Morgunblaðið - 20.02.2012, Qupperneq 27
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. FEBRÚAR 2012
Hvað ertu að hlusta á um þessar mundir?
Ég er rosalega föst í Big Spring með Helga Jóns-
syni – það er hin fullkomna plata. Ég er líka búin að
vera að hlusta á Old Ideas, nýjustu afurð Leonard
Cohen og hann kemur mér sífellt á óvart. Snillingur!
Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið
gerð að þínu mati?
Þetta má ekki! Maður gerir ekki upp á milli
barnanna sinna! Head on the Door með The Cure er
epísk, Murder Ballads með Nick Cave and the Bad
Seeds er magnað tónlistarverk, Fulfillingness’ First
Finale með Stevie Wonder er stórkostleg og Vs. með
Pearl Jam er miklu betri en Ten. Já, ég sagði miklu
betri! Verð ég þá ekki að láta Big Spring á listann
líka þar sem ég var að segja að væri hin fullkomna
plata?
Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir
þú hana?
Það var plata sem var á tilboðinu 2 fyrir 2.000 í
plötubúðinni í Mjódd þegar ég var ellefu ára – Stevie
Wonder Greatest Hits. Ein af mörgum Greatest
Hits-plötum sem hafa verið gefnar út í hans nafni.
Þetta var ást við fyrstu hlustun og síðan þá hef ég
sankað að mér flestu sem þessi mikli meistari hefur
gefið út. Ég man ekkert hver hin platan var enda féll
hún fljótt í skugga meistarans. Fyrsta platan sem ég
eignaðist, minnir að ég hafi fengið hana í afmæl-
isgjöf, var hins vegar Stjórnin með samnefndri
hljómsveit. Hún er gjörónýt í dag eftir geysimikla
spilun.
Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um?
Croucie D’ou La með Emil-
íönu Torrini á alltaf sérstakan
stað í hjarta mínu sem og Ríó
Tríó-kassettan sem ég fékk þeg-
ar ég var fimm ára og man ekki
hvað heitir. Það var gert mikið
grín að mér um daginn þegar ég
afhjúpaði það leyndarmál að ég
var einu sinni bálskotin í Helga
Pé.
Hvaða tónlistarmaður værir þú
mest til í að vera?
Nick Cave. Hann er kóng-
urinn!
Hvað syngur þú í sturtunni?
Kærasta mínum til mikils ama
hef ég verið að raula Evr-
óvisjónslagarann „Stattu upp“
með Bláum ópal í tíma og ótíma
síðustu daga. Annars stendur „Crazy Love“ með Van
Morrison alltaf fyrir sínu. Og „Með þér“ með Bubba.
Já, það leynist rómantíker þarna einhvers staðar.
Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum?
Bonnie Tyler, þá sérstaklega „Total Eclipse of the
Heart“. Ef ég öskra nógu hátt get ég sannfært mig
um að ég sé frá-
bær kraftballöðu-
drottning þegar ég
í raun er bara með-
al-raulprinsessa.
Beyonce á líka alltaf
vissan sess í mínu
partíhjarta.
En hvað yljar þér svo á sunnudagsmorgnum?
Van Morrison, Fleet Foxes, Bright Eyes – þá nær
eingöngu First Day of My Life, eitt fallegasta lag
sem til er og The Cardigans. Kanadíski krúnarinn
Micheal Buble nær svo alltaf að bræða hjarta mitt.
Í mínum eyrum Lilja Katrín Gunnarsdóttir
Nick Cave er kóngurinn!
Morgunblaðið/Kristinn
Nick
Cave
Tónlistarsmekkur Lilja Katrín Gunnars-
dóttir raular Evróvisjón lög í sturtunni.
» Útför WhitneyHouston var gerð
frá New Hope Bapt-
ist Church í New
Jersey á laugardag-
inn en þar hóf Hou-
ston sinn söngferil
sem barn. Athöfnin
tók tæpar fjórar
klukkustundir því
nokkuð var um ræð-
ur og tónlistaratriði.
Houston var svo
jarðsett í gær.
Whitney Houston lögð til hinstu hvílu
Söngkonan Alicia Keys söng lagið
Send Me an Angel í jarðarförinni.
Söngvarinn góðkunni Stevie Wonder
hélt stutta ræðu í athöfninni.
Að athöfn lokinni var kistan flutt í kirkjugarðinn. Hún var
jarðsett í gær að viðstöddum nánustu ættingjum.
Aðdáendur Houston söfnuðust saman skammt frá
kirkjunni og sungu þekktustu lög hennar.
AP
Safnasafnið á Svalbarðsströnd
hlaut Eyrarrósina í ár en rósin er
viðurkenning fyrir afburða
menningarverkefni á lands-
byggðinni. Eyrarrósin var afhent
við athöfn á Bessastöðum en það
var Dorrit Moussaieff forsetafrú
og verndari Eyrarrósarinnar sem
afhenti hana. Fjölmennt var við
athöfnina en auk afhending-
arinnar kynnti Hrefna Haralds-
dóttir stjórnandi Listahátíðar í
Reykjavík, Eyrarrósina og Katrín
Jakobsdóttir, mennta- og menn-
ingarmálaráðherra, ávarpaði
samkomuna. Eyrarrósinni fylgir
1,5 milljóna styrkur og verð-
launagripur eftir Steinunni Þór-
arinsdóttur.
Verðlaun Verðlaunahafar Eyrarrósarinnar
ásamt Dorrit Moussaieff.
Eyrarrósin afhent á Bessastöðum
Heimsljós (Stóra sviðið)
Lau 25/2 kl. 19:30 16.sýn Fim 8/3 kl. 19:30 18.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 síð.sýn
Sun 26/2 kl. 19:30 17.sýn Mið 14/3 kl. 15:00 AUKAS.
Ein ástsælasta saga Nóbelsskáldsins í nýrri leikgerð.
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fim 1/3 kl. 19:30 Forsýn Fös 23/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 AUKAS.
Fös 2/3 kl. 19:30 Forsýn Lau 24/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 AUKAS.
Lau 3/3 kl. 19:30 Frums Sun 25/3 kl. 19:30 10.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 15.sýn
Fös 9/3 kl. 19:30 2.sýn Mið 28/3 kl. 19:30 11.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 AUKAS.
Lau 10/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 29/3 kl. 19:30 12.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 16.sýn
Sun 11/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 30/3 kl. 19:30 AUKAS. Sun 22/4 kl. 19:30 17.sýn
Fös 16/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 31/3 kl. 19:30 AUKAS. Fös 27/4 kl. 19:30 18.sýn
Lau 17/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 1/4 kl. 19:30 13.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 7.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 14.sýn
Frumsýnt 3. mars
Dagleiðin langa (Kassinn)
Fös 24/2 kl. 19:30 Frums. Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 9.sýn
Mið 29/2 kl. 19:30 2.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 10.sýn
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 11.sýn
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 12.sýn
Frumsýnt 24.febrúar
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Sun 26/2 kl. 13:30 Sun 26/2 kl. 17:00 AUKAS. Sun 4/3 kl. 15:00
Sun 26/2 kl. 15:00 Sun 4/3 kl. 13:30
Hjartnæm og fjörmikil sýning
Sjöundá (Kúlan)
Lau 25/2 kl. 19:30 Fim 8/3 kl. 19:30 Fim 15/3 kl. 19:30
Sun 4/3 kl. 19:30 Mið 14/3 kl. 19:30
Ný leiksýning um morðin á Sjöundá
Eldhaf – „Afar sterk sýning“ – KHH, Ftími
Fanný og Alexander (Stóra sviðið)
Fim 23/2 kl. 20:00 aukas Sun 4/3 kl. 20:00 aukas Lau 17/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 10.k Fim 8/3 kl. 20:00 Sun 18/3 kl. 20:00 aukas
Lau 25/2 kl. 20:00 aukas Fös 9/3 kl. 20:00 Fös 23/3 kl. 20:00
Fim 1/3 kl. 20:00 11.k Sun 11/3 kl. 20:00 aukas Sun 25/3 kl. 20:00 aukas
Fös 2/3 kl. 20:00 12.k Fim 15/3 kl. 20:00 aukas Lau 31/3 kl. 20:00 lokas
Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið. Sýningum lýkur í mars
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 25/2 kl. 14:00 Sun 4/3 kl. 14:00 Sun 18/3 kl. 14:00
Sun 26/2 kl. 14:00 Sun 11/3 kl. 14:00 Sun 25/3 kl. 14:00
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
NEI, RÁÐHERRA! (Stóra sviðið og Menningarhúsinu Hofi)
Lau 3/3 kl. 21:00 Lau 10/3 kl. 22:00 aukas Fös 16/3 kl. 22:00
Lau 10/3 kl. 19:00 Fös 16/3 kl. 19:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Í Borgarleikhúsinu í febrúar og Hofi í mars
Eldhaf (Nýja sviðið)
Fim 23/2 kl. 20:00 11.k Fim 1/3 kl. 20:00 14.k Sun 11/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 12.k Fös 2/3 kl. 20:00 15.k Fim 15/3 kl. 20:00
Lau 25/2 kl. 20:00 aukas Sun 4/3 kl. 20:00 16.k Sun 18/3 kl. 20:00
Sun 26/2 kl. 20:00 aukas Fim 8/3 kl. 20:00
Mið 29/2 kl. 20:00 13.k Fös 9/3 kl. 20:00
Ath! Snarpur sýningartími. Sýningum lýkur í mars
Axlar - Björn (Litla sviðið)
Lau 25/2 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 Fim 15/3 kl. 20:00
Sun 26/2 kl. 20:00 Fim 8/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00
Nýtt verk úr smiðju Vesturports. Síðustu sýningar
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fim 23/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00 Sun 11/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00 Fös 16/3 kl. 20:00
Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Lau 17/3 kl. 20:00
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Á Stóra sviðinu 11/2
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Lau 25/2 kl. 13:00 5.k Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 18/3 kl. 13:00
Lau 25/2 kl. 14:30 aukas Sun 4/3 kl. 14:30 Sun 25/3 kl. 13:00
Sun 26/2 kl. 13:00 Sun 11/3 kl. 13:00
Sun 26/2 kl. 14:30 Sun 11/3 kl. 14:30
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Mínus 16 (Stóra sviðið)
Mið 22/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00
Sun 26/2 kl. 20:00 4.k Lau 10/3 kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn - Verk eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin