Morgunblaðið - 22.02.2012, Síða 6
BAKSVIÐ
Andri Karl
andri@mbl.is
Farið var fram á það við aðalmeðferð
í gær að Héraðsdómur Reykjavíkur
dæmdi Marcin Tomasz Lech, einn
þeirra sem tóku þátt í ráninu í Mich-
elsen úrsmiðum 17. október sl., í
fimm ára fangelsi.
Verjandi Lechs sagði hins vegar að
tveggja ára fangelsi væri hæfileg
refsing fyrir brot hans. Hefði Lech
tekið verkið að sér vegna langvarandi
atvinnuleysis og peningaskorts.
Hann hefði ekki vitað nákvæmlega
hvað stóð til, annað en að hann ætti að
flytja úr landi og til Póllands illa feng-
inn varning.
Lech sagði sögu sína í réttar-
salnum í gær. Hún hófst klukkan tíu
að föstudagskvöldi 7. október sl. en
þá óku fjórir pólskir menn frá
heimabæ sínum og í átt að Kaup-
mannahöfn. Þangað voru þeir komnir
um klukkan sex morguninn eftir.
Lech skildi mennina eftir á hóteli
en hélt sjálfur áfram ferð sinni, því
hann átti miða í Norrænu til Seyð-
isfjarðar. Frá Seyðisfirði ók hann til
Reykjavíkur. Hinir áttu flugfar til
Reykjavíkur síðar á laugardeginum
en hópurinn hittist síðan á hóteli í
Síðumúla aðfaranótt fimmtudagsins
13. október.
Planið breyttist
„Þetta átti að vera innbrot, hinir
höfðu ákveðið að brjótast inn að nóttu
til. Planið breyttist svo hjá þeim. Af
einhverri ástæðu gátu þeir ekki brot-
ist inn að nóttu til en ákváðu þá frek-
ar að fremja rán að degi til,“ sagði
Lech.
Hann lýsti því að á mánudeginum
17. október hefði hann sótt hina
mennina þrjá á hótel þeirra um
klukkan níu um morguninn. Hann ók
niður í miðbæ og lagði bíl sínum hjá
kirkju. Hann gat ekki nefnt kirkjuna
en sagði hana stóra og í miðbænum.
Lech sagðist hafa skilið mennina
þrjá eftir þar en sjálfur farið aftur á
hótelið sitt. „Milli hálfellefu og ellefu
fékk ég símtal. Ég fór út fyrir hótelið
og þeir komu þarna þrír en aðeins
einn fer með mér inn á herbergi.
Hann bað mig að koma með salernis-
pappír og límband og byrja að pakka
inn úrunum.“
Úrapakkana földu þeir vandlega í
bílnum sem Lech kom á til landsins.
Hinir þrír flugu síðan úr landi daginn
eftir.
Handtekinn en sleppt strax
„Daginn eftir, það var þriðjudagur
eða miðvikudagur, kom lögreglan til
mín. Þeir spurðu mig spurninga, svo
vildu þeir fá að leita í bílnum. Þeir
fóru með mig niður á höfn og gegn-
umlýstu bílinn, en slepptu mér svo
lausum. Ég fór aftur á hótelið og
hafði samband við strákana. Ég sagði
þeim hvað gerðist en þeir sögðu mér
að vera rólegur, ef lögreglan ætlaði
að handtaka mig hefði hún gert það
strax. Ég ætti bara að vera rólegur
og bíða. Mig langaði að losa mig við
úrin og ég hafði á tilfinningunni að
verið væri að fylgjast með mér.“
Eftir þetta fór hann að keyra um
bæinn til að athuga hvort verið væri
að fylgjast með sér. Hann hafði aftur
samband við samverkamenn sína
sem sögðu honum enn að vera róleg-
ur. „Ég beið í viku, til næsta miðviku-
dags, en þá kom sérsveitin og hand-
tók mig á hótelinu.“
Laug að fjölskyldunni
Lech sagði að sér hefði ekki litist á
blikuna þegar áætlunin breyttist úr
því að vera innbrot í rán og að hann
skammaðist sín.
„Ég laug að allri fjölskyldu minni,
sagðist vera að fara til Svíþjóðar að
leita að vinnu. Kærastan mín vissi
þetta aðeins rétt fyrir handtöku.
Þetta var ekki það sem ég ætlaði mér
að gera.“
Morgunblaðið/Kristinn
Leiddur í réttinn Marcin Tomasz Lech kemur í réttarsal Héraðsdóms Reykja-
víkur í fylgd lögreglumanna. Krafist er fimm ára fangelsis yfir honum.
Skartgriparánið átti
fyrst að vera innbrot
Krafist fimm ára fangelsisdóms yfir pólskum karlmanni
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags-
og viðskiptaráðherra, sagði á Al-
þingi í gær, að honum og efnahags-
og viðskiptaráðuneytinu hefði verið
gerð grein fyrir því ferli, sem stjórn
Fjármálaeftirlitsins hafði sett mál
Gunnars Andersen forstjóra í.
Sagði Steingrímur að þetta hefði
m.a. verið umræðuefni á fundi hans
og Aðalsteins Leifssonar, stjórnar-
formanns Fjármálaeftirlitsins, í síð-
ustu viku. „En það var eingöngu í
upplýsingarskyni til að upplýsa
ráðuneytið um það ferli, sem stjórn-
in væri með þessi mál í, en ekki til
að ráðuneytið hefði af því afskipti,“
sagði Steingrímur.
Hann var að svara fyrirspurn frá
Gunnari Braga Sveinssyni, þing-
manni Framsóknarflokks, sem vildi
fá upplýsingar um fund Steingríms
og Aðalsteins í ljósi ummæla Stein-
gríms í blaðaviðtali um að hann
hefði frétt af uppsögn Gunnars
Andersen, forstjóra Fjármálaeftir-
litsins, í fjölmiðlum 17. febrúar.
„Ég sagðist ekki hafa vitað af því
að uppsögn hefði farið fram fyrr en
ég heyrði um slíkt í fjölmiðlum enda
kom á daginn, að það var ekki rétt.
Forstjóra Fjármálaeftirlitsins hefur
ekki verið sagt upp heldur hefur
stjórn (FME) rætt við hann um
hugsanleg starfslok,“ sagði Stein-
grímur.
Hann ítrekaði, að samskipti for-
manns og varaformanns FME við
ráðuneytið hefðu eingöngu verið að
upplýsa um það ferli, sem verið
hefði í gangi á vegum stjórnar
stofnunarinnar, þar á meðal að afla
álitsgerða frá lögmönnum. Á fund-
inum hefði komið fram, að á grund-
velli þeirra álitsgerða yrði rætt við
forstjórann og reynt að leysa úr
málinu í samræmi við það sem
stjórn FME teldi efni standa til.
gummi@mbl.is
Upplýstur um ferlið sem
mál forstjóra FME var í
Segir ráðuneytið engin afskipti hafa haft af málinu
Morgunblaðið/Ómar
Var upplýstur Steingrímur J. Sigfús-
son, efnahags- og viðskiptaráðherra.
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Bílamenning í Reykjavík var rædd á
fundi borgarstjórnarinnar í gær. Á
fundinum var tekist á um bílastæða-
mál í miðborginni og þá einkum yf-
irvofandi hækkun stöðumælagjalda
sem nýlega var
samþykkt í um-
hverfis- og skipu-
lagsráði Reykja-
víkur.
Í ræðu sinni á
fundinum mót-
mælti Kjartan
Magnússon, borg-
arfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins,
harðlega yfirvof-
andi hækkun bíla-
stæðagjalda sem
nemur um 67-88%.
„Í fyrsta lagi er
þetta alltof mikil
hækkun í einu.
Þegar það er verið
að reyna að fá aðila
í þjóðfélaginu, ekki
síst opinbera aðila,
til að stilla hækk-
unum í hóf kemur
slík hækkun, upp á
hátt í hundrað prósent, náttúrlega
eins og skrattinn úr sauðarleggnum,“
segir Kjartan í samtali við blaðamann.
Kjartan bendir á að rekstrarumhverfi
miðborgarinnar sé viðkvæmt og versl-
unum þar hafi fækkað á milli ára. „Við
slíkar aðstæður hljóta stjórnmála-
menn að líta til þess að grípa ekki til
neinna þeirra aðgerða sem aukið gætu
á þennan fyrirtækjaflótta úr miðborg-
inni,“ segir Kjartan og bætir við að
ámælisvert sé að ekkert samráð hafi
verið haft við hagsmunaaðila áður en
hækkanirnar voru samþykktar í um-
hverfis- og samgönguráði.
„Borgarráð á eftir að staðfesta
hækkunina og ég lagði til að það yrði
fallið frá þessum hækkunum, eða mál-
inu a.m.k. frestað, og tíminn notaður
til þess að efna til víðtæks samráðs
rekstraraðila á Laugaveginum,“ segir
Kjartan.
Útilokar ekki frekari hækkanir
Hjálmar Sveinsson, varaborgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, flutti
erindi á fundinum um stefnu meiri-
hlutans varðandi umferðarmál og bíla-
menningu í borginni. „Þessi stefna
snýst um það að reyna að snúa við
þeirri þróun sem er búin að eiga sér
stað í nokkra áratugi og hefur gert
Reykjavík að ofboðslega mikilli bíla-
borg,“ segir Hjálmar. Hann bendir á
að þó svo að einkabíllinn sé merkilegt
fyrirbæri hafi mikil umferð einkabíla
marga ókosti í för með sér, t.d. meng-
un, gríðarlegar umferðar- og vega-
framkvæmdir og minni hreyfingu hjá
fólki.
„Ég held að það sem gæti hjálpað
þessu svæði – og það er það sem við
viljum gjarnan að gerist – er að það
eigi sér stað miklu meiri uppbygging
við Hlemm, kannski að beina þangað
öllum þeim sem vilja byggja hótel hér
á næstu árum, þá myndi skapast ann-
ar mannlífstónn þarna í kringum
Hlemm og það myndi væntanlega geta
hjálpað kaupmönnum efst á Lauga-
veginum,“ segir Hjálmar og bætir við:
„En að mínu mati hefur það ekkert
með bílastæði að gera, þvert á móti. Of
mörg bílastæði í götuplássunum á
Laugaveginum gera Laugaveginn að
fráhrindandi götu.“ Aðspurður segir
Hjálmar alls ekki útilokað að bíla-
stæðagjöld í miðborginni verði hækk-
uð enn frekar.
Margir ókostir
við einkabíla
Tekist á um bíla, stæði og stöðumæla
Morgunblaðið/Kristinn
Sektir Stefnt er að því að hækka bílastæðagjöld í miðborginni um 67-88%.
Kjartan
Magnússon
Hjálmar
Sveinsson
FYRIR HEIM
ILIÐ!
ÓDÝRT
– fyrst og
fremst
ódýr!
Meðal þeirra sem komu fyrir dómara við aðalmeðferð vegna úraránsins í
Michelsen úrsmiðum voru eigandi og starfsfólk verslunarinnar. Þau lýstu
því öll að ránið hefði haft mikið áhrif á þau. Þá óttuðust þau um líf sitt á
meðan ráninu stóð.
Sigrún Ragnarsdóttir, starfsmaður verslunarinnar, sagði að sér hefði
liðið hræðilega meðan á ráninu stóð. Hún hefði heyrt háan hvell. „Ég
hugsaði með mér hvort væri búið að skjóta Frank (Michelsen úrsmið) og
hvort við værum næst.“
Hún sagði eins og aðrir starfsmenn að tortryggni hefði aukist. „Þegar
einhver kemur inn, ég tala nú ekki um þegar það eru ungir menn sem tala
ekki íslensku, þá fer maður strax í viðbragðsstöðu. Síðast gerðist það í
gær,“ sagði hún.
Starfsfólkið óttaðist um líf sitt
MIKIÐ ÖRYGGISLEYSI Í KJÖLFAR ÚRARÁNSINS