Morgunblaðið - 22.02.2012, Qupperneq 26
✝ HrafnhildurErla Sigurð-
ardóttir fæddist á
Landspítalanum í
Reykjavík 26.
október 1942. Hún
lést á hjúkr-
unarheimilinu
Grund 30. janúar
2012.
Foreldrar Erlu
eru Bergljót Har-
aldsdóttir, f. 6.
desember 1922, og Sigurd Evje
Markússon, f. 6.
ágúst 1918, d. 9.
maí 1991. Erla var
elst af sjö systkina
hópi.
Erla ólst upp í
Svartagili í Þing-
vallasveit en flutt-
ist síðar til Reykja-
víkur.
Erla var kvödd
frá Þingvallakirkju
8. febrúar 2012.
Nú hefur elskuleg mágkona
mín Erla Sigurðardóttir kvatt
þessa jarðvist.
Ég kynntist Erlu fyrir rúm-
um 30 árum þegar ég og bróð-
ir hennar Jón Friðrik, eða
Nonni eins og hún kallaði
hann alltaf, vorum að draga
okkur saman.
Með okkur Erlu tókst strax
mikil og góð vinátta og vorum
við ávallt í góðu sambandi,
bæði í síma og eins heimsótti
ég hana eins oft og ég gat.
Erlu tókst því miður aldrei að
heimsækja okkur eftir að við
fluttum austur en hún átti við
veikindi að stríða árum saman.
Það var alltaf gaman að koma
til Erlu, við gátum alltaf fund-
ið eitthvað til að hlæja að og
gestrisin var hún mjög og fékk
ég, sælgætisgrísinn, alltaf
margar tegundir af súkkulaði
með kaffinu.
Erla var einstaklega falleg,
hlý og góð kona með hjarta úr
gulli og vildi allt fyrir alla
gera og gefa allt sem hún átti.
Með þessum orðum kveð ég
þig elsku Erla mín.
Ég sendi fjölskyldu Erlu
svo og öllum ástvinum hennar
innilegar samúðarkveðjur.
Kolbrún
Kristjánsdóttir.
Erla
Sigurðardóttir
26 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
✝ GuðmundurMagnússon
fæddist á Hellis-
sandi 22. október
1926. Hann lést á
Landspítalanum í
Reykjavík 14. febr-
úar 2012.
Foreldrar hans
voru hjónin Magnús
Jónsson formaður,
f. 17.9. 1889, d. 15.9.
1962, og Sólborg
Sæmundsdóttir húsmóðir, f. 23.9.
1890, d. 20.5. 1969. Systkini Guð-
mundar eru Sæmundur Halldór,
f. 13.8. 1916, d. 4.3. 2009, Jón, f.
12.11. 1917, d. 22.6. 1936, Guð-
mundur Hilmar, f. 23.12. 1919, d.
24.6. 1924, Katrín, f. 4.1. 1923, El-
ínborg, f. 20.4. 1930, d. 29.9. 2009.
Hinn 26. desember 1953 giftist
Guðmundur Þorbjörgu Gísladótt-
ur, húsmóður, f. 14.2. 1930. For-
eldrar hennar voru Gísli Þ. Hall-
dórsson, f. 19.12. 1898, d. 7.10.
1990, og Elín S. Jónsdóttir, f. 4.9.
1906, d. 16.9. 1998. Dóttir Guð-
mundar og Henríettu Fríðu Guð-
bjartsdóttur, f. 13.12. 1928, d.
28.2. 2008, var Eyrún Jóna, f.
11.12. 1953, d. 7.5. 2000. Sonur
hennar er Ingvar Jón Hlynsson, f.
1983. db) Elín Klara, f. 24.7. 1992.
dc) Hjálmar Gauti, f. 27.1. 1994,
núverandi sambýliskona Hanna
Antonsdóttir, f. 28.10. 1972.
Barnabarnabörnin eru fjögur.
Guðmundur fæddist í Gimli á
Hellissandi. Faðir hans reisti fjöl-
skyldunni myndarlegt hús sem
þau fluttu í þegar hann var nokk-
urra ára gamall. Húsinu var gef-
ið nafnið Ásgarður og átti það
alla tíð stóran stað í hjarta hans.
Guðmundur ólst upp á Hellis-
sandi og Gufuskálum. Hann hóf
snemma sjómennsku og tók þátt í
nokkrum síldarvertíðum. Þegar
þrítugsaldri var náð lá leiðin til
Reykjavíkur og þaðan stundaði
hann fyrst um sinn vinnu við
vegagerð uns hann ákvað að
söðla um og hefja nám í trésmíði
hjá Pétri Jóhannessyni mági sín-
um. Hjá byggingarfyrirtæki Pét-
urs, Byggi sf., starfaði hann lung-
ann úr sinni starfsævi, m.a. vann
hann við að reisa Lögreglustöð-
ina í Reykjavík og fleiri stór-
byggingar í höfuðstaðnum. Á
sama tíma og Guðmundur vann
fulla vinnu og hafði fyrir stórri
fjölskyldu að sjá, lauk hann
meistaranámi í trésmíði með
miklum glæsibrag. Þá var hann
kominn yfir fertugt. Undir lok
starfsævinnar vann hann einnig
hjá Hagvirki og Reykjavík-
urborg.
Útför Guðmundar fer fram frá
Árbæjarkirkju í dag, 22. febrúar
2012, og hefst athöfnin kl. 13.
15.8. 1978. Börn
Guðmundar og Þor-
bjargar eru a) Gísli,
f. 14.2. 1954, maki,
Margrét Geirs-
dóttir, f. 15.2. 1954.
Börn þeirra eru aa)
Þorbjörg, f. 1.1.
1979, sambýlis-
maður Tryggvi
Baldursson, f. 4.3.
1980, ab) Ása Val-
dís, f. 24.8. 1980, ac)
Hjörleifur, f. 3.11. 1984, sam-
býliskona María Þ. Þorgeirs-
dóttir, f. 15.10. 1985, ad) Mar-
grét, f. 24.2. 1990. b) Magnús, f.
5.12. 1957, maki Þórunn Sveins-
dóttir, f. 7.10. 1955 börn þeirra
ba) Hildigunnur, f. 18.3. 1985,
maki Gunnar I. Arnarson, f.
13.12. 1981, bb) Sunna, f. 17.7.
1986, bc) Guðmundur, f. 12.10.
1989. c) Elín S., f. 30.6. 1959,
maki Freygarður Þorsteinsson, f.
5.3. 1963. ca) Þorsteinn, f. 10.3.
1999, cb) Halldóra, f. 5.7. 2000,
cc) Sólrún Elín, f. 5.7. 2000. d) Jón
Halldór, f. 21.1. 1962 var giftur
Erlu Arnardóttur, f. 27.1. 1964,
þau skildu, börn þeirra da) Halla
Karen, f. 22.5. 1983, sambýlis-
maður Andri Óttarsson, f. 25.2.
Þá er komið að kveðjustund eft-
ir tæplega þrjátíu ára kynni. Mér
er mjög minnisstætt þegar ég
fyrst hitti Guðmund tengdaföður
minn á tröppunum í Víkurbakk-
anum, þar sem Guðmundur og
Þorbjörg tengdamamma bjuggu
lengst af. Ég hafði bara ætlað að
bíða fyrir utan meðan kærastinn,
Maggi næstelsti sonur þeirra,
vippaði sér inn til að sækja sund-
dót. En viti menn, allt í einu voru
þau hjónin komin út á tröppur,
trúlega svolítið forvitin að kíkja á
gripinn. Þarna varð upphafið að
lífslöngum kynnum og þá strax
fann maður hið hlýlega viðmót
sem ætíð hefur fylgt Guðmundi.
Eftir þetta urðu heimsóknirnar
í Víkurbakkann fastur liður í til-
verunni og alltaf var tekið vel á
móti manni. Árin liðu, Hildigunn-
ur og Sunna fæddust, og við fjöl-
skyldan fluttum til Svíþjóðar. Þá
allt í einu komin langt frá ömmu
og afa. En Guðmundur og Þor-
björg kunnu ráð við því og komu
þónokkrar ferðir til okkar sem var
ómetanlegt bæði fyrir okkur og
stelpurnar litlu; að hitta afa og
ömmu, sem áttu heima langt í
burtu á Íslandi. Við fjölskyldan
fórum á þessum árum með þeim í
tvær frábærar sumarferðir, bæði í
Svíþjóð og um Þýskaland. Oft er
sagt að maður kynnist fólki aldrei
betur en á ferðalögum, þar sem
fólk er saman bæði daga og nætur
og reynt getur á samveruna. En
alltaf gekk allt eins og smurt þó að
aldursmunur ferðalanganna væri
töluverður og þarfirnar ólíkar.
Guðmundur afi hæglátur og bros-
andi, mildur við barnabörnin og
fylgdist vel með þeim.
Þó að Guðmundur stundaði
ekki sjálfur íþróttir hafði hann
ómældan áhuga á að fylgjast með
íþróttum, ekki síst boltanum.
Fylgdist hann vel með barnabörn-
unum á því sviði. Minnisstæð er
ævintýraleg ferð með afa og
ömmu til Vestmannaeyja til að
hvetja Guðmund son okkar, þá tíu
ára, í fótbolta. Þau enn og aftur
tilbúin að vera í tjaldi, ung í anda
og frísk, og nutu þess að vera úti í
guðsgrænni náttúrunni með okk-
ur í Herjólfsdal. Alveg þangað til
hin ógnarsterku öfl náttúrunnar
tóku völdin og rifu upp tjöldin í
ofsaroki og rigningu. Það spillti
ekki gleðinni, það lægði að nýju,
pésarnir stóðu sig vel í boltanum
og það var fyrir öllu.
Guðmundur var mikill hag-
leiksmaður og listasmiður. Þegar
við Maggi festum kaup á hálf-
byggðu húsi til að hýsa fjölskyld-
una bauðst Guðmundur tengda-
pabbi til að smíða stigann á milli
hæða. Hann var þá hættur að
vinna sem smiður en átti allt sem
til þurfti og smíðaði þennan fína
stiga í bílskúrnum í Víkurbakkan-
um. Guðmundur hafði ákveðnar
skoðanir á ýmsu þó að hann væri
ekki alltaf að flíka þeim. En þegar
kom að uppsetningu stigans var
alveg klárt að hann þurfti að fest-
ast á eitthvert haldgott efni.
Spónaplata skyldi það heita, því
hann hafði enga trú á þessu nýja
efni, gipsi, sem menn voru þá farn-
ir að tala um. Og auðvitað réði
Guðmundur ferðinni. Þykir manni
nú enn vænna um stigann en áður
– að Guðmundi gegnum.
Með þessum orðum kveð ég
elskulegan tengdaföður minn.
Elsku Þorbjörg, Gísli, Maggi,
Ella, Jón og fjölskyldan öll – megi
minningin um góðan mann ylja
hjörtum okkar og styrkja nú þeg-
ar sorgin knýr dyra.
Þórunn Sveinsdóttir.
Er Gummi frá Ásgarði kominn,
hafið þið séð hann, er það hann
sem situr þarna á fimmta bekk!
Stelpurnar sem sátu fyrir aftan
mig pískruðu spenntar, en að-
stæður voru spaugilegar, staður-
inn kirkja, tilefnið jarðarför og
stelpurnar á bekknum fyrir aftan
mig voru á áttræðisaldri. Hann
Guðmundur frá Ásgarði var
tengdafaðir minn og samferða í líf-
inu í rúmlega þrjátíu ár. Hann var
að sjálfsögðu löngu kominn inn í
kirkjuna og sestur. Það gerði
hann á sinn rólega og fumlausa
hátt, léttstígur, fjaðurmagnaður
og glæsilegur. Yfir honum var ein-
hver heiðríkja og bjartur svipur,
sumir eru einfaldlega fæddir
þannig. Stríðnishrukkurnar í
augnkrókunum alltaf á sínum
stað, enda hafði hann næmt auga
fyrir litlu hlutunum í fari sam-
ferðamanna sem og afkomenda.
Mig grunar að á bak við brosleitan
svipinn hafi hann oft verið að
hlæja með sjálfum sér að ein-
hverju skondnu atviki eða kannski
bara hégóma í fari okkar hinna.
Guðmundur var ekki maður
margra orða, en handartakið var
þétt eins og faðmlagið þegar hann
heilsaði og kvaddi. Hann var
gæfumaður, umvafinn börnum,
tengdabörnum og barnabörnum
og við hlið hans alla tíð var tengda-
mamma, kjölfestan í lífi hans. Hún
kom með hugmyndir og tillögur,
skipulagði og saman fram-
kvæmdu þau. Flestallt sem hún
stakk upp á féll í góðan jarðveg:
„Þetta líst mér vel á, Þorbjörg,“
sagði hann gjarnan, sérstaklega ef
um var að ræða hugmyndir að
matseld sem fólu í sér mikið kjöt.
Hann var stoltur af sínu fólki og
þó að hann hefði ekki mörg orð um
það þá fylgdist hann með hverju
einasta af afkomendunum, gladd-
ist með þegar vel gekk og hafði
áhyggjur ef honum fannst eitt-
hvað mega betur fara.
Síðastliðið sumar fór stórfjöl-
skyldan með honum á Snæfells-
nesið. Hann fór um æskustöðv-
arnar íklæddur léttum
sumarjakka og blankskóm, með
derhúfu á höfði á meðan við þurft-
um öll gönguskó og hlýjan útivist-
arfatnað til að halda á okkur hita.
Hann lét ekki segja sér fyrir verk-
um, og alls ekki hvernig hann ætti
að klæða sig. Á Snæfellsnesinu
þekkti hann hverja þúfu og hvern
stein, en eins og var hans eðli var
hann ekkert að flíka því fyrr en við
fórum fram á það að hann væri
leiðsögumaður. Ferðin var dásam-
leg, en kannski vorum við öll með-
vituð um að þetta væri sú síðasta
með honum á þessar slóðir. Mynd-
irnar sem við tókum í þessari ferð
eru lýsandi því hann stendur alltaf
aðeins til hliðar við fjölskylduna
og horfir brosleitur og stoltur á
hópinn sinn. „Guðmundur, farðu
nær, þú ert ekki inni á myndinni,“
var viðkvæðið. Í lok ferðarinnar
tyllti hann sér á trúlofunartröpp-
urnar svokölluðu, en undir því
nafni ganga tröppurnar á
bernskuheimili hans Ásgarði, þar
sem hann og tengdamamma settu
upp hringana fyrir sextíu árum.
Sú mynd sem ég mun geyma í
huga mér af honum er úr einni af
mörgum sumarbústaðaferðum
fjölskyldunnar. Hann er brosandi
á pallinum, umvafinn sínum nán-
ustu eftir gott grill og mikinn söng
sem byrjaði á blaðsíðu 1 í söng-
bókinni og leiddur var táknrænt af
konunni í lífi hans. Ég kveð Guð-
mund tengdaföður minn með
þakklæti og söknuði.
Margrét Geirsdóttir.
Í dag er jarðsunginn afi okkar á
Víkó. Okkur langar að minnast
hans með nokkrum orðum. Afi
okkar var maður sem aldrei
kvartaði, jafnvel undir lokin
fannst honum alveg óþarfi að allir
væru að stjana svona við hann,
hann hafði það bara fínt. Hann
vissi alltaf hvað hann vildi hvort
sem átt var við bjúgu eða boltann.
Hann var af þeirri kynslóð sem
bjargar sér alltaf. Það er ekki
hver sem er sem getur pantað
mat og drykk í útlöndum án þess
að tala annað tungumál en ís-
lensku og fá samt alltaf það sem
beðið var um.
Öll verk sem hann hóf voru
kláruð af krafti og atorkusemi
hvort sem var í vinnu, matar- eða
kaffiboðum. Hvert boð hafði upp-
haf og endi. Þegar búið var að
ljúka úr kaffibollanum og eftir-
rétturinn búinn af diskinum var
boðinu lokið og ekki eftir neinu að
bíða. Í skóna fór hann og út í bíl og
þeir sem voru honum samferða
þurftu að hafa sig alla við að fylgja
honum eftir.
Tímarnir breytast en afi var
mjög vandfýsinn á hvaða nýjung-
ar hann vildi tileinka sér. Pitsu-
staðir voru ein af þeim nýjungum
sem honum líkaði vel við og bauð
stoltur upp á kvöldverðinn pöntuð
pitsa, soðnar kartöflur og stjörnu-
salat.
Sjónvarpsherbergið var hans
staður í seinni tíð og þar var bolt-
inn oftar en ekki á skjánum. Það
var ósjaldan sem menn settust
þar við hliðina á honum og fengu
að vita að þeir bláu væru búnir að
skora meira en þeir rauðu. Eins
og sönnum Íslendingi sæmir þá
hélt hann ekki með neinu ákveðnu
liði í enska boltanum heldur Eiði
Smára og öðrum íslenskum leik-
mönnum.
Almennt var hann afi ekki
maður margra orða en hann átti
þó sína spretti, sér í lagi þegar
hans æskuslóðir, Snæfellsnesið,
voru umræðuefnið. Við krakkarn-
ir höfum farið í tvær pílagríms-
ferðir á Snæfellsnesið með afa og í
þeim ferðum lýsti hann fyrir okk-
ur æsku og uppvaxtarárum sínum
á ævintýralegan hátt. Sögurnar
voru ýmist af háskalegum sjóferð-
um þar sem forfeður okkar létust
fyrir aldur fram eða um hvernig
þurrka skyldi blóðberg og búa til
te úr því. Gaman er að geta tengt
þennan fallega stað við afa.
Það verður skrýtin tilfinning að
koma á Sóleyjarrimann og hitta
ekki afa þar og við munum sakna
hans. Minningarnar um sterkan,
hlýjan, ákveðinn og fjallmyndar-
legan mann fylgja okkur áfram.
Þorbjörg, Ása Valdís,
Hjörleifur og Margrét.
Guðmundur
Magnússon
Fagnandi um fjallasali
fórstu löngum
sextíu æviár í göngum.
(HJ)
Þessar ljóðlínur koma upp í
hugann við andlát Borgars í Goð-
dölum. Með honum er genginn
einn af svipmestu bændastólpum
Skagafjarðar, skapsterkur dugn-
aðarforkur, bóndi af lífi og sál,
maður athafna og framkvæmda.
Hann var glaðvær og gestrisinn,
félagslyndur og fylgdist vel með
mönnum og málefnum fjær og
nær og hafði fastmótaðar skoðanir
sem hann hélt oft fram af nokkru
kappi. Við eldhúsborðið í Goðdöl-
um áttu sveitungar hans og gestir
margar góðar stundir þar sem mál
voru krufin til mergjar. Í Goðdöl-
um eru jafnan langar smalaleiðir
og þarf oft að leggja að baki tugi
Borgar Símonarson
✝ Borgar Sím-onarson fædd-
ist 12. janúar 1930 í
Teigakoti í Skaga-
firði. Hann lést 31.
janúar 2012 á Heil-
brigðisstofnuninni
Sauðárkróki.
Útför Borgars
fór fram frá Goð-
dalakirkju 10. febr-
úar 2012.
kílómetra til að ljúka
dagsverki. Borgar
átti létt með að til-
einka sér nýjungar
og á haustdögum
mátti líta á bæjar-
hlaði ekki aðeins
hrausta smalahesta
og ýmis hjólatæki,
heldur stóð oft flug-
vél í túnfæti sem
nýttist til fjárleita.
Lengi verður minn-
isstæð ferðin að Skiptabakka er
við fórum nokkrir félagar einn síð-
sumardag árið 1975, erindið var að
koma upp gistiskála fyrir gangna-
menn. Dugnaður hans og lifandi
áhugi áttu drjúgan þátt í hve vel
gekk en leiðin lá að mestu um
hans heimaland þar sem hann
þekkti hvern stein og laut. Margar
ferðir fórum við saman í göngur
og eftirleitir þar sem atorka hans,
hjálpsemi og fyrirhyggja léttu
störfin. En allar ferðir taka enda,
þótt hann væri lengst af við góða
heilsu urðu fæturnir honum til
ama undir það síðasta, langar
smalaferðir líklega tekið sinn toll.
Ég kveð vin og sveitunga með
söknuði og sendi fjölskyldu og að-
standendum samúðarkveðjur.
Minning hans mun lengi lifa í döl-
um Skagafjarðar.
Sigurður Sigurðsson.
✝
Þökkum innilega hlýhug, samúð og vináttu
við andlát og útför elskulegs eiginmanns
míns, föður, tengdaföður og afa,
JAKOBS ÓLAFSSONAR,
Foldahrauni 37h,
Vestmannaeyjum.
Elsa Pálsdóttir,
Ólafur Jakobsson, Lovísa Inga Ágústsdóttir,
Elsa Rún og Birkir Freyr.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vináttu við andlát og útför
elskulegrar móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
PÁLÍNU GUÐJÓNSDÓTTUR,
Berjanesi,
Vestur-Landeyjum,
sem lést á heimili sínu laugardaginn
28. janúar.
Erna Árfells, Jón Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkær sonur, faðir, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR FANNAR
tannlæknir,
Háteigsvegi 20,
Reykjavík,
varð bráðkvaddur á heimili sínu miðviku-
daginn 15. febrúar.
Útför fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 24. febrúar
kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hans er bent á gjörgæslu- eða Grensásdeild
Landspítala.
Hanna Aðalsteinsdóttir,
Soffía D. Halldórsdóttir, Daði Friðriksson,
Halla D. Halldórsdóttir, Bjarni Adolfsson,
Halldór Fannar Halldórsson,
Róbert Fannar Halldórsson
og barnabörn.