Morgunblaðið - 22.02.2012, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Ungum félagsmönnum Blindrafélagsins var nýverið boðið í heimsókn í sæl-
gætisgerðina Freyju til að kynna sér framleiðsluna.
Undanfarin ár hefur sælgætisgerðin boðið fyrirtækjum að kaupa sæl-
gæti fyrir öskudaginn og hefur hagnaður af sölu sælgætisins runnið til
styrktarsjóðnum Blind börn á Íslandi. Fram kemur í fréttatilkynningu frá
Blindrafélaginu að þetta hafi komið sér vel fyrir sjóðinn.
Sjóðurinn er notaður til að styrkja blind og sjónskert börn til kaupa á
ýmsu því sem getur orðið þeim til aukins þroska og ánægju í lífinu.
Kynntu sér fram-
leiðsluna í Freyju
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðu-
neytið hefur synjað Ísfélagi Vest-
mannaeyja á Þórshöfn um kvóta og
leyfi til makrílveiða í gildru í Finna-
firði austan Langaness. Veiðiréttar-
eigendur lögðust gegn tilrauninni,
töldu hana nýtt upphaf að laxveiðum
í sjó hér við land.
„Við erum ánægðir með þessa nið-
urstöðu. Við höfðum verulegar
áhyggjur ef menn ætluðu að vera
með tilraunir með afkastamikil veið-
arfæri í sjó, tæki sem hafa mest verið
notuð til að veiða lax, og setja þau
niður á þeim tíma sem laxinn geng-
ur,“ segir Óðinn Sigþórsson, formað-
ur Landssambands veiðifélaga.
Jóhann A. Jónsson, sem vann að
verkefninu, telur ótta veiðiréttareig-
enda ástæðulausan. „Það gætu kom-
ið í þetta aðrir fiskar, þorskur eða
lax, en þeir eru allir lifandi og sleppt
lifandi til baka,“ segir Jóhann. Hann
segir að veiðiréttareigendur hafi
sterk ítök og þeirra sjónarmið hafi
ráðið niðurstöðu málsins.
Tilraunin úr sögunni
Makríll hefur sést mikið á Bakka-
flóa og gengið meðfram landinu. Ís-
félagið sótti um leyfi fyrir einni
gildru með tilheyrandi leiðurum til
að sjá hvort hægt væri að veiða hann
með þessari aðferð eins og gert er
við strendur Kanada. Hugmyndin
var síðan að taka hann ferskan í
vinnsluna, þegar þar vantaði hráefni,
og auka með því verðmæti afurða.
Verkefnið fékk á síðasta ári fimm
milljóna króna styrk úr sjóði iðnað-
arráðuneytisins sem ætlaður var til
atvinnusköpunar í sjávarbyggðum.
Sjávarútvegsráðuneytið hefur nú
hafnað umsókn um kvóta og leyfi til
makrílveiða í gildru. Ráðuneytið
mælti hins vegar með því að farið
yrði í minna rannsóknarverkefni í
samvinnu við stofnanir á þessu sviði,
og þá á svæði og tíma sem minnstar
líkur eru á laxfiskagengd. Ekki eru
líkur á að af því verði þar sem mak-
ríllinn gengur á sama tíma og laxinn.
Jóhann bendir á að það kosti veru-
lega fjármuni að gera slíkar tilraunir
af alvöru og telur ekki grundvöll til
þess að fara í minna verkefni.
Hafna makríl-
veiðum í gildru
Veiðiréttareigendur óttuðust tilraun
Ganga Makríllinn gengur um
Bakkaflóa á hverju ári.
Fylgstu með Ebbu útbúa
einfalda og bragðgóða
heilsurétti í MBL sjónvarpi
á hverjum miðvikudegi.
- heilsuréttir
ORKUSJÓÐUR
Í 2. grein reglugerðar um Orkusjóð nr. 514/2003 eru tilgreindar
eftirtaldar heimildir til styrkveitinga úr Orkusjóði:
Umsóknum skal skila til Orkusjóðs, Borgum við Norðurslóð,
600 Akureyri. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu sjóðsins og á www.os.is.
Frekari upplýsingar eru veittar í símum 569 6083 og 894 4280.
Einnig má senda fyrirspurnir á netfangið jbj@os.is.
Auglýsir rannsóknarstyrki 2012
^ að veita styrki eða áhættulán til hönnunar eða smíði frumgerðar tækja
og búnaðar til rannsóknar og nýtingar orkulinda
^ að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði hagkvæmrar orkunotkunar,
þ.m.t. til fræðslu og upplýsingastarfsemi
^ að veita styrki til verkefna sem stuðla að nýtingu á innlendri orku í stað
jarðefnaeldsneytis og styrkja alþjóðasamvinnu um slík verkefni
Við úthlutun styrkja 2012 verður sérstök áhersla lögð á:
^ hagkvæma orkunýtingu og orkusparnað
^ innlenda orkugjafa
^ vistvænt eldsneyti og sparnað jarðefnaeldsneytis
^ öflun þekkingar á þessum sviðum og miðlun hennar
^ rannsóknir, þróun og samstarf sem að þessu miðar
^ atvinnusköpun
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2012
ORKURÁÐ
Framhaldsfundur Sumarhúsafélags Úthlíðar verður haldinn á Grand
Hótel miðvikudag 7. mars 2012, í Hvammi. Fundurinn hefst kl. 20:00.
Efni fundarins:
Fyrir liggur tillaga þess efnis að sett verði upp öryggishlið við afleggjara að landinu
auk myndavéla sem staðsettar verða á Skarðaveg, Skútuveg og Skyggnisveg.
Með vísan til 22. greinar laga 75/2008 þarf samþykki 2/3 greiddra atkvæða og þarf
minnst einn þriðji félagsmanna að sækja fundinn svo ákvörðun verði lögleg.
Greidd verða atkvæði á fundinum um tillögu þessa. Þeim aðilum sem vilja koma
umboði til formanns eru beðnir að hafa samband við formann félagsins Magnús
Ólafsson, maggi@altak.is
Umboð sent með tölvupósti telst lögmætt umboð, nema gerðar verði sérstakar
athugasemdir á fundinum.
f.h. Sumarhúsafélags Úthlíðar
Magnús Ólafsson
Sumarhúsafélagið Úthlíð