Morgunblaðið - 22.02.2012, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
Skrímslið litla systir mín erbarnaleikrit sem er sýnt íNorræna húsinu af leikhús-inu Tíu fingrum. Í því segir
frá hugmyndaríkum strák sem eign-
ast litla systur. Í hans augum er hún
lítið skrímsli, sem étur allt sem hún
kemst í, meðal annars mömmu hans.
Strákurinn er hugrakkur og
ákveður að bjarga heiminum og
mömmu sinni frá litla skrímslinu. Til
þess ferðast hann um skuggalegar
lendur; skóga, hella og drekaslóðir.
Hann fer með systur sína alla leið út
á heimsenda og á leiðinni þangað
lærir hann að elska hana, hún er
nefnilega lítið, skrítið og skemmti-
legt skrímsli.
Þetta er óvenjuleg leiksýning –
engin læti, glys og græjur. Sviðs-
myndin er stórir pappírsstrangar
sem Helga Arnalds skapar söguna á.
Hún málar, sker og rífur. Hún lætur
pappírinn lifna við á ótrúlegan hátt.
Helga er líka sögumaðurinn, leikur
hlutverkin og notast við fingra-
brúður. Ég hef aldrei séð viðlíka
heim skapaðan úr jafn „litlu“. Sagan
og persónurnar lifnuðu við á auð-
veldan hátt. Tónlist og ljós hjálpa
svo til við sköpunina og tekst all-
staðar jafn vel til.
Sýning er rúmur hálftími að lengd
og allan tímann sat ég bergnumin,
það er ekki oft sem manni er boðið
inn í slíkan ævintýraheim. Börnin
sátu líka heilluð og lifðu sig inn í sög-
una. Þetta er leikrit er þó ekki fyrir
mjög ung börn að mínu mati, ekki
mikið yngri en 3 ára. Að sýningu lok-
inni fengu börnin að búa til dreka úr
pappírnum sem var notaður í sýn-
ingunni. Það þótti þeim spennandi
og fylgdarsveinn minn, 4 ára, er enn
að leika sér að sínum; láta hann
fljúga, vera kolkrabba eða marg-
fættan karl. Það þarf ekki meira til
en tættan pappír og límband til að
skapa heilan heim fyrir börn.
Skrímslið litla systir mín er ein
magnaðasta leiksýning sem ég hef
séð. Sýningin er virkilega vel gerð,
sannfærandi og lætur hugann vinna
sitt verk í að skapa enn stærri æv-
intýraheim en sést á sjálfu sviðinu.
Ævintýri Helga Arnalds skapar ótrúlegan ævintýraheim fyrir börn og full-
orðna úr pappír í verkinu Skrímslið litla systir mín.
Magnaður ævintýraheim-
ur skapaður úr pappír
Barnarleikrit
Skrímslið litla systir mín bbbbb
Leikhúsið 10 fingur. Norræna húsið, 19.
febrúar 2012. Höfundur og flytjandi:
Helga Arnalds. Leikstjóri: Charlotte Bö-
ving. Tónlist: Eivör Pálsdóttir. Búningar:
Eva Signý Berger. Lýsing: Jóhann Bjarni
Pálmsson.
INGVELDUR
GEIRSDÓTTIR
LEIKHÚS
Hljómsveitin Tenórarnir tveir, sem
er samstarfasverkefni saxófónleik-
aranna Stefáns S. Stefánssonar og
Ólafs Jónssonar, leikur á fyrstu
tónleikum tónleikararðar Jazz-
klúbbsins Múlans á nýju ári sem
fram fara í Norræna húsinu í kvöld
kl. 21. Með þeim leika Agnar Már
Magnússon píanóleikari, Þor-
grímur Jónsson bassaleikari og
Einar Scheving sem leikur á
trommur.
Dúó Ólafur og Stefán leika saman í kvöld.
Tenórarnir tveir
leika í Múlanum
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Marteinn Helgi Sigurðsson, lektor í
íslenskum fræðum við Kaup-
mannahafnarháskóla, fjallar um
Grím geitskó og upphaf Alþingis á
rannsóknarkvöldi Félags íslenskra
fræða sem fram fer í kvöld kl. 20 í
fundarsal ReykjavíkurAkademíunn-
ar í JL-húsinu við Hringbraut 121.
„Umfjöllun Ara fróða um stofnun
þjóðríkisins í Íslendingabók er ein
af þessum grundvallarmýtum ís-
lensks þjóðfélags. Talsvert hefur
verið fjallað um Úlfljót sem kom
með lögin frá Noregi í kringum
930, en mun minna um fóstbróður
hans, Grím geitskó. Það eina sem
við vitum er að Grímur fór, að ráði
Úlfljóts fóstbróður síns, í sérstaka
sendiför um Ísland allt,“ segir Mar-
teinn og tekur
fram að menn
greini á um hver
hafi verið til-
gangur ferð-
arinnar.
„Margir halda
að tilgangurinn
hafi verið að
kanna und-
irtektir lands-
manna við starf
Úlfljóts og þá hugmynd að stofna
þing. Aðrir halda að Grímur hafi
einnig átt að finna þingstað á Ís-
landi, en samband Gríms við val á
þingstað er mjög dularfullt,“ segir
Marteinn og bendir á að landið Blá-
skógar hafi lent í almenningseign
þegar eigandi landsins myrti einn
þræla sinna og var í framhaldinu
gerður útlægur. „Það er afar hent-
ugt að þarna hafi maður myrt
mann með þeim afleiðingum að
þessi ótrúlegi staður, þ.e. Þingvellir
við Öxará, hafi getað orðið þing-
staður,“ segir Marteinn og tekur
fram að hann ætli að skoða tengsl
Gríms við þá atburði. „Ég reyni
sérstaklega að varpa ljósi á Grím í
tengslum við bardagann mikla sem
braust út á þinginu eftir Njáls-
brennu um árið 1011. Þá snerist Al-
þingi í andhverfu sína, þ.e. Þing-
völlur varð vígvöllur, þar sem
þjóðfélagið hrundi og lögin dugðu
ekki lengur. Þegar frásagnir af
þessum atburðum eru skoðaðar sér
maður að rifjað er upp hvernig
landið varð að þingstað og hvaða
hræðilegu atburðir lágu þar að
baki. Sagan um upphaf þingsins
minnir fólk á hvað gerist þegar
menn halda ekki lög og frið.“
Hver var Grímur geitskór?
Marteinn H.
Sigurðsson
Tilkynnt hefur verið um þau tónlistarmyndbönd og plötuumslög sem eru til-
nefnd til Íslensku tónlistarverðlaunanna. Myndböndin eru „Kimba“ með Retro
Stefson (leikstjóri Árni Sveinsson), „Over“ með GusGus (Ellen Lofts og Þor-
björn Ingason), „Smashed Birds“ með Sóley (Ingibjörg Birgisdóttir), „Two Bo-
ys“ með Sin Fang (Ingibjörg Birgisdóttir) og „Slowlights“ með Sin Fang (Máni
M. Sigfússon). Plötuumslögin eru Arabian Horse með GusGus (hönnun Paul
McMenamin), Summer Echoes með Sin Fang (Ingibjörg Birgisdóttir), Órar
með Hjálmum (Bobby Breiðholt), Inni með Sigur Rós (Sarah Hopper) og Me-
sópótamía með Sykri (Siggi Odds). Athygli vekur að Ingibjörg Birgisdóttir er
með samtals þrjár tilnefningar. Á vef mbl.is er hafin kosning á vinsælasta tón-
listarflytjandanum. Kosningin stendur yfir til miðnættis 28. febrúar.
Bestu plötuumslög og
tónlistarmyndbönd ársins
Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið)
Fim 1/3 kl. 19:30 Forsýn Mið 28/3 kl. 19:30 11.sýn Mið 25/4 kl. 16:00 AUKAS.
Fös 2/3 kl. 19:30 Forsýn Fim 29/3 kl. 19:30 12.sýn Fös 27/4 kl. 19:30 18.sýn
Lau 3/3 kl. 19:30 Frums Fös 30/3 kl. 19:30 AUKAS. Lau 28/4 kl. 19:30 19.sýn
Fös 9/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 31/3 kl. 19:30 AUKAS. Sun 29/4 kl. 19:30 20.sýn
Lau 10/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 1/4 kl. 19:30 13.sýn Fös 4/5 kl. 19:30 21.sýn
Sun 11/3 kl. 19:30 4.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 14.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 22.sýn
Fös 16/3 kl. 19:30 5.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 AUKAS. Sun 6/5 kl. 19:30 23.sýn
Lau 17/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 AUKAS. Fös 11/5 kl. 19:30 24.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 12/5 kl. 19:30 25.sýn
Fös 23/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 20/4 kl. 19:30 AUKAS. Sun 13/5 kl. 19:30 26. sýn
Lau 24/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 16.sýn
Sun 25/3 kl. 19:30 10.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 17.sýn
Athugið - einungis sýnt í vor!
Heimsljós (Stóra sviðið)
Lau 25/2 kl. 19:30 16.sýn Fim 8/3 kl. 19:30 18.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 síð.sýn
Sun 26/2 kl. 19:30 17.sýn Mið 14/3 kl. 15:00 AUKAS.
Ein ástsælasta saga Nóbelsskáldsins í nýrri leikgerð.
Dagleiðin langa (Kassinn)
Fös 24/2 kl. 19:30 Frums. Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 9.sýn
Mið 29/2 kl. 19:30 2.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 10.sýn
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 11.sýn
Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 12.sýn
Frumsýnt 24.febrúar
Litla skrímslið og stóra skrímslið í leikhúsinu (Kúlan)
Sun 26/2 kl. 13:30 Sun 4/3 kl. 13:30 Sun 11/3 kl. 15:00
Sun 26/2 kl. 15:00 Sun 4/3 kl. 15:00 Sun 18/3 kl. 13:00
Sun 26/2 kl. 17:00 AUKAS. Sun 11/3 kl. 13:30 Sun 18/3 kl. 15:00
Hjartnæm og fjörmikil sýning
Sjöundá (Kúlan)
Lau 25/2 kl. 19:30 Fim 8/3 kl. 19:30 Fim 15/3 kl. 19:30
Sun 4/3 kl. 19:30 Mið 14/3 kl. 19:30
Ný leiksýning um morðin á Sjöundá
Orð skulu standa (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 23/2 kl. 21:00 Fim 1/3 kl. 21:00 Fim 8/3 kl. 21:00
Útvarpsþátturinn Orð skulu standa öðlast nýtt líf á sviði!
Nei Ráðherra – í Hofi í mars.
Fanný og Alexander (Stóra sviðið)
Fim 23/2 kl. 20:00 aukas Sun 4/3 kl. 20:00 aukas Lau 17/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 10.k Fim 8/3 kl. 20:00 Sun 18/3 kl. 20:00 aukas
Lau 25/2 kl. 20:00 aukas Fös 9/3 kl. 20:00 Fös 23/3 kl. 20:00
Fim 1/3 kl. 20:00 11.k Sun 11/3 kl. 20:00 aukas Sun 25/3 kl. 20:00 aukas
Fös 2/3 kl. 20:00 12.k Fim 15/3 kl. 20:00 aukas Lau 31/3 kl. 20:00 lokas
Hin stórbrotna fjölskyldusaga loks á svið. Sýningum lýkur í mars
Galdrakarlinn í Oz (Stóra sviðið)
Lau 25/2 kl. 14:00 Sun 4/3 kl. 14:00 Sun 18/3 kl. 14:00
Sun 26/2 kl. 14:00 Sun 11/3 kl. 14:00 Sun 25/3 kl. 14:00
Einn vinsælasti fjölskyldusöngleikur allra tíma
NEI, RÁÐHERRA! (Menningarhúsinu Hofi)
Lau 3/3 kl. 21:00 Lau 10/3 kl. 22:00 aukas Fös 16/3 kl. 22:00
Lau 10/3 kl. 19:00 Fös 16/3 kl. 19:00
Gríman: Áhorfendasýning ársins 2011. Sýnt í Hofi í mars
Eldhaf (Nýja sviðið)
Fim 23/2 kl. 20:00 11.k Fim 1/3 kl. 20:00 14.k Sun 11/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 12.k Fös 2/3 kl. 20:00 15.k Fim 15/3 kl. 20:00
Lau 25/2 kl. 20:00 aukas Sun 4/3 kl. 20:00 16.k Sun 18/3 kl. 20:00
Sun 26/2 kl. 20:00 aukas Fim 8/3 kl. 20:00
Mið 29/2 kl. 20:00 13.k Fös 9/3 kl. 20:00
Ath! Snarpur sýningartími. Síðustu sýningar
Axlar - Björn (Litla sviðið)
Lau 25/2 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 Fim 15/3 kl. 20:00
Sun 26/2 kl. 20:00 Fim 8/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00
Nýtt verk úr smiðju Vesturports. Síðustu sýningar
Saga Þjóðar (Litla sviðið)
Fim 23/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00 Sun 11/3 kl. 20:00
Fös 24/2 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00 Fös 16/3 kl. 20:00
Fös 2/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Lau 17/3 kl. 20:00
Íslandssagan á hundavaði í tónsjónleik með Hundi í óskilum. Á Stóra sviðinu 11/2
Gói og baunagrasið (Litla sviðið)
Lau 25/2 kl. 13:00 5.k Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 18/3 kl. 13:00
Lau 25/2 kl. 14:30 aukas Sun 4/3 kl. 14:30 Sun 25/3 kl. 13:00
Sun 26/2 kl. 13:00 Sun 11/3 kl. 13:00 Mið 28/3 kl. 13:00
Sun 26/2 kl. 14:30 Sun 11/3 kl. 14:30
Leikhústöfrar með Góa og Þresti fyrir börn á öllum aldri
Mínus 16 (Stóra sviðið)
Mið 22/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00 Fös 16/3 kl. 20:00
Sun 26/2 kl. 20:00 4.k Lau 10/3 kl. 20:00
Íslenski Dansflokkurinn - Verk eftir rokkstjörnu dansheimsins Ohad Naharin
Sinfóníuhljómsveit Íslands
Örfá sæti laus
Miðasala » www.sinfonia.is » www.harpa.is » 528 5050
Eftirlætis barokk fim. 23.02. Kl. 19.30
Stjórnandi og einleikari: Isabella Longo
Einsöngvari: Simone Kermes
Arcangelo Corelli: Concerto grosso op. 6 nr. 4
Giuseppe Tartini: „A rivi,a fonti,a fiumi“, úr
fiðlukonserti í A-dúr
G.F. Händel: Óperuaríur
Antonio Vivaldi: Óperuaríur
Antonio Vivaldi: Konsert í g-moll fyrir strengi og fylgibassa
Tectonics tónlistarhátíð 1.- 3. mars
Árleg tónlistarhátíð helguð nýrri tónlist, bæði innlendri og
erlendri, í samstarfi við tónlistarmenn úr ýmsum áttum.
Listrænn stjórnandi er Ilan Volkov. Kynnið ykkur dagskrána
á tectonicsfestival.com eða á sinfonia.is