Morgunblaðið - 22.02.2012, Blaðsíða 20
20 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Jón Yngvi Jóhanns-
son bókmenntafræð-
ingur hefur skrifað ævi-
sögu Gunnars
Gunnarssonar rithöf-
undar. Það er vel, og
þess var þörf. Ég ætla
ekki að segja hér eitt
orð um bókmenntalega
hlið þessa verks, hún er
ekki til umræðu hér. Ég
tel víst að höfundurinn
hafi unnið það verk samvizku-
samlega. En í kaflanum um Heiðah-
arm og slysið á Þorbrandsstöðum
vorið 1910 hefur komizt inn svo ótrú-
leg vitleysa, að ekki verður hjá því ko-
mizt að leiðrétta hana opinberlega. Á
bls. 381 stendur:
„Í Vopnafirði lifðu lengi sögur um
að Bergljótu hefði orðið svo mikið um
útkomu Heiðaharms að hún hefði
sturlast um tíma …“
„En sagan um sturlun Bergljótar á
Fossi er gott dæmi um fjöður sem
verður að hænsnahóp. Gunnar sendi
Bergljótu söguna áritaða og henni
varð ekki meint af,“ segir Jón Yngvi.
„„Það sem gerðist var, að hún fékk
dýrasmit í höndina og hún fékk háan
hita og komst alveg í dauðann,“ sagði
sonur hennar Sveini Skorra Hösk-
uldssyni“.
Ja, hérna. Mig setur hljóðan.
Þarna er öllu öfugt snúið og ekki eitt
orð satt né rétt með farið og eru áhöld
um hvor óvandvirkari er, Sveinn
Skorri eða Jón Yngvi. Báðum hefði
verið í lófa lagið að komast að hinu
sanna um sturlun Bergljótar. Trúir
nokkur maður því að samferðamenn
hennar hefðu farið að ljúga þessu upp
í opið geðið á henni? Er mönnum ekki
sjálfrátt? Hún lifði í sæmd í 27 ár eftir
þetta og dó vorið 1968, á 96. aldursári.
Ég veit að ég þarf ekki að fræða
sveitunga mína um það sem hér fer á
eftir, en við Jón Yngva Jóhannsson
vil ég segja þetta:
Faðir minn, Sigurður Þor-
steinsson, sem bjó í Fremri-Hlíð í
Vopnafirði í 32 ár, var alinn upp á
Fossi frá eins árs aldri
og átti þar heima fram
yfir tvítugt. Lang-
nánast var á milli hans
og Aðalbjargar fóstru
hans, og einnig milli
hans og Bergljótar, svo
segja mátti að hún væri
hans önnur fóstra, enda
ellefu árum eldri en
hann.
Aldrei gleymi ég
þeim degi vorið 1941 –
ég var þá fjórtán ára –
þegar Stefán á Fossi
(einmitt hann!) kom ríðandi norður í
Fremri-Hlíð, kallaði pabba á eintal og
spurði hvort hann gæti komið upp í
Foss og hjálpað til að flytja mömmu
sína á spítala, hún væri búin að vera
alveg sturluð heima og þetta gæti
ekki gengið svona lengur. Jú, auðvit-
að. Það var sjálfsagt. Þegar í Foss
kom sá pabbi strax að fóstursystir
hans var mjög mikið veik. Hún talaði í
sífellu um börnin sín sem drukknuðu
og sagði: Þau voru þrjú en ekki tvö.
Af hverju gat hann ekki haft það rétt,
fyrst hann fór að minnast á það?
Ástæðan fyrir sturluninni leyndi sér
ekki, hvorki þá né síðar.
Nú þarf ekki að segja það neinum,
að margir samtíðarmenn Bergljótar á
Fossi vildu að sögur væru „sannar“,
eða a.m.k. „sennilegar“. Þeir gerðu
ekki alltaf skýran mun á skáldskap og
veruleika. Skáldin máttu ekki „af-
baka“, sízt jafn alvarlegan hlut sem
dauða manns eigin barna. Og Berg-
ljót las og las, varð andvaka, missti al-
veg svefn og sturlaðist um síðir.
Hún var flutt á sjúkraskýli héraðs-
ins í kaupstaðnum. Það hét Garður.
Sjálfur heimsótti ég hana á spítalann,
eftir að henni var tekið að batna, og
ég get bent á fólk í Vopnafirði,
Reykjavík og á Akureyri, sem getur
staðfest frásögn mína. Og svo kynni
ég nú einnig að þekkja líf konunnar
sem var í senn fóstursystir og fóstra
föður míns, lifði þangað til ég var
rúmlega fertugur, og alltaf mikið
samband á milli heimilanna.
Veikindi Bergljótar á Fossi vorið
1941 voru aldrei neitt sveitarslúður.
En hvernig kemst öll hin vitleysan í
gang? Og „dýrasmitið“. Jú, hún fékk
einu sinni blóðeitrun í handlegg (ekki
hönd). En það var nokkrum áratug-
um fyrr!
Í sambandi við slysið á Þorbrands-
stöðum veit ég ýmislegt sem aldrei
hefur verið sagt frá opinberlega. All-
ar þær heimildir eru frá föður mínum
og sumt skrifaði ég upp eftir honum
og geymi það hér hjá mér.
Jóni Yngva Jóhannssyni er vor-
kunn þótt hann treysti handrits-
drögum Sveins Skorra. (Þótt maður
eigi reyndar alltaf að kanna gildi
heimilda). Hitt er með öllu óskilj-
anlegt hvers vegna slíkum manni sem
Skorra varð á sú reginskyssa að
spyrja ekki um trúverðugleik heim-
ildarmanns síns, heldur láta fylla sig
af fjarstæðum. Hafi hann aflað þess-
ara „upplýsinga“ sumarið 1975, sem
eflaust er rétt, hefði honum verið auð-
velt að athuga þetta nánar, því þá var
enn á lífi margt fólk í Vopnafirði sem
lifði þessa atburði og mundi þá. Menn
gleymdu ekki harmi og veikindum
Bergljótar.
Hitt er alvarlegri spurning, hvað í
ósköpunum gat komið Stefáni frá
Fossi til að segja þetta – sem hann
sjálfur vissi manna bezt að var þver-
öfugt við allar staðreyndir. Og að allir
aðrir vissu sannleikann.
Og hinn ungi bókmenntafræðingur
hefði gjarna mátt vanda sig betur.
Hann hefði t.d. getað hringt í mig! og
þannig sparað sér háðsglósurnar um
fjöðrina og hænsnahópinn, því að þær
eiga ekki heima þarna. Aftur á móti
höfum við hér fyrirtaks dæmi um
það, hversu langt má komast frá hinu
rétta með nógu óvandlegum vinnu-
brögðum.
Ævisaga Gunnars Gunnars-
sonar – Athugasemd
Eftir Valgeir
Sigurðsson »Er mönnum ekki
sjálfrátt? Hún lifði í
sæmd í 27 ár eftir þetta
og dó vorið 1968, á 96.
aldursári.
Valgeir Sigurðsson
Höfundur er fyrrverandi blaðamaður.
Fyrir nokkru sá Ög-
mundur Jónasson sig
knúinn til að biðjast af-
sökunar á orðum sínum
í pontu Alþingis en þar
talaði hann um að emb-
ættismenn hefðu í ferð-
um sínum til Brussel
ánetjast kerfinu sem
færði þeim dagpeninga
sem þeir fengju á ferða-
lögum. Ekki veit ég
hvað fékk Ögmund til að biðjast af-
sökunar því þessi orð hans voru full-
komlega réttmæt. Svo mikil læti voru
vegna þessara orða Ögmundar að Fé-
lag háskólamenntaðra dagpen-
ingafíkla Stjórnarráðsins var með
ályktun um orð hans tilbúna þar sem
átti að mótmæla. En skoðum nú mál-
ið aðeins. Fjöldi embættismanna og
annarra starfsmanna stjórnsýslunnar
er á sífelldum tilgangslausum ferða-
lögum og fær greidda skattsvikna
dagpeninga á þessum ferðum sínum.
Við skulum ekki gleyma því að í dag
býður tæknin upp á að fundir sem
þessir geta farið fram gegnum fjar-
fundabúnað fyrir utan það að í flest-
um tilfellum kemur ekkert gagnlegt
út úr þessu ferðabrölti. En hvað eru
dagpeningar? Jú, þeim er ætlað að
standa straum af þeim kostnaði sem
launamaður verður fyrir vegna tilfall-
andi ferða sinna á vegum vinnuveit-
anda utan venjulegs vinnustaðar
(hvar er venjulegur vinnustaður ef
viðkomandi „vinnur“ við að flækjast
milli landa?). Dagpen-
inga skal svo færa sem
tekjur á skattframtali.
Á móti fengnum dag-
peningum mega þeir
sem fá greidda dagpen-
inga hins vegar færa til
frádráttar á móti fengn-
um tekjum að hámarki
upphæð sem ríkisskatt-
stjóri vísar til í leiðbein-
ingum sínum. Það þýðir
þó ekki að færa eigi há-
marksupphæðina til
frádráttar eins og tíðk-
ast hefur um áraraðir. Að sjálfsögðu
eiga menn aðeins að færa til frádrátt-
ar þá upphæð sem þeir hafa varið til
greiðslu ferðakostnaðar og greiða
a.m.k. skatt af því sem þeir halda eft-
ir. En í raun ættu þessir aðilar að
skila því sem umfram er og ekki er
varið til greiðslu ferðakostnaðar.
En skattayfirvöld hafa engan
áhuga á að taka á þessum málum
vegna þess að embættismenn þar
hafa mestan hag af óbreyttu kerfi.
Ríkisskattstjóri er með her fólks í
vinnu við að fara yfir nótur ein-
staklinga vegna endurgreiðslu vsk
vegna viðhalds á íbúðarhúsnæði.
Væri ekki nær að nýta þennan
mannafla til að kalla eftir gögnum
varðandi fengna dagpeninga og færa
réttar tölur til frádráttar? Væri
kannski rétt að launaskrifstofa rík-
isins kallaði eftir þessum gögnum hjá
sínum starfsmönnum þannig að ríkið
væri réttilega að greiða eingöngu það
sem því ber? Þarna liggja svörtu pen-
ingar þeirra sem njóta dagpeninga og
þarna er eftir talsverðu að slægjast
fyrir ríkið og þá bæði launaskrifstof-
una og skattinn.
Talsvert meiru er eftir að slægjast
hjá skattyfirvöldum vegna þess að
þetta er einnig misnotað skattalega í
einkageiranum. Getur t.d. einhver
gefið haldbæra skýringu á hvaða
ferðakostnað flugfélag endurgreiðir
flugliða sem fer með flugfari að
morgni og kemur til baka sama dag
án þess að bera nokkurn ferðakostn-
að? – Þessir aðilar fá samt greidda
skattsvikna dagpeninga. Þetta sama
fólk sem nýtur þessara svörtu tekna
hneykslast yfirleitt mest á iðn-
aðarmanninum sem fær greitt fyrir
einhverja klukkutíma nótulaust og
yfirleitt er slík greiðsla að kröfu verk-
kaupans enda er það hann sem nýtur
þess að vsk er stolið undan en ekki
iðnaðarmaðurinn.
Er ekki orðið tímabært að vinda of-
an af þessu dagpeningasukki og
krefja menn um nótur með skatt-
framtalinu? Hvernig ætli utanrík-
isráðherrann okkar færi þessar
greiðslur á sínu framtali?
Dagpeningafíklar
Eftir Örn
Gunnlaugsson »Er ekki orðið tíma-
bært að vinda ofan
af þessu dagpeninga-
sukki og krefja menn
um nótur með skatt-
framtalinu?
Örn Gunnlaugsson
Höfundur er launamaður
í einkageiranum.
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 5. mars.
FERMINGAR
Fermin
g
SÉRBLAÐ
Föstudaginn 9. mars kemur út
hið árlega Fermingarblað
Morgunblaðsins.
Fermingarblaðið hefur verið eitt af vin-
sælustu sérblöðumMorgunblaðsins
í gegnum árin og verður blaðið í ár
sérstaklega glæsilegt.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
MEÐAL EFNIS:
Veitingar í veisluna.
Mismunandi fermingar.
Fermingartíska.
Hárgreiðslan.
Myndatakan.
Fermingargjafir.
Fermingar erlendis.
Hvað þýðir fermingin?
Viðtöl við fermingarbörn.
Nöfn fermingarbarna.
Eftirminnilegar fermingargjafir.
Fermingarskeytin.
Boðskort.
Ásamt fullt af spennandi efni.