Morgunblaðið - 22.02.2012, Qupperneq 23
MINNINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
✝ Jón GrímkellPálsson fædd-
ist að Hólabraut 9 á
Skagaströnd 27.
desember 1955.
Hann andaðist á
Sjúkrahúsi Kefla-
víkur 11. febrúar
2012.
Grímkell var
sonur hjónanna
Páls Ólafssonar
Reykdals Jóhann-
essonar, sjómanns og síðar hús-
varðar á Skagaströnd, f. 20.
ágúst 1907, d. 29. janúar 1989,
og Gestheiðar Jónsdóttur, hús-
móður og verkakonu, f. 28. febr-
úar 1919, d. 6. nóvember 2010.
Alsystkini Grímkels eru: Jó-
hanna Sigríður, f. 26. júní 1949,
hjúkrunarfræðingur í Noregi,
stúlka, f. 12. júní 1950, dó á
fyrsta ári, Jóhannes, f. 31. maí
1951, d. 23. nóvember 1986, sjó-
maður og bátasmiður síðast bú-
settur í Sandgerði, Snorri, f. 8.
júní 1953, dó á fyrsta ári. Hálf-
systir Grímkels, samfeðra, er:
Unnur Skagfjörð, f. 9. febrúar
1925, húsmóðir í Reykjavík.
Grímkell kvæntist Ástríði
Björgu Bjarnadóttur, f. 21. jan-
úar 1955. Þau skildu. Synir
þeirra eru: 1) Hörður Bjarni, f.
11. maí 1977, sonur hans er:
hann kom aftur heim til Íslands
stofnaði hann plastbáta-
smíðastöð með Jóhannesi bróð-
ur sínum. Ráku þeir það fyr-
irtæki í sameiningu um skeið,
en síðar fjárfesti Grímkell í
körfubílum og hafði aðal-
framfæri sitt af útgerð þeirra á
meðan honum entist heilsa. Ein-
hvern tímann á starfsævinni sá
hann um rekstur sjoppu á
Hraunborgum í Grímsnesi fyrir
félaga sinn Magnús Helga Sig-
urðsson. Og hann fór á nám-
skeið í Dale Carnegie-fræðum
hjá Konráð Adolphssyni. Síð-
ustu tvo áratugina sem Grímkell
lifði var hann farinn að heilsu.
Fyrst greindist hann með MS-
sjúkdóm, sem stundum gekk af-
ar nærri honum, en svo komu
tímabil á milli sem hann var
betri. Síðar fékk hann heilablóð-
fall, sem hann náði sér reyndar
merkilega eftir, en um síðast-
liðna páska greindist hann með
heilabilun og hrakaði honum
mjög ört eftir það. En þrátt fyr-
ir heilsuleysi sitt lagði Grímkell
ekki alveg árar í bát fyrst fram-
an af þessum tveimur áratug-
um. Hann sinnti sölumennsku,
stundaði bifreiðaviðgerðir með
félaga sínum Guðjóni Sig-
urbjörnssyni og smíðaði og lag-
færði um skeið allmikið fyrir
annan vin sinn Sigurð Óla Sig-
urðsson, veitingamann á A.
Hansen í Hafnarfirði.
Útför Grímkels fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 22.
febrúar 2012, og hefst athöfnin
kl. 15.
Flóki Hrafn, f. 7.
maí 2002. 2) Hauk-
ur Emil, f. 21. mars
1983.
Grímkell ólst
upp hjá foreldrum
sínum á Skaga-
strönd og var á
unglingsárum í
sveit í Hvammi í
Svartárdal hjá föð-
urbróður sínum
Þorleifi Skagfjörð
Jóhannessyni og konu hans
Þóru Sigurðardóttur. Þegar
hann hafði aldur til sótti hann
almenna vinnu sem til féll í fæð-
ingarbæ hans og einhvern tím-
ann á lífsleiðinni aðstoðaði hann
mömmu sína við flatkökubakst-
ur. Reyndist það arðvænlegt
fyrirtæki því flatkökurnar
runnu út í búðum í nágrenninu.
Grímkell lauk gagnfræða-
prófi frá Laugalækjarskóla í
Reykjavík og var svo um skeið
aðstoðarvélstjóri á Hópsnesinu,
sem gert var út frá Grindavík.
Svo gerðist hann aðstoð-
armaður í vélarrúmi á stóru
norsku flutningaskipi og sigldi
allvíða, meðal annars til New
Orleans í Bandaríkjunum. Á
manndómsárum sínum bjó hann
allnokkurn tíma úti í Noregi og
lærði þar plastbátasmíði. Þegar
Grímkell Pálsson var meðal-
maður að hæð, dökkeygur, dökk-
ur á hár og lét sér oft vaxa al-
skegg á seinni árum. Hann var
afburðahraustmenni, meðan
heill var, duglegur verkmaður og
áhugasamur um það sem hann
tók sér fyrir hendur, bráð-
greindur að náttúrufari, hagur
til smíða og vélaviðgerða og ým-
iss konar lagfæringa. Hann hafði
gaman af vélknúnum ökutækj-
um, naut þess að keyra bíl og
sigla bát, og fyrir kom að hann
fékk að taka í flugvél hjá æsku-
vini sínum Helga Þór Bjarna-
syni, vélstjóra frá Skagaströnd.
Grímkell var mikill skapmað-
ur en stilltur vel. Hann átti til að
loka á fólk, en aldrei varð ég var
við að hann hataði nokkurn
mann eða óskaði honum ófarn-
aðar. Hann var stoltur að eðl-
isfari en yfirlætislaus í fram-
komu. Dómgirni og siðdekur
voru ekki til í honum. Og hann
var algerlega laus við fals.
Grímkell hafði gaman af því
að rabba við fólk, gjarnan með
bjórglas í hönd. Hann gerði sér
aldrei mannamun eftir stétt eða
stöðu, heldur mat fólk fyrst og
fremst eftir mannkostum og
einnig eftir því sem það hafði til
brunns að bera að öðru leyti. Ná-
vist hans var þægileg, geislaði
frá sér skapstyrk og hlýju. Hann
trúði fastlega á Jesú Krist, var
eldheitur ættjarðarvinur og ein-
dreginn sósíalisti.
Kynni okkar Grímkels hófust
norður á Sauðárkróki fyrir um
það bil átján árum. Þá var hann
illa haldinn af MS-sjúkdómnum
og höfðu læknar spáð honum
fullkominni lömun í fótum og
mögulega dauða innan skamms.
Ég leitaði til Björns Mikaelsson-
ar huglæknis og bað hann um að
reyna að bæta Grímkeli. Og
skömmu síðar var hann búinn að
sleppa hækjunum. Vinátta okkar
stóð óslitið síðan og gisti ég oft-
ast hjá honum í íbúð hans á
neðrihæðinni að Hellisgötu 22 í
Hafnarfirði, þegar ég var á ferð
á höfuðborgarsvæðinu, stundum
með unga dóttur mína, Guðnýju
Klöru.
Oftast nær kom ég þó einn og
fórum við þá oft saman á veit-
ingahúsið A. Hansen og fengum
okkur bjórglas. Undir það síð-
asta létum við okkur nægja
nokkra bjóra fyrir svefninn í
íbúð hans og tókum svo rúnt
daginn eftir, því Grímkell átti bíl
og var fær um að keyra hann þar
til í byrjun síðasta árs. Mörgu
góðu fólki kynntist ég í tengslum
við Grímkel í Hafnarfirði. Fólk
laðaðist að honum vegna hans
hlýlega og falslausa viðmóts og
ekki síður fyrir þær sakir að
hann var manna skemmtilegast-
ur, orðhagur og hafði ríka kímni-
gáfu. Hann gat líka verið stríð-
inn og meinlegur, ef svo bar
undir, en mun þó aldrei hafa
sært neinn djúpum sárum.
Grímkell Pálsson var raun-
góður vinur, skemmtilegur félagi
og ræktarsamur ættingi, sem
hljóp fúslega undir bagga með
skyldmennum sínum, jafnvel þó
að efni hans leyfðu það tæpast.
Betri vin og félaga hef ég ekki
eignast á lífsleiðinni. Vertu
blessaður, vinur minn. Hafðu
þökk fyrir samverustundirnar
sem við áttum, góðvildina sem
þú sýndir mér og lífsviskuna
sem þú miðlaðir mér. Farnist
þér vel í ferðinni yfir móðuna
miklu. Vonandi eigum við eftir
að sjást einhvern tímann aftur.
Ég votta ættingjum og vinum
dýpstu samúð mína. Það voru
mikil forréttindi að fá að kynnast
þér.
Guðmundur Sigurður
Jóhannsson.
Það brenna hús, það brenna hjörtu,
úr bálsins hafi reykir stíga;
við bláan himin bjarmi leikur;
í bleika ösku vonir hníga.
Það brenna hús, það brenna hjörtu,
í börnin glefsa rauðir vargar
við öldnum hvæsa eldsins tungur,
– en er þá nokkur von til bjargar?
Að húskofanum hundruð þyrpast
og hamast þar uns lausn er fengin
en eitt í hljóði hjartað brennur,
– þar hjálpar enginn enginn enginn.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Elsku drengurinn minn!
Þá ertu fluttur í Sumarlandið
og ég held að skemmtanastigið
muni hækka þar töluvert er þú
mætir með þínar óborganlegu
sögur. Ég get því miður ekki
fylgt þér þessi síðustu spor í
jarðlífinu. Verð að eiga í minn-
ingunni „stíginn okkar“ á Han-
sen þar og þá. Þakka þér „stund-
irnar í viskubrunninum“ mér og
mínum til handa og megi eilífðin
hossa þér og dilla svo sem þú átt
skilið.
Þín,
Óla.
Jón Grímkell
Pálsson
✝ Jenný KarlaJensdóttir
fæddist á Ísafirði
22. desember 1932.
Hún lést á líkn-
ardeild Landspít-
alans í Kópavogi 28.
janúar síðastliðinn.
Foreldrar henn-
ar voru Jens Karl
Magnús Stein-
dórsson frá Melum í
Trékyllisvík, Ár-
neshreppi, f. 28. okt. 1902, d. 14.
feb. 1965, og Guðrún Þórð-
ardóttir frá Hrúti á Rang-
árvöllum, f. 4. nóv. 1905, d. 28.
2002. Foreldrar hans voru Ingi-
björg Jónína Guðrún Jónsdóttir,
f. 7. okt. 1903, d. 4. maí 1986, og
Sigurgeir Sigurðsson, f. 18. júní
1896, d. 2. des. 1941. Börn þeirra
eru: 1) Sigurgeir, f. 31. jan. 1952,
d. 12. maí 1995, dóttir Jenný Rut,
f. 1972, gift Stein Simonsen. 2)
Elísabet, f. 1. apríl 1955, gift
Guðjóni Guðmundssyni, f. 4. júlí
1954, sonur Sigurður, f. 1978, í
sambúð með Jónínu Aðalsteins-
dóttur. 3) Ingibjörg, f. 22. júní
1964, gift Jóni Gunnari Bald-
urssyni, f. 2. júní 1962, börn Guð-
rún Kamilla, f. 1985, Selma
Polly, f. 1992, Magnús, f. 1994.
Langömmubörnin eru fjögur.
Heimilið og fjölskyldan hafði
alltaf forgang hjá henni. Hún
vann ýmis störf hjá hinu op-
inbera.
Útför hennar hefur farið
fram.
maí 1972. Systkini
Jennýjar eru Katrín
Þórný, f. 8. des.
1928, gift Mikael
Þórarinssyni,
Ragnar Steindór, f.
31. mars 1930, d. 7.
des. 2002, Guðrún,
f. 10. ágúst 1937,
gift Hermanni Stef-
ánssyni, og Jóhann-
es Helgi, f. 31. ágúst
1945, d. 2. júlí 2000.
Jenný giftist 24. desember
1952 Sigurði Sigurgeirssyni
húsasmíðameistara, f. í Hafn-
arfirði 31. mars 1931, d. 3. nóv.
Elsku besta amma. Nú er kom-
ið að kveðjustund. Erfitt að
kveðja þig, en ég verð bara að
sætta mig við það að ömmur deyja
á undan barnabörnum sínum. En
það er alltaf erfitt að kveðja
ömmu. Sérstaklega Jennýju
ömmu.
Þú varst ekki nútímaamma,
sem er svo upptekin að hún hefur
ekki tíma fyrir barnabörn og fjöl-
skyldu. Þú hafðir alltaf tíma fyrir
okkur og vildir allra helst bara
vera með fjölskyldunni. Má segja
að þú hafir alla tíð vakað yfir öllu
fólkinu þínu með alúð og væntum-
þykkju. Þú hélst líka skilyrðis-
laust með okkur og það var svo
ótrúlega gott að vita af því. Ég
vissi að ég gæti sagt þér frá
hverju sem er, þú myndir alltaf
halda með mér. Þess vegna feng-
uð þið afi fyrst að vita af því að
Steini væri til.
Hef hugsað mikið um það síð-
ustu dagana að þú varst jafngöm-
ul mér núna, þegar ég fæddist. Ég
var ekki í leikskóla fyrstu tvö árin,
því þú passaðir mig. Þú kenndir
mér stafina á Rafha-eldavélinni
áður en ég varð tveggja ára. Og
þú sást til þess að ég varð aldrei
lyklabarn, því ég gat alltaf farið
heim til ykkar afa eftir skóla. Svo
bjó ég í kjallaranum hjá ykkur afa
síðustu árin áður en ég flutti til
Noregs. Alltaf var opið upp til
ykkar, alltaf var eitthvað gott til
að borða og alltaf tími til þess að
spjalla, spila myllu eða fá góð ráð.
Eftir andlát pabba, þá var það
svo gott að eiga ykkur afa að. Mér
fannst pabbi alltaf vera til staðar í
gegnum ykkur. Eins og í brúð-
kaupinu okkar Steina. Var svo
ótrúlega stolt af þér þegar þú og
Mildrid tengamamma leiddust
inn kikjugólfið, eftir að þið voruð
búnar að taka á móti öllum gest-
unum.
Við barnabörnin kölluðum þig
ömmu rakettu. Því þú keyrðir svo
ótrúlega hratt. Man einu sinni
þegar ég var að koma úr leiðsögn
og sat í rútunni og bílstjórinn var
að keyra mig heim. Við vorum að
bíða á rauðu ljósi og svo sé ég þig í
Volvoinum við hliðina á okkur,
einum bíl framar. Bilstjórinn vildi
ná þér og ég óskaði honum góðs
gengis. Svo kom grænt ljós, þú
bræddir malbikið og varst búin að
leggja bílnum og komin inn á
Hverfisgötu 42 þegar við komum
að húsinu. Þá verð ég að viður-
kenna að ég var pínu grobbin, þó
að ég hafi oft verið hrædd með þér
í bíl.
Ég þekki engan eins og þig,
sem alltaf hefur tekið öllu með
hugrekki, æðruleysi og styrk.
Vona að ég verði einhvern tímann
eins sterk og hugrökk og þú. Þeg-
ar þú fékkst að vita að þú værir
komin með krabbamein, þá tókst
þú þá ákvöðrun að lengja ekki líf-
ið, heldur hafa það gott síðustu
mánuðina. Sjálfri þér lík þá spurð-
ir þú okkur öll hvort við hefðum
það gott, værum örugglega enn
vel gift og hvað þú gætir gert fyrir
okkur síðustu vikurnar þínar. Svo
spurðir þú hvort það væri í lagi að
þú myndir kveðja.
Hugga mig við það að ég veit að
þú ert hjá pabba og afa. Eina
skiptið sem ég sá þig virkilega
bugast var þegar pabbi dó. Þess
vegna ann ég þér að vera hjá þeim
núna, veit að þú ert búin að sakna
þeirra mikið. Vona þó að þú fáir að
standa við það sem þú lofaðir mér
og Ísaki og Viljari þegar við
kvöddum, að þú kíkir við í Hegge-
dal hjá okkur. Við bíðum spennt.
Þín
Jenný Rut.
Jenný Karla
Jensdóttir
Elsku amma
Katrín. Takk fyrir
allar samverustundirnar. Þú
varst alltaf svo góð og skemmti-
leg. Lummurnar þínar voru alltaf
í uppáhaldi hjá mér og verða það
alltaf. Það var alltaf svo gott að
koma til þín að kúra og spjalla. Ég
elska þig af öllu mínu hjarta og
mun sakna þín svo mikið eins og
allir í fjölskyldunni. Ég mundi
gera allt til að láta þér batna,
elsku amma mín.
Þín ömmustelpa,
Jóhanna Freyja.
Með hlýju í hjarta verður mér
hugsað til Katrínar, sem ég
kynntist bæði sem móður vinkonu
minnar og nágranna. Katrín var
einstaklega glæsileg og falleg
kona. Hún hafði einstaka nærveru
og í hvert sinn sem við hittumst
voru mín málefni henni alltaf of-
arlega í huga og það sem var að
gerast hjá mér og mínum nán-
ustu. Þannig var Katrín, henni
var eðlislægt að láta sér annt um
náungann. Katrín var stolt af
stelpunum sínum og fjölskyldum
þeirra sem hún átti einstakt sam-
band við og var þeim góð móðir,
amma, tengdamóðir og vinkona.
Missir þeirra er mikill og sár en
minningar um fallega og yndis-
lega konu lifir í hjörtum þeirra.
Er sárasta sorg okkur mætir
og söknuður huga vorn grætir
þá líður sem leiftur úr skýjum
ljósgeisli af minningum hlýjum.
(HJH)
Elsku Sigurlaug, Hanna Lilja,
Hjördís Hildur og fjölskyldur, ég
votta ykkur mína innilegustu
samúð.
Ykkar
Auður Lind.
Stórt skarð hefur nú verið
höggvið einu sinni enn í okkar litla
hóp stúdenta sem útskrifaðist frá
Verzló vorið 1962 og sem innan
nokkurra mánaða mun halda upp
á hálfrar aldar útskriftarafmæli.
En því miður mun ekki sú gleði
ríkja sem til stóð, nú þegar Kötu
okkar vantar í hópinn. Við stönd-
um nú hnípin og raunamædd hjá.
Ekki þýðir að deila við almættið
og mitt í sorginni má þó gleðjast
yfir að nú er okkar kæra vinkona
laus við kvalir sem fylgja baráttu
við hinn illvíga sjúkdóm og komin
til æðri og fegurri heima.
Á unglingsárum finnst flestum
tíminn oft líða fremur hægt,
Katrín Jónsdóttir
✝ Katrín Jóns-dóttir fæddist í
Reykjavík 9. sept-
ember 1941. Hún
lést 28. janúar
2012.
Útför Katrínar
fór fram frá Garða-
kirkju 7. febrúar
2012.
óþreyjufullir eftir að
komast út í lífið. Því
var ljóst eftir sex ára
samveru í Verzlun-
arskólanum að öll
vorum við, skóla-
systkinin, orðin
mjög áfjáð og alveg
tilbúin að taka okkur
eitthvað nýtt og
spennandi fyrir
hendur. Sé hins veg-
ar litið tilbaka er
sem tíminn hafi liðið með örskots-
hraða.
Það verður að játast að þegar
komið var að ákvörðun um stúd-
entsferðalagið okkar, sem við
höfðum baki brotnu safnað fyrir
allan seinasta veturinn og hlakkað
mikið til, þá náðist lítil samstaða í
hópnum. Það varð því úr að við
þrjár, Kata, Björg Eysteinsdóttir
og ég, tókum okkur far með
Heklunni sem sigldi til Stavanger
í Noregi. Þar kvöddum við Kata
Björgu og vinkonu hennar, en
þær héldu för sinni viðstöðulaust
áfram áleiðis til Þýskalands. Eftir
nokkurra daga dvöl í Stavanger
héldum við stoltar upp í okkar
langþráða stúdentsferðalag með
hvítu kollana. Brunuðum áfram
með lestum um skóglendi, firði,
fjöll og firnindi og skoðuðum okk-
ur um í helstu borgum á leiðinni,
svo sem Osló, Gautaborg og
Kaupmannahöfn. Sigldum loks til
Helgolands að heimsækja Helgu
Guðjónsdóttur, gamla skólasyst-
ur okkar, sem var þar í sumar-
vinnu og auðvitað fengum við hin-
ar ljúfustu móttökur.
Til að gera langa sögu stutta þá
enduðum við loks í Hamborg, þar
sem við höfðum mælt okkur mót
við kærastana okkar sem biðu þar
í ofvæni eftir okkur. Þar skildi um
sinn leiðir okkar Kötu eftir stór-
skemmtilega og viðburðaríka
daga, sem liðu auðvitað allt of
fljótt.
Á þessum tímapunkti vorum
við, hvor um sig, að hefja alger-
lega nýtt líf, fullar af tilhlökkun og
væntingum um nánustu framtíð
okkar. Síðan liðu árin og áratug-
irnir við alls konar annir eins og
tíðkast hjá ungu fólki. Við hitt-
umst þó reglulega á skólaafmæl-
um og rifjuðum þá upp hvað hefði
nú gerst áhugavert í lífi hvor ann-
arrar. Þetta voru góðar stundir.
Þegar svo fór að halla á seinni
hlutann í lífinu og meiri tími gafst
til tómstunda höfum við nokkuð
margar skólasysturnar, okkur til
mikillar gleði og ánægju, hist
reglulega nú í meira en áratug og
hefur það verið okkur mjög svo
dýrmætt.
Kæru systur, Sigurlaug,
Hanna Lilja og Hjördís, nú þegar
þið sjáið á bak ykkar ástríku móð-
ur vil ég fyrir hönd okkar skóla-
systkina votta ykkur og fjölskyld-
um ykkar mína dýpstu samúð.
Hvíl í friði, kæra vinkona og
skólasystir.
Ingibjörg G. Haraldsdóttir.
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda
Morgunblaðinu greinar eru
vinsamlega beðnir að nota inn-
sendikerfi blaðsins. Neðst á
forsíðu mbl.is má finna upplýs-
ingar um innsendingarmáta og
skilafrest. Einnig má smella á
Morgunblaðslógóið efst í
hægra horninu og velja viðeig-
andi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir
birtingu á útfarardegi þarf
greinin að hafa borist á hádegi
tveimur virkum dögum fyrr (á
föstudegi ef útför er á mánu-
degi eða þriðjudegi).
Minningargreinar
S:HELGASON
10 - 50%
AFSLÁTTUR
AF
ÖLLUM
LEGSTEINUM
Vandaðir legsteinar
á betra verði!!!
- Sagan segir sitt -
Skemmuvegur 48 s: 557 66 77