Morgunblaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2012
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Loðnuflotinn var í gær að veiðum á
Faxaflóa. Ólafur Einarsson, skip-
stjóri á Álsey VE, sagði að menn
hefðu farið að kasta eftir hádegið í
gær þegar lygndi. Þegar leið á dag-
inn fór aftur að hvessa og var spáð
brælu í nótt og fram eftir degi í
dag. Mikið er í húfi að veiða
loðnuna nú til að ná hrognunum.
„Það var ágætisveiði hér í dag
þegar menn fóru að kasta,“ sagði
Ólafur þegar rætt var við hann síð-
degis í gær. Hann kvaðst vona að
menn næðu í afla svo þeir gætu
landað í brælunni.
Víkingur AK var á leið á miðin í
gær eftir að hafa landað fullfermi,
1.350-1.400 tonnum, á Vopnafirði.
Magnús Þorvaldsson skipstjóri
sagði að farmurinn hefði skilað um
180 tonnum af hrognum sem þætti
gott. Hann reiknaði með að koma á
miðin í kvöld.
Hrognavinnsla fyrir Jap-
ansmarkað byrjaði í fyrrinótt hjá
Vinnslustöðinni í Vestmannaeyjum.
Sindri Viðarsson, sviðsstjóri upp-
sjávarsviðs, sagði unnið á vöktum
við loðnuvinnsluna. Þrír bátar voru
á leið til Eyja í gærkvöldi með afla
til Vinnslustöðvarinnar, þeir Sig-
hvatur Bjarnason VE, Ísleifur VE
og Kap II VE. Sindri sagði veð-
urspána næstu daga vera stærsta
höfuðverkinn þessa dagana.
„Það eru gloppur í þessu en öldu-
spáin er slæm. Það verður örugg-
lega talsverð kvika og það er erfitt
að kasta nót í mikilli kviku,“ sagði
Sindri. „Við hljótum að ná að slíta
þetta upp þegar dúrar á milli.“
Sindri vonaði að 10-14 dagar
gæfust til viðbótar til loðnuveiða
áður en loðnan legðist á botninn.
Veitt er fremst úr loðnugöngunni
en þar heldur þroskaðasta loðnan
sig.
Vilhjálmur Vilhjálmsson, deild-
arstjóri uppsjávarfisks hjá HB
Granda, sagði að allt væri á fullu í
loðnuvinnslum fyrirtækisins, bæði
á Akranesi og Vopnafirði. Hann
sagði óhætt að segja að rífandi
gangur hefði verið í loðnuveiðinni.
Að vísu hefði verið vont veður fram
eftir degi í gær og ekki veiðiveður,
en svo hefði ræst úr því og menn
farið að kasta.
Góð loðnuveiði en brælu
spáð á miðunum í dag
Ljósmynd/Börkur Kjartansson
Á loðnu Aflaskipið Víkingur AK landaði fullfermi af loðnu á Vopnafirði.
Loðnuflotinn að
veiðum á miðjum
Faxaflóa í gær
Skarphéðinn Berg Steinarsson, for-
stjóri Iceland Express og Jan
Cejka, forstjóri Holidays Czech
Airlines, undirrituðu í gær sam-
starfssamning á blaðamannafundi á
flugvellinum í Prag.
Samstarf þessara fyrirtækja
hófst í nóvember síðastliðnum og
sagðist Skarphéðinn vera ein-
staklega ánægður með samstarfið.
Hann lét þess getið að síðan þeir
hófu samstarf við tékkneska fyr-
irtækið hafi engin bilun komið upp
og öll þjónusta verið lýtalaus. Að
sögn Skarphéðins tryggir samning-
urinn Iceland Express yngsta flug-
vélaflota sem í boði er í áætl-
unarflugi til og frá Íslandi.
Samningurinn er gerður til eins
árs. Flugvélarnar sem Iceland Ex-
press mun fá frá Holidays eru Air-
bus A320 til farþegaflugs.
Iceland Express ætlar að hefja
beint flug til Tékklands í sumar og
það kom fram á blaðamannafund-
inum að verið væri að skoða hvort
ekki ætti að fljúga beint til Prag all-
an ársins hring. Forstjóri Holidays
Czech Airlines sagði að samning-
urinn væri þeim mikilvægur og
væri um það bil fjórðungur af allri
veltu fyrirtækisins.
Morgunblaðið/Börkur
Undirskrift í Prag Gunnar Pedersen, fjármálastjóri Iceland Express,
Skarphéðinn Berg, forstjóri Iceland Express, Jan Cejka, forstjóri Holidays
Czech Airlines, og Stanislav Zeman, framkvæmdastjóri flugvallarins í Prag.
Iceland Express sem-
ur við Holiday Czech
Heitir Rökkurrymur
Í Finni á fimmtudag var viðtal við
Kristínu Ólafsdóttur sem leikur í
sýningu Herranætur. Þar var leik-
ritið ranglega kallað Rökk-
urmyrkur. Hið rétta er að spuna-
verkið drungalega heitir
Rökkurrymur. Er beðist velvirð-
ingar á villunni.
LEIÐRÉTT
–– Meira fyrir lesendur
PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 5. mars.
FERMINGAR
Fermin
g
SÉRBLAÐ
Föstudaginn 9. mars kemur út
hið árlega Fermingarblað
Morgunblaðsins.
Fermingarblaðið hefur verið eitt af vin-
sælustu sérblöðumMorgunblaðsins
í gegnum árin og verður blaðið í ár
sérstaklega glæsilegt.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
MEÐAL EFNIS:
Veitingar í veisluna.
Mismunandi fermingar.
Fermingartíska.
Hárgreiðslan.
Myndatakan.
Fermingargjafir.
Fermingar erlendis.
Hvað þýðir fermingin?
Viðtöl við fermingarbörn.
Nöfn fermingarbarna.
Eftirminnilegar fermingargjafir.
Fermingarskeytin.
Boðskort.
Ásamt fullt af spennandi efni.
Laugavegi 53, s. 552 3737 – Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
Litrík vor/sumar 2012 Nýjar myndir
„Heilar“ peysur
Munstraðar og einlitar
Verð 5.900 kr.
Ríta Tískuverslun
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Eddufelli 2, sími 557 1730
www.rita.is