Morgunblaðið - 22.02.2012, Page 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Öskudagur er sannarlega kær-
kominn gleðigjafi í febrúar-
mánuði, sprellfjörugur dagur
þar sem krakkar fara í búninga
og skemmta sér. Í dag kl. 14-16
verður haldið hið árlega Ösku-
dagsball í Gerðubergi en und-
anfarin ár hefur þar verið haldið
upp á gamlar hefðir og ösku-
dagsböllin endurvakin. Húsið
hefur fyllst af kátum krökkum,
héðan og þaðan úr bænum, sem
hafa skemmt sér konunglega.
Foreldrar eru hvattir til að
koma með börnin sín og dansa
og syngja. Edda Borg og hljóm-
sveit ætla að leika fyrir dansi og
spila sígild barnalög. Einnig
kemur töframaðurinn John
Tómasson og sýnir sín landsþekktu töfrabrögð. Í lokin verður kötturinn sleginn úr tunnunni á
torginu við Gerðuberg og Miðberg og þá verður nú aldeilis fjör. Vert er að taka fram að allir
ættu að vera með góðar úlpur og húfur með sér, því enginn veit hvernig veðrið verður og ekk-
ert gaman ef manni verður kalt. Allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
Öskudagsball í Gerðubergi í dag
Töfrabrögð og köttur
sleginn úr tunnu
Gaman Eflaust ætla fjölmargir krakkar að leggja leið sína í Gerðuberg í dag.
Glæsilegar Þessar tvær voru í skrautlegum búningum í fyrra.
„Laufey ætlar að tala um hollustuna, lýsið, en
ég fæ að tala um allt þetta óholla, þorramat-
inn. Ég ætla að draga fram sögu þorramat-
arins og hvað þessi siðvenja að blóta þorra er
nýtilkomin, ólíkt því sem margir halda,“
segir Sólveig Ólafsdóttir sagnfræðingur en
hún ásamt Laufeyju Steingrímsdóttur, pró-
fessor í næringarfræði, mun í kvöld halda er-
indi í Víkinni sjóminjasafni á Grandagarði
um þorrann, lýsið og matarhefðir á Íslandi.
Yfirskrift kvöldsins er Spegill fortíðar –
silfur framtíðar.
„Þorrablótin voru á sínum tíma þaul-
hugsuð og snilldarleg markaðssetning sem
gekk algerlega upp. Þetta fór af stað 1958 og
Morgunblaðið kom þar mikið við sögu. Það
var sérstakt samband á milli Moggans og
Naustsins, stutt á milli þessara staða og mik-
ill samgangur. Naustið var fínn staður og þar
var mikill metnaður, en á þessu öðru ári
rekstursins var dauft yfir viðskiptunum í jan-
úar og þá er þetta keyrt af stað. Halldór
Gröndal fékk þá hugmynd að bjóða upp á ís-
lenskan mat fyrir alla borgarbúa, en átthaga-
félögin í Reykjavík voru sterk og stór samtök
á þessum tíma og eingöngu á fundum þeirra
var boðið upp á íslenskan mat. Útgangs-
punkturinn var semsagt: Þú þarft ekki að
vera í átthagafélagi til að koma og borða ís-
lenskan mat. Heilmikið var lagt í þetta og það
tók sex ár að festa þessi þorrablót í sessi.
Þetta var ævinlega kynnt með stórum og
miklum blaðamannafundi, þar sem blaða-
menn fengu að borða og drekka og það
tryggði geníal umfjöllun í öllum dagblöðum
og tímaritum sem komu út á þessum tíma.
Þetta var því heilmikið í umræðunni og það
var mikið talað um sjálfan matinn í þessum
blaðaumfjöllunum. Það var lagt upp úr því að
borða mikið og einu sinni var efnt til kappáts
og ég ætla að segja frá þessu sögufræga
kappáti í erindi mínu í kvöld, sem og öðrum
svaðilförum blaðamanna tengdum þessum
blótum. Þar koma við sögu hákarl, humar og
kræklingar,“ segir Sólveig og hlær og vill
ekki láta of mikið uppi. Þegar hún er spurð
hvers vegna þær séu með þetta erindi nú þeg-
ar góan er gengin í garð segir hún: „Við verð-
um bæði að þreyja þorrann og góuna,“ en
bætir við að vegna óviðráðanlegra aðstæðna
hafi þurft að færa dagskrána þeirra fram í
góu. Dagskráin í Víkinni hefst klukkan átta í
kvöld, allir velkomnir og ókeypis aðgangur.
khk@mbl.is
Efnt var til þorramatarkappáts
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Þorri blótaður Hér gefur að líta eitt af mörgum þorrablótum starfsmanna Morgunblaðsins fyrir
rúmum þremur áratugum. Meðal annarra f.v: Ágúst Ingi Jónsson, Árni Johnsen, Björn Vignir
Sigurpálsson, Halldór Blöndal, Árni Jörgensen og Árni Garðar Kristinsson.
Þorrinn, lýsið og matarhefðir á Íslandi