Morgunblaðið - 22.02.2012, Síða 25
staðfest að tengdafaðir minn
hafði kvatt þennan heim. Snöggt
fráfall hans kom á óvart þó svo að
hann hafi verið svo lánsamur að
lifa löngu og innihaldsríku fjöl-
skyldulífi. Hilmari verður ef til
vill best lýst sem fjölskylduföður-
num sem var alltaf til staðar, fyrir
fjölskyldu, vini og ættingja. Það
er kostur sem ef til vill er ekki
nógu mikils metinn fyrr en hann
er ekki lengur til staðar. Þeim
hefur fækkað um einn, harðdug-
legum Íslendingum, sem eru
knúnir áfram af vinnusemi og
finnst ekkert skemmtilegra en að
taka til hendinni. Það er mín von
nú þegar Hilmar stendur frammi
fyrir nýjum verkefnum að hann
muni loks gefa sér meiri tíma fyr-
ir tónlist og veiði. Takk fyrir allt,
Hilmar. Hvíl í friði.
Kveðja,
Tryggvi Rúnar.
Elsku afi.
Af einhverjum ástæðum hef ég
enga hugmynd um hvernig ég á
að lýsa því hvernig mér líður
núna, hvaða orð geta lýst öllum
hugsunum mínum best. Þetta
gerðist allt svo fljótt. Aðeins
nokkrum klukkutímum áður en
þitt undursamlega líf tók enda
kyssti ég þig bless og sagði:
„Heyrðu afi, ég er farin aftur upp
í skóla, ég sé þig á morgun,“ og
smellti koss á kinnina eins og ég
gerði alltaf. Ég mun alltaf vera
þakklát fyrir þessa setningu og
fyrir að hafa komið til ykkar
þennan morgun.
Það eru svo ótal margar minn-
ingar sem við eigum saman, afi.
Allir fótboltaleikirnir sem þú
horfðir á mig keppa, allir leikirnir
sem við sáum meistaraflokk
Breiðabliks spila, allir brandar-
arnir sem við sögðum okkar á
milli og lengi gæti ég talið. Ég
hafði alltaf jafn gaman af því þeg-
ar þú sagðir mér sögur frá því
þegar þú varst í fótbolta. Í hvert
sinn sem þú byrjaði sögur af þín-
um fótboltaferli byrjaðirðu á að
segja mér hvernig þú varst
minnstur af öllum í liðinu þínu og
spilaðir sem miðvörður en samt
varstu langbestur í vörninni. Ég
heyrði þessa setningu ófáum
sinnum en ég varð aldrei þreytt á
því að heyra hana. Allir leikirnir
sem þú og amma komuð að horfa
á mig spila voru ómetanlegir og
ekki margir leikir sem þú misstir
af á rúmum 10 árum. Stelpurnar
með mér í liði vissu allar hver þið
voruð og sögðu alltaf hvað þið
væruð miklar dúllur að mæta allt-
af og styðja okkur.
Áður en þú veiktist fóruð þið
amma út að labba á hverjum degi.
Amma fór reyndar ekki út að
labba, hún fór út að hlaupa eins og
þú orðaðir það. Amma alltaf
nokkrum metrum á undan þér og
þú eins og hundur í eftirdragi
(engin skömm, ég á í erfiðleikum
með halda í við hana). Þú sagðir
mér sögur frá því þegar þið voruð
úti í útlöndum og amma var kom-
in nokkra tugi metra á undan öll-
um hópnum því henni lá svo mikið
á og þú sagðist ekki hafa hug-
mynd um hver þessi kona væri.
Ég man hvað ég hló mikið þegar
þú sagðir þetta. Þú hafðir kannski
ekki mikla orku í að fara í göngu-
túra þessa síðustu mánuði en ég
er viss um að þú ert að spila fót-
bolta af miklum krafti með öðrum
góðum félögum uppi á himni.
Vegna þín munu fílar, frímerki,
lottó og íþróttir alltaf hafa aðra
þýðingu fyrir mér. Fyrir mér eru
þetta ekki bara dýr og dauðir
hlutir. Þetta eru hlutir sem gerðu
afa að afa Hilmari, afa sem allir
elska og ómögulegt að líka ekki
við.
Þú ert kannski ekki hérna til að
kyssa og knúsa en þú ert í hjarta
okkar allra og verður þar að eilífu.
Ég er ánægð að þú ert kominn á
góðan og hlýjan stað þar sem þú
spriklar um í fótbolta og
skemmtir þér með gömlum vin-
um.
Megir þú hvíla í friði.
Þitt barnabarn,
María Mjöll.
Elsku afi.
Þá er komið að kveðjustund.
Þú varst alltaf glaður og bros-
mildur, þegar ég kom í heimsókn
til þín og ömmu. Þú tókst utan um
mig og kysstir.
Takk fyrir að koma og horfa og
styðja mig á fimleika-, fótbolta-
og handboltamótunum.
Síðast sá ég þig þegar þú
komst að horfa á mig á handbolta-
móti, það var tveimur dögum áður
en þú kvaddir þetta líf.
Takk fyrir að vera afi minn. Ég
hugsa til þín með þakklæti í
hjarta. Sjáumst á ný björtu sól-
skini í.
Þitt barnabarn.
Elísa Björk.
Elsku afi minn.
Ég sakna þín mjög mikið en ég
veit að þú ert á góðum stað núna.
Þar get ég séð þig fyrir mér glað-
an og frískan, laus við allar þján-
ingar.
Ég vil þakka þér fyrir að koma
að horfa á fótboltaleiki með mér
og vera alltaf svona góður. Þú hef-
ur kennt mér mikið og gefið mér
mikið í gegnum tíðina.
Núna ertu þarna uppi að fylgj-
ast með okkur og búinn að hitta
fólkið sem á undan þér er farið og
það hefur tekið vel á móti þér.
Í minningunni man ég eftir
okkur saman að borða ís og
nammi.
Elsku afi, vonandi hefur þú það
gott og við sjáumst síðar.
Kristbjörg Karen
Björnsdóttir.
Elsku besti afi Hilmar minn,
hefði ég vitað að síðast þegar ég
sá þig yrði það allra síðasta hefði
ég faðmað þig og aldrei viljað
sleppa. Að fá þær fréttir að þú
hafir fallið frá eru svo óhugsan-
lega sorgmæddar. Að hugsa til
þess að það verði enginn afi með
okkur á blikaleikjunum í sumar,
enginn afi til að gefa okkur
gúmmígott lengur, enginn afi til
að spjalla við um fótboltann, eng-
inn afi til að spila skák við, og
svona gæti ég endalaust talið
áfram. Þú varst með eindæmum
langbesti afinn til að geta hugsað
sér og allar minningarnar með
þér eiga stóran stað í hjarta mínu.
Þú ert nú kominn á betri stað og
ert í örmum Guðs og engla með
öðrum kærkomnum og ég veit að
þér líður nú vel.
Nú sefur þú í kyrrð og værð
og hjá englunum þú nú ert.
Umönnun og hlýju þú færð
og veit ég að ánægður þú sért.
Ég kvaddi þig í hinsta sinn
ég kveð þig nú í hinsta sinn.
Megi minning þín lifa að eilífu
og ég mun aldrei gleyma þér. Hvíl
í friði elsku afi.
Þitt barnabarn,
Rakel Rut.
Góður vinur og vinnufélagi til
margra ára er látinn.
Það var mikil og góð lífsreynsla
fyrir mig að fá að starfa í liðlega
50 ár með jafn heilsteyptum
manni og Hilmari. Við stofnun
Ora byrjuðum við að vinna sam-
an, þá báðir ungir menn.
Hilmar var drengur góður í
þess orðs fyllstu merkingu, sam-
vinnufús og bóngóður starfsmað-
ur sem stóð og féll með því sem
hann tók sér fyrir hendur. Reglu-
semi, stundvísi og snyrtimennska
voru hans aðalsmerki. Það var
sama hvaða störf Hilmar tók að
sér, alltaf stóð hann við allt sem
honum var falið að gera og skilaði
því með prýði.
Hilmar var léttur og kátur á
sínum yngri árum, og var vinnu-
dagurinn oft langur hjá honum,
því hann tók að sér kvöld- og helg-
arstörf fyrir fyrirtækið sem
ósjaldan þurfti að sinna á þeim ár-
um. Hann sá um hráefnislager
fyrirtækisins til margra ára og sá
til þess að allir vöruflokkar væru
til og geymdir við réttar aðstæð-
ur, og að allt væri tilbúið þegar
vinnslan fór í gang að morgni.
Atorkusemi Hilmars var ekki ein-
göngu bundin við vinnustaðinn,
heldur réðst hann í húsbyggingu
við Kársnesbrautina á sínum
yngri árum, byggði þar stórt og
mikið hús fyrir sig og fjölskyld-
una. Hilmar var afburða verklag-
inn og útsjónarsamnur, fann oft
upp á ýmsu sem öðrum hafði ekki
komið til hugar. Við áttum einnig
okkar gleðidaga utan vinnunnar,
fórum t.d. eitt sumarið í ferð norð-
ur í land og til Austfjarða og
heimsóttum þá síldarverkun í
leiðinni sem fyrirtækið keypti síld
af, það var ógleymanleg ferð.
Hilmar var farsæll í sínu einkalífi,
átti því láni að fagna að eiga góð-
an lífsförunaut sér við hlið, eig-
inkonuna Marie og sólargeislana
sem þau hjónin unnu svo heitt,
börnin og barnabörnin.
Að leiðarlokum vil ég þakka
Hilmari fyrir alla þá vináttu og
traust sem hann ætíð sýndi mér
og fjölskyldu minni. Við sendum
Marie og fjölskyldunni okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Hilmars.
Magnús Tryggvason.
MINNINGAR 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
MOSAIK Hamarshöfða 4 • 110 Rvk • s. 587 1960 • www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Í tilefni af 60 ára starfsafmæli okkar bjóðum við
fría uppsetningu á höfuðborgarsvæðinu
og fría pökkun á legsteinum sem fara út á land
Mikið úrval - Vönduð vinna - Gott verð
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
MARINÓ DAVÍÐSSON,
Dalbraut 18,
lést á Hrafnistu Reykjavík laugardaginn
4. febrúar.
Útförin fór fram fimmtudaginn 16. febrúar.
Innilegar þakkir fyrir hlýhug, samúð og vináttu.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á H-2 Hrafnistu Reykjavík.
Guðrún Dröfn Marinósdóttir, Stefán Sigurjónsson,
Eggert Már Marinósson,
Hjördís Davíðsdóttir, Halldór Björnsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi og langafi,
GUÐMUNDUR MAGNÚSSON
húsasmíðameistari
frá Hellissandi,
Sóleyjarima 7,
sem andaðist á Landspítalanum í Reykjavík
þriðjudaginn 14. febrúar, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju
í dag, miðvikudaginn 22. febrúar kl. 13.00.
Þorbjörg Gísladóttir,
Gísli Guðmundsson, Margrét Geirsdóttir,
Magnús Guðmundsson, Þórunn Sveinsdóttir,
Elín S. Guðmundsdóttir, Freygarður Þorsteinsson,
Jón H. Guðmundsson, Hanna Antonsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður
og afa,
ÓLAFS ODDGEIRSSONAR,
Stapaseli 13,
Reykjavík,
verður frá Seljakirkju föstudaginn 24. febrúar
kl. 11.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á heimahlynningu
Landspítalans í Kópavogi, sími 543 1159.
Dóra Ingvarsdóttir,
Þórunn Ólafsdóttir, Marteinn Sigurðsson,
Berglind Marteinsdóttir,
Ólafur Marteinsson.
✝
Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og langafi,
JÓNAS H. HARALZ
hagfræðingur,
Efstaleiti 12,
Reykjavík,
lést mánudaginn 13. febrúar.
Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni mánu-
daginn 27. febrúar kl. 15.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á Barnaspítala Hringsins.
Halldór Haralz, Gyða Rafnsdóttir,
Belinda Ýr Albertsdóttir, Atli Már Ólafsson,
Jónas Halldór Haralz,
Guðrún Gyða Haralz,
Ásdís Gyða Atladóttir.
✝
Ástkær móðir mín,
SVANHILDUR BÁRA ALBERTSDÓTTIR,
áður til heimilis í Hátúni 8,
Reykjavík,
sem lést á Droplaugarstöðum sunnudaginn
12. febrúar, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kapellu föstudaginn 24. febrúar kl. 15.00.
Albert Birgisson.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
KRISTJANA LILJA KRISTINSDÓTTIR,
Barðastöðum 9,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn
13. febrúar.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Kristinn Guðbjartur Guðmundsson, Ingveldur Einarsdóttir,
Salvör Kristín Héðinsdóttir, Ingþór Pétur Þorvaldsson,
Lilja Jónína Héðinsdóttir,
Sigrún Eir Héðinsdóttir, Karl-Johan Brune,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Bróðir okkar,
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON,
Sunnuhvoli,
Vatnsleysuströnd,
lést á hjartadeild Landspítalans mánudaginn 20. febrúar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Ágúst S. Guðmundsson,
Guðfinna E. Guðmundsdóttir.
✝
Ástkær eiginmaður minn og vinur,
GÍSLI GARÐARSSON
skipstjóri,
Vatnsholti 26,
Keflavík,
fórst með Hallgrími SI 77 miðvikudaginn
25. janúar.
Minningarathöfn fer fram í Ytri-Njarðvíkurkirkju föstudaginn
24. febrúar kl. 14.00.
Þeim sem vilja minnast hans er bent á að láta Slysavarnaskóla
sjómanna njóta þess.
Valdís Árnadóttir
og aðstandendur.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
TRAUSTI KRISTJÁNSSON
bóndi,
Einiholti,
Biskupstungum,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
miðvikudaginn 8. febrúar.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir til Ásgerðar Sverrisdóttur læknis og starfsfólks
Landspítalans og einnig Karítas heimahjúkrun fyrir framúr-
skarandi störf.
Þökkum sýnda samúð.
Fyrir hönd aðstandenda,
Kristín Erna Hólmgeirsdóttir,
Ágústa Björk Traustadóttir, Aziz Naili,
Arnbjörg Traustadóttir, Guðjón Guðbjörnsson,
Helena Traustadóttir,
Kristján Einir Traustason, Guðrún Erna Þórisdóttir.
✝
Systir okkar, mágkona og frænka,
MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR
frá Eyvindarhólum,
lést á Hrafnistu í Reykjavík föstudaginn
10. febrúar.
Útförin fer fram frá Eyvindarhólakirkju laugar-
daginn 25. febrúar kl. 14.00.
Jón Sigurðsson,
Vilborg Sigurðardóttir, Guðjón Jósepsson,
Þóra Sigurðardóttir, Reynir H. Sæmundsson,
Magnea Gunnarsdóttir,
systkinabörn og fjölskyldur.