Morgunblaðið - 22.02.2012, Qupperneq 36
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Klettadrangar með einhverju fegursta og
fjölbreyttasta stuðlabergi á Norðausturlandi
Seljahjallagil er víða 100-150 metra djúpt og um 500 m breitt að meðaltali.
Nyrst í gilinu hefur leysingavatn grafið nýtt gil ofan í hraunið og koma þar
fram miklir klettadrangar með einhverju fegursta og fjölbreyttasta stuðla-
bergi sem finnst á austanverðu Norðurlandi. Einn gígurinn í jarðeldunum
þegar Laxárhraun yngra rann er í gilinu. Hraunið rann um Mývatnssvæðið,
niður Laxárdal allt að Skjálfanda. Mývatn varð til í núverandi mynd.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Þetta er í sjálfu sér ekki í hættu en
rétt þótti að setja undir lekann, svo
ekki sé tekin áhætta með það,“ segir
Hjörleifur Sigurðarson, bóndi á
Grænavatni IV í Mývatnssveit. Unn-
ið er að friðlýsingu Seljahjallagils,
Bláhvamms og nágrennis, í landi
jarðarinnar, í góðu samkomulagi
Umhverfisstofnunar, landeigenda
og sveitarstjórnar Skútustaða-
hrepps.
Friðlýsing svæðisins sem náttúru-
vættis hefur verið auglýst og búast
má við að umhverfisráðherra stað-
festi hana fljótlega, hugsanlega í
næstu viku. Þá tekur við vinna við
verndaráætlun.
Svæðið er friðað vegna merkra
minja frá jarðeldunum sem skópu
Mývatn og umgjörð þess.
Þarf að laga veginn
Jeppaslóði liggur að svæðinu og
búast má við að áhugi aukist á að
fara þangað vegna umræðu um feg-
urð þess og friðun. Hjörleifur á
Grænavatni segir að einn og einn sé
að fara inn að Seljahjallagili og ein-
hverjar gróðurskemmdir hafi orðið
vegna þess.
Hann segir að friðunin sé meðal
annars gerð í þeim tilgangi að um-
hverfisráðuneytið taki ábyrgð á
svæðinu og beiti sér fyrir bættu að-
gengi fólks.
Bergþóra Kristjánsdóttir, sér-
fræðingur hjá Umhverfisstofnun á
Mývatni, segir venju að tekið sé á
slíkum málum við gerð verndaráætl-
unar sem komi í kjölfar friðlýsingar.
Hún segir svæðið viðkvæmt og það
þoli ekki mikinn ágang. Því sé betra
að undirbúa það áður en ferðafólki
verði beint þangað. Hún telur brýn-
ast að gera göngustíga og merkja
hættu sem er á leiðinni, meðal ann-
ars við gil. Þá þurfi að koma fyrir
upplýsingaskiltum.
Á síðasta ári var samþykkt frið-
lýsing Dimmuborga og Hverfjalls.
Bergþóra bendir á að þeirri friðun
hafi fylgt fimm milljóna króna fjár-
veiting til að gera svæðinu til góða.
Náttúruperlur
verða friðaðar
Haust Bláhvammur er gróðurríkt hlíðasvæði suður af Seljahjallagili, vaxið
birkiskógi og blómgróðri. Klettahvilft sem jökulvatn hefur grafið.
Seljahjallagil lýst náttúruvætti
MIÐVIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 53. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Grétar Rafn trúlofaður
2. Lést í umferðarslysi í Tansaníu
3. Bjórkvöld fór úr böndunum
4. Sofið í strætóskýlum
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Sin Fang og Captain Fufanu spila á
Undiröldunni, tónleikaröð sem fram
fer í Hörpu næsta föstudag. Langt er
síðan Sin Fang hefur komið fram hér
á landi en hann er tilnefndur til Ís-
lensku tónlistarverðlaunanna. »31
Sin Fang kemur
fram í Undiröldunni
Fjörutíu breskir
nemendur í kvik-
myndagerð við
háskólann í Cov-
entry eru á leið-
inni til Íslands á
næstu dögum.
Ætlun þeirra er að
skjóta þrjár stutt-
myndir og eina
heimildamynd í Reykjavík og ná-
grenni. Verkefnið kallast The Grýla
Project. Það er Jón Gústafsson sem
er milliliður í verkefninu.
Nemendur í kvik-
myndagerð til Íslands
Valgeir Guðjónsson mun skunda
með hljómsveit og gesti til Vest-
mannaeyja á föstudaginn og leika í
Höllinni. Með Valgeiri verður sex
manna hljómsveit skipuð
þeim Jóni Ólafssyni,
Stefáni Má Magnússyni,
Eyjólfi Kristjánssyni,
Ásgeiri Ósk-
arssyni og Tóm-
asi Tómassyni.
Gestir verða
Ragga Gísla og
Diddú.
Valgeir Guðjónsson
í Vestmannaeyjum
Á fimmtudag Austlæg átt 8-15 m/s og rigning eða slydda, en
snjókoma með köflum á N-landi. Hiti kringum frostmark S-til.
Á föstudag Él víða um land, einkum fyrripartinn. Frost 0 til 5 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG NA 3-10 m/s á N-verðu landinu og of-
ankoma, en suðvestlæg átt S-lands og skúrir eða slydduél. Yfirleitt
úrkomulítið í kvöld. Hiti 1 til 6 stig síðdegis.
VEÐUR
Andre Villas-Boas, knatt-
spyrnustjóri Chelsea, er
orðinn mjög valtur í sessi
og ekki lagaðist staða
hans í gærkvöldi þegar
Lundúnaliðið beið lægri
hlut fyrir Napoli, 3:1, í
Meistaradeildinni. Í Moskvu
náðu heimamenn í CSKA
jafntefli gegn níföldum
Evrópumeisturum Real
Madrid þar sem Cristiano
Ronaldo var enn og aftur á
skotskónum. »3
Villas-Boas orð-
inn valtur í sessi
Theódór Elmar Bjarnason knatt-
spyrnumaður verður frá keppni í sex
til átta mánuði hið minnsta en hann
sleit krossband í hné á laugardaginn.
„Sjálfsagt er aldrei hægt
að tala um að maður
meiðist á góðum tíma,
en það er þó óhætt
að segja að
þessi meiðsli
hjá mér
hafi komið
á versta
tíma,“ sagði
Elmar við
Morgun-
blaðið. »2
Þessi meiðsli komu á
versta tíma
Íslenska landsliðið í handknattleik
karla verður í fyrsta styrkleikaflokki
þegar dregið verður í riðla fyrir und-
ankeppni Evrópumóts landsliða í
Kaupmannahöfn föstudaginn 20.
apríl. Þetta er ljóst eftir að Hand-
knattleikssamband Evrópu gaf út
styrkleikalista sinn fyrir síðustu
helgi. Íslenska landsliðið er í fimmta
sæti listans. »1
Íslendingar í fyrsta
styrkleikaflokki
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á