Morgunblaðið - 02.03.2012, Blaðsíða 18
18
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2012
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Skaginn hf. á Akranesi og Kæli-
smiðjan Frost ehf. á Akureyri
gengu í gær frá sölu á stórri verk-
smiðju til vinnslu og frystingar á
uppsjávarfiski til Færeyja. Verk-
smiðjan mun afkasta 600 tonnum á
sólarhring til að byrja með en verð-
ur síðan stækkuð í 1.000 tonna af-
köst. Vinnslukerfið byggist á ís-
lenskri tækni sem þróuð hefur verið
hjá Skaganum, íslenskum uppsjáv-
arvinnslum og Matís síðustu 10-12
árin.
Þetta er fyrsta vinnslulína þess-
arar gerðar sem seld er úr landi.
Sambærilegar vinnslulínur eru í
notkun í vinnsluhúsum fyrir upp-
sjávarfisk víða hér á landi. Tæknin
sem Skaginn beitir sparar
mannafla, raforku og notar ódýrari
umbúðir en vinnslulínur erlendra
keppinauta, að sögn Ingólfs Árna-
sonar, framkvæmdastjóra Skagans.
Útflutningsverðmæti verkefnisins
er hátt í þrír milljarðar króna og
mun það skila 250-300 milljónum
króna skatttekjum til ríkis og sveit-
arfélaga.
Eina alsjálfvirka vinnslukerfið
Kaupandi verksmiðjunnar er fær-
eyska uppsjávarfyrirtækið Varðin
Pelagic P/F sem var stofnað sér-
staklega um verksmiðjuna. Það er
dótturfélag Varðin P/F úr Gøtu og
Delta Seafood P/F. Varðin P/F ger-
ir út fjögur uppsjávarskip, þ.e.
Tróndur í Gøtu, Finnur Fríði, Jupi-
ter og Saksaberg. Verksmiðjan
verður sett upp á Tvøroyri á Suður-
ey. Varðin P/F er nú með um helm-
ing af öllum uppsjávarkvóta Fær-
eyinga, að sögn Ingólfs.
Verksmiðjan er að mestu sjálf-
virk. Starfsmennirnir fást aðallega
við stjórnun og eftirlit. Verksmiðjan
stærðarflokkar hráefnið og þaðan
fer það í hausun eða flökun, nema
fiskurinn sé heilfrystur óskorinn.
Vinnslulínan vigtar hæfilega
skammta í pokavélar. Úr þeim fara
fylltir og lokaðir pokar í sérhannaða
plastbakka. Bakkarnir renna sjálf-
krafa inn í risavaxna frystiskápa.
Frosnar blokkirnar fara í pökk-
unarvélar sem setja þær í kassa og
loka. Kassarnir raðast sjálfvirkt á
vörubretti. Þegar brettin eru full er
þeim pakkað inn í plast.
„Það er enginn að handfjatla fisk-
inn en starfsfólkið passar flæðið í
vinnslunni. Þetta er eina vinnslu-
kerfið fyrir uppsjávarfisk í heim-
inum sem er sjálfvirkt,“ sagði Ing-
ólfur. Ekki skiptir máli hvort verið
er að vinna síld, loðnu, makríl eða
kolmunna. „Þetta íslenska kerfi er á
vissan hátt einstakt. Við vonumst
eftir að geta smíðað fleiri heild-
arkerfi til útflutnings. Við höfum
áður selt hluta úr kerfum til útlanda
en aldrei fyrr heilar vinnslulínur.“
Ingólfur sagði að aðalmunurinn á
uppsjávarvinnslulínu Skagans og
línum keppinautanna væri sá að
Skaginn notaði plötufrysta meðan
aðrir beittu blástursfrystingu.
Frystitækin sem Skaginn notar eru
smíðuð hjá systurfyrirtækinu Þor-
geiri og Ellert á Akranesi.
„Við keyptum verksmiðju til að
smíða plötufrystana frá Ítalíu fyrir
tveimur árum og tókum hana hing-
að heim. Við breyttum frystunum
töluvert og náum nú sömu gæðum
og blástursfrystingin hvað varðar
pressu á vöru en frysting okkar er
mun hraðari,“ sagði Ingólfur.
Vinnslulínur frá Skaganum eru nú
notaðar í íslenskum uppsjáv-
arfrystihúsum. Þar má nefna HB
Granda á Vopnafirði, Síldarvinnsl-
una í Neskaupstað, Skinney-
Þinganes á Höfn í Hornafirði, Ís-
félag Vestmannaeyja, Vinnslustöð-
ina í Vestmannaeyjum og Saltver í
Keflavík. Skaginn hefur einnig sett
minni vinnslulínur um borð í nokkur
skip sem vinna aflann. Reynsla
Morgunblaðið/RAX
Undirritun Það ríkti gleði í smiðju Skagans á Akranesi í gær þegar samningurinn við Varðin Pelagic P/F um söluna á vinnslulínum nýju verksmiðjunnar sem rísa á á Suðurey var undirritaður.
F.v.: Árni Ingólfsson, Jónmundur Ingólfsson, Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri Skagans, Bogi Jacobsen, framkvæmdastjóri Varðin Pelagic, Jogvan Hansen og Marnes Lisberg.
Fullkomin fiskverksmiðja
Varðin Pelagic P/F í Færeyjum hefur samið við Skagann og Kælismiðjuna Frost um kaup á stórri
verksmiðju til vinnslu og frystingar uppsjávarafla Útflutningsverðmætið er hátt í þrír milljarðar
Morgunblaðið/RAX
Skaginn Það liggur mikil þróunarvinna að baki vinnslulínum Skagans. Búnaðurinn hefur verið þróaður í samvinnu við íslensk sjávarútvegsfyrirtæki.
Fjöldi fyrirtækja víða um landið, m.a. á Akranesi, Akureyri, Ísafirði, Siglufirði og í Garðabæ, kemur að smíði