Morgunblaðið - 22.02.2012, Page 21
UMRÆÐAN 21
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Tækifæri í skóla-
starfi nægjuseminnar
munu móta tuttugustu
og fyrstu öldina með
margvíslegum hætti.
Tuttugasta og fyrsta
öldin mun lifa í minn-
ingu fólks sem öld
týndu æskunnar. Tutt-
ugasta og fyrsta öld
gnægtanna mátti ekki
við að týna peningunum
sínum án þess að ætlast til miskabóta
á kostnað menntakerfisins í landinu.
Máttleysi tuttugustu og fyrstu ald-
arinnar birtist í þöglu samþykki fólks
fyrir því að menntakerfið verði sett í
ábyrgð fyrir útvalda uppa. Mistök
fjármálastofnana gáfu stjórnvöldum
mjólk og rjóma undan alikálfinum,
menntun barna þjóðfélags okkar.
Mjólk undan sjálfri mjólkurkúnni
tókst matráðum nýríku uppanna að
næla sér í með væli og heimsenda-
spám. Mjólk undan mjólkurkúnni
nægði fyrir offjárfestingum, áhættu-
fjárfestingum, gróðabraski og góð-
ærisgróðanum sem hluthafarnir
greiddu sjálfum sér sem fjármagns-
ávöxtun fyrir framúrskarandi og óeig-
ingjörn störf í þágu fólksins í landinu.
Gjafmildi þeirra og góðmennska náði
aldrei lengra en að þeirra eigin vasa,
mjólkin var uppurin fyrr en varði og
fólkið í landinu fékk að moka flórinn
eftir að kúnni var slátrað. Nú var kom-
ið að alikálfinum, sjálfri menntun æsk-
unnar, hann mátti mjólka líka. Ekki
mátti gera fjármálastofnanirnar
mjólkurlausar, þær þurftu sífellt meiri
mjólk til að viðhalda íturvaxinni og
frekri tilveru sinni.
Fólkið í landinu gleymdi hlutverki
sínu gagnvart æskunni. Æska lands-
ins ólst upp við það að líf hennar væri
minna virði en líf fjármálamanna og
sinnti þess vegna ekki
menntun sinni og nám
varð minna virði en pen-
ingar.
Æska landsins varð
fullorðin þrátt fyrir pen-
ingaleysið og mennt-
unarleysið, fólkið í land-
inu varð gamalt og
fjármálamennirnir orðn-
ir mettir. Nú mjólkaði
alikálfurinn aðeins fyrir
peninga því mjólkin fór
ógerilsneydd til hæst-
bjóðanda. Æskan hafði
aðeins fengið mjólk og rjóma á afborg-
unum sem jarðlíf þeirra næði ekki að
taka ofan af nema vexti og vaxtavexti.
Möguleikar menntakerfisins til að
vaxa og dafna væru miklir ef nátt-
staður unglinganna væri í sjálfu fjósinu
hjá alikálfinum. Náttstaður þeirra var
þess í stað í mykjuhaug vaxta og vaxta-
vaxta þar sem starf unglinganna fólst í
mokstri og tunnuþvotti. Æska landsins
þrífur skítinn eftir söddu pen-
ingamennina sem verða að njóta lífsins
og þess munaðar sem mjólk alikálfsins
veitti þeim. Iðin æskan verður mjólk-
urfleytir og strokkar rjóma peninga-
mannanna, býr til smjör, treður mykju
og slítur sér út fyrir þá. Næring æsk-
unnar er trygging peningamannanna
fyrir umbun sinni, yfirdráttarvöxtum
og smálánum með okurvöxtum. Mun-
aður æskunnar felst í smjörklípu, und-
anrennu og súrri mysu, toppurinn á til-
verunni er flóuð mjólk en hana þarf að
borga með osti og furðu fáir hafa séð
ost nema í auglýsingum. Smám saman
neitar æskan að drekka mjólk og borða
ost en vill í stað þess undanrennu, fúlt
smjör og súra mysu.
Æska landsins mun öðlast framtíð-
arsýn með peninga sem leiðarljós og
mottó þeirra verður: Meira. Fleira.
Mest. Núna. Æska landsins mun stýra
framtíð landsins í menntun þjóð-
arinnar, skólastarf þjóðarinnar mun
smám saman verða tómlegt vegna
peningaleysis og framtíðarsýnar án
menntunar í samkennd, samúð og
samvinnu. Traust nýju góðborg-
aranna á menntun og atvinnulíf mun
núna taka mið af tímanum sem tekur
að verða ríkur og tímanum sem tekur
að afla sér menntunar og peninga.
Unglingarnir munu láta sér nægja að
verða ríkir án menntunar og án un-
aðar gagnvart þeim lífsgæðum sem
fást ekki keypt fyrir peninga. Unaður
gagnvart myndlist, tónlist, und-
ursamlegri örvun andans, verður til-
gangslaus vegna þess að hann sækir
ekki nauðsynlega og mikilvæga pen-
inga. Æska landsins mun móta fram-
tíð landsins, snauða af unaði og
snauða af nautn. Framtíð æskunnar
mun líða fyrir mjólkur- og næring-
arleysið, næring unglinganna flýtir
fyrir manndómi þeirra, sætleiki lífs-
ins freistar þeirra og æsingur pening-
anna mótar þá.
Æskan mótar framtíð okkar og
æskan mun stýra menntun þjóð-
arinnar til framtíðar. Núna geta
stjórnvöld hindrað framtíð æskunnar
með skammsýni sinni, metnaðarleysi
og stefnuleysi. Æska þjóðarinnar
mun fullorðnast og hún mun sækja
fyrirmynd sína til önnum kafinna
stjórnmálamanna sem meta peninga
meir en menntun.
Undanrenna æskunnar vökv-
ar tækifæri framtíðarinnar
Eftir Brynju Dís
Björnsdóttur »Æska þjóðarinnar
mun fullorðnast og
hún mun sækja fyrir-
mynd sína til önnum
kafinna stjórnmála-
manna sem meta pen-
inga meir en menntun.
Brynja Dís Björnsdóttir
Höfundur er móðir barns
í grunnskóla.
Í aðdraganda hruns-
ins þegar bankarnir
féllu þá var það ekki
einvörðungu vegna ytri
áhrifa og verðbólgu
heldur vegna spillingar
og glæpa í bankakerf-
inu og fjármálakerfinu
almennt séð í heild.
ESB hafði lagt sitt á
vogarskálarnar til að
hjálpa upp á gjald-
þrotið en ESB hafði
lagt það til við fyrrverandi seðla-
bankastjóra Davíð Oddsson og fleiri í
Seðlabanka Íslands að það væri í
stakasta lagi að afnema bindiskyldu
Seðlabanka Íslands. Það má álykta
sem svo að glæpir í banka- og fjár-
málakerfinu ásamt afnámi bindi-
skyldu hafi valdið efnahagserf-
iðleikum Íslands. Það má hrósa Geir
Haarde og Davíð Oddssyni fyrir að
hafa stöðvað lánveitingar til föllnu
bankanna. Bankarnir voru í glæpa-
rannsókn og mátti Seðlabanki Ís-
lands ekki lána bönkunum.
Vanda heimilanna er sá að þau
hafa mörg hver fengið niðurfærslu
eða niðurfellingu allt að 110% miðað
við upphaflegan höfuðstól húsnæð-
islána. Þessi heimili ættu að fá skaða-
bætur vegna ofbeldis en þau höfðu
ekki völ á öðrum lánum. Bankarnir
brutu lög um fjármálastofnanir með
því að bjóða húsnæðislán miðuð við
einstakan erlendan gjaldmiðil. Mér
dettur það í hug varðaandi stöðu
heimilanna sem fengu þessi ólöglegu
húsnæðislán frá bönkunum sem mið-
uðust við staka erlenda galdmiðla að
samtök þeirra ættu að reyna að kæra
lánveitingarnar og meðferðina gagn-
vart lánunum til Alþjóðavið-
skiptastofnunarinnar (WTO) í Genf í
Sviss og krefjast skaðabóta frá ríkinu
en bankarnir störfuðu með blessun
stjórnvalda, einnig gætu þessir aðilar
(heimilin og hagsmunaaðilar þeirra )
reynt að sækja málið fyrir dóm-
stólum hér á landi þó ég telji ekki
mikla von að það beri árangur vegna
þess að stjórnvöld kynnu að hafa
áhrif á dómsvaldið. Þá finnst mér fyr-
irtæki sem jafnan hafa haft nægt
svigrúm í gegnum tíðina til þess að
borga nánast enga eða litla skatta
eigi ekki að verðlauna við þær að-
stæður að glæpamenn hafa farið
ránshendi um obinberar stofnanir,
banka og fleiri aðila. Mér finnst að
fyrirtækin eigi að bera þungann af
þessum óförum jafnt og hinn vinn-
andi maður en ekki að fá afskrifaðar
ómælt skuldir sem leggjast við skuld-
areikning okkar í erlendum skuldum.
Gagnvart þessari ólöglegu heild-
rænu einkavæðingu sem hefur við-
gengist og núverandi stjórnvöld virð-
ast ætla að viðhalda brýtur það í bága
við alþjóðalög um bann við hægriöfg-
um og nasisma með lögum árið 1940
á Jalta. Heildræn einkavæðing bank-
anna brýtur í bága við Genfarsátt-
málann sem bannar pyntingar á fólki,
einnig er þetta brot á barnasáttmála
Sameinuðu þjóðanna. Að því er virð-
ist líðst stjórnmálamönnum að fót-
umtroða mannréttindi. Interpol (al-
þjóðalögreglan) virðist ekki telja það
í sínum verkahring að vinna bug á
skipulagðri glæpastarf-
semi hvað varðar heild-
ræna einkavæðingu
bankanna. Interpol
skýlir sér á bak við að
þeir megi ekki skipta
sér af innanríkismálum
þjóða. Lögreglan hér á
Íslandi virðist hafa ver-
ið meðvirk í þessum
mannréttindabrotum,
þ.e. ólöglegri heild-
rænni einkavæðingu
bankanna í tíð fyrri
valdhafa og væntanlega
núverandi valdhafa, ef
Merði Árnasyni og Steingrími J.
verður eitthvað ágengt í heildrænni
einkavæðingu á bönkunum.
Svokallaðar breytingar í fiskveiði-
stjórnarmálum verða líklega nánast
engar þegar upp er staðið. Breyting
úr kvótakerfi með framsali eða leigu í
kerfi sem miðast við veiðireynslu en
bannar sölu er í raun nánast sama
kerfi því menn fara líklega bara
framhjá lögum og versla þannig með
kvótann. Fiskveiðiheimildirnar verða
áfram í höndum örfárra útvalinna
skrifborðsmanna en ekki í höndum
ungra manna sem vildu gjarnan
brjótast áfram af dugnaði og hug-
rekki. Það er líklega dapurleg ásýnd
stjórnmálanna nema hin nýju fram-
boð í stjórnmálunum söðli um og
jafni stöðu allra sem vilja stunda
sjávarútveg og sjómennsku. Ég tel
að þessi nýju framboð eða flokkar í
stjórnmálunum muni taka mikið fylgi
af öllum þeim flokkum sem fyrir eru í
stjórnmálunum. Helgast það af
mörgu, t.d. ólöglegum heildstæðum
einkavæðingum bankanna, fiskveið-
stjórnunarkerfi ójöfnuðar, ýmissi
óráðsíu í ríkisfjármálum, dugleysi
stjórnvalda í nýsköpun í iðnaði, miklu
atvinnuleysi, miklum ójöfnuði í laun-
um og mikilli stéttaskiptingu, slæmu
aðgengi þeirra sem eiga undir högg
að sækja í þjóðfélaginu af einhverjum
ástæðum til náms, félagsleg hjálp
fyrir lítilmagnann er nánast engin,
niðurskurður í löggæslumálum, nið-
urskurður í heilbrigðismálum, nið-
urskurður í skólamálum, lítil aðstoð
við heimilin í landinu, lítill og ónógur
tækjakostur á sjúkrahúsum, lítill og
ónógur tækjakostur í skólum, einnig
úrræðaleysi stjórnvalda við að segja
upp samningi við Magma-Kan-
adamanninn sem er kominn inn í
orkugeirann.
Ég tel úr því sem komið er í fisk-
veiðistjórnunarmálum að það mætti
auka strandveiðikvótann úr 7% í
10%, byggðakvótann úr 8% í 30%
þannig að ungir og dugandi menn fái
að njóta sín. Þá vil ég að úthlutun
byggðakvóta verði pólitísk í sveit,
bæ, borg. Þá mætti stilla veiðigjöld-
um í hóf, t.d. 2% á allan landaðan fisk
og það sé beinskattur við sölu en hóf-
legt gjald fyrir opinbert leyfisbréf
vegna veiðanna.
Geir og Davíð
Eftir Kristján Snæ-
fells Kjartansson
» Bankarnir voru í
glæparannsókn og
mátti Seðlabanki Ís-
lands ekki lána bönk-
unum.
Kristján Snæfells
Kjartansson
Höfundur er skipstjóri.
Íslandsmótið í tvímenningi um
helgina
Íslandsmótið í tvímenningi verður
haldið dagana 25.-26. febrúar nk.
Mótið verður haldið í Valsheim-
ilinu (Vodafonehöllinni) og hefst kl.
10 á laugardaginn
Spiluð verða 3-4 spil á milli para
en það ræðst af þátttöku hversu
mörg spil verða spiluð á milli para.
Hægt er að skrá sig í síma 5879360
og á www.bridge.is
Bridsdeild
Breiðfirðingafélagsins
Nú er lokið fimm kvölda tvímenn-
ingskeppni, þar sem fjögur bestu
kvöldin gilda til verðlauna. Röð efstu
para varð þessi.
Sveinn Sveinsson - Karólína Sveinsd. 1044
Unnar A Guðmss. - Hulda Hjálmarsd. 1014
Oddur Hanness. - Árni Hannesson 1002
Þorleifur Þórarinss. - Haraldur Sverriss. 955
Ragnar Haraldss. - Bernhard Linn 945
Sunnudaginn 19/2 var spilað á 10
borðum.
Hæsta skor í N/S:
Oddur Hanness. - Árni Hannesson 264
Þórarinn Bech - Jón Úlfljótsson 251
Garðar Jónss. - Sigurjón Guðmundss. 242
Austur/Vestur
Karólína Sveinsd. - Sveinn Sveinsson 262
Þorsteinn Láruss. - Ragnar Pálsson 260
Ólöf Ólafsd. - Jón Hákon Jónss. 250
Sunnudaginn 26/2 verður eins-
kvölds tvímenningur. Sunnudaginn
4/3 hefst svo þriggja kvölda hrað-
sveitakeppni.
Skráning hjá Sturlaugi í síma 869
7338.
Spilað er í Breiðfirðingabúð,
Faxafeni 14, á sunnudögum klukkan
19.
Eldri borgarar Hafnarfirði
Föstudaginn 17. febrúar var spilað
á 16 borðum hjá FEBH með eftirfar-
andi úrslitum í N/S:
Auðunn Guðmss. – Sigtryggur Sigurðss. 398
Ragnar Björnsson – Pétur Antonsson 376
Oliver Kristóferss. – Magnús Oddsson 352
Albert Þorsteinsson – Björn Árnason 336
Bjarni Þórarinsson – Jón Lárusson 334
A/V.
Ágúst Vilhelmsss. – Kári Jónsson 367
Elgi Einarsson – Ágúst Stefánsson 357
Oddur Halldórss. – Hrólfur Guðmss. 346
Erla Sigurjónsd. – Jóhann Benediktss. 341
Oddur Jónsson – Stefán Ólafsson 340
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| norir@mbl.is
Árin fyrir hrun fór
margt úrskeiðis á Ís-
landi. Þá léku lausum
hala gráðugir siðblindir
sótraftar með einbeitt-
an brotavilja sem svif-
ust einskis. Eftirlit og
aðhald var í molum og
ef einhver sýndi lit í
þeim efnum var um-
svifalaust reynt að
kaupa viðkomandi eða
eyðileggja mannorð hans. Allt of mikið
var af meðvirkum nytsömum sakleys-
ingjum. Þau voru mörg atvikin sem
maður var gáttaður á og síðan kom
margt í ljós í Skýrslu rannsókn-
arnefndar Alþingis. Þar var kominn
grundvöllur til uppgjörs við fortíðina,
en í ljósi þess sem sést hafði fyrir hrun
var ekki ástæða til of mikillar bjart-
sýni.
Ef vitleysan átti ekki að halda áfram
þurfti að manna vel lykilstöður eins og
stöðu forstjóra Fjármálaeftirlitsins. Í
það starf þurfti mann með víðtæka
þekkingu á fjármálakerfinu, en jafn-
framt mann með þor og þrautseigju til
að komast til botns í flóknum og vafa-
sömum málum og standast árásir og
brögð óprúttinna manna sem forðast
réttvísina. Ég gladdist því mjög þegar
Gunnar Andersen sótti um stöðu for-
stjóra Fjármálaeftirlitsins og fékk
hana. Gunnar hefur glímt við margt í
þessu starfi. Sumt var fyrirséð, eins og
það að sótraftarnir og skósveinar og
leigupennar þeirra hafa verið óþreyt-
andi við að reyna að ata Gunnar auri og
hafa verið heldur pirraðir á hve illa það
hefur gengið. Gunnar var svo verðlaun-
aður fyrir störf sín með myndarlegri
launalækkun! Hvorugt lét hann á sig fá
og hélt ótrauður áfram.
Eftir að Gunnar var nefndur í rann-
sóknarskýrslu Alþingis í
tengslum við aflands-
félög fyrir 10 árum, fékk
þáverandi stjórn Fjár-
málaeftirlitsins Andra
Árnason hæstaréttarlög-
mann til þess að skrifa
greinargerð um hæfi
Gunnars. Stjórnin ákvað
í framhaldinu að ekki
væri tilefni til neinna við-
bragða. Hælbítar héldu
samt ótrauðir áfram og
núverandi stjórn Fjár-
málaeftirlitsins bað
Andra aftur að skoða hæfi Gunnars og
komst hann aftur að sömu niðurstöðu.
Þá var bætt um betur og Ástráður
Haraldsson hæstaréttarlögmaður og
Ásbjörn Björnsson, löggiltur endur-
skoðandi, fengnir til að rýna bæði álit
Andra!
Þarna er kominn verulegur óþefur
af aðgerðum stjórnar Fjármálaeft-
irlitsins og kannski ráð að draga fram
aðgerðaáætlun um viðbrögð við ein-
elti.
Ástráður og Ásbjörn eru að flestu
leyti jákvæðir í umsögn sinni. Það nei-
kvæðasta er „huglægt“ mat, en slegið
úr og í. Þeir tala um opinbera umfjöll-
un eins og hún komi þeim á óvart.
Í framhaldi af þessu virðist stjórn
Fjármálaeftirlitsins hafa ákveðið að
segja Gunnari upp störfum. Beitt er
gamalkunnu bragði til þess að lág-
marka fjölmiðlaumfjöllun, en það er
að stjórn FME tilkynnir þetta seint á
föstudegi og Gunnari er gefinn and-
mælafrestur til mánudags! Þetta er
fyrirlitleg framkoma og gerir trúverð-
ugleika stjórnar FME að engu.
Málflutningur stjórnar FME er líka
í mýflugumynd og þar virðist lítill
áhugi á að kanna nánar réttmæti þess
sem „huglæga“ matið byggðist á.
Þeir einu sem hagnast á þessu
brölti stjórnar FME eru skjálfandi
skúrkar sem vita að unnið hefur verið
af fagmennsku að rannsókn mál
þeirra og það þola þeir ekki.
Ekki er örgrannt um að sú hugsun
leiti á að stjórn Fjármálaeftirlitsins
ætti að segja af sér, svo skipa megi
aðra sem stendur þétt við bak for-
stjóra og styður hann í mikilvægum
störfum hans, en gengur ekki í lið
með þeim sem verið er að rannsaka!
Ekki er örgrannt um …
Eftir Braga Leif
Hauksson
Bragi Leifur Hauksson
»Ekki er örgrannt um
að sú hugsun leiti á
að stjórn Fjármálaeft-
irlitsins ætti að segja af
sér, svo skipa megi aðra
sem stendur þétt við
bak forstjóra.
Höfundur er tölvunarfræðingur.