Morgunblaðið - 22.02.2012, Side 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
„Þegar ég kom til Íslands 19.
desember 2009 gat ég barið
saman nokkrar setningar. Ég
man daginn sem ég kom því
það var svo stutt til jóla. Áður
en ég kom keypti ég geisla-
disk og bók með kennsluefni á
íslensku. Síðan hef ég komist
betur inn í málið og get nú
haldið uppi samræðum um
daginn og veginn á íslensku.
Ég á hins vegar erfiðara með
að ræða flóknari hluti,“ segir
Mike McKenzie um fyrstu
skref sín í íslenskunámi.
Eiga saman dóttur
McKenzie er fæddur í Bri-
stol, borg í SV-Englandi sem
telur 550.000 íbúa ef
nágrannabæir eru taldir með.
Ástin leiddi hann til Íslands
en hann er í sambúð með
Kristínu Hrönn Hreinsdóttur
og eiga þau saman fimm mán-
aða dóttur, Evu Frances
McKenzie. Fyrir á Kristín
Hrönn níu ára stúlku, Anja Is-
is Brown, og er McKenzie
stjúpfaðir hennar. Hann starf-
ar nú sem klippari hjá Gagn-
virkni í Kópavogi.
Stundum er sagt að enska
sé annað tungumál Íslend-
inga. Spurður hvort samt sé
nauðsynlegt að læra íslensku
til að komast inn í íslenskt
samfélag segir hann svo vera.
„Það er mikilvægt að læra
tungumál landsins sem maður
flytur til. Hér hjálpar til að Ís-
lendingar eru einstaklega
hjálpsamir þegar tungumálið
er annars vegar. Það gerist til
dæmis undantekningarlaust
þegar ég er í verslun að af-
greiðslufólkið heyrir á
hreimnum að íslenska er ekki
mitt móðurmál. Samt heldur
það áfram að tala við mig á ís-
lensku þótt það tali líklega
betri ensku en ég tala ís-
lensku. Nú er ég farinn að
skilja hvað er verið að fjalla
um í fjölmiðlum. Fyrir tveim
árum horfði ég á íslensku
kvikmyndina Sódómu
Reykjavík. Um daginn horfði
ég á hana aftur og hafði þá
meira gaman af enda farinn
að skilja meira í málinu.
Reynsla mín er sú að
tungumálið er ekki þrösk-
uldur þegar kemur að því að
eignast íslenska vini og kunn-
ingja. Það hjálpar hins vegar
mikið til að ná tökum á mál-
inu. Það hefur auðveldað
manni að auka færnina að
sækja íslenskutíma í Mol-
anum í Kópavogi.“
Íslendingar hjálpa
til við íslenskuna
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Frá Bristol McKenzie í
vinnunni hjá Gagnvirkni.
,,Viltu tala meiri íslensku?“
er verkefni sem hófst í jan-
úar 2009 hjá Kópavogsdeild
Rauða kross Íslands. Þar
hitta íslenskir sjálfboðaliðar
vikulega innflytjendur og
tala saman á íslensku. Með
verkefninu vildi Kópavogs-
deild miða að því að ná til
innflytjenda og gefa þeim
tækifæri til að þjálfa sig í ís-
lensku og bæta orðaforða
sinn. Verkefninu er einnig
ætlað að rjúfa félagslega ein-
angrun innflytjenda sem og
auðvelda aðlögun þeirra að
íslensku samfélagi.
,,Tungumálið getur verið
mikil hindrun og ýtt undir fé-
lagslega einangrun. Fólk af
erlendum uppruna sem hefur
sótt námskeið í íslensku vant-
ar oft meiri reynslu af að-
stæðum þar sem það fær að
tala íslensku frjálslega við
ýmsar aðstæður,“ segir
Hrafnhildur Helgadóttir,
verkefnastjóri hjá Kópavogs-
deild Rauða krossins, um
þjálfun fólks af erlendum
uppruna í íslensku, en hún
veitir verkefninu forstöðu.
Eykst ár frá ári
„Aðsóknin hefur aukist
með ári hverju. Um tíu
manns hafa sótt hverja sam-
veru hjá okkur að jafnaði en
þær eru yfirleitt haldnar í
Molanum, samkomuhúsi í
Kópavogi. Stærri hópur, um
60 manns, hittist á lokaðri
Fésbókar-síðu þar sem fólk
getur hjálpast að. Öflugur
hópur sjálfboðaliða gerir
okkur kleift að halda úti
svona verkefnum. Mann-
fræðinemar hafa til dæmis
tekið virkan þátt í verkefn-
inu og svo eru aðrir sem hafa
mikinn áhuga á innflytjenda-
málum. Bakgrunnur sjálf-
boðaliða er ólíkur en þessi
áhugi sameinar. Hópurinn
hittist vikulega, fer á lista-
söfn, horfir á íslenskar kvik-
myndir og spjallar um þær á
íslensku, svo eitthvað sé
nefnt. Auk þess ganga sumar
samverur út á að auka orða-
forða þátttakenda um ákveð-
in málefni. Gott er að hafa
ákveðinn grunn í íslenskunni
áður en farið er að þjálfa tal-
málið en nokkrir þátttak-
enda hafa tekið þátt í verk-
efninu frá upphafi og náð
ótrúlegum árangri.“
Leggja sig mikið fram
Hrafnhildur segir lagt upp
með að allir taki virkan þátt.
„Við leggjum áherslu á að
hafa þetta afslappað og efla
sjálfstraust í gegnum þátt-
töku í umræðum. Fólkið er
virkilega að leggja sig fram
og það sést hvernig það verð-
ur hugrakkara með aukinni
færni. Við erum með mjög al-
þjóðlegan hóp. Til okkar
mæta einstaklingar frá Bret-
landi, Þýskalandi, Víetnam,
Frakklandi, Hollandi, Pól-
landi og Serbíu svo eitthvað
sé nefnt. Sumir eru giftir Ís-
lendingum og eiga börn sem
eru komin langt fram úr
þeim í íslensku. Þeir tala
jafnvel ensku við maka og
skortir þjálfun í íslenskunni.
Hvað snertir þátttöku þeirra
á vinnumarkaði er reynsla
mín sú að langflestir hafi
vinnu.
Sumir hafa þó þurft að
taka sér hlé frá störfum
vegna þess að þeir þurfa að
komast betur inn í málið áð-
ur en þeir fara aftur á vinnu-
markaðinn. Það sem fólkið á
sameiginlegt er viljinn til
þess að komast betur inn í ís-
lenskt samfélag í gegnum
tungumálið,“ segir Hrafn-
hildur.
Slípa íslenskuna í spjalli
Sjálfboðaliðar Rauða krossins í Kópavogi kenna nýbúum málið
Afslappað andrúmsloft og áherslan á að efla færni með samræðu
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Verkefnastjóri Hrafnhildur starfar fyrir Rauða krossinn.
TAKMARKAÐ FRAMBOÐ!
Skráðu þig núna
í síma 560 1010 eða
á mottaka@heilsuborg.is
Vilt þú breyta um lífsstíl en
veist ekki hvar þú átt að byrja?
Pantaðu tíma í heilsumat
og við leiðbeinum þér
með næstu skref.
NÝ NÁMSKEIÐ
AÐ HEFJAST
STOÐKERFISHÓPUR
Þjálfun 3x í viku, fyrirlestrar um verki, svefn
ofl. Þjálfari María Jónsdóttir, sjúkraþjálfari.
8 vikur. Hefst 12. mars.
Verð 21.200 kr. pr. mánuð.
HEILSULAUSNIR - OFÞYNGD
Hentar þeim sem eru í ofþyngd og eru búnir
að prófa „allt“ án árangurs! Þjálfun, fræðsla,
ráðgjöf, viðtöl, aðhald og stuðningur.
Hefst 12. mars.
Tilboð 14.900 kr. pr. mán í 12 mán.
STAFGANGA
Kennsla 10. mars kl. 9:00 - 11:00.
Verð 2.900 kr.
ZUMBA TONING OG ZUMBA
Þri og fim kl. 16.30/17:30.
4 vikur - Verð 11.900 kr.
60 ÁRA OG ELDRI
Frábær félagsskapur, aðhald og stuðningur.
Mán og mið kl. 11:00 eða 15:00.
4 vikur - Verð 9.900 kr.
ÞJÁLFUN FYRIR GOLFARA
Mán og mið og fös kl. 7:45, 9:00 eða 12:10.
4 vikur - Verð 13.900 kr.
KVENNALEIKFIMI
Fyrir konur á öllum aldri. Þri og fim kl. 10:00.
4 vikur - Verð 11.900 kr.
4 VIKNA NÁMSKEIÐ
HEFJAST 5. MARS
Betri heilsa borgar sig!