Morgunblaðið - 22.02.2012, Qupperneq 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 2012
AF TÖLVULEIKJUM
Friðjón Fannar
Hermannsson
fridjon@mbl.is
Ultimate fighting cham-pionship„UFC“, er stærstafyrirtækið í heiminum sem
skipuleggur og stendur fyrir keppn-
um í blönduðum bardagaíþróttum
eða mixed martials arts „MMA“.
Þessir bardagar fara fram á átt-
hyrndum leikvelli og eru oftast nær
þrjár lotur í hverjum bardaga en
hver lota varir í fimm mínútur. Svip-
að og í boxi þá eru það dómarar sem
úrskurða sigurvegara samkvæmt
stigakerfi ef sigur fæst ekki með rot-
höggi, tæknilegu rothöggi eða upp-
gjöf annars hvors keppandans. Regl-
urnar eru frjálslegri og ruddalegri
en í boxi og má m.a. sparka, kýla,
slá, fleygja mönnum til til að vinna
knýja fram sigur. Það má hins vegar
ekki bíta, skalla, rífa í hár, sparka í
klof eða aftan í höfuð!
Þessi nýútkomni tölvuleikur
fyrir PS3 er sá þriðji í röðinni frá
UFC og hafa framleiðendur hans
lagt í miklar endurbætur frá fyrri
leikjum.
Fyrri leikirnir voru víst fullerf-iðir viðureignar að því leyti að
stjórn á leikmanninum var stirð og
of flóknar skipanir þurfti til þess að
ná fram árangursríkum bardaga-
brögðum. Mér finnst viðleitni þeirra
að einfalda leikinn hafa tekist ágæt-
lega til. Grafík er ansi flott og eru
bardagarnir flottir og raunveruleg-
ir. Boðið er upp á góða æfinga-
kennslu til að kenna helstu brögðin
og undirbúa spilarann fyrir kom-
andi átök.
Þú getur valið um 150 leikmenn
í átta mismunandi þyngdarflokkum
Að berjast eða ráðast á?
eða valið að byggja upp þinn eigin
leikmann. Spilarar geta valið eigin
bardagaaðferð sem hentar hverjum
og einum og hafið æfingar. Kickbox-
ing, Brazilian jiu-jitsu, karate, Muay
Thai, wrestling eða judó er meðal
þeirra bardagaaðferða sem þú getur
valið um.
Það sem gerir þennan leik eigu-
legan og endingargóðan er sú stað-
reynd að það eru svo margar út-
færslur á því hvernig hægt er að
spila hann.
Í grunninn má segja að um sé
að ræða tvær leiðir, annars vegar
hefðbundinn UFC-bardaga og svo
„Pride“-aðferðina þar sem svo gott
sem allt er leyft. Sá bardagi fer fram
í venjulegum ferhyrndum boxhring
og telur þrjár lotur. Fyrsta lotan er
10 mínútur og næstu tvær 5 mín-
útur. Þar reynir mikið á úthald og
skipulag bardagans.
Ultimate Fight mode: Þar get-ur spilari endurspilað marga
af eftirminnilegustu bardögum
UFC, valið hvorn bardagamanninn
sem er og reynt að sigra eða verja
titla. Þegar leikmaður hefur unnið
alla bardagana hlýtur hann verðlaun
sem eru myndbandsupptökur frá al-
vöru bardögunum, nokkuð nett!
Netspilunin er góð og þar reyn-ir virkilega á getu hvers og eins
leikmanns. Fyrst þegar ég spilaði
leikinn valdi ég að spila á léttasta
stigi eða level og fór beint í Title
Race. Þar vann ég alla átta bardag-
ana mína nær eingöngu með því að
spila eins og boxari og varð meistari.
Í framhaldi af þessari góðu byrjun
fór ég og spilaði leikinn á netinu. Í
stuttu máli, þá var ég laminn sundur
og saman, rotaður og tekinn út í
fyrstu lotu.
Helsti galli þessa leiks er sú
langa bið meðan leikurinn er að
hlaða sig inn fyrir bardaga og drepur
það svolítið stemninguna. En þegar í
bardagann sjálfan er komið er upplif-
unin svolítið á pari við það að vera að
horfa á beina útsendingu frá alvörub-
ardaga. Grafíkin og framsetningin er
flott, þegar þungu höggin eða spörk-
in hitta andstæðinginn lækkar tón-
listin, stýripinninn nötrar og þú upp-
lifir bardagann ansi vel. Þetta
hljómar allt svo gróft og blóðugt, en
það er einmitt svolítið kjarninn í
UFC.
UFC Undisputed 3 er massa-
flottur slagsmálaleikur þar sem
mörg fornfræg bardagaform mætast
í hringnum. Ofbeldið er mikið og
vakin er athygli á því að leikurinn er
ekki ætlaður 13 ára og yngri.
»Helsti galli þessaleiks er sú langa bið
meðan leikurinn er að
hlaða sig inn fyrir bar-
daga og drepur það svo-
lítið stemninguna.
Tölvuleikur Grafíkin hefur tekið völdin í flestum tölvuleikjum og þykir orðin ansi raunveruleg og nákvæm.
Vilhjálmur A. Kjartansson
vilhjalmur@mbl.is
Læknirinn syngjandi, Helgi Júlíus
Óskarsson, hefur gefið út þrjár plöt-
ur á undanförnum tveimur árum en
að hans sögn hefur tónlistin alltaf
verið honum kær. „Áhugi minn á
tónlist byrjaði snemma og sem ung-
lingur var ég töluvert í tónlistinni.
Ég fór síðan í læknisfræði og
eftir að ég fór
út í framhalds-
nám gafst lítill
tími fyrir tónlist-
ina nema bara
rétt á kvöldin til
að slaka á eftir
vinnu,“ segir
Helgi sem ílengd-
ist úti í tuttugu og
fimm ár. „Eftir að
ég kom heim og mér
hefur gefist meiri
tími til að sinna tón-
listinni hef ég minnk- að við mig
læknastörfin og gefið tónlistinni enn
meiri tíma.“ Helgi fór að taka upp
lagahugmyndir sínar og kom þeim á
endanum til KK sem hvatti hann til
þess að gefa út tónlistina og kom
honum í samband við trúbadorinn
Svavar Knút. „Svavar tók að sér
verkefnið og hjálpaði mér með út-
setningu og hljóðfæraleik. Frá þeim
tíma hef ég gefið út þrjár plötur en
sú fyrsta kom út 2010 og heitir Sun
for a Lifetime og síðan gaf ég út
plötuna Haustlauf í nóvember og í
janúar gaf ég út plötuna Kominn
heim.“
Þjóðlagapoppið, reggí og blús
Fyrstu tvær plötur Helga eru í ró-
legri kantinum og lýsir hann þeim
sjálfur sem þjóðlagapoppi af rólegri
endanum. Nýjasta plata hans Komin
heim er þó af öðrum toga en þar er
að finna reggítónlist sem Helgi held-
ur mikið upp á. „Margir hafa komið
að máli við mig og sagt mér að fyrstu
tvær plöturnar minni á
tónlist James Taylor og
Paul Simon. Nýja platan
er svo í allt öðrum stíl
eða reggí og næsta
plata sem ég vinn að
verður blúsplata.“
Margir tónlist-
armenn eru farnir að
gefa út plötur sínar á
vínil ásamt því að
selja tónlistina á
netinu en Helgi
segist ekki hafa
nein áform um vínilútgáfu.
„Það kostar sitt að brenna tónlistina
á geisladiska og ég get ímyndað mér
að vínillinn sé töluvert dýrari. Það er
líka erfitt að selja tónlist í dag því
ungt fólk hleður hana af netinu svo
ég sé bara til með framhaldið og ví-
nilinn.“
Aðspurður um tónleikahald segist
Helgi vera að vinna í því að halda
tvöfalda útgáfutónleika í vor og geta
þá aðdáendur tónlistar hans fengið
að heyra bæði blúslög eftir hann og
reggítónlist en Helgi segist vilja
hafa í bland tónlist af nýjustu plöt-
unni og þeirri sem hann er að vinna
að í dag.
Morgunblaðið/Golli
Helgi Júlíus Hjartalæknir og tónlistarmaður sinnir hjörtum annarra þegar
hann mætir í vinnuna en í frítímanum sínum hjartans málum, tónlistinni.
Fagrir tónar frá
Helga Júlíusi
SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.ISGLERAUGU SELD SÉR 5%
THIS MEANS WAR KL. 5.45 - 8 - 10.15 14
THIS MEANS WAR LÚXUS KL. 5.45 - 8 - 10.15 14
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5 10
SAFE HOUSE KL. 5.30 - 8 - 10.30 16
SKRÍMSLI Í PARÍS 3D KL. 3.30 L
CHRONICLE KL. 6 - 8 - 10 12
CONTRABAND KL. 8 - 10.30 16
ALVIN OG ÍKORNARNIR 3 KL. 3.40 L
TOPPMYNDIN Á ÍSLANDI Í DAG!
FRÉTTABLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS
THIS MEANS WAR KL. 8 - 10 14
SAFE HOUSE KL. 10 16
STAR WARS EPISODE 1 3D ÓTEXTUÐ KL. 5.40 10
SÁ SEM KALLAR KL. 6 L
FRÁBÆR GRÍNHASARMYND SEM ENGIN MÁ MISSA AF!
FT/SVARTHÖFÐI.IS
N.R.P., BÍÓFILMAN.IS A.E.T, MORGUNBLAÐIÐ
H.V.A. FRÉTTABLAÐIÐ
THIS MEANS WAR KL. 5.45 - 8 - 10.15 14
STAR WARS EP1 3D ÓTEXTUÐ KL. 6 - 9 10
SAFE HOUSE KL. 8 - 10.30 16
THE DESCENDANTS KL. 5 .30 L
LISTAMAÐURINN KL. 6 - 8 - 10 L
TOTAL FILMBOXOFFICE MAGAZINE
SVARTHÖFÐI.IS
SVARTHÖFÐI.IS
Tryggðu þér miða á www.hhi.is, í síma 8OO 66 11
eða hjá næsta umboðsmanni.
DRÖGUM
24.
FEBRÚAR
Nú er vinningurinn 2O milljónir á einn miða.
Í hverri Milljónaveltu drögum við að auki út
5 stakar milljónir, aðeins úr seldum miðum.
MILLJÓNAVELTAN VELTUR ÁFRAM!
NÚ KEYRUM VIÐ ÚT MILLJÓNIR
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
02
09