Morgunblaðið - 22.02.2012, Side 7
FRÉTTIR 7Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Áhrif flugs
á Íslandi
Hafa flugsamgöngur meiri áhrif á eyríki langt úti í Atlantshafi en ríki á meginlandi
Evrópu? Hver eru áhrif flugs á Íslandi? Að undanförnu hefur hið þekkta
rannsóknarfyrirtæki Oxford Economics unnið að úttekt á efnahagslegum
áhrifum flugstarfsemi í 55 löndum um allan heim í samstarfi við IATA,
Alþjóðasamtök flugfélaga. Nú er skýrslan um Ísland komin út og á fundinum
verða athyglisverðar niðurstöður hennar kynntar undir fundarstjórn hinnar
góðkunnu sjónvarpskonu Þóru Arnórsdóttur.
Dagskrá fundarins er eftirfarandi:
Efnahagslegur ábati af flugrekstri á Íslandi
Kynning á niðurstöðum skýrslu Oxford Economics
Julie Perovic, hagfræðingur IATA
Pallborðsumræður um efni skýrslunnar
Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og atvinnumálaráðherra
Pétur K. Maack, flugmálastjóri
Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group
Fáið nýjustu upplýsingar um samgöngumál á Íslandi beint í æð.
Vinsamlega skráið þátttöku á info@saf.is. Aðgangur er ókeypis.
Morgunverðarfundur á Hilton Reykjavík Nordica,
fimmtudaginn 23. febrúar kl. 8:30-9:45.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
58
35
4
02
/1
2
Skaðabótamál
slitastjórnar
Glitnis á hendur
Jóni Ásgeiri Jó-
hannessyni,
Pálma Haralds-
syni og Lárusi
Welding auk
þriggja lyk-
ilstarfsmanna
bankans var tekið
fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær.
Bankinn krefst sex milljarða
króna frá sexmenningunum vegna
svonefnds Aurum-máls. Þá keypti
Glitnir hlutabréf í enska félaginu
Aurum Holding Ltd. af félaginu
Fons, sem var í eigu Pálma Haralds-
sonar, fyrir 6 milljarða króna. Aur-
um var hins vegar í bókum Fons
metið á 1,5 milljarða króna og voru
hlutabréfin talin verðlaus um mitt ár
2009 þegar Fons var tekið til gjald-
þrotaskipta.
Málið var höfðað árið 2010 en að
sögn Hróbjarts Jónatanssonar, lög-
manns slitastjórnarinnar, stendur
lögreglurannsókn enn yfir á því auk
þess sem verið er að afla matsgerða
og standa vonir til að niðurstaða lög-
reglurannsóknarinnar gæti legið
fyrir í apríl. kjartan@mbl.is
Sex milljarða krafa
á Glitnismenn tekin
fyrir í héraðsdómi
Glitnir Skaðabóta-
mál tekið fyrir.
Þrír karlar á þrí-
tugsaldri hafa
játað að hafa
brotist inn á
tveimur stöðum í
austurborginni
aðfaranótt mánu-
dags og stolið
peningaskápum.
Reyndar fóru
þjófarnir tómhentir frá fyrri staðn-
um því ekki tókst þeim að opna
peningaskápinn sem þar var að
finna og eins reyndist hann of stór
og þungur til að flytja á annan stað
þar sem halda mætti verkinu
áfram.
Þrátt fyrir þetta neituðu menn-
irnir að gefast upp enda brotavilji
þeirra mjög einbeittur, segir í frétt
frá lögrelgunni. Þeir fóru því í
beinu framhaldi og brutust inn hjá
öðru fyrirtæki á svipuðum slóðum
en þar var að finna tvo pen-
ingaskápa, öllu minni, sem menn-
irnir tóku með sér af vettvangi.
Þessu næst var ekið á afvikinn stað
og þar voru skáparnir brotnir upp
en í þeim báðum var að finna
reiðufé. Því var skipt bróðurlega á
milli mannanna sem síðan héldu til
síns heima.
Skófar á vettvangi
Á litlu var að byggja við rann-
sókn málsins utan þess að skófar
fannst á vettvangi. Það og brjóstvit
lögreglumanna leiddi þó til þess að
skömmu síðar var bankað upp á hjá
manni sem hefur áður komist í kast
við lögin. Sá kom svefndrukkinn til
dyra og var lítt um þessa heimsókn
gefið. Í forstofu hans var hins vegar
að finna skó sem ástæða þótti til að
skoða nánar og þá tók hringurinn
að þrengjast en húsráðandi var
handtekinn og fluttur á lög-
reglustöð.
Annar maður var vakinn skömmu
seinna í öðru húsi á höfuðborgar-
svæðinu en hann var sömuleiðis við-
riðinn málið og því færður til yfir-
heyrslu. Hjá þeim báðum fundust
peningar sem þeir höfðu stolið úr
peningaskápunum. Þriðji maðurinn
var svo handtekinn um hádegisbil
og hafði þegar eytt sínum hluta af
ránsfengnum, segir í frétt lögreglu.
Peninga-
skápurinn
of þungur
Þrír menn hafa við-
urkennt tvö innbrot
Heimboð Íslendinga til erlendra
ferðamanna í tengslum við markaðs-
verkefnið „Ísland allt árið“ náði að
kitla fréttanef fréttastjóra ótal fjöl-
miðla. Fréttir um átakið birtust í 57
löndum og þeirra á meðal eru marg-
ar af stærstu fréttastofum heims. Þá
náðu heimboðin miklu flugi í sam-
félagsmiðlum af öllu tagi.
Heimboðin voru upphaflega hugs-
uð sem upptakturinn að þriggja ára
markaðsverkefni, „Ísland – allt ár-
ið“, sem miðar að því að fjölga er-
lendum ferðamönnum utan hins
hefðbundna ferðamannatíma um
sumarið. Árangurinn fór fram úr
björtustu vonum og mikill fjöldi Ís-
lendinga um allt land tók þátt í verk-
efninu við miklar og góðar und-
irtektir erlendu gestanna og
heimspressunnar, segir í frétt frá
iðnaðarráðuneytinu.
Í upphafi var einungis reiknað
með að heimboð stæðu í tvo mánuði,
en vegna góðrar þátttöku og mikils
áhuga ferðamanna hefur verið
ákveðið að heimboðin verði áfram
hluti af verkefninu, en reynt verður
að tengja þau áherslum herferð-
arinnar hverju sinni.
Heimboð Íslendinga
vöktu víða athygli
Morgunblaðið/Golli
Á Bessastöðum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók þátt í átakinu
Ísland allt árið og bauð upp á pönnukökur.