Morgunblaðið - 22.02.2012, Qupperneq 11
Morgunblaðið/Kristinn
Streita Jack James við rannsóknarbílinn þar sem komið hefur verið fyrir fullbúinni rannsóknarstofu, en í rannsókninni verða bæði félagslegir og líkamlegir þættir kannaðir.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Unglingsárin geta að mörguleyti verið streituvald-andi tímabil í lífi fólks.Ýmiss konar breytingar
verða á þessum árum, bæði lík-
amlegar og félagslegar. Hingað til
hefur streita meðal unglinga lítið
verið könnuð en ein fyrsta slíka
rannsóknin mun hefjast hérlendis á
næstunni. Rannsóknin er á vegum
teymis sérfræðinga við sálfræðisvið
Háskólans í Reykjavík með prófess-
orinn Jack James í fararbroddi.
Auknar kröfur gerðar
Útbúin hefur verið fullbúin
rannsóknarstofa í litlum sendi-
ferðabíl sem ekið verður á milli
skóla.
„Rannsakaðir verða félagslegir
um aðferðum getum við aflað víð-
tækra upplýsinga um stressið sem
hver manneskja upplifir,“ segir Jack.
Telja aftur á bak
Rannsókin fer fram í Reykjavík
og víðar og hefur hlotið styrk frá
Rannís. Rannsóknarteymið við Há-
skólann í Reykjavík vinnur verkefnið
í samstarfi við Rannsóknir og grein-
ingu sem og vísindamenn við erlenda
háskóla, svo sem á Írlandi, í Banda-
ríkjunum og í Svíþjóð. Jack segir bíl-
inn koma sér vel því auðveldast sé að
ná til unglinga með því að leita til
þeirra. Ein ástæða þess að streita í
unglingum hafi lítið verið könnuð sé
einmitt sú að erfitt getur verið að ná í
Streita unglinga lítt rannsökuð
Unglingsárin geta verið stressandi en streita meðal
unglinga hefur hingað til verið lítið rannsökuð. Mik-
ilvægt er að skoða sem fyrst þá þætti sem valda streitu
til að draga megi úr áhrifum hennar síðar meir.
þættir sem valda streitu meðal ung-
linga. Hingað til hefur áherslan verið
á að skoða streitu meðal fullorðinna
en unglingsárin geta jú verið stress-
andi tími. Unglingurinn fer úr hlut-
verki barnsins og til hans eru gerðar
auknar kröfur. Ofan á það leggst
einnig félagslegur þrýstingur frá
jafnöldrum. Æða- og hjarta-
sjúkdómar eru helsta dánarorsök Ís-
lendinga og það hefur sýnt sig að
stress er einn af þeim þáttum sem
valdið geta slíkum sjúkdómum. Því
er mikilvægt að skilja betur hvað or-
sakar streitu snemma á lífsleiðinni
þar sem einkennin sýna sig strax á
unglingsaldri. Rannsókn okkar mið-
ar að því að skoða bæði líkamlega og
félagslega þætti. Blóðþrýstingur og
hjartsláttur verður skoðaður og
einnig tekin munnvatnssýni. Þá
verður svefnmynstur kannað og
koffínneysla og reykingar. Með þess-
þá. Rannsóknin verður gerð á 14, 15
og 18 ára unglingum og er vonast til
að ná til sem flestra til að niðurstöð-
urnar verði sem marktækastar.
„Rannsóknin tekur um klukku-
tíma og hluti hennar er að skapa
stressandi aðstæður. Við ætlum þó
alls ekkert að hrella fólk heldur ein-
faldlega skapa aðstæður úr daglegu
lífi. Aðrar rannsóknir hafa sýnt að
auðvelt er að kalla fram stress-
einkenni með því að leggja fyrir fólk
ögrandi verkefni. Þetta munum við
nýta okkur og t.d. biðja unglingana
að telja stóra tölu aftur á bak.
Slíkt gefur góða hugmynd um
hvernig þau gætu brugðist við í
hversdagslegum aðstæðum. Þetta
gefur okkur heilsteyptari mynd af
þeim þáttum sem skapað geta stress
hjá unglingum. Með rannsókninni
viljum við geta fundið leiðir til að
draga úr þessu stressi,“ segir Jack.
Hann bætir við að sérstök
áhersla verði lögð á að skoða koffín-
neyslu. Framleiðendur gos- og orku-
drykkja einbeiti sér æ meira að því
að ná til unglinga, en Jack segir
rannsóknir sínar hafa sýnt að koff-
ínneysla hafi áhrif á svefnmynstur
unglinga sem geti síðan haft sín áhrif
á námsárangur.
Ljósmynd/Norden.org
Sælar Unglingsárin eru skemmtileg en þá eru líka gerðar auknar kröfur.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Hugmyndir fyrir heimilið er fjölbreytt
og flott vefsíða sem þær Anna Lísa
og Ingibjörg halda úti. En samkvæmt
vefsíðunni eru þær léttgeggjaðar
furðuverur og alltaf í stuði. Síðan var
fyrst stofnuð á Facebook en óx og
dafnaði hratt. Á hugmyndirfyrirheim-
ilid.is er að finna uppskriftir, föndur,
handavinnu og hönnun. Allt á einum
stað fyrir fagurkerann og þær Anna
Lísa og Ingibjörg eru duglegar að
leita að því nýjasta á netinu og setja
inn.
Vefsíðan hugmyndirfyrirheimilid.is
Hannyrðir Á vefsíðunni er að finna margar skemmtilegar hugmyndir.
Hugmyndabanki heimilisins
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Verðlaun voru veitt í ljóða- og rit-
gerðasamkeppni Yrkjusjóðs í Nor-
ræna húsinu á föstudaginn var. En
efnt var til samkeppninnar í tilefni af
Alþjóðlegu ári skóga 2011 og 20 ára
formlegu afmæli Yrkjusjóðs árið
2012. Þema samkeppninnar var
„Þetta gerir skógurinn fyrir mig“. Er
það tilbrigði við meginstef Alþjóðlegs
árs skóga „Þetta gerir skógurinn fyrir
þig“.
Rúmlega 300 ljóð og rúmlega 80
ritgerðir bárust í keppnina, frá
grunnskólabörnum um land allt.
Verðlaun verða veitt fyrir ritgerð og
ljóð í tveimur flokkum, fyrir miðstig
(5.-7. bekk) og efsta stig (8.-10.
bekk). Auk viðurkenningarskjals
fengu verðlaunahafar 25.000 króna
verðlaun til glaðnings sínum bekk.
Sigurður Pálsson, skáld og formaður
Yrkjusjóðs, afhenti verðlaunin.
Ljóða- og ritgerðasamkeppni
Verðlaunahafar Halldór Smári Arnarsson, Áslaug Erla Haraldsdóttir og Haf-
þór Gísli Hafþórsson. Á myndina vantar Andreu Dís Steinarsdóttur.
Þetta gerir skógurinn fyrir mig
Fimmti fundur vetrarins í fræðslu-
fundaröð Laugaskokks og World
Class um málefni tengd hlaupum og
hlaupaþjálfun verður í kvöld klukkan
20 í Laugum. Fundurinn verður helg-
aður styrktarþjálfun hlaupara, kynn-
ingu á hlaupahópnum Laugaskokki
og æfingaáætlun hópsins. Fyrirles-
arar eru Rakel Ingólfsdóttir lækna-
nemi og Björn Margeirsson vélaverk-
fræðingur, þjálfarar Laugaskokks.
Endilega…
…kynnið ykkur
styrktarþjálfun
Morgunblaðið/Ernir
Skokk Holl útivera og góð hreyfing.