Morgunblaðið - 22.02.2012, Qupperneq 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
FRÉTTASKÝRING
Bogi Þór Arason
bogi@mbl.is
Blendin viðbrögð voru við samkomu-
lagi sem fjármálaráðherrar evru-
landanna náðu í fyrrinótt um að veita
Grikklandi neyðarlán til að afstýra
greiðsluþroti gríska ríkisins.
Ráðamenn á evrusvæðinu fögnuðu
samkomulaginu, sögðu það tryggja
að Grikkland héldi evrunni, en hag-
fræðingar voru efins um að aðstoðin
dygði. Grísk dagblöð fögnuðu sam-
komulaginu en sögðu að aðstoðin
væri dýru verði keypt, háð ströngum
skilyrðum sem krefðust mikilla fórna
af hálfu Grikkja.
Grísku blöðin létu einnig í ljósi
óánægju með það skilyrði fyrir
neyðarlánunum að embættismenn
Evrópusambandsins hefðu eftirlit
með ríkisfjármálum Grikklands
næstu árin. Gríska fjármálablaðið
Naftemboriki lagði áherslu á efa-
semdir um að samkomulagið dygði til
að tryggja að Grikkland gæti staðið
undir skuldum sínum á næstu árum.
„Jafnvel þótt svo fari að allt gangi
upp er þetta nýja tækifæri, sem við
höfum nú fengið, dýru verði keypt,“
sagði Nafemboriki.
Lucas Papademos, forsætisráð-
herra grísku bráðabirgðastjórnar-
innar, kvaðst þó vera „mjög ánægð-
ur“ með niðurstöðu viðræðna
fjármálaráðherra evrulandanna.
„Það eru engar ýkjur að segja að
þetta er sögulegur dagur fyrir efna-
hag Grikklands,“ sagði hann þegar
skýrt var frá samkomulaginu sem
náðist í Brussel í fyrrinótt eftir tólf
klukkustunda viðræður. Hann varaði
þó við því að grísk stjórnvöld ættu
enn mikið verk fyrir höndum til að
tryggja að aðstoðin dygði til að rétta
efnahag landsins við og afstýra
greiðsluþroti.
Ráðamenn í öðrum löndum evru-
svæðisins fögnuðu samkomulaginu.
Jean-Claude Juncker, fjármálaráð-
herra Lúxemborgar, sem fer fyrir
fjármálaráðherrum evrulandanna,
ópu og framkvæmdastjórnar ESB
þar sem þeir kæmust að þeirri niður-
stöðu að Grikklandi þyrfti á meiri að-
stoð að halda á næstu árum.
Tap banka 70%
Samkvæmt nýja samkomulaginu
á Grikkland að fá neyðarlán að and-
virði 130 milljarða evra (21.300 millj-
arða króna). Í staðinn eiga Grikkir
að minnka ríkisútgjöldin og opinber-
ar skuldir sínar, þannig að þær fari
úr 164% af landsframleiðslunni í
120,5% innan átta ára. Gert er ráð
fyrir því að fjármálafyrirtæki af-
skrifi 53,5% af nafnvirði grískra
ríkisskuldabréfa í eigu þeirra en
áætlað er tap þeirra nemi alls 70%
þegar lægri vextir af nýjum ríkis-
skuldabréfum, sem þau fá í staðinn,
eru teknir með í reikninginn.
Gert er ráð fyrir því að fjármála-
fyrirtækin afskrifi 107 milljarða evra
af 350 milljarða heildarskuldum
gríska ríkisins.
Aðstoðin er m.a. háð því skilyrði
að embættismenn ESB hafi eftirlit
með ríkisfjármálum Grikklands.
Grikkir eiga einnig að breyta
stjórnarskránni til að tryggja að af-
borganir af lánum gangi fyrir launa-
greiðslum og öðrum útgjöldum
gríska ríkisins.
Aðstoðin sögð dýru verði keypt
Reuters
Ný lán Fjármálaráðherra Grikklands, Evangelos Venizelos (t.v.) og gríski
forsætisráðherrann Lucas Papademos á blaðamannafundi í Brussel.
Nýtt samkomulag um aðstoð við Grikkland sagt tryggja að landið haldi evrunni Hagfræðingar
efast um að aðstoðin dugi Grísk blöð óánægð með eftirlit ESB með fjármálastjórn Grikklands
Götumótmæli boðuð
» Verkalýðssamtök í Grikk-
landi hvöttu fólk til að taka
þátt í mótmælagöngum í dag
gegn sparnaðaraðgerðum sem
settar voru sem skilyrði fyrir
neyðarláninu.
» Í nýju samkomulagi evru-
landanna er gert ráð fyrir því
að gríska þingið samþykki
frekari sparnaðaraðgerðir fyrir
lok mánaðarins. Sparnaðurinn
á að nema þremur milljörðum
evra, jafnvirði 490 milljarða
króna.
Franska lögreglan yfirheyrði í gær Dominique
Strauss-Kahn, fyrrverandi framkvæmdastjóra Al-
þjóðagjaldeyrissjóðsins, vegna gruns um að hann
hefði tekið þátt í kynsvalli í París og Washington með
vændiskonum sem tveir kaupsýslumenn höfðu greitt
fyrir. Strauss-Kahn átti upphaflega að svara spurn-
ingum lögreglunnar sem vitni en saksóknarar segja
að hann hafi nú stöðu grunaðs manns.
Strauss-Kahn kom á lögreglustöð í Lille í gærmorg-
un og búist er við að hann verði í haldi lögreglunnar í
allt að tvo sólarhringa. Þegar yfirheyrslunum lýkur
er hugsanlegt að hann verði látinn laus eða að dómari
dæmi hann í gæsluvarðhald.
Lögreglan sagði að Strauss-Kahn væri í haldi vegna
gruns um að hann hefði „ýtt undir hórmang skipu-
lagðs glæpahóps“ og tekið þátt í „misnotkun á pen-
ingum fyrirtækis“. Samkvæmt frönskum lögum varð-
ar aðild að hórmangi allt að 20 ára fangelsi og verði
hann dæmdur sekur um að hafa hagnast á fjárdrætti
gæti hann átt yfir höfði sér allt að fimm ára fangelsi,
auk sektardóms, að sögn fréttaveitunnar AFP.
Lögreglan kvaðst vera að rannsaka hvort Strauss-
Kahn hefði vitað að konur, sem skemmtu honum í
veislum á veitingastöðum, hótelum og skemmtistöðum
í Washington og París, hefðu verið vændiskonur og
greitt hefði verið fyrir þjónustu þeirra. Verði nið-
urstaðan sú að hann hafi vitað þetta verður rann-
sakað hvort Strauss-Kahn hafi haft vitneskju um að
gestgjafar hans hafi greitt fyrir þjónustuna með fé
sem dregið var út úr fyrirtæki sem annar kaupsýslu-
mannanna starfaði fyrir.
Strauss-Kahn hefur neitað því að hann hafi tekið
þátt í hórmangi eða fjárdrætti.
Tveir kaupsýslumenn, Fabrice Paszkowski og Dav-
id Roquet, hafa verið ákærðir vegna málsins. Þeir eru
taldir tengjast frönskum og belgískum konum sem
stunduðu vændi á Carlton-hótelinu í Lille sem notið
hefur mikilla vinsælda meðal kaupsýslumanna og
stjórnmálamanna í borginni. Alls hafa átta menn ver-
ið ákærðir í tengslum við „Carlton-málið“, þ.á m. þrír
af stjórnendum lúxushótelsins, þekktur lögmaður og
aðstoðarlögreglustjóri borgarinnar. Síðasta kynsvallið
er sagt hafa farið fram þegar kaupsýslumennirnir
hittu Strauss-Kahn í Washington 11.-13. maí í fyrra,
m.a. til að ræða hugsanlegt forsetaframboð hans.
Strauss-Kahn er 62 ára og þar til á liðnu ári var hann
álitinn líklegur arftaki Nicolas Sarkozys Frakklands-
forseta.
Strauss-Kahn grunaður
um tengsl við vændishring
Rannsakað hvort hann hafi tekið þátt í hórmangi
Reuters
Umkringdur Fjölmiðlamenn umkringja bíl Strauss-
Kahns við lögreglustöð er hann mætti til yfirheyrslu.
Samkvæmt nýja samkomulaginu
eiga grísk stjórnvöld að breyta
stjórnarskránni til að tryggja að
afborganir af skuldum gríska ríkis-
ins gangi fyrir öðrum útgjöldum.
Setja á ákvæði um þetta í stjórnar-
skrána innan tveggja mánaða.
Til að breyta stjórnarskránni
þarf núverandi þing að samþykkja
breytinguna með 3⁄5 hluta at-
kvæða tvisvar sinnum. Líða þarf
minnst mánuður á milli atkvæða-
greiðslnanna. Leiðtogar grísku
stjórnarflokkanna tveggja segja
að nægur stuðingur sé á þinginu
við stjórnarskrárbreytinguna.
Nýtt þing, sem
kosið verður í apr-
íl, þarf síðan að
staðfesta breyt-
inguna með hrein-
um meirihluta, eða
151 atkvæði. Ekki er víst að nægur
stuðningur verði við breytinguna á
þinginu eftir kosningarnar.
Búist er við að íhaldsflokkurinn
Nýtt lýðræði fái mest fylgi í kosn-
ingunum án þess að fá meirihluta
þingsæta. Skoðanakannanir benda
til þess að vinstriflokkar, sem eru
andvígir samkomulaginu, styrki
stöðu sína verulega á þinginu.
Mikil andstaða er einnig við
fyrirhugaðar sparnaðaraðgerðir
sem settar voru sem skilyrði fyrir
aðstoðinni. Búist er við að þær
auki á ólguna í landinu vegna efna-
hagssamdráttarins á síðustu ár-
um. Fjórðungur grískra fyrirtækja
hefur orðið gjaldþrota frá árinu
2009 og helmingur allra smáfyrir-
tækja landsins kveðst ekki geta
greitt öllum starfsmönnum sínum
laun.
Afborganirnar gangi fyrir
ÓVISSA UM STJÓRNARSKRÁRBREYTINGU
sagði að samkomulagið myndi
„tryggja framtíð Grikklands á evru-
svæðinu“.
Margir óvissuþættir
Hagfræðingar sögðu að aðstoðin
kynni að duga en margir óvissuþætt-
ir gætu gert samkomulagið að engu.
Þeir bentu meðal annars á að ekki
væri víst að þjóðþing Þýskalands,
Hollands og Finnlands samþykktu
neyðarlánin. Einnig væri óvíst hvort
handhafar grískra ríkisskuldabréfa
sættu sig við það tap sem þeim er
ætlað að taka á sig samkvæmt sam-
komulaginu. Þingkosningar, sem
verða í Grikklandi í apríl, geta gert
strik í reikninginn og ekki er víst að
næsta ríkisstjórn fylgi samkomulag-
inu eftir með þeim sparnaðaraðgerð-
um sem sett voru sem skilyrði fyrir
aðstoðinni. „Flokkar sem eru lengst
frá miðjunni halda áfram að auka
fylgi sitt og enginn þeirra hefur látið
í ljósi stuðning við áætlunina,“ hefur
fréttaveitan AFP eftir Nick Verdi,
sérfræðingi hjá breska fjárfestingar-
bankanum Barclays Capital.
Hagfræðingar segja að erfiðasta
verkefnið verði að tryggja hagvöxt í
Grikklandi á næstu árum til að land-
ið geti staðið undir skuldunum.
Landsframleiðslan í Grikklandi hef-
ur dregist saman um 14% á síðustu
fimm árum og óttast er að frekari
sparnaðaraðgerðir valdi enn meiri
samdrætti.
Michael Ben-Gad, prófessor og
yfirmaður hagfræðideildar City Uni-
versity í London, telur að aðstoðin
dugi ekki til að afstýra greiðsluþroti
gríska ríkisins. „Ég hef lengi haft
efasemdir um þetta, ég held því enn
fram að gríska ríkið sé gjaldþrota,
jafnvel eftir þetta nýja samkomu-
lag,“ hefur AFP eftir Ben-Gad.
Fréttaveitan Reuters
kvaðst í gær hafa
undir höndum
trúnaðarskýrslu
frá sérfræðingum
á vegum Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins,
Seðlabanka Evr-
Sparnaðaraðgerðum
mótmælt í Aþenu.
Tíbetskur munkur í draugabúningi
tekur þátt í trúarlegri athöfn, sem
nefnist „Da Gui“, í klaustri búdda-
munka í Yonghegong í tilefni af tíb-
etska nýárinu sem hefst í dag. Da
Gui mun þýða „að berja draug“ og
markmiðið með athöfninni er að
reka illa anda út úr klaustrinu.
Tíbetska nýárið gengur í garð
Reuters
Illir andar reknir út