín Pálsdóttir, Soffía, Hrólfur, Margrét, Pálína, Haukur og Þórður Vagnsbörn og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir fyrir vinsemd og hlýhug vegna andláts ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, BJARNA GÍSLASONAR frá Eyhildarholti, Gilstúni 11, Sauðárkróki, sem andaðist á Heilbrigðisstofnun Sauðárkróks miðvikudaginn 18. janúar. Salbjörg Márusdóttir, Þorbjörg Bjarnadóttir, Pétur Pétursson, Sigríður Bjarnadóttir, Brynjar Skúlason, Hannes Bjarnason, Charlotte Kvalvik, Ragnar Bjarnason, Anita Karin Guttesen, Stefanía Guðrún Bjarnadóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.