Morgunblaðið - 22.02.2012, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Landsbankinn landsbankinn.is 410 4040
Sjóðurinn fjárfestir í dreifðu safni
skuldabréfa, hlutabréfa og hlut-
deildarskírteina. Grunnfjárfesting
sjóðsins er í verðbréfum með
ábyrgð ríkisins. Þannig verður
áhættan meiri en í hreinum ríkis-
skuldabréfasjóðum og vænt ávöxtun
til lengri tíma hærri.
Reglubundinn sparnaður
Með reglubundnum sparnaði
í sjóðum getur þú byggt upp
eignasafn með áskrift frá 5.000 kr.
á mánuði. Enginn munur er á kaup-
og sölugengi í áskrift. Sparnað í
sjóðum má alltaf innleysa.
Eignabréf – Eignasamsetning 01.01.2012
Eignasamsetning ræðst af fjárfestingarstefnu og markaðsaðstæðum hverju sinni.
Fjárfestingarstefnu má finna í útboðslýsingu á landsbankinn.is.
Fyrirvari: Eignabréf er fjárfestingarsjóður samkvæmt
lögum nr. 128/2011 og lýtur eftirliti Fjármálaeftirlitsins.
Landsvaki hf. er rekstrarfélag sjóðsins og Landsbankinn
hf. vörslufélag hans. Áhætta fylgir ávallt fjárfestingu
í sjóðum þar sem gengi þeirra getur bæði hækkað og
lækkað. Ávöxtun í fortíð gefur ekki vísbendingu um
framtíðarávöxtun. Nánari upplýsingar um sjóðinn má
finna í útboðslýsingu eða útdrætti úr henni á landsvaki.is
eða landsbankinn.is. Fjárfestum er bent á að kynna sér
útboðslýsinguna áður en fjárfest er í sjóðnum, en þar er
meðal annars ítarleg umfjöllun um fjárfestingarstefnu
sjóðsins og áhættu sem felst í fjárfestingu í honum.
Eignabréf er nýr blandaður fjárfestingarsjóður
sem hentar vel fyrir reglubundinn sparnað.
Sjóðurinn hentar vel í langtímasparnað fyrir
einstaklinga sem vilja ávaxta hluta af sparnaði
sínum í öðrum verðbréfum en ríkisskuldabréfum.
Komdu við í næsta útibúi, hringdu í 410 4040 eða sendu okkur póst
á fjarmalaradgjof@landsbankinn.is.
Nýr kostur
í sparnaði
Skuldabréf, víxlar
og aðrar kröfur með
ríkisábyrgð
83%
Hlutabréf9%
Reiðufé7%
Innlán hjá fjármála-
fyrirtækjum
1%
Nýtt átaksverkefni til atvinnu-
sköpunar sem miðar að því að
fjölga störfum og fækka atvinnu-
lausum hófst í gær. Um er að
ræða sameiginlegt verkefni sam-
taka atvinnurekenda, sveitarfé-
laga, stéttarfélaga og ríkisins und-
ir yfirskriftinni Vinnandi vegur.
Með því er atvinnurekendum gert
auðveldara að ráða nýtt starfsfólk
og er átakinu sérstaklega beint að
þeim sem hafa verið lengi án at-
vinnu.
Með þátttöku í verkefninu eiga
atvinnurekendur kost á styrk með
ráðningu nýrra starfsmanna úr
hópi atvinnuleitenda samkvæmt
upplýsingum Samtaka atvinnulífs-
ins. Þannig er t.d. styrkur fyrir
100% vinnu 167.176 krónur auk
8% framlags í lífeyrissjóð. Mark-
mið er að skapa allt að 1.500 ný
störf.
Samband íslenskra sveitarfélaga
og Reykjavíkurborg munu beita
sér fyrir því að sveitarfélögin
skapi a.m.k. helming starfa innan
verkefnisins, alls 750 störf. Fyr-
irtæki á almennum vinnumarkaði
munu skapa hinn helminginn fyrir
milligöngu Samtaka atvinnulífsins.
Átaksverkefni sett í gang sem hefur að
markmiði að skapa 1.500 ný störf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Störf Boðið verður upp á almennar ráðn-
ingar, starfsþjálfun og reynsluráðningar.
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur að
fenginni tilnefningu háskólaráðs Hólaskóla –
Háskólans á Hólum skipað Erlu Björk Örnólfs-
dóttur í embætti rektors skólans til fimm ára
frá 1. apríl nk. að telja. Hún tekur við starfinu
af Skúla Skúlasyni.
Erla Björk lauk meistaraprófi í líffræði frá
Háskóla Íslands árið 1994 og doktorsprófi í
sjávarlíffræði frá Texas A&M University árið
2002. Frá árinu 2006 hefur hún verið forstöðu-
maður VARAR – sjávarrannsóknarseturs við
Breiðafjörð.
Skipuð rektor háskólans á Hólum
Erla Björk Örnólfsdóttir
Icelandair og Reykjavíkurborg
hafa undirritað samning til þriggja
ára við Samtök iðnaðarins (SI) um
rekstur Food & Fun-hátíðarinnar,
sem byrjar hinn 29. febrúar og er
nú haldin í 11 skiptið. Þá hafa SI og
viðburðafyrirtækið Main Course
ehf. undirritað samning um að þeir
síðarnefndu hafi umsjón með verk-
legum hluta hátíðarinnar ásamt
verkefnastjóra.
Í tilkynningu segir að með samn-
ingnum sé lagður traustur grunnur
að því að þróa og efla matarhátíð-
ina. Hátíðin í ár verður sú umfangs-
mesta til þessa en 16 veitingahús
taka á móti erlendum mat-
reiðslumeisturum og fjöldi er-
lendra blaðamanna hefur aldrei
verið meiri.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samkomulag Orri Hauksson og Einar Örn
Benediktsson, fulltrúar SI og borgarinnar.
Samkomulag um
rekstur Food & Fun
til næstu þriggja ára
Reykvískir kennarar ætla að fjölmenna á ráðstefnu í dag
þar sem leitað verður svara við því hvert grunnskólinn
stefni og hvernig hann standi sig í samanburði við önnur
lönd. Vel á sjöunda hundrað kennara er skráð til leiks.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.
Athyglinni verður beint að grunnskólanum í dag, ein-
kennum hans og þróun í alþjóðlegu samhengi. Farið
verður í stöðu og starfshætti grunnskólans, þarfir fram-
tíðarsamfélagsins fyrir nýsköpun og fjölbreytta þekk-
ingu, nýjar leiðir til kennslu og námsmats og mótun
menntastefnu. Innlendir og erlendir fræðimenn gera
grein fyrir því sem best er gert á þessu sviði og er vel á
sjöunda hundrað kennara skráð til leiks.
Á sjöunda hundrað kennara á ráðstefnu
Ráðstefna Ræða
þróun grunnskóla.
Ráðgjafarþjónusta Krabbameins-
félags Íslands heldur á morgun, frá
kl. 16.30-18 í Skógarhlíð 8, örráð-
stefnuna: Eru lögbundin réttindi
krabbameinssjúklinga virt?
Guðríður Þorsteinsdóttir, skrif-
stofustjóri velferðarráðuneytinu,
mun fjalla um framkvæmd laga um
réttindi sjúklinga. Vilhelmína Har-
aldsdóttir, framkvæmdastjóri lyf-
lækningasviðs Landspítalans,
fjallar um hvort heilbrigðisþjón-
ustan getur staðið sig betur og
tveir einstaklingar deila reynslu
sinni af samskiptum við heilbrigð-
iskerfið.
Réttindi sjúklinga
Alþingismenn og ráðherrar lesa úr
úr Passíusálmunum í Grafarvogs-
kirkju alla virka daga föstunnar.
Hver lestur hefst kl. 18 í tengslum
við helgistund í kirkjunni. Þessar
stundir hafa verið nefndar „Á leið-
inni heim“ og eru hugsaðar þannig
að fólk geti komið við í kirkjunni að
loknum vinnudegi.
Svandís Svavarsdóttir umhverf-
isráðherra byrjar í dag, á öskudag,
kl. 18 og les fyrsta sálminn en í dag
hefst fastan.
Lesa Passíusálmana
STUTT