Morgunblaðið - 22.02.2012, Side 28
28 DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Sudoku
Frumstig
7 4
5 6 7
4 9 3 8
6 4
3 9
7 1
8 3 9 6 5
5
1 8 4
2 6
2 4
9
2 3 5 6
4
9 3 5
1 6 9 2
8 3 6 9
5 1 8 6
3
3 5 8
2 4 5
1 2 9 7 4
8 1 5 7 9
6 7 1
2 4 7
6 8
8 2 3 7 4 6 1 9 5
4 9 7 5 1 8 3 6 2
1 6 5 3 2 9 4 7 8
7 1 8 4 9 3 2 5 6
6 3 2 1 8 5 7 4 9
5 4 9 6 7 2 8 3 1
2 5 6 8 3 7 9 1 4
3 8 4 9 5 1 6 2 7
9 7 1 2 6 4 5 8 3
5 1 4 6 8 3 7 2 9
8 3 7 2 9 1 5 4 6
6 2 9 7 4 5 1 3 8
1 7 2 3 6 9 4 8 5
4 8 5 1 7 2 9 6 3
3 9 6 8 5 4 2 7 1
7 5 1 4 3 8 6 9 2
9 4 3 5 2 6 8 1 7
2 6 8 9 1 7 3 5 4
9 3 1 8 5 4 2 7 6
4 7 6 2 1 3 9 5 8
5 2 8 7 9 6 1 3 4
8 9 5 3 4 1 6 2 7
7 1 4 9 6 2 5 8 3
3 6 2 5 8 7 4 9 1
6 8 7 4 2 5 3 1 9
1 5 3 6 7 9 8 4 2
2 4 9 1 3 8 7 6 5
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 22. febrúar,
53. dagur ársins 2012
Orð dagsins: Og orð hans býr ekki í yð-
ur, því að þér trúið ekki þeim, sem
hann sendi. (Jóh. 5, 38.)
Þegar Víkverji kom heim frá út-löndum um daginn blöstu við
honum ósmekklegustu auglýsingar
sem hann hefur séð í íslenskri versl-
un. Þær var að finna í Fríhöfninni en
það vill svo til að hún er í eigu rík-
isins. Greinilegt er af auglýsing-
unum að Fríhöfnin telur sjálfsagt að
leggja fast að foreldrum að kaupa
sælgæti fyrir börnin sín og helst sem
allra mest af því.
Hér eru nokkur dæmi: Fyrir ofan
stóra poka með hlaupi stóð: „Enga
skeifu bara BROS“. Fyrir ofan of-
urbleik Hello Kitty-leikföng stóð:
„Ertu að GLEYMA einhverjum?“ Á
sælgætisrekka var fullyrt um árang-
urinn af kaupunum: „Lítill pakki lít-
ið bros, stór pakki STÓRT bros“ og
á enn öðrum stað var spurt: „Ferð
þú tómhentur heim?“
x x x
Væru þessar auglýsingar settarupp við sælgætisrekka í ein-
hverri annarri búð, s.s. í Hag-
kaupum eða Krónunni, er Víkverji
næsta viss um að Lýðheilsustöð
myndi gera athugasemdir. Líklega
myndi Lýðheilsustöð benda á að
tannheilsa barna á Íslandi sé verri
en víðast hvar í nágrannalöndunum.
Um leið myndi hún vafalaust nota
tækifærið til minna á að offita sé
einn helsti heilsufarsvandi Vest-
urlandabúa og að offita meðal barna
færist í vöxt. Einnig myndi Lýð-
heilsustöð örugglega benda á að Ís-
lendingar ættu Norðurlandamet í
sykurneyslu. Ekkert er minnst á
þetta ríkisversluninni Fríhöfninni og
það er eðlilegt enda hefur hún allt
önnur markmið en ríkisstofnunin
Lýðheilsustöð. Í Fríhöfninni gildir
sölumennskan og í þessu tilviki er
hún ekki af smekklegri sort.
x x x
Það er gott að Fríhöfnin bjóði uppá sælgæti, leikföng, tölvuleiki
og DVD-myndir fyrir börn í komu-
verslun sinni. Hún ætti aftur á móti
að sjá sóma sinn í að fjarlægja þess-
ar ömurlegu auglýsingar. Um leið
mætti Fríhöfnin íhuga að bjóða líka
barnabækur til sölu. Þær endast
betur en flest annað sem þar er boð-
ið upp á. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 vaðfugl, 8 ungir
hestar, 9 ræfla, 10 ýlfur, 11
hafa fyrir sið, 13 ávinningur,
15 kátur, 18 dreng, 21 skyn-
semi, 22 byggja, 23 verur, 24
liggur á meltunni.
Lóðrétt | 2 ávöxturinn, 3
rudda, 4 stallur, 5 jakaburð-
ur, 6 styrkt, 7 brumhnappur,
12 hrúga, 14 legil, 15 ástand,
16 gestagangur, 17 dökkt,
18 vísa, 19 dóna, 20 bæla sig.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 hnika, 4 fussa, 7 rorra, 8 mágum, 9 rúm, 11 anna, 13
garð, 14 pilla, 15 hopa, 17 traf, 20 stó, 22 gjóta, 23 mætur, 24
skaft, 25 ránið.
Lóðrétt: 1 herða, 2 iðrun, 3 afar, 4 fimm, 5 sigla, 6 afmáð, 10 út-
lit, 12 apa, 13 gat, 15 hagls, 16 prófa, 18 rætin, 19 fárið, 20 satt,
21 ómur.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Djúpköfun.
Norður
♠K972
♥D102
♦873
♣K98
Vestur Austur
♠8 ♠64
♥Á8753 ♥K964
♦DG102 ♦K64
♣D73 ♣G1065
Suður
♠ÁDG1053
♥G
♦Á95
♣Á42
Suður spilar 4♠.
Venjulega er rétt að setja lágt í ann-
arri hendi, alls ekki alltaf – þum-
alputtareglur eru viðmiðanir, ekki al-
gild lögmál. Vandinn er að vita hvenær
eigi að sveigja af leið. Í spili gærdags-
ins snerist málið um að nýta innkomu
millihandar strax. Hér er önnur
ástæða að baki. Suður spilar 4♠. Út-
spilið er ♦D, sem sagnhafi dúkkar,
drepur næsta tígul, tekur tvisvar
tromp og spilar loks hjarta úr borði.
Austur á leikinn.
Þetta er lymskulega spilað. Ef aust-
ur fylgir þumlinum og setur smátt í
slaginn, verður síðar hægt að tromp-
svína fyrir ♥K og þá mun lítið fara fyr-
ir laufslag varnarinnar. Nei, austur
verður að bregða venjunni og stinga
upp kóng. Það er erfið vörn að finna við
borðið, því fæstir kafa djúpt í svo
hversdagslegri stöðu?
22. febrúar 1903
Fríkirkjan í Reykjavík var
vígð. Í söfnuðinum, sem var
stofnaður haustið 1899, voru
þá um fimm þúsund manns.
22. febrúar 1952
Byggingarnefnd Þjóðminja-
safns afhenti menntamála-
ráðherra hús safnsins við Suð-
urgötu, en bygging þess hófst
í ágúst 1945. Húsið var sagt
vera „morgungjöf lýðveldisins
til þjóðarinnar“.
22. febrúar 1979
Menningarverðlaun Dagblaðs-
ins voru veitt í fyrsta sinn. Þau
hafa verið veitt árlega síðan.
22. febrúar 1980
Hæstiréttur kvað upp dóma í
Guðmundar- og Geirfinns-
málum en mennirnir höfðu
horfið rúmum fimm árum áð-
ur. Sex sakborningar voru
dæmdir í fangelsi frá einu ári
upp í sautján ár. „Hæstiréttur
mildaði dóma undirréttarins,“
sagði Dagblaðið.
22. febrúar 1984
Snjóflóð féll á steypustöð á
Ólafsvík. Tveir menn voru
hætt komnir. Húsið eyðilagð-
ist svo og ýmis tæki. Á sama
tíma féllu snjóflóð á veginn um
Ólafsvíkurenni.
22. febrúar 1991
Sigríður Snævarr afhenti
trúnaðarbréf sitt sem sendi-
herra í Svíþjóð og varð þar
með fyrst íslenskra kvenna til
að gegna slíku embætti.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist …
„Hvert ár er áfangi sem ber að fagna,“ sagði Jó-
hann G. Jóhannsson, tónlistarmaður og listmálari,
sem er 65 ára í dag. Hann ætlar að taka því rólega
í dag en tónlistin er honum ofarlega í huga og
stendur til að sinna henni eitthvað á þessu ári.
„Ég ætla að setja nýtt lag í spilun í dag og sjá
hver viðbrögðin verða,“ sagði Jóhann. „Lagið
heitir Á síðasta séns og er sungið af Stefaníu Svav-
arsdóttur. Pétur Hjaltested tók upp lagið. Vignir
Snær Vigfússon spilar á gítar og Ásgeir Ósk-
arsson á trommur. Ég fékk gamla Fender-bassann
minn og spila bassann sjálfur.“
Ófærðin eftir áramótin og einangrunin sem henni fylgdi gaf Jó-
hanni næði til að leggjast yfir nýtt verkefni. „Ég setti saman söngleik
fyrir alla fjölskylduna, hvað sem verður. Ég á mikið efni, t.d. frá því
ég samdi krakkalög með jákvæðum boðskap fyrir Ruth Reginalds. Ég
velti því fyrir mér hvort það mætti raða þessu efni og fleiru í söngleik
og hef verið að fást við það,“ sagði Jóhann. Lagið Hjálpum þeim var
endurútgefið í fyrra til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar. Jóhann
sagði að styðja þyrfti hjálparstarfið allt árið og stendur til að fylgja
endurútgáfu lagsins eftir á þessu ári. gudni@mbl.is
Jóhann G. Jóhannsson er 65 ára
Nýtt lag í spilun í dag
Nýirborgarar
Reykjavík Sóldís
Eva fæddist 24. nóv-
ember kl. 16.42. Hún
vó 3.800 g og var 52
cm löng. Foreldrar
hennar eru Rósey
Reynisdóttir og
Reynir Örn Jóhann-
esson.
Flóðogfjara
22. febrúar Fjara m Flóð m Fjara m Flóð m Fjara m Sólaruppr. Sólsetur
Reykjavík 0.36 0,3 6.47 4,1 13.00 0,2 19.03 3,9 9.01 18.22
Ísafjörður 2.42 0,1 8.43 2,1 15.09 0,1 21.00 1,9 9.14 18.19
Siglufjörður 4.51 0,1 11.09 1,3 17.22 0,0 23.35 1,1 8.57 18.02
Djúpivogur 4.03 2,0 10.09 0,2 16.10 2,0 22.21 0,1 8.33 17.50
Sjávarhæð miðast við meðalstórstraumsfjöru Sjómælingar Íslands/Morgunblaðið
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þú ert kominn út í horn og þarft nú
að setjast niður og hugsa málið upp á nýtt. Ef
einhver sýnir þér rausnarskap skaltu á hinn
bóginn rétta fram höndina og þakka fyrir þig.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Jafnvel ástríkustu vinasambönd lenda í
undarlegum pyttum endrum og sinnum. Fáðu
aðstoð, ef það er það sem þarf til þess að þú
getir staðið við þitt.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Óvissa af þinni hálfu er tækifæri
fyrir aðra til þess að ná stjórninni. Notaðu
innsæi þitt til að velja þá réttu.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Að undanförnu hefurðu þurft að tak-
ast á við gömul vandamál sem tengjast börn-
um eða fornum ástum. Skoðaðu vináttu þína
og annarra.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú skalt stefna að því að eiga notalega
stund með fjölskyldunni í kvöld. Einbeittu þér
að því að grynnka á, í stað þess að bæta við.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þú munt hugsanlega hjálpa vinnu-
félaga þínum að leysa einhvers konar vanda-
mál í dag. Hættu að fela tilfinningarnar þínar,
og deildu þeim frekar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú hrífst af hverju sem er í dag. Farðu
hægar í sakirnar og veltu hlutunum vandlega
fyrir þér áður en þú segir af eða á.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Einhver á eftir að koma þér
skemmtilega á óvart með ummælum sínum
um þig og þín störf. Allt á sinn tíma og nú er
það vinnan sem þarf að hafa forgang.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er alltaf heppilegra að vera
sveigjanlegur heldur en að sitja fastur í ein-
hverju hjólfarinu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Þú ert óvenjugóðhjartaður og
samúðarfullur þessa dagana. Gerðu allt sem
þér er unnt til þess að byggja upp þína eigin
sjálfsmynd, í stað þess að iðka niðurrif.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Dagurinn í dag er kjörinn til að
fara í gegnum eigur sínar, tímarit, bækur og
hluti sem þú hefur haldið í heima hjá þér.
Taktu óhrædd(ur) við aukinni ábyrgð.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Efasemdir um sjálfa(n) þig og lísvið-
horf þitt valda þér hugarangri. Fólk er tilbúið
til að hjálpa þér og veita þér þann stuðning
sem þú þarft til að ljúka ákveðnu verki.
Stjörnuspá
1. d4 Rf6 2. Rf3 e6 3. Bg5 c5 4. e3 b6 5.
Rbd2 cxd4 6. exd4 Bb7 7. Bd3 Be7 8. c3
d6 9. De2 Rbd7 10. a4 Rd5 11. Be3 a6
12. a5 b5 13. Re4 Rf8 14. Bd2 Rg6 15.
g3 h6 16. c4 bxc4 17. Bxc4 O-O 18. Bd3
Dd7 19. O-O e5 20. Rc3
Staðan kom upp á Skákþingi
Reykjavíkur, Kornax-mótinu, sem lauk
fyrir skömmu í húsakynnum Taflfélags
Reykjavíkur. Alþjóðlegi meistarinn
Bragi Þorfinnsson (2426) hafði svart
gegn Haraldi Baldurssyni (2000). 20…
Rdf4! 21. Bxf4 Rxf4 22. De3 Dh3 23.
Re1 Rg2! Svartur vinnur nú skipta-
mun. 24. Bf5 Rxe3 25. Bxh3 Rxf1 26.
Kxf1 exd4 27. Re2 Bf6 28. Hd1 Hfe8
29. Rxd4 Bxd4 30. Hxd4 Bc6 31. Rd3
Bb5 32. Bg4 He4 33. Hxe4 Bxd3+ 34.
He2 Hb8 35. Kg2 Bxe2 36. Bxe2 Hxb2
37. Bxa6 Ha2 38. Kf3 Hxa5 og hvítur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
Svartur á leik.