Morgunblaðið - 28.02.2012, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. FEBRÚAR 2012
Meistaramót Íslands í frjáls-
íþróttum fyrir 11-14 ára fór fram í
Laugardalshöllinni um helgina. FH
sigraði í stigakeppni félagsliðanna
með 432 stig samtals, eftir harða
keppni við ÍR sem var með 422 stig í
öðru sætinu. HSK/Selfoss fékk 336,8
stig í þriðja sæti, Breiðablik var með
278,5 stig í fjórða sæti, UMSS 192,5
stig í 5. sæti og Fjölnir var í 6. sæti
með 169,5 stig. Alls fengu nítján fé-
lög eða sambönd stig á mótinu.
Keppendur voru 363 talsins og
fjöldi skráninga í mótið var 1.578.
Sigursælustu keppendur mótsins
voru Þórdís Eva Steinsdóttir úr FH
sem vann fjórar greinar í flokki 12
ára stúlkna og Irma Gunnarsdóttir
úr Breiðabliki sem vann fjórar
greinar í flokki 14 ára stúlkna.
Sigurvegarar í einstökum flokk-
um og greinum voru eftirtaldir:
11 ára
Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir, ÍR
(60 m hlaup, 800 m hlaup, lang-
stökk), Arnór Ingi Kristinsson, FH
(60 m hlaup, langstökk), Gunnar B.
Sigmarsson, FH (800 m hlaup), Kar-
en Birta Jónsdóttir, Fjölni (há-
stökk), Atli Barkarson, HSÞ (há-
sstökk), Matthildur Dís
Sigurjónsdóttir, FH (kúluvarp),
Gísli Ölversson, Breiðabliki (kúlu-
varp).
A-sveitir ÍR unnu 4x200 m boð-
hlaup, bæði stúlkna og pilta.
12 ára
Þórdís Eva Steinsdóttir, FH (60
m hlaup, 800 m hlaup, langstökk,
kúluvarp), Daníel Ingi Egilsson, FH
(60 m hlaup, langstökk), Hinrik
Snær Steinsson, FH (800 m hlaup),
Ylfa Guðrún Svafarsdóttir, Breiða-
bliki (hástökk), Pétur Már Sigurðs-
son, HSK/Selfossi (hástökk), Stefán
Narfi Bjarnason, HSK/Selfossi
(kúluvarp).
Sveitir FH unnu 4x200 m boð-
hlaup, bæði stúlkna og pilta.
13 ára
Halla María Magnúsdóttir, HSK/
Selfoss (60 m hlaup, 60 m grinda-
hlaup, kúluvarp), Reynir Zoéga
Geirsson, Breiðabliki (60 m hlaup,
800 m hlaup, langstökk), Hlín Heið-
arsdóttir, Fjölni (800 m hlaup, há-
stökk), Styrmir Dan Steinunnarson,
HSK/Selfossi (60 m grindahlaup, há-
stökk, kúluvarp), Harpa Svans-
dóttir, HSK/Selfossi (langstökk),
A-sveitir ÍR unnu 4x200 m boð-
hlaup, bæði stúlkna og pilta.
14 ára
Irma Gunnarsdóttir, Breiðabliki
(60 m hlaup, 60 m grindahlaup, lang-
stökk, kúluvarp), Dagur Andri Ein-
arsson, FH (60 m hlaup, langstökk),
Vilhelmína Þ. Óskarsdóttir, Fjölni
(800 m hlaup), Valdimar Ingi Jóns-
son, Fjölni (800 m hlaup), Alfons
Sampsted, Breiðabliki (60 m grinda-
hlaup), Fríða Ísabel Friðriksdóttir,
UMSS (hástökk), Arnór Breki Ás-
þórsson, Aftureldingu (hástökk),
Hilmar Örn Jórunnarson, UFA
(kúluvarp).
HSK/Selfoss vann 4x200 m boð-
hlaup pilta og UFA vann í stúlkna-
flokki.
Árni Sæberg ljósmyndari
Morgunblaðsins leit við á mótinu og
tók meðfylgjandi myndir. vs@mbl.is
Hástökk Eyfirðingurinn Katrín Sigurðardóttir úr UMSE svífur yfir rána í keppni í 11 ára flokki stúlkna. Kúluvarp Björg Hermannsdóttir var eini keppandinn frá HSH. Hún stóð sig
vel í kúluvarpinu hjá 11 ára stúlkum og varð í 11. sæti af 35 keppendum.
Langstökk ÍR-ingurinn Agnes Kristjánsdóttir leggur alla orkuna í langstökkið. Hún varð í níunda sæti af 50 kepp-
endum í flokki 13 ára stúlkna.
Kúluvarp Þessi gaf ekkert eftir og einbeitti sér að því að kasta sem lengst.
Hvíld Þessar stúlkur ræddu málin í
rólegheitum þegar tækifæri gafst.
Grindahlaup Styrmir Dan Steinunnarson úr HSK/Selfossi og Reynir Zoéga Geirsson í hörðum slag í úrslitum 60
metra grindahlaups 13 ára pilta. Styrmir vann en þeir tveir unnu allar greinar í þessum aldursflokki, þrjár hvor.
FH stigahæst eftir
baráttu við ÍR
Þórdís og Irma sigursælastar á
Meistaramóti 11-14 ára í frjálsum
Morgunblaðið/Árni Sæberg