Morgunblaðið - 22.02.2012, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
✝ Hilmar Björns-son fæddist í
Reykjavík 14. apríl
1933. Hann lést 13.
febrúar 2012.
Foreldrar hans
voru Björn Finns-
son og Emilía
Magðalena Jóhann-
esdóttir, bæði
fædd og uppalin á
Snæfellsnesi. Hilm-
ar var yngstur sex
systkina sem öll eru látin; Guð-
rún Jóhanna, f. 1918, Salbjörg,
f. 1923, Ragnar Emil, f. 1925,
Finndís, f. 1929 og Sigmundur,
f. 1931.
Eftirlifandi kona Hilmars er
Marie Bögeskov, f. 1934 í
Reykjavík. Þau giftu sig sum-
og Kristbjörgu Karen 3) Hjör-
dís, f. 1975, gift Tryggva
Rúnari Guðmundssyni og eiga
þau eina dóttur; Guðrúnu
Emmu.
Hilmar ólst upp í mikilli fá-
tækt eins og víða var á þessum
árum í Reykjavík. Ellefu ára er
hann sendur í sveit að Saxhóli
á Snæfellsnesi og lendir þar
hjá góðu fólki, sem hann
minntist oft á síðar á ævinni.
Móðir hans deyr 1946 og kem-
ur hann þá í bæinn og upp frá
því fer hann að vinna almenn
verkamannastörf. Fjölskylda
hans flutti í Kópavog 1945 og
hefur hann búið alla tíð í Kópa-
vogi. 1952 hóf hann störf hjá
Kjöti og rengi, síðar Nið-
ursuðuverksmiðjunni ORA, og
vann þar óslitið í 50 ár til 2002.
Útför Hilmars fer fram frá
Kópavogskirkju í dag, 22. febr-
úar 2012, kl. 13.
ardaginn fyrsta
1956. Þau byggðu
sér hús við Kárs-
nesbraut 103 og
bjuggu þar í 45 ár.
Þau seldu húsið
sitt fyrir sex árum
og keyptu íbúð í
Víðihvammi 24,
þar sem heimili
þeirra hefur verið
síðan. Þau eign-
uðust þrjú börn; 1)
Emilía María Hilmarsdóttir, f.
1961, gift Birni Elíassyni og
eiga þau þrjú börn; Hilmar
Ágúst, Anton Örn og Elísu
Björk. 2) Björn Bögeskov Hilm-
arsson, f. 1965, kvæntur Ólöfu
Ævarsdóttur og eiga þau þrjár
dætur; Rakel Rut, Maríu Mjöll
Aldrei er dauðinn neinn auðfús gestur
en einstaka sinnum kærkominn þó.
Þegar að hugur og þrekið allt brestur,
þá horfum við flestöll himinsins til,
hér verða oftast á lífinu skil.
Þegar að síðasta þrautin er unnin,
þráum við hvíld þá er ætluð oss var.
Á þegar síðasti svefninn er runninn
og sólin er hnigin í kvöldroðans mar.
Þá gengur þú léttfættur, glaður í lund,
gengur til himins á feðranna fund.
Eftir er minningin ein til að ylja.
Allt sem er gengið á liðinni stund.
Minningar lifa og minningar skilja,
myndirnar eftir á samverugrund.
Þú fleyinu stýrir á frelsarans fund,
þar fagna þér vinir í eilífðarlund.
Takk fyrir allt og allt, vinur.
Marie.
Elsku besti pabbi. Þú varst al-
gjör snillingur.
Samleið ykkar mömmu spann-
aði tæp 60 ár, oftar en ekki ein-
kenndist sambúðin í fyrstu af
mikilli vinnu og litlum frítíma en
sá tími var engu síður vel notaður.
Þú varst e.t.v. þrjóskur, eins og
ég er oft talinn vera, enda áttum
við sama afmælisdag sem var al-
veg einstaklega vel útreiknað hjá
ykkur mömmu, við erum hrútar.
Þú einsettir þér síðustu vinnu-
árin að ná því að starfa 50 ár í Nið-
ursuðuverksmiðjunni Ora. Það er
alveg ljóst að þú vannst ekki þar
launanna vegna heldur að þér lík-
aði erfiðisvinna vel og einnig áttir
þú góða vini og kunningja þar. Í
öllum kaffi- og matartímum
hljópstu upp brekkuna frá Ora og
upp á Kársnesbraut 103, ég sé
það núna að það var til þess að
geta átt fleiri mínútur heima með
mömmu og okkur systkinunum.
Það var reyndar ekki nóg að þú
ynnir í Ora heldur rákuð þið
mamma Sælgætisgerðina HB á
árunum 1968-1977. Flest kvöld
vikunnar og um helgar var unnið
úti í bílskúr við að sjóða brjóst-
sykur og karamellur. Mamma
klippti niður kúlur og setti spýtur
í og þú stimplaðir framleiðsluna
HB, því næst pökkuðum við
systkinin og oft vinir okkar
namminu í poka (með eðlilegri
rýrnun).
Okkar sameiginlega áhugamál
var fótbolti. Við horfðum á marga
leiki, fyrst vikugamla leiki úr
enska á RÚV en síðan beinar út-
sendingar eftir að tækninni
fleygði fram. Þú spilaðir sjálfur
með Þrótti, Val og Breiðabliki og
varst mikill varnarjaxl. Ég spilaði
í um 20 ár og síðan tóku stelp-
urnar mínar við. Þú fylgdist ávallt
vel með okkur öllum og eins með
barnabörnum í ÍBV. Við fórum
oft saman á Breiðabliksleiki sl.
sumar, þótt við hefðum nú ekkert
verið ánægðir með árangur
meistaraflokks karla, þá erum við
kannski orðnir of góðu vanir eftir
tvo frábæra titla 2009 og 2010.
Kvart og kvein yfir vinnu eða
þínum erfiðu veikindum voru orð
sem ekki voru til í orðabók þinni.
Þú varst ávallt ótrúlega duglegur,
ósérhlífinn og vildir allt fyrir alla
gera. Þegar mig vantaði aðstoð
við eitthvað – eitt símtal og þú
varst mættur. Þú og mamma vor-
uð ein af frumbyggjum á Kárs-
nesinu, fyrstu árin bjugguð þið í
sumarbústað og síðan þegar fjöl-
skyldan stækkaði var byggt við
nýtt. Allt var unnið í aukavinnu á
kvöldin og um helgar og tók þetta
ykkur um sjö ár. Allt hafðist þetta
með ótrúlegum dugnaði, eljusemi,
hagsýni og samviskusemi. Við
systkinin nutum góðs af þessu, ól-
umst upp í frábæru hverfi og hóf-
um öll okkar búskap í kjallaran-
um á Kársnesbrautinni.
Það er erfitt að kveðja þig,
elsku besti pabbi minn, ekki síst
vegna þess hversu snöggt þú
fórst frá okkur. Við huggum okk-
ur við það að einmitt þannig hefð-
ir þú viljað hafa það sjálfur, ekk-
ert kvart né kvein og virðum við
það. Þú ert örugglega að hefja
nýtt líf núna og fylgist með okkur
öllum, sem þú unnir svo mikið, af
áhuga og með bros á vör.
Ótal minningar hrannast upp
en minningin ein um algjöran
snilling, frábæran pabba og afa
koma til með að lifa til eilífðar.
Megi Guð gefa að við hittumst
aftur á nýjum stað í nýju lífi.
Kveðja frá þínum elskaða syni.
Björn Bögeskov Hilmarsson.
Elsku pabbi, það er svo sárt að
fá ekki að kveðja þig. Þú varst
tekinn frá okkur á einu auga-
bragði, bráðkvaddur. Veikindi þín
ágerðust síðastliðið ár en þú varst
alltaf svo sterkur og þrautseigur.
Þrátt fyrir að vera kvalinn á
stundum varstu ekkert að kvarta
og kveina eða deila því með okk-
ur. Það var ekki þinn stíll, sannur
víkingur. Það eru svo margar
góðar minningar sem streyma um
huga mér. Þegar eitthvað þurfti
að framkvæma; mála, smíða,
flytja, laga, sama hvað það var þá
varst þú mættur með verkfærin
þín og tilbúinn að hjálpa og leið-
beina. Traustur og tryggur, ávallt
til reiðu. Takk fyrir allt.
Það voru ófá skiptin sem þið
voruð að gæta og hugsa um
hraunið og hundana. Þú varst
þeim svo góður vinur. Grettir
heitinn aðstoðaði þig við smíðarn-
ar og þið voruð mestu mátar. Þið
félagarnir munuð finna ykkur
margt til dundurs. Æskuminning-
ar; Þú kenndir mér að hjóla og
þegar fór að vora þá var hjólið
mitt tilbúið til notkunar þegar
veður leyfði. Þú kenndir mér að
veiða, það voru ófá skiptin sem við
fórum saman eftir vinnu niður í
fjöru til að veiða. Við áttum okkar
stað. Við fórum stundum upp að
Meðalfellsvatni með nesti og
eyddum deginum þar í að baða
orma. Orma sem við höfðum tínt í
garðinum á Kársnesbrautinni og
geymt með mosa og mold í þar til
gerðum fötum. Þetta voru góðar
stundir. Eitt af okkar sameigin-
legu áhugamálum var að safna
steinum, áttum orðið dágott safn.
Þú passaðir alltaf upp á að skaut-
arnir mínir væru í lagi sem og
skíðin. Þeim var reglulega skipt
út eftir því sem ég stækkaði. Ég
man eftir því þegar þú kenndir
mér á skauta niðri á tjörn. Þá
dróstu mig með trefli á eftir þér
og sagðir mér hvernig ég átti að
gera til að skauta.
Á sunnudögum fór ég oft með
þér að leggja baunir í bleyti í Ora.
Það var svakalegt sport, við fór-
um um allt á trillu. Eftir vinnu var
oft farið í sunnudagsbíltúra og
keyptur ís, það var auðvitað topp-
urinn. Pabbi var mikill ísmaður.
Sunnudagar voru mínir uppá-
haldsdagar í æsku. Ég var alltaf
litla stelpan þín þó að ég færi
snemma að heiman. Á brúðkaups-
daginn minn vorum við álíka
stressuð þegar þú fylgdir mér inn
kirkjugólfið og stóðst þig með
sóma. Ég man eftir því eins og að
það hefði gerst í gær, þú varst
með rauðan ópal. En rauður ópal
var í miklu uppáhaldi hjá þér og í
öllum jakkavösum og yfirhöfnum
var að finna misjafnlega gamla
pakka af rauðum ópal. Það mátti
bara fá sér eitt í einu. Hvort sem
um var að ræða mat eða drykk þá
var allt innan hófsamlegra marka.
Mér er minnisstætt eitt af fyrstu
skiptunum sem hann Tryggvi eig-
inmaður minn borðaði með fjöl-
skyldunni. Þá hafði hann á orði;
þið borðið eins og fuglar, kroppið
bara í matinn.
Þú kenndir okkur systkinunum
að fara vel með alla hluti og ef
eitthvað bilaði var hægt að laga
það. Núlifandi kynslóðir ættu að
taka þína kynslóð sér til fyrir-
myndar, sem alin var upp í fá-
tækt. Við mættum tileinka okkur
meiri nægjusemi. Ég er mjög
þakklát fyrir þann stutta tíma
sem dóttir okkar Guðrún Emma
fékk að kynnast „áva“ sínum. Guð
geymi þig.
Hinsta kveðja,
Hjördís.
Það er ýmislegt sem við þurf-
um að glíma við á lífsleið okkar.
Við fáum lífið lánað þegar við fæð-
umst og skilum því aftur þegar
við deyjum. Meðan við lifum er
hægt að halda góðri heilsu með
því að lifa heilbrigðu lífi. Við verð-
um að gæta vel að hreyfingu, mat-
aræði, tímasetningum á matar-
tímum, hvíld o.fl. Það má segja að
faðir minn, tengdafaðir og afi hafi
alla tíð passað upp á þetta. En svo
gerist eitthvað sem ekki er hægt
að stjórna en kannski hægt að
fresta í einhvern tíma.
Mér sem tengdasyni er mjög
minnisstætt þegar ég kom fyrst
inn í tengdafjölskylduna. Tengda-
pabbi sagði ekki mikið en hann
hefur væntanlega verið nokkuð
hissa þegar hann sér þennan
strák hlaupa frá Kársnesbraut-
inni í rauðköflóttum buxum.
Hann hefur örugglega hrist höf-
uðið og verið mjög hissa og sagt
við tengdamömmu hvað er í
gangi? Eftir þessa uppákomu var
mér mjög vel tekið af öllum.
Sennilega sá Hilmar eitthvað í til-
vonandi tengdasyninum. Þegar
ég var að kynnast eldri dóttur
Hilmars, Emilíu Maríu, var hann
oft að kaupa og selja bíla. Það var
ótrúleg seigla í Hilmari við þetta
en alltaf þegar hann seldi bíl fékk
hann sér vindil og brosti, honum
leið greinilega vel með söluna. Ég
vissi alltaf þegar ég kom á Kárs-
nesbrautina og fann vindlalykt þá
var hann að selja bíl. Ég man ekki
eftir öðru en hann ætti alltaf tvo
bíla og treysti mér strax til að
keyra þá. Hann var alltaf tilbúinn
að lána mér bíl. Þarna kom vel í
ljós hve vel hann treystir sínum
nánustu og þeim sem voru að
tengjast fjölskyldunni. Hann var
ekkert að flýta sér, fékk upplýs-
ingar og var ekkert að taka
ákvarðanir í fljótheitum. Ég held
að sumir ættu að fara hægar.
Hilmar gat verið nokkuð
þrjóskur þegar hann var búinn að
taka eitthvað í sig og dómharður.
Það var ekkert auðvelt að breyta
um skoðun hjá honum. Hilmar
var mjög gefandi til barnabarna
sinna, hann var alltaf tilbúinn að
leika við barnabörnin í eltinga- og
feluleik, hand- og fótbolta o.fl.
Hann lét ekki sjónvarp trufla sig,
barnabörnin höfðu forgang. Hon-
um fannst óþægilegt ef hann
heyrði eitthvert barnabarnið
gráta. Honum leið best þegar
barnabörnin brostu og voru kát.
Hilmar hafði mikinn áhuga á
íþróttum. Hann spilaði með Þrótti
í Reykjavík og síðan með Breiða-
blik í Kópavogi. Hann átti uppi í
hillu sögu Þróttar og hefur örugg-
lega oft skoðað hana, allavega er
ég búinn að skoða hana 3-4 fjórum
sinnum. Hann sagði mér oft frá
því þegar hann fór til Ísafjarðar
og Vestmannaeyja að keppa. Þá
var ekki hoppað upp í flugvél og
lent eftir örfáar mínútur. Aðstæð-
ur voru þá töluvert aðrar. Hilmar
hafði mjög gaman af því að fara
og horfa á knattspyrnuleiki.
Hann var oft mjög ósáttur þegar
hann kom til baka með það hvern-
ig liðin voru að spila að hans mati.
Síðustu árin sátum við, ég og
strákarnir mínir, oft með Hilmari
að horfa á knattspyrnuleiki í sjón-
varpinu og var hann oft mjög
dómharður á leikinn, lélegur leik-
ur, leikmenn nenntu þessu ekki,
o.fl. Allt tekur enda. Þegar horft
er yfir farinn veg spyr maður sig
er ég sáttur með það sem ég er
búinn að gera í lífinu?
F.h. fjölskyldunnar Fjólugötu
1, Vestmannaeyjum,
Björn Elíasson.
En komin eru leiðarlok
og lífsins kerti brunnið
og þín er liðin æviönn
á enda skeiðið runnið.
Í hugann kemur minning mörg,
og myndir horfinna daga,
frá liðnum stundum læðist fram
mörg ljúf og falleg saga.
Þín vinartryggð var traust og föst
og tengd því sanna og góða,
og djúpa hjartahlýju og ást
þú hafðir fram að bjóða.
Og hjá þér oft var heillastund,
við hryggð varst aldrei kenndur.
Þú komst með gleðigull í mund
og gafst á báðar hendur.
Svo, vinur kæri, vertu sæll,
nú vegir skilja að sinni.
Þín gæta máttug verndarvöld
á vegferð nýrri þinni.
Með heitu, bljúgu þeli þér
ég þakka kynninguna,
um göfugan og góðan dreng
ég geymi minninguna.
(Höf. ók.)
Elsku tengdapabbi.
Ég þakka þér samfylgdina sl.
25 ár sem aldrei bar skugga á. Þú
reyndist mér svo frábær tengda-
faðir og þér á ég svo margt að
þakka. Guð gefi Marie, Möllu,
Bödda, Hjöddu og fjölskyldum
þeirra styrk og ég óska þér góðr-
ar ferðar á vit nýrra ævintýra.
Blessuð sé minning þín, Hilm-
ar minn, þín verður sárt saknað.
Þín tengdadóttir,
Ólöf.
Það var undarlegt hvað sírenan
á sjúkrabílnum sem þaut framhjá
okkur hljómaði eins og henni væri
sérstaklega beint til okkar fjöl-
skyldunnar og tengdamömmu
sem var þá stödd hjá okkur. Um
klukkutíma síðar var það síðan
Hilmar Björnsson
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JÓN ÞÓRARINSSON
tónskáld,
Grænuhlíð 4,
Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum í Reykjavík sunnu-
daginn 12. febrúar.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni fimmtudaginn 23. febrúar
kl. 13.00.
Sigurjóna Jakobsdóttir,
Anna María Jónsdóttir,
Þorsteinn M. Jónsson, Ingibjörg Egilsdóttir,
Hallgerður Jónsdóttir, Rögnvaldur Hreiðarsson,
Benedikt Páll Jónsson,
Þórarinn Jónsson,
Ágúst Jónsson, Edda Erlendsdóttir,
Rafn Jónsson, Sigríður Rafnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
BERTHA SIGURÐARDÓTTIR,
Háaleitisbraut 24,
Reykjavík,
lést mánudaginn 13. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Neskirkju fimmtu-
daginn 23. febrúar kl. 13.00.
Jakob H. Richter, Þorgerður Bjargmundsdóttir,
Guðlaug Richter,
Gyða Richter,
Bryndís Richter, Valur Guðnason,
Bertha Richter,
Stefán Richter, Karen Richter,
Guðrún Richter,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma
ANNA JÓNÍNA VALGEIRSDÓTTIR
Sólbrekku 14, Húsavík
lést á Heilbrigðisstofnun Þingeyinga 21.
febrúar.
Þorgeir Baldursson, Emma Hulda Steinarsdóttir,
Valgeir Baldursson, Inga Maren Sveinbjörnsdóttir,
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
BÓAS HALLGRÍMSSON
frá Grímsstöðum,
Reyðarfirði,
sem lést á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Uppsölum þriðjudaginn 14. febrúar, verður
jarðsunginn frá Reyðarfjarðarkirkju föstudaginn 24. febrúar
kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á dvalar- og hjúkrunar-
heimilið Uppsali, Fáskrúðsfirði.
Hallgrímur Bóasson,
Þórhalla Bóasdóttir,
Jónas Pétur Bóasson,
Vilborg Bóasdóttir,
Agnar Bóasson,
Jóhann Nikulás Bóasson,
Sigurbjörg K. Bóasdóttir,
Bóas Bóasson,
Fanney Ingibjörg Bóasdóttir,
Ásdís Bóasdóttir,
Guðrún Bóasdóttir,
tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR,
Hlíðarvegi 53,
Kópavogi,
andaðist á Landspítalanum föstudaginn
17. febrúar.
Jarðsungið verður frá Digraneskirkju föstudaginn 24. febrúar
kl. 11.00.
Sigurður Kristjánsson, Áslaug Sverrisdóttir,
Svanhvít Kristjánsdóttir, Guttormur Rafnkelsson,
Leifur Kristjánsson, Aðalheiður Bjarnadóttir,
barnabörn, langömmubörn, langalangömmubörn
og fjölskyldur.