Morgunblaðið - 02.03.2012, Qupperneq 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2012
Tekin er til starfa ný dægradvöl
aldraðra í Kópavogi, sem Sjó-
mannadagsráð, eigandi Hrafnistu-
heimilanna, og Kópavogsbær
sömdu um í janúar síðastliðnum.
Það var Ingibjörg Þórunn Jóhanns-
dóttir, íbúi í Boðaþingi, sem klippti
á vígsluborðann s.l. þriðjudag
ásamt Ármanni Kr. Ólafssyni, bæj-
arstjóra Kópavogs, og Guðmundi
Hallvarðssyni formanni Sjó-
mannadagsráðs.
Nú þegar hefur allnokkur fjöldi
verið skráður í dægradvölina, en
alls er gert ráð fyrir að um níutíu
manns geti nýtt sér þjónustuna í
heild í viku hverri, þar sem hver og
einn getur sótt hana tvisvar til
þrisvar í viku. Dægradvölin í Boða-
þingi léttir verulega á brýnni þörf
fyrir dægradvöl í Kópavogi, en fyr-
ir hafa Kópavogsbúar haft dagvist-
arúrræði í Sunnuhlíð. Þetta er eitt
af þeim úrræðum sem boðið er upp
á til að fólk geti búið sem lengst
heima.
Ný dægradvöl aldr-
aðra opnuð í Boða-
þingi í Kópavogi
Bláfjallagangan 2012 fer fram við
skála Ullunga við Suðurgilslyftuna í
Bláfjöllum á morgun, laugardag kl.
13. Henni verður frestað til sunnu-
dags ef veður verður óhagstætt. Nú
er óvenjumikill snjór í Bláfjöllum og
færi gott. Bláfjallaganga er liður í Ís-
landsgöngunni, almenningsmótaröð
Skíðasambands Íslands. Gangan er fyrir allan almenning og eru trimm-
arar, ferðaskíðafólk og þeir kappasamari hvattir til að taka þátt og gera
gönguna að hápunkti skíðavertíðarinnar í Bláfjöllum. Þess er vænst að
hátt í 100 manns taki þátt því allir finna vegalengdir við hæfi og ljóst er að
áhuginn á skíðagöngu fer stöðugt vaxandi. Æskilegt er að fólk skrái sig í
gönguna á heimasíðu Ullunga, www.ullur.is, fyrir kl. 18 á föstudag.
Búist við góðri þátttöku í Bláfjallagöngunni
Mannréttindaskrifstofa Reykjavík-
urborgar og MARK – miðstöð
margbreytileika og kynjarann-
sókna við Háskóla Íslands standa að
útgáfu bæklings sem nefnist „Klám-
væðing er kynferðisleg áreitni“.
Í tilefni útgáfunnar verður haldin
kynning í Ráðhúsi Reykjavíkur,
föstudaginn 2. mars kl. 14:30.
Í upphafi flytur Jón Gnarr borg-
arstjóri ávarp. Thomas Brorsen
Smidt flytur erindið „Klámvæðing
er kynferðisleg áreitni,“ en hann er
höfundur efnisins. Þorgerður Ein-
arsdóttir, prófessor í kynjafræði,
flytur erindið „Þó fyrr hefði verið“.
Allir eru velkomnir. Bækling-
urinn er á íslensku og ensku og mun
verða aðgengilegur á vef borg-
arinnar og Háskóla Íslands.
Kynna bækling
Árleg byssusýning Veiðisafnsins á
Stokkseyri verður laugardag og
sunnudag 3.-4. mars klukkan 11-18
báða dagana í húsakynnum Veiði-
safnsins á Eyrarbraut 49 á Stokks-
eyri. Þar er fjöldi uppstoppaðra
villtra dýra til sýnis.
Fjölbreytt úrval skotvopna verð-
ur á sýningunni, bæði úr eigu Veiði-
safnsins og úr einkasöfnum. Þar á
meðal eru herrifflar, sérsmíðuð
skotvopn og veiðihnífar svo og
gamlar íslenskar haglabyssur.
Byssusýning
STUTT
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Nýliðinn febrúarmánuður var mjög
umhleypingasamur og hlýr. Hlýind-
in voru að tiltölu mest austanlands
þar sem hiti á Fljótsdalshéraði var
meira en fjórum stigum ofan með-
allags. Úrkoma var mikil um allt
sunnan- og vestanvert landið og var
á stöku veðurstöð meiri heldur en
hún hefur áður mælst í febrúar.
Þetta kemur fram í yfirliti Trausta
Jónssonar veðurfræðings.
Meðalhiti í Reykjavík var 2,6 stig
og er það 2,2 stigum ofan við með-
allag. Þetta er áttundi hlýjasti febr-
úar sem vitað er um í Reykjavík. Á
Akureyri var meðalhitinn 2,3 stig,
3,8 stigum ofan við meðallag og er
mánuðurinn sá fimmti hlýjasti frá
upphafi samfelldra mælinga á Ak-
ureyri. Á Höfn í Hornafirði var með-
alhitinn 3,7 stig og -2,4 á Hveravöll-
um.
Hæsti meðalhiti mánaðarins
mældist í Surtsey, 4,6 stig, þar á eft-
ir komu Vestmannaeyjabær og
Kvísker með 4,1 stig. Lægstur var
meðalhitinn á Þverfjalli -4,0 stig,
næstlægstur var meðalhitinn í Sand-
búðum, -3,8 stig. Lægsti meðalhiti í
byggð var -1,0 stig í Svartárkoti.
Hæsti hiti mánaðarins mældist
14,8 stig á Teigarhorni þann 14. Á
mannaðri stöð mældist hæsti hitinn
á Sauðanesvita þann 7., 13,4 stig.
Lægsti hiti mánaðarins mældist á
Sátu þann 18. og á Setri þann 20.,
-18,2 stig. Mest frost í byggð mæld-
ist við Mývatn þann 20, -15,9 stig.
Lægsta lágmark á mannaðri stöð
mældist -11,7 stig. Það var í Staf-
holtsey þann 18.
Í yfirliti Trausta kemur fram að
eitt dægurlandshámarkshitamet
hafi verið slegið í mánuðinum þegar
hiti fór í 14,8 stig á Teigarhorni við
Berufjörð þann 14. Gamla metið var
13,0 og var sett á Sandi í Aðaldal ár-
ið 2004.
Mjög úrkomusamt var á Suður-
og Vesturlandi en úrkoma í með-
allagi eða lítillega minni en það um
landið norðaustanvert.
Í Reykjavík mældist úrkoman 135
millimetrar og er það um 90% um-
fram meðallag. Úrkoma í febrúar
hefur alloft mælst meiri en þetta í
febrúar, síðast 2008. Úrkoma mæld-
ist 40,2 mm á Akureyri og má það
heita í meðallagi.
Endanlegt uppgjör liggur ekki
fyrir víðar en svo virðist sem mán-
aðarúrkomumet fyrir febrúar hafi
verið slegin á nokkrum stöðvum. Á
stöðvum sem athugað hafa í 20 ár
eða meir var meiri úrkoma í febrúar
nú heldur en dæmi eru um áður:
Í Stafholtsey, á Brekku í Norður-
árdal, Hjarðarfelli á Snæfellsnesi,
Vík í Mýrdal, Vatnsskarðshólum og
Hjarðarlandi í Biskupstungum. Í
Vík hefur úrkoma verið mæld linnu-
lítið frá 1926. Vindhraði í byggð var
rétt undir meðallagi í mánuðinum.
Bráðabirgðaniðurstöður virðast gefa
til kynna að mesti 10 mínútna með-
alvindhraði hafi mælst á Gagnheiði
þann 14., 33,7 m/s, en mesta hviða
hafi mælst á Miðfitjahól á Skarðs-
heiði þann 2., 55,4 m/s.
Úrkomumetin voru víða slegin
Nýliðinn febrúarmánuður var mjög umhleypingasamur og hlýr Í Vík í Mýrdal hefur úrkoman
ekki mælst meiri síðan mælingar hófust 1926 Í Reykjavík var úrkoman 90% umfram meðallag
Morgunblaðið/Sigurgeir S.
Rok og rigning Það kom oft fyrir að regnhlífar dugðu ekki í vindinum.
Lítið sást til sólar í febrúar. Sól-
skinsstundir í Reykjavík mæld-
ust 37 og er það 15 stundum
undir meðallagi. Ámóta sól-
arlítið var síðast 2005.
Á Akureyri mældust sólskins-
stundirnar 38,6 og er það
tveimur stundum yfir með-
allagi.
Þá var fremur snjólétt á land-
inu lengst af. Alhvítir dagar
voru sjö í Reykjavík og er það
þremur dögum færra en í
meðalári (1961 til 1990). Á Ak-
ureyri voru alhvítu dagarnir
einnig sjö og er það 13 dögum
undir meðallagi sem verður að
teljast afar mikið.
Meðalloftþrýstingur í Reykja-
vík mældist 1003,7 hPa og er
það 1,1 hPa yfir meðallagi
Snjólétt var
og sólarlítið
SÓLARSTUNDIR AÐEINS 37
Ráðstefna á Grand Hótel,
laugardaginn 3. mars kl. 10:30
• Viðfangsefni ráðstefnunnar er að skýra hvaða áhrif það hefði að taka upp annan gjaldmiðil
á Íslandi. Fjallað verður um upptöku Kanadadollars með tvíhliða samningum við þarlend
stjórnvöld eða með einhliða upptöku.
• Hver yrðu áhrif á ríkisfjármál, peningamálastjórn, verðtryggingu, vexti, verðlag, erlenda sem
innlenda fjárfestingu, afnám gjaldeyrishafta og svo framvegis.
• Er líklegt að upptaka annars gjaldmiðils yrði í heild sinni farsæl og þjóðinni til hagsbóta.
10.30 Setning
Sendiherra Kanada á Íslandi Alan Bones og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins
11.00 Frummælendur verða:
• Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
• Ólafur Ísleifsson, lektor við viðskiptadeild Háskólans í Reykjavík
• Ársæll Valfells, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
12.00 Hádegishlé. Súpuspjall.
12.30 Pallborð og spurningar úr sal.
Vigdís Hauksdóttir, alþingismaður, stjórnar pallborði og tekur saman niðurstöðu
ráðstefnunnar.
13.30 Ráðstefnulok.
Ráðstefnustjóri er Dr. Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Júpíters rekstrarfélags.
Stjórn peningamála og gjaldmiðlamál eru stærstu mál samtímans
og snerta alla þætti daglegs lífs Íslendinga.
Aðgangur ókeypis. Grand Hótel selur súpu eða hádegisverð á sanngjörnu verði.
Allir hjartanlega velkomnir!
Framsóknarfélag Reykjavíkur
Er annar gjaldmiðill
lausnin?
DAGSKRÁ