Morgunblaðið - 02.03.2012, Side 10
Morgunblaðið/Ómar
Hópurinn Katrín Þórey Ingadóttir, Þorsteinn Dagur Rafnsson, Gabríel Daði Vignisson og Karen Ösp Friðriksdóttir
með hönnun sína, matardiska fyrir yngstu kynslóðina sem fræða börnin á meðan þau matast.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Litlir munnar kallast fyrir-tæki sem hópur nemenda íFjölbrautaskólanum íGarðabæ stendur að baki.
Stofnun fyrirtækisins er hluti af
frumkvöðlafræðiáfanga sem kennd-
ur er í skólanum, en námið í áfang-
anum byggist á því að nemendur fái
hugmynd að vöru eða þjónustu og
stofni fyrirtæki í kringum hana.
Undir merki fyrirtækisins hannar
hópurinn barnamatardiska sem eru
skemmtilegir og fræðandi um leið.
Með ólíkan bakgrunn
Hópinn skipa þau Gabríel Daði
Vignisson, Karen Ösp Friðriksdóttir,
Katrín Þórey Ingadóttir og Þor-
steinn Dagur Rafnsson. Þau koma úr
ólíkum áttum og eru þrjú þeirra í
frumkvöðlafræði sem valfagi.
„Ég er á leiklistarbraut þannig
að við höfum ólíkan bakgrunn en
samvinnan hefur gengið vel. Hvert
og eitt okkar hefur getað nýtt sína
styrkleika í hópvinnunni og þannig
hefur verkaskiptingin gengið vel.
Ég hafði t.d. tekið einn mark-
aðsfræðiáfanga sem mér hefur fund-
ist nýtast mjög vel. Það er góð
reynsla að setja upp fyrirtæki á
þennan hátt og þurfa að sjá um allt
frá grunni. Við höfum séð að sumt
gengur einfaldlega ekki upp á meðan
aðrar hugmyndir eru framkvæm-
anlegar. Þetta er jú staðreyndin í
Litlir munnar borða
og fræðast um leið
Fyrirtækið Litlir munnar var stofnað af fjórum nemendum í frumkvöðlafræði-
áfanga við Fjölbrautaskólann í Garðabæ. Áfanginn snýst um að nemendur fái
hugmynd að vöru eða þjónustu og sjái um stofnun og rekstur fyrirtækis í kringum
hana. Nemendurnir í Litlum munnum hafa hannað matardiska fyrir yngstu kyn-
slóðina en börnin geta fræðst af diskunum um leið og þau borða.
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2012
Stella McCartney er einn hæfileikarík-
asti fatahönnuður Bretlands um þess-
ar mundir. Hún er þekkt fyrir að hanna
fatnað með kvenlegum línum en í
rokkuðum stíl. Vefsíðan The Outnet,
www.theoutnet.com, er síða þar sem
fólki býðst að kaupa vörur þekktra
hönnuða á borð við Stellu McCartney,
Alexander McQueen, Vivienne
Westwood og fleiri á niðursettu verði.
Hver hönnuður hefur sína síðu á vef
The Outnet. Sá galli fylgir þó gjöf
Njarðar að það virðist ekki vera hægt
að fá vörurnar sendar til Íslands. En
engu að síður má gleðja augu fag-
urkera með þessum myndum af hönn-
un þekktustu fatahönnuða heims. Á
vef Stellu McCartney má sjá ýmsan
flottan fatnað, töskur og skó. Meðal
helstu aðdáenda McCartney má nefna
leikonuna Kate Winslet og fyrirsætuna
Kate Moss sem er jafnframt góð vin-
kona hönnuðarins.
Vefsíðan www.theoutnet.com
Tískusýning Bítillinn faðir Stellu MaCartney fagnar sýningu hennar ákaft.
Stella McCartney fyrir augað
Barnaleiðsögn verður í Þjóðminjasafni
Íslands sunnudaginn 4. mars kl. 14:00
fyrir börn á aldrinum 8-11 ára. Stein-
unn Guðmundardóttir safnkennari
mun ganga með börnunum gegnum
grunnsýningu Þjóðminjasafnsins
„Þjóð verður til – menning og sam-
félag í 1200 ár“. Ferðalagið hefst á
slóðum landnámsmanna á 9. öld. Það-
an liggur leiðin gegnum sýninguna og
1200 ára sögu þjóðarinnar fram til nú-
tímans. Ýmsir spennandi munir á
safninu verða skoðaðir, meðal annars
beinagrindur, 1000 ára gömul sverð
og dularfullur álfapottur. Leiðsögnin
er um 45 mínútur að lengd.
Endilega…
…njótið safn-
leiðsagnar
Leiðsögn Börnin fá að njóta sín.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Að tjá sig um femínisma í dag er að
feta hálan ís. Það er sorglegt að nú
sé svo komið að maður hugsar sig
tvisvar um áður en maður leggur
innlegg sitt í umræðuna og spyr sig
fyrst: „Á ég að nenna að taka slag-
inn? Skilar þetta einhverju?“ Þökk
sé þeim femínistum, konum og körl-
um, sem heyja baráttuna og velja að
taka höggin þrátt fyrir allt.
Mér virðist stundum sem rétt-
indabarátta kvenna hafi verið sett á
hliðarlínuna í hildarleik femínista og
andstæðinga þeirra, sem oftar en
ekki er háður í netheimum. Í orrust-
unni um tilverurétt femínismans
höfum við gleymt hvers vegna stríð-
ið var háð.
Þó held ég að aðalágreiningurinn
snúist enn um þá grundvallarspurn-
ingu hvort jafnrétti kynjanna
sé staðreynd. Ég held að
mörgum þyki nóg komið,
að nóg hafi verið að gert,
að við eigum við önnur og
stærri vandamál að
etja en það hvort
það er grænn
karl eða kona
sem býður
okkur að
ganga yfir
gang-
brautina.
„Helvítis
fem-
ínistadrusla!
Helvítis kjaftæði!“
Femínistar finnast í
öllum stærðum og gerð-
um og það er fráleitt að
ætla að setja þá alla undir sama hatt.
Þeir eiga það þó sameiginlegt að
vilja meira fyrir konur. Hann hvorki
vill heyra né sjá, sá sem heldur því
fram að jafnrétti hafi verið náð. Að
konur hafi jöfn laun á við karla, að
þær hafi jafnt aðgengi að stjórn-
unarstöðum, að raddir þeirra heyrist
jafn hátt og raddir karla. Kynferð-
isleg áreitni, útlitsdýrkun, klámvæð-
ing; svona mætti lengi telja. Víg-
stöðvarnar eru ótal margar.
Jafnréttisbaráttan verður ekki
unnin á netinu. Hún verður unnin í
raunheimum af því að skynsamt
fólk hlustar á skynsamleg rök og
tekur skynsamlegar ákvarðanir.
En þökk sé þeim sem
nenna og hrópa og
gera og benda á það
sem er ekki í
lagi. Þeirra
verður sig-
urinn en
upp-
skeran
okkar
allra.
»Hann hvorki vill heyrané sjá, sá sem heldur
því fram að jafnrétti hafi
verið náð.
HeimurHófíar
Hólmfríður
Gísladóttir
ÆTLAR ÞÚ
AÐ BREYTA
UM LÍFSSTÍL?
HEILSULAUSNIR - Hentar einstaklingum sem
glíma við offitu, hjartasjúkdóma og/eða sykursýki.
• Mán., mið. og fös. kl. 6:20, 10:00, 14:00, eða 19:30.
• Hópþjálfun 16-25 ára á mán., mið. og fös. kl. 18:30.
• Hefst mánudaginn 12. mars.
Betri heilsa borgar sig!
Faxafeni 14 · Sími 560 1010 · heilsuborg.is
„Ég var búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó nokkurn tíma og var búin
að vera að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað í mínum málum. Ég er búin með
grunnnámskeið í Heilsulausnum og er núna á framhaldsnámskeiðinu. Ég hef náð góðum
árangri, náð að losna við mörg kíló og er bara svo miklu hressari og með miklu meiri
orku. Maður verður að vilja gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það að megra
sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma sér í gott líkamlegt og andlegt form.“
Helga
Einarsdóttir